Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Qupperneq 4
Einn er sá madur sem ætíð má hrósa og fær f
raun allt of Iftíð hrós. Þorfinnur Guðnason, sem
daglega gengur undir nafninu Toffi, er sífellt að
skapa sér sess sem einn af skemmtilegri og frum-
legri kvikmyndagerðarmönnum Islendinga. Hin
mjög svo heilbrigða mynd um hagamúsina er al-
þekkt snilld og nú í vikunni fengu sjónvarpsáhorf-
endur að kynnast hinum kynngimagnaða Lalla
Johns. Það verður ekki sagt annað um myndir
Toffa en að þær séu öðruvísi og er það vel. Það er
löngu kominn tími á að einhver þori að gera eitt-
hvað annað en altir hinir. Meðalmennskan hefur
nefnilega verið ansi áberandi f mörgum þeirra
mynda sem náð hafa í kvikmyndahús undanfarið.
Þetta verður ekki sagt um myndir Toffa og það er
einfaldlega þjóðinni best að hann fái áfram að
spreyta sig. Væri ekki upplagt að menn eins og
hann fengju fálkaorðuna f stað fólks sem hefur
gert lítið annað en að vinna vinnuna sfna?
íslenska réttarkerfið virðist alltaf vera að af
hjúpa eigin heigulshátt eða vanmátt. Æ oftar
þurfum við að lesa fréttir af nauðgurum og barna-
níðingum sem labba nokkuð hnarreistir út úr rétt-
arsatnum eftir að hafa fengið væga dóma fyrir
gróf afbrot. Þetta gerist núorðið á um það bil
tveggja mánaða fresti. Hvernig má það vera að
þessi þjóð sem stærir sig f sífellu af þvf að vera
meðal þeirra fremstu á mörgum sviðum þurfi að
bfða f 10-15 ár eftir að sjá hvernig reynsla af nýjum
löggjöfum (hertum refsingum) virkar f nágranna-
löndunum? Af hverju getum við ekki tekið á okkur
rögg og verið frumkvöðlar svona einu sinni? Það
er bara ekki hægt að þurfa sífellt að lesa um menn
sem misnota börn sleppa eins og ekkert hafi f
skorist. Þangað til þetta breytist verðum við bara
að vona að það verði tekið vel á móti þessum
mönnum á Hrauninu.
lan Dent segist vera með afbrigðilega litninga. Hann kveður vísinda-
menn hafa hagrætt genamenginu í sér með þeim hræðilegu afleiðing-
um að hann hefur óstjórnlega gaman af hinni viðbjóðslegu bandarísku
dægradvöl að dansa llnudans. Hann er önnum kafinn við að skrifa loka-
ritgerð sína um málið í Luppit-háskóla þar sem hann leggur stund á
mannfræði og að hans sögn er köllun hans sú að komast að hinu sanna
í málinu og því er hann kominn hingað til lands með þá von í brjósti að
hann fái að starfa með íslenskum erfðafræðingum.
LÍnudans er verkfæri djöfulsins
„Ég komsc mjög ungur að því að ég var
frábrugðinn jafnöldrum mínum,“ segir
Ian með alvörugefnum tón, það voru
öll litlu atvikin. Ég man eftir mér sjö ára
gömlum þar sem ég var staddur inni í
skóbúð og öskraði þegar foreldrar mínir
ætluðu að kaupa banda mér strigaskó.
Strax þá langaði mig bara í kúrekastígvél.
Mig rámar líka í að hafa verið staddur í
stórmarkað 10 ára gamall, og ég grét því
að vinstri löppin á mér hreyfðist ósjálfrátt
til hliðanna. Einhver hafði asnast til að að
setja kántrhlag í hljóðkerfið og þetta voru
afleiðingarnar: ég byrjaði að dansa það sem
ég átti seinna eftir að uppgötva að hét
„línudans". Ég get tínt til ótal fleiri
dæmi, það er ekkert mál. Enda geri ég
mér grein fyrir því í dag að æska mín var
lifandi helvíti."
Stícvélin föðmuð
Táningsaldurinn var heldur enginn
dans á rósum hjá Ian. „Eitt kvöldið komu
foreldrar mínir að mér þar sem ég lá uppi
( rúmi, klæddur f köflótta skyrtu með
kögri og var að láta vel að nýju stígvélun-
um mínum. Það var hræðileg upplifun og
ég man hvað mér fannst ég vera afbrigði-
legur.“ Ian hefúr alla tíð haldið því fram að
ástæðan fyrir þessari þráhyggju hans fyrir
línudansi sé sú að vfsindamenn hafi átt
við litningana hans og komið einhverju
„afbrigðilegu" geni fyrir sem veldur þess-
ari þráhyggju hans. „Ég man að þegar ég
var mjög ungur þá fóru foreldrar mínir
með mig í ótal aðgerðir um allan heim, að-
allega f Þýskalandi. Þau hafa aldrei viljað
segja mér hvað var gert við mig þarna ...“
Þannig að þú heldur því fram að allir þeir
sem stunda línudans séu með afbrigðilegt
genamengi ... „Ekki allir, en langflestir.
