Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Page 16
$íóin
Köld eru kvermarað
Háskólabfó og Sambíóin frum-
sýna á morgun íslensku myndina
Mávahlátur f leikstjórn Agústs
Guðmundssonar. Myndin gerist í
litlu íslensku sjávarþorpi á fimmta
áratugnum og fjallar um hina ell-
efu ára Oggu og líf hennar í húsi
ömmu sinnar og afa þar sem býsn-
in öll af konum búa. Freyja fræn-
ka flyst inn eftir að hafa búið í
Bandaríkjunum um nokkurt
skeið. Lífið í sjávarþorpinu gerist
mun líflegra eftir það.
Ugla Eglisdóttir leikur hlutverk
Öggu og þykir hún standa sig með
prýði í sínu fyrsta stóra hlutverki.
Auk hennar birtast margir af
þekktari leikurum Islands í mynd-
inni. Margrét Vilhjálmsdóttir
leikur hlutverk hinnar dularfullu
Freyju. Aðrir leikarar eru Hilmir
Snær Guðnason, Kristbjörg Kjeld,
Benedikt Erlingsson og Edda
Björg Eyjólfsdóttir. Mávahlátur er
byggður á samnefndri skáldsögu
Kristínar Marju Baldursdóttur og
skrifaði Ágúst Guðmundsson
kvikmyndahandritið..
Svindlað á lottóinu
Sambíóin frumsýna í kvöld
myndina Lucky Numbers. Veður'
fréttamaðurinn Russ Richards er
í forgrunni. Hann er frægur á
sínum heimaslóðum og lifir eftir
því hátt til að hæfa ímynd sinni
meðal samborgaranna. En það
kostar sitt og eftir að hafa tapað
stórfé á misheppnuðu viðskipta-
ævintýri eru góð ráð dýr. Hann
fær til liðs við sig umsjónarkonu
lottósins og saman brugga þau
áætlun til að svindla á lottó-
drættinum. Ætlunarverkið tekst
en allt sem á eftir fylgir fer í rugl.
Það er margt þekktra andlita
sem prýða tjaldið hvíta þegar
Lucky Numbers birtist þar.
Gamli danshundurinn John Tra-
volta leikur aðalhlutverkið ásamt
Lisu Kudrow, sem flestir þekkja
sem vinkonuna vitgrönnu. Auk
þeirra má þekkja leikara á borð
viðTim Roth, Michael Rapaport,
Bill Pullman og Ed O’Neill.
■ AIRWAVES j KJALLARANUM Ofurfönksveit-
in Jagúar heldur Blaxploitation-partí í Leikhús-
kjallaranum.
•Klúbbar
■ BENNI Á 22 Dj. Benni hertekur búriö á Club
22. Fritt inn til 2 og fritt alla nóttina fyrir hand-
hafa stúdentaskírteina.
■ HEITT Á SKUGGABAR Dj. Gunther Gregers
sér um að heitasta tónlistin flæði um sali
Skuggabarsins. Húsið verður opnað á miðnætti
og 22 ár inn.
■ MASSASTUÐ Á SPOTLIGHT Dj. Cesar held
ur áfram með fjörið á Spotlight frá kvöldinu
áður en nú með blöndu af gömiu og nýju píku-
poppiásamt passlega miklu af einhverju öðru.
Allir hýrir og kátir láta sjá sig.
•Krár
■ AFMÆLISTÓNLEIKAR SAMKÓRS KÓPA-
VOGS í SALNUM Samkór Kópavogs heldur af-
mælistónleika í Salnum i Kópavogi í dag í tilefni
af 35 ára afmæli kórsins og hefjast þeir kl.
16.00. Stjórnandi kórsins er Julian Hewlett, pí-
anóleikari er Jónas Sen og einsöngvarar með
kórnum á afmælistónleikunum eru þau Hall-
veig Rúnarsdóttir sópran og Þorbergur Skag-
fjörð Jósefsson bassi. Efnisskrá tónleikanna er
afar fjölskrúöug, íslensk og erlend lög í bland.
■ ANDREA Á DILLON Dj. Andrea Jónsdóttir
heldur uppi fjörinu á Dillon.
■ CORY LOVE Á101 Dj. Cory Love þeytir skíf-
um á Bar 101.
m TVEIR Á VEGAMÓTUM Dj. Bjössi og Dj. Pét-
ur plötusnúðast í sameiningu á Vegamótum.
