Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2001, Síða 23
27
ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001
J>V Tilvera
ŒHl
Steve Martin
Gamanleikarinn
Steve Martin er fæddur
í Vaco í Bandarikjrmum
14. ágúst 1945. Sem ung-
lingur starfaði Martin
sem vikapiltur í Disney-
landi og þar lærði hann
ýmislegt sem átti eftir
að koma sér vel á leiklistarferlinum.
Hann þykir t.d. laginn steppdansari og í
að móta flgúrur úr blöðrum. Steve lauk
námi frá UCLA með gráðu í sálfræði og
leiklist. Meðal vinsælla mynda sem
hann hefur leikið í má nefna Bowfinger,
Fantasia 2000, Housesitter, Leap of Faith
og My blue Heaven.
i viuuiqinn
<C
Gildir fyrír mibvikudaginn 15. ágúst
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l:
. Mál þin þróast áfram
og staða þin á vinnu-
markaði batnar
skyndilega. Viðræður,
sem þú tekur þátt í, reynast
gagnlegar.
Fiskarnlr (19, febr.-20. mars):
Nú er rétti tíminn til
(að hrinda nýjum hug-
mynduin i framkvæmd
og lita opnum huga á
aðstæður. Tilfmningamálin eru í
góðu jafnvægi.
Hrúturinn (21. mars-19. anrih:
. Einhvað sem þú gerir,
’ að þér finnist á hefð-
bundinn hátt leiðir af
sér að þú kemst í sam-
bönd sem þig óraði ekki fyrir.
Ekki lána peninga.
Nautið (20. april-20. maíl:
Einhver hætta virðist
á að félagar þínir lendi
upp á kant og þú gætir
__ dregist inn í deilur.
Gættu eigna þinna vel.
Happatölur eru 5, 23 og 36.
Tvíburarnir (21. maí-2i, iúníi:
Þú ert eitthvað óviss
' varðandi einhverja
hugmynd sem þú þarft
að taka afstöðu til.
Láttu í þér heyra og það kann að
auðvelda þér að taka ákvörðun.
Krabbinn (22. iúní-22. iúiíir
Þú ert mjög samvinnu-
| þýður um þessar
niundir og ættir að
foröast að samþykkja
hvað~sem er. Ekki láta ómerkilegt
mál spilla annars ágætum degi.
UÓnið (23. iúlí- 22. ágúst):
Notaðu hvert tækifæri
til þess að komast upp
úr hefðbundnu fari.
Lífið er til þess að láta
sér líða vel en ekki bara strita og
strita.
Mevlan (23. ágúst-22. seot.):
/w Tilhneiging þín til að
gagnrýna fólk auðveld-
\\^ft*ar þér ekki að eignast
' ! vini eða halda þeim
sem fyrir eru. Sýndu þess vegna
þolinmæði hvað sem á dynur.
Vogin (23. sept.-23. okt.i:
J Þú ert í fremur erfiðu
Oy skapi í dag. Þess vegna
V f ættir þú að forðast að
r f rökræða við fólk.
Vináttusamband gengur f
gegnum erfitt timabil.
Sporðdreki (24. okt.-21. nóv.l:
Þú veltir þér einiun of
mikið upp úr vanda-
jmálum þínum eða ein-
hvers þér nákomins. Ef
þér tekst að njóta hvlldar einhvem
hluta dagsins gengur allt betrn-.
Bogamaður (22. nóv.-21. des.):
.Þú nýtxu- þín einstaklega
rvel ef þú ert á ferðalagi
eða að skipuleggja ferða-
lag, þó gætu minniháttar
vandkvæði skotið upp kollinum.
Happatölur eru 8,17 og 27.
Stelngeitin (22. des.-19. ian.i:
Það verður ekki auð-
velt að fylgja fyrirfram
ákveðnum áætlunum
og raunar ættir þú
ekki að reyna það að svo stöddu.
Fundur reynist gagnlegur.
Vespueigendur stofna félag:
Vinveittar vespur
Margir ráku upp stór augu á laug-
ardaginn þegar hópur fólks á vespum
(bifhjólunum) ók fylktu liði niður
Laugaveginn. Sjálfsagt hefur einhver
haldið að menn væru að taka forskot
á Gay Pride gönguna sem fram fór
stuttu síðar en svo var þó ekki. Þarna
voru á ferð meðlimir í Félagi vespu-
eigenda á íslandi en sá félagsskapur
var formlega stofnaður á laugardag-
inn. Stofnfélagar voru 12 en að sögn
Helgu Ólafsdóttur, formanns félags-
ins, eru skráðir vespueigendur hér á
landi á sjöunda tug. Hefur þeim fjölg-
að mikið að undanförnu og er óhætt
Hópreið niður Laugaveginn
Helga Ólafsdóttir gælir viö þá hug-
mynd aö gera hðpreiöina aö ár-
vissum viðburöi í starfsemi félags-
ins sem jafnvel megi tengja Gay
Pride-göngunni. „ Viö gætum jafn-
vel klætt okkur upp í svarta og
gula vespubúninga, “ segir hún viö
misjafnar undirtektir félaga sinna.
Oskar og Helga
Óskar Jónsson vespuinnflytjandi og Helga Ólafsdóttir, formaöur Félags
vespueigenda, segja aö fólk sýni vespunum dulda aödáun.
Sá elsti á níræðisaldri
Óskar Jónsson hjá Evró hóf að
flytja inn vespur fyrr á þessu ári og
hefur þegar selt um þrjátíu stykki.
Segir hann kaupendahópinn vera afar
breiðan og á öllum aldri. „Elsti mað-
urinn sem er að skoða vespu og er
hugsanlega að festa kaup á einni, er
82 ára gamall og hann ætlar að nota
þetta sem sitt farartæki," segir Óskar
og bætir við aö vespueigendur skiptist
í nokkrar týpur og það fari svolítið
eftir týpunni hvernig hjól menn velji
sér.
Vepur hafa lengi verið vinsælar í
Suður-Evrópu, sérstaklega á Spáni, í
Frakklandi og í heimalandinu Ítalíu.
Segir Óskar Jónsson líka að ástæðan
fyrir auknum vinsældum hjólanna
hér á landi sé öðrum þræði löngun í
suðræna sælu. „Maður notar þetta
náttúrlega ekki í hálkunni á veturna,"
segir Óskar. „Maður notar þetta í
Ein gömul og góð
Friörik Kaldal Ágústsson á vespu ár-
gerö 1968 sem hann geröi upp meö
aöstoö góöra manna. „ Hjóliö var al-
veg strípaö þegar ég fékk þaö. Þaö
var ekki gangfært, ryögaö og Ijótt, “
segir Friörik sem lauk uppgeröinni
síðasta sumar eftir að hafa dundaö
viö hana meö hléum í þrjú ár.
vinnuna, fer einn rúnt niður í bæ með
félögunum, kíkir á einhvem veitinga-
stað og fær sér eitthvað létt að borða.
Það er viss stemning sem fylgir
þessu,“ segir Óskar og félagar hans
taka undir það. -EÖJ
Vespueigendur stilla sér upp til myndatöku ásamt hjólunum sínum. Eins og sjá má fer ekki mikiö fyrir þessum farar-
tækjum þar sem tólf vespur komast í tvö bílastæöi.
að segja að vespur séu komnar í tísku
hér uppi á landinu bláa eins og reynd-
ar víða annars staðar.
Starfsemi félagsins er enn í mótun
en auk þess að standa fyrir hópreið-
um og ferðum út um hvippinn og
hvappinn mun það beita sér fyrir
hagsmunamálum vespueigenda, svo
sem lækkun iðgjalda. „Svona klúbbur
getur líka komið sér vel fyrir þá sem
eiga kannski hjól inni í bílskúr og
hafa áhuga á að gera það upp. Þá get-
um við miðlað upplýsingum um hvar
sé hægt að ná í varahluti, viðgerða-
þjónustu og annað slíkt,“ segir Frið-
rik Kaldal Ágústsson vespueigandi.
DV-MYND GVA
Leikfimi á hálendinu
Birgir og Stefán gera æfingar á fallegum lækjarbakka í Beinadal. Ekki
veitti af - þeir búnir aö ganga langt og enn lengri ganga fyrir höndum.
/fySjKOMNN
VW/ I MJODD
Þarabakka 3,109 Reykjavík
Kennsla hefst að loknu sumarleyfi miðvikudaginn 15. ágúst.
Kennsla á leigu-, vöru- og hópbifreið og vömbifreið með
eftirvagn.Hægt er að hefja nám alla miðvikudaga. (Afangakerfi)
Endurbætt kennsluaðstaða.
Reyndir kennarar og góðir kennslubílar.
Aukið við atvinnumöguleikana.
Hringið eða komið og leitið upplýsinga
E-mail okusk.mjodd@simnet.is