Það er reyndar til ákveðinn minnihluti
fólks sem finnst þessi tíska í alvörunni vera flott og stundar
þetta sem svona félagslega útrás en það fólk endist yfirleitt ekki
í þessu nema í takmarkaðan tíma. Hinir eru miklu fleiri sem eru
háðir frá barnsaldri og sleppa aldrei. Og svo er þetta svo ógeðs-
legur kúltúr. Náinn vinur rninn, sem heitir Magnús, þurfti til
dæmis að skipta um nafn til að falla inn í þennan kúrekaheim.
I dag kallar hann sig Wayne. Hversu sorglegt er það?“
Verkfæri djöfulsins?
Ian hefur, að eigin sögn, hlotið veglegan
styrk frá stofnun í Nashville til rannsóknar-
starfa sinna sem hann stundar við Luppit-
háskólann í Honiton sem er smábær í Suð-
vesmr-Englandi. „Það eru margir sem vilja
styðja við bakið á mér því að þessi kúltúr er
farinn að berast svo rosalega vfða að fólk er
farið að hafa alvarlegar áhyggjur af þvf. Þessi
kúrekatíska er upprunnin í „biblíubeltinu" í
suðurríkjum Bandaríkjanna og er nú þegar
farin að skilja eftir sig opin sár í evrópskri
menningu. Sumir vilja ganga svo langt að
meina að þetta sé upprunnið frá sjálfúm
djöflinum og sjálfum finnst mér það ekkert
svo ólíklegt. Það eru til ótal kántrí-plötur
sem em með falin skilaboð sem heyrast þeg-
ar maður spilar þær afturábak. Ég t.d. hef
sjálfúr spilað „Achy Breaky Heart“ afturá-
bak og heyrt setningar á borð við: „Hey
brother, is your leg moving in the right
direction?" og „Here today, shoulder tomor-
row“ þannig að það?fer ekki laust við að uggur
fari um mann ...“
„The Zukackis Mondeyano Project"
„Nú þegar hef ég haft hönd í bagga með
að koma upp meðferðarheimilum fyrir fólk
með þennan veikleika vfða um heim. Best
væri samt að eiga pottþétta forvöm fyrir
þessu og því er ég að vonast eftir að komast
í samstarf við íslenska erfðafræðinga og helst
í gagnagrunninn þeirra því línudansinn er
lfka farinn að vera áberandi hér ...“ Hefurðu
verið í samningaviðræðum við Kára Stefánssoh
vegna þessa? „Nei, reyndar ekki, en það væri
mjög gaman að fá að vinna með honum. Ég
er bara svo nýbyrjaður á þessu þannig að ég
hef ekki haft tfma til að ræða við hann.“ Ian
hefur samt verið í samstarfi við íslendinga,
reyndar á öðru sviði, en hann er einnig starf-
andi sem útgefandi fslenska rappdúósins
„The Zukackis Mondeyano Project" og kveður hann þá félaga
eiga framtíðina fyrir sér í tónlistarheiminum. „Þeir eru nú þegar
orðnir mjög vinsælir í Honiton og samstpirf okkar hefur verið frá-
bært. Þeir em efnilegustu menn sem ég hef kynnst, jafnt tónlist-
arlega og andlega. Islendingar mega verástoltir af þeim, þeir em
fúllkomið dæmi um hvað hægt er að ná langt í lífinu ef maður eyð-
ir ekki æsku sinni í að liggja uppi f rúmú sjúgandi stígvélin sín.“
DREIFING
PlayStation E
freestyle bmx
vHfiun
>KClainp
FÁANLEGUR í NÆSTU Váí
TÖLVU LEIKJAVERSLU N SSS
A
mw\A
+'A
v
V/rtNUff PÚ HÉgMA UkA? I
em m mplil
hH?F£K/ú
Af HAFA AHYCÍfilR
AF Wi APMiZA
sliUWHA...,
oe Svo fæ eú
)öe míkla,
Á meðan böm eru með bleiu þarf að skipta á þeim á hverjum degi.
f ö k u s 19. október 2001
íliftlífiiíí i ílll ;1 í TltílfT flll! ílí 1 iíII ! 1H i 51 í* i4ií !lí ílli 1 siílí i f f'5 £ S 'Í *"'i 4'i-S * !}lll II .18*1*8