Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2001, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2001
DV
7
Fréttir
Enn krafa um frjálsar veiðar smábáta á ýsu og steinbít:
Umræða um smá-
báta á krossgötum
- hreyfing í umræðum í endurskoðunarnefnd um fiskveiðistjórnun
Ljóst er aö nokkurs pirrings gætir
hjá a.m.k. einhverjum stjómarþing-
mönnum Vestfirðinga vegna kvótasetn-
ingar smábáta sem vofir yfir nú um
mánaðamótin. Ýmislegt bendir hins
vegar til aö straumhvörf verði í um-
ræðunni með skýrslu endurskoðunar-
nefndarinnar svokölluðu og að deilur
sem nú era uppi verði á örfáum dögum
eða vikum úreltar.
Óánægjunnar hefur einna skýrast
orðið vart hjá Einari Oddi Kristjáns-
syni sem komið hefur fram opinberlega
og sakað sjávarútvegsráðherra um að
draga lappimar og standa ekki við
heiðursmannasamkomulag sem gert
Birgir Guðmundsson
blaðamaður
var við smábátasjómenn árið 1996. Ein-
ar Oddur segir að þessi saga sé öll bæði
flókin og löng en kjami málsins sé hins
vegar sá að það hafi verið ófriður um
þennan útgerðai-flokk og síðan hafi ver-
ið saminn friður sem fól það i sér að
þessir bátar fóru á þorskaflahámark
gegn því að fá aðgang að ýsu og stein-
bít. Nú hafi þessi friður verið rofinn
sem þýði að ófriður sé skollinn á aítur.
Það sem Einar segist kunna illa við er
að friðurinn hafl verið rofmn á grund-
velli lagatúlkunar sem síðan hafi kom-
ið í ljós að sé mjög vafasöm. Því telur
hann það mjög brýnt að á þessu máli
verði tekið og sjávarútvegsráðherra
standi við fyrri loforð sín og efni sam-
komulagið við smábátasjómenn. Einar
segir ljóst að of seint sé að breyta þessu
fyrir 1. september en á von á hörðum
umræðum bæði á landsfundi Sjálfstæð-
isflokksins í byrjun október og á Al-
þingi. Hann kveðst sjálfur munu taka
þessi mál upp á báðum þessum stöðum
ef enginn annar verði til þess.
Ámi Mathiesen hefur vísað gagn-
rýni Einars Odds á bug og ítrekað mik-
ilvægi þeirra lagaraka sem séu fyrir
þessari breytingu. Þá hefur ráðherra
minnt á að endurskoðunamefnd um
flskveiðistjómunina, sem er nefnd
skipuð fulltrúum allra flokka nema
Frjálslyndra, muni skila af sér innan
Arni M.
Mathiesen.
Arni Steinar
Jóhannsson.
Friðrik
Baldursson.
Kristinn H.
Gunnarsson.
Tómas Ingi
Olrich.
Vilhjálmur
Egilsson.
Ossur Skarp-
héðinsson.
tíðar og eðlilegt sé að bíða og sjá hvað
þar komi fram.
Einar og Össur
Athygli vakti þegar þeir Einar Odd-
ur og Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, urðu ásáttir um
það í útvarpsþætti á laugardagsmorgun
að beita sameiginlega kröftum sínum
til þess á þingi i haust að vinda ofan af
kvótasetningu smábátanna. „Ef Sam-
fylkingin, sem ég ætla að vona að sé
rétt hjá Össuri, er reiðubúin til þess að
styðja baráttuna fyrir þvi að samning-
urinn við smábátasjómenn sé í gildi
tekinn aftur, þá fagna ég því. Mér er al-
veg sama hvort þetta er Samfylkingin
eða hvaða þingmenn sem era aðrir,“
segir Einar. Spurður hvort hann væri
með þessu að segja að hann myndi fara
í bandalag gegn forastu síns eigin
flokks ef forastan legðist gegn þessum
málatilbúnaði sagði Einar: „Ég get ekki
afneitað stuðningi manna úr öðrum
flokkum við mál sem ég tel að séu
byggðinni í landinu lífsnauðsynleg."