■ VÍNIKVÓLD Á VEGAMÓTUM Dj. Bjössi og
Dj. Pétur sjá um að spila það besta úr house
tónlistinni frá 1990 og uþp úr á Vegamótum.
•Böl 1
■ HARMONIKUDANSLEIKUR í ÁSGARÐI
Harmonikufélag Reykjavíkur stendur fyrir dans-
leik í Ásgarói, Glæsibæ, frá kl. 22. Ragnheióur
Hauksdóttir syngur. Aliir velkomnir.
■ HUÓMAR Á BROADWAY j kvöld verður
dansleikur með Hljómum. hinum einu sönnu, á
Broadway en þar munu þeir draga fram gömlu
stemninguna sem aldrei fyrr.
•D jass
■ GUITAR ISLANCIO í BORGARBÓKASAFN-
INU Það verður boðið upp á djass í Borgar-
bókasafninu í Grófarhúsinu, Tryggvagötu 15, í
dag klukkan 16 með tónleikum triósins Guitar
Islancio. Guitar Islancio skipa þeir Björn
Thoroddsen, gítar, Gunnar Þórðarson, gítar, og
Jón Rafnsson, kontrabassi. Á efniskránni verða
m.a. íslensk þjóðlög i djassbúningi. Ókeyþis að-
gangur.
•Sveitin
■ BLESSAÐ BARNALÁN í kvöld frumsýnir
Leikfélag Akureyrar leikritiö Blessað barnalán
eftir Kjartan Ragnarsson. Sýningin hefst kl. 20.
■ BUTTERCUP Á N-1 BAR Gengiö í Buttercup
mætir á N-1 Bar, Reykjanesbæ, og pumpar
stuði í liðið.
Ófriður í paradís
Sambíóin frumsýna í kvöld
einnig myndina Sexy Beast.
Myndin gerist í umhverfi sem
margur Islendingurinn ætti að
kannast við, nánar tiltekið á sól-
arströndinni Costa del Sol á
Spáni. Fyrrverandi krimminn
Gal Dove ákveður að eyða rest-
inni af sínu lífi t rólegheitum í
sólarparadís, með ástkæra eigin-
konu sína sér við hlið, eftir að hafa
afþlánað sinn síðasta dóm. Friður-
inn er hins vegar rofinn þegar að-
alkeppinautur Gal í undir-
heimunum, Don Logan, mætir á
svæðið og reynir að sannfæra Gal
um að framkvæma með sér eitt
rán enn.
Með hlutverk Gal fer Ray Win-
stone en stórleikarinn Ben
Kingsley fer með hlutverk Don
Logan. Á meðal annarra leikara
sem birtast t myndinni er Ian
McShane, sem íslenskir sjónvarps-
áhorfendur kannast best við sem
sjarmörinn Lovejoy í samnefhdum
þáttum. Auk hans eru stðan minni
spámenn á borð við Amanda Red-
man og Julianne White. Leikstjóri
er Jonathan Glazer og er þetta
fyrsta myndin í fullri lengd sem
hann leikstýrir.
■ PJ BENNI Á CLUB 22 í kvöld mætir DJ
Bennií búrið á miðnætti og spilar góða
djammtónlist að hætti hússins til morguns. Frítt
inn til klukkan 02:00, handhafar stúdentaskír-
teina fá fritt innalla nóttina.
■ DJ GUNTHER GREGERS Á SKUGGABARN-
UM í kvöld leikur DJ Gúnther Gregers öðru
sinni á Skuggabarnum og sem fyrr verður hann
með allt þaö heitasta frá Evrópu og að sjálf-
sögðu þetta gamla góða með í bland. Staðurinn
opnar klukkan 23:59 í kvöld og að sjálfsögðu er
22 ára aldurstakmark og 500 kall inn.
■ DJ SKUGGABALDUR Á H-BARNUM, AKRA-
NESI í kvöid leikur hinn ómótstæðiiegi DJ
Skuggabaldur aftur á H-Barnum á Akranesi.
Sem fyrr er miðaverð 500 krónur frá miðnætti.
■ ENSKI BOLTINN OG DJ ANDREA JÓNS Á
CAFÉ DILLON Enski boltinn. Stórt sjónvarp á
efri hæð, boltatilboð.DJ Andrea Jