Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2001, Qupperneq 24
28
ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001
Tilvera DV
í f iö
I I P, VI N II IJ
Kvöldganga
í Viðey
Eins og venjulega hefst ferðin á
siglingu yfir sunið klukkan 19.30.
Gangan hefst við Viðeyjarkirkju
og verður farið þaðan á slóðir
Milljónafélagsins svokallað, en
það stofnaði útgerð á austurenda
eyjunnar í byrjun síðustu aldar. Þá
verður einni kíkt inn á sýninguna
Klaustur á íslandi sem gamla
skólahúsið í þorpinu hýsir, fjaran
gengin og náttúrunnar notið.
Leiðsögnin er endurgjaldslaus en
greiða verður fyrir farið í ferjuna.
Kirkjuferö
KIRKJUFERÐ í HAFNARFIRÐIT
kvöld klukkan 19.00 veröur boöið
upp á Kirkjuferð meö Erlu Stefáns-
dóttur í Hafnarfiröi. Lagt veröur af
staö frá Vesturgötu 8. Heimsóttar
veröa kirkjur í Hafnarfiröi og
nágrenni. Haldiö veröu út að
Göröum, kirkjan skoðuö og rifjuö
upp sagan. Blessaö yfir þeim er
hafa verið kvaddir á þessum staö.
Jafnvel sungiö, hugleitt og beðiö fyrir
landi og þjóö. Hægt væri aö ná til
huldufólksins er byr þarna í holtinu
og biöja um jafnvægi milli þeirra og
mannfólksins á öllu nesinu. Nánari
upplýsingar eru veittar í Upplýsinga-
miöstöö Hafnarfjaröar.
Rokk og ról
flLRAUNKENNT ROKK OG RÓL Það
verður tilraunakennt rokk og ról á
Gauknum í kvöld en þar kom fram
Spontanious Human Combustion,
Future Fx og Dr. Spock. Húsið
opnað kl. 21.00 og þaö kostar 500
krónur inn. Það er 18 ára
aldurstakmark og glaöningur frá
Budweiser fylgir fyrstu 100
miöunum.
Myndlist
SÝNING í SLUNKARÍKI Hlíf
Asgrimsdóttir opnaði á laugardag
einkasýningu sína, Innihorn, í
Slunkariki a ísafiröi. Þar sýnir hún
þrjú Ijósmyndaverk sem fjalla um
horn í lofti, veggjum og gólfi í
kjallara Slunkarikis. Einnig sýnir Hlíf
níu vatnslita/ljósmynda-verk þar
sem borið er saman horn í
vínkjallaranum og horn í
hversdagslegum heimilisskáp.
Listakonan segir í sýningaskrá að
eftir umhugsun hafi kviknað hjá
henni hugmynd um að taka
Ijósmyndir af látlausum en jafnframt
heimilislegum staö og bera saman
viö vatnslitamyndir af öllu
innanstokks í kjallara Slunkarikis.
MYNDLIST OG UÓÐ í LISTHÚSINU í
LAUGARDAL Þessa dagana sýnir
Anna Hrefnudóttir, myndlistarkona
málverk og Ijóö, í Listacafé og
Veislugallerí. Á sýningunni eru
akrýlmálverk sem öll eru máluö á
þessu ári. Flest verkin voru gerö I
gestavinnustofu Gilfélagsins á
Akureyri sl. vetur en þar dvaldi Anna
í boði félagsins 1. jariúar til 14.
febrúar og lauk þeirri dvöl með
sýningu I Deiglunni. Sýningin er opin
alla virka daga frá klukkan 9 til 19
og laugardaga frá klukkan 10 til 19.
Henni lýkur 31. ágúst
næstkomandi.
ERNA GUÐMARS í SNEGLU
LISTHUSI Frá þvi 3. ágúst
síöastliöinn hefur Erna Guðmars-
dóttir kynnt verk sín í giuggum
Sneglu listhúss. Sýndar eru
vatnslitamyndir og myndir málaðar á
silki. Erna sækir myndefni sitt í
veöurfar og blæbrigöi íslenskrar
náttúru. Snegla listhús á tíu ára
afmæli í haust og munu sneglur þá
efna til samsýningar af því tilefni.
Snegla listhús er á horni Grettisgötu
og Klapparstígs og lýkur kynningunni
á verkum Ernu 19. ágúst.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Kennarar orðsins
í Kópavogi
- árvisst landsmót Votta Jehóva
Um 400 vottar Jehóva víða af land-
inu komu saman í Iþróttahúsi Digra-
ness um helgina og héldu árlegt lands-
mót sitt. Vottamir halda þijú mót á ári
þar sem saman koma saínaðarfélagar
af öllu landinu og er landsmótið þeirra
stærst. Dagskráin var þéttskipuð alla
þijá dagana en hún samanstóð meðal
annars af tónlist og bænagjörð, auk
hefðbundinna viðtala og fyrirlestra.
„Það sem er athyglisvert er að það er
nánast sama dagskráin alls staðar í
heiminum. Það eina sem er frábrugðið
eru viðtölin því að þau geta tengst stað-
háttum," segir Jóhann Sigurðsson,
mótsstjóri landsmótsins.
Að sögn Svanbergs K. Jakobssonar,
kynningarfulltrúa Votta Jehóva, er til-
gangur landsmótsins fyrst og fremst að
KENNARAR OUÐSINS
Vlötal
Viötöl viö safnaöarfélaga eru al-
geng á samkomum vottanna. Þar
stíga venjulegir safnaðarfélagar á
svið og ræöa viö umsjónarmann
um ýmislegt er viökemur trúnni og
boöun hennar, svo sem hvernig
gangi að tifa í samræmi viö kenn-
ingar Biblíunnar, hvernig boöunar-
starfiö gangi og fleira í þeim dúr.
Mótsstjórinn og kynningarfulltrúinn
Jóhann Sigurösson og Svanberg Jakobsson í íþróttahús-
inu í Digranesi þar sem landsmót Votta Jehóva fór fram
um helgina. Mótiö var liöur í mótaröö vottanna sem nær
um allan heim.
veita fræðslu. „Þetta er liður í alþjóð-
legri fræðslu hjá okkur. Við erum með
mótaröð úti um ailan heim. Það eru sex
milljónir votta í heiminum og þeir
sækja allir mót af þessu tagi og þau eru
haldin til að kenna og fræða. Þar eru
veittar leiðbeiningar um það að stunda
trúna,“ segir Svanberg og bætir við að
yfirskrift mótsins i ár sé einmitt Kenn-
arar orðsins. „Þar er verið að leggja
áherslu á hiutverk okkar sem kennara
en eins og allir vita þá er trúboð snar
þáttur í starfi okkar,“ segir Svanberg
Jakobsson.
Gengið hús úr húsi
Boðunarstarf vottanna byggist að
miklu leyti á því að ganga hús úr húsi
og ræða við fólk um trúna og Biblíuna.
Þegar Svanberg og Jóhann eru spurðir
hvemig vottum Jehóva sé tekið nú til
dags, þegar þeir banka upp á, segjast
þeir yfirleitt fá góðar viðtökur. Af og til
fá þeir fjandsamlegar viðtökur en það
sé þó í miklum minnihluta enda sýni
íslendingar trúarskoðunum umburðar-
lyndi. „Það sem við tökum eftir er að
fólk er mjög upptekið og það er svo
margt sem togast á um athygli fólks
þannig að við eigum í harðri sam-
keppni ef orða má það þannig," segir
Svanberg og bætir við að það sé
reynsla vottanna og sannfæring að
Biblían eigi ekki síður erindi til fólks
núna en áður.
Miklar framfarir hafa átt sér stað í
boðskiptatækni og upplýsingamiðlun á
undanfómum árum og liggur því bein-
ast við að spyrja hvort Vottar Jehóva
nýti sér þá
möguleika við
boðunarstarfið:
„Við emm opin
fyrir öllum
möguleikum til
að boða trúna
þó að við höfum
kannski ekki
gengið hátt upp
í því að nýta
okkur tæknina
þá höfum við
samt nýtt hana,“
segir Jóhann og
bendir i því
sambandi á að
þeir séu famir
Niöurdýfingarskírn dvmyndir einar j.
Hjá Vottum Jehóva tíðkast ekki ungbarnaskírn heldur gangast félagar undir
niöurdýfingarskírn þegar þeir hafa náö nokkrum þroska. Þeir veröa þá aö
vera búnir aö öðlast vissan grundvallarskilning á Biblíunni og geta tileinkaö
sér boöskap hennar og inntak. Athöfnin sjálf fylgir fordæmi Biblíunnar og er
stutt og látlaus.
að gefa út meira og meira af mynd-
böndum um starfsemina. „Við eram
einnig með heimasíðu á nokkram
tungumálum, reyndar ekki á íslensku
enn þá,“ segir Jóhann enn fremur.
„Reynslan sýnir þó að áhrifaríkasta að-
ferðin er að ganga i hús og banka upp
á og tala við fólk augliti til auglitis."
Jóhann og Svanberg leggja áherslu á
að þeir vilji ekki nýta sér nútímamiðla
eins og sjónvarpið til þess eins að vekja
hrifningu. „Þetta byggist á því að fólk-
ið læri frá Biblíunni og tileinki sér það
sem það lærir. Það gerist smátt og
smátt,“ segir Jóhann og Svanberg tek-
ur undir það. „Við leggjum áherslu á
að fólk tileinki sér trúna og það líferni
sem hún leggur áherslu á og það gerist
ekki með múgseijun," segir Svanberg
að lokum.
-EÖJ
Blómlegur garður á Hvolsvelli:
Húsbóndinn ræktar
s j álfur
öll sumarblómin
DV, SUDURLANDI:'
Hann er blómlegur, garðurinn að
Hlíðarvegi 13, hjá þeim hjónunum
Guðjóni Einarssyni og Þuríði Krist-
jánsdóttur. Garðurinn, sem er við
eitt af elstu húsunum á Hvolsvelli,
var eitt blómahaf í sólinni á Suður-
landi á miðvikudag. í garðinum eru
bæði fjölmörg tré og blóm af mörg-
um tegundum. Þau hjón rækta sjálf
sin sumarblóm. „Hann Guðjón
ræktar þau í gróðurhúsinu hér við
húsendann og sér um að koma þeim
á sinn stað að vori,“ sagði Þuríður.
Þau hjón fengu viðurkenningu fyrir
garðinn sinn fyrir nokkrum árum
en greinilegt er að þau hafa ekki lát-
ið deigan síga eftir að hafa ræktað
garðinn til sigurs í þeirri keppni því
að hann ber vott um mikla vinnu og
áhuga eigenda sinna. -NH
Blómahaf
Guöjón og Þuríöur í garöinum sín-
um aö Hlíöarvegi 13 á Hvolsvelli.