Hann bætir því við að hann telji sig síð-
ur en svo einangraðan i þingflokki
Sjálfstæðisflokksins og þar séu margir
sem hafi svipaðar skoðanir og hann á
þessu máli.
Dauð umræða?
En þrátt fyrir hitann í þessu máli
sem greina má í málflutningi Einars
Odds er þó greinilegt á þingmönnum
sem blaðið ræddi við að augu flestra
beinast nú að störfum endurskoðunar-
nefndarinnar svokölluðu frekar en þvi
að „endurvekja óbreytta umræðuna
um smábáta frá því í vor,“ eins og einn
stjómarþingmaður orðaði það. Sú um-
ræða væri í raun orðin dauð. Er í þeim
efnum bent á að ef endurskoðunar-
nefndin komi fram með tillögur, sér-
stakiega ef samkomulag veröur um
slíkar tillögur, þá hljóti öll umræða
haustsins að markast af þeim. „Þá
verður öll umræða um útvarpsbanda-
lag milli Einars Odds og Samfylkingar-
innar, eða það að hverfa aftur til fyrra
horfs 1 smábátamálum, hreinlega sögu-
legur fróðleikur sem ekki verður á dag-
skrá,“ sagði alþingismaður sem velti
fyrir sér umræðum haustsins með DV.
Hreyfing á málum
En hver er þá staðan í endurskoðun-
amefndinni? Óvenjuerfitt hefur verið
síðustu daga að fá fuiltrúa í nefndinni
til að tjá sig um starf hennar. Friðrik
Már Baldursson, formaður hennar, var
erlendis í gær en engu að síður var
haldinn fundur í nefndinni. Fyrirhug-
aðir eru fundir aftur, bæði í þessari
viku og svo þétt fundaröð í byrjun
þeirrar næstu.
Ljóst er því að
nefndin mun ekki
skila af sér fyrir 1.
september, eins
og upphaflega
stóð til. Fulltrúar
Sjálfstæðisflokks-
ins í nefndinni,
þeir Tómas Ingi
Olrich og Vil-
hjálmur Egilsson,
staðfestu í samtali
við DV fyrir
nokkram dögum
að hreyfing væri á
málum og að verið
væri að skoða
málin heildstætt,
þ.e. smábátakerfið ekki síður en stóra
kerfið. Hvoragur vildu þó gefa neitt
upp um á hvaða nótum menn væra að
ná saman. Svipað er að segja um Áma
Steinar Jóhannsson, fulltrúa VG í
nefndinni, sem í gær mat stöðuna
þannig að það væri „einhver hreyfing-
armöguleiki þó þetta væri mjög erfitt
mál. En það sem í mínum huga er lang-
langmikilvægast er að við náum niður-
stöðu þannig að það verði friður alla
vega til næstu ára“. Ámi Steinar vildi
að öðru leyti ekki tjá sig um málið.
Ráherra og nefnd í takt
Þrátt fyrir þögn nefndarmanna hef-
ur DV upplýsingar sem blaðið telur
áreiðanlegar um að þær hugmyndir
sem þar hafa verið ræddar á síðustu
vikum og tengjast smábátum hafi ver-
ið mjög í svipuðum anda og málamiðl-
unarleiðin sem Árni Mathiesen sjáv-
arútvegsráðherra lagði fram fyrir
skömmu og Einar Oddur hefur hvað
harðast gagnrýnt. Raunar benda við-
mælendur blaðsins á að það hefði ver-
ið sérkennilegt af ráðherra ef hann
hefði ekki haft samráð um þann þátt
við nefndina, þvi hann var nánast að
taka frá henni hluta af verkefni henn-
ar. Því er talið nánast óhugsandi ann-
að en ráðherrann
hafi ráðfært sig
við formann
nefndarinnar um
þetta atriði áður
en hann tilkynnti
áform sín um
reglugerðarbreyt-
ingar. Hins vegar
virðist borðleggj-
andi að í tillögum
nefndarinnar
verðijafnframtað
finna hliðarráð-
stafanir sem miða
að þvi að styrkja
sjávarbyggðir,
hvort sem það
verður í formi
sérstaks byggðakvóta, sérstaks sjóðs
eða með einhverjum öðram hætti - en
fram hefur komið að endurskoðunar-
nefndin muni byggja starf sitt á niður-
stöðu auðlindanefndarinnar. Sú nefnd
lagði sem kunnugt er til tvær afgjalds-
leiðir við fiskveiðistjórnunina, fyrn-
ingarleið og veiðigjaldsleið. Endur-
skoðunarnefndin vinnur að því að
tengja þessi tvö kerfi, smábátana og
stóra kerfið, og skoða málið í heiid
sinni, enda gengur umboð hennar út á
það. Eða svo vitnað sé í orðalag Árna
Steinars: „Við erum að tala um heild-
arendurskoðun á fiskveiðistjórnar-
kerfinu og í því felst að það er allt und-
ir. Það verður ekkert eitt atriði tekið
út fyrir sviga."
Spennandi niðurstaða
Viðmælendur blaðsins eru sammála
um að það sé mjög spennandi að fylgj-
ast með niðurstöðu endurskoðunar-
nefndarinnar og greinilegt að vonir
eru bundnar við að þar verði að finna
málamiðlun sem gæti bætt upp ýmsa
byggðalega ágalla sem fylgja kvóta-
setningu smábáta. Sérstaklega er í því
sambandi bent á yfirlýsingar Kristins
H. Gunnarssonar, þingflokksformanns
framsóknarmanna og stjórnarfor-
manns Byggðastofnunar, um að hann
muni ekki geta stutt málamiðlun sjáv-
arútvegsráðherra nema til komi hlið-
arráðstafanir byggöalegs eðlis, en
Kristinn situr einmitt í endurskoðun-
arnefndinni fyrir Framsóknarflokk-
inn. Áherslur af þessum toga munu
einmitt hafa komið fram í fiskveiði-
stjórnunarnefnd Framsóknarflokks-
ins, sem er flokksnefnd og vinnur
samhliða endurskoðunamefnd sjávar-
útvegsráðherra að því að móta afstöðu
flokksins til fiskveiðistjómunarinnar.
Ný umræða í haust
Svo virðist því sem Ámi Mathiesen
hafi einungis sagt A i síðustu viku
með málamiðlun sinni. Það muni svo
koma í hlut endurskoðunarnefndar-
innar að segja B þegar hún botnar
versið með tillögum sínum um mán-
aðamótin. Verði sá botn í formi sam-
eiginlegrar tillögu nefndarinnar virð-
ast flestir telja að óhætt sé að tala um
merk pólitísk tímamót. Jafnframt
verði viðbúið að sú niðurstaða verði
ásættanleg meirihluta þingsins og þær
umræður og deilur sem uppi era nú
um samningsrof við smábátaeigendur
muni aldrei ná sér almennilega á
strik.
Smábátar
Umræðan um smábátaútgeröina er síð-
ur en svo búin þótt flestir búist við því
að hún muni taka nýja stefnu þegar
endurskoðunarnefnd um fiskveiðistjórn-
unina skilar áliti sínu.
Sérferðir fyrir
EUROCARD korthafa
Vikuferðir, 21. og 28. sept
Ferðaávísun EUROCARD gildir sem f / / / /
8.000 kr. innborgun í þessar ferðir ^ L"/ ’
Sól býður nú tvær vikuferðir í þessa paradís golfara þar sem velja má
um 15 velli og enn fleiri þegar farið er yfir landamæri Spánar. Dvalið
er í sannkallaðri lúxusgistíngu í Albufeira en golffararstjóri Sólar sér
um bókanir rástíma og skemmtileg kvöld í góðum félagsskap.
Hagstæð vallargjöld.
Golffararstjóri er Haukur Þór Hannesson.
kr. á mann í tvíbýli með sköttum
ef notuð er EUROCARD ávísun.
Ferðaskrifstofan SÓL hf. • Grensásvegi 22 • Sími 5450 900 • www.sol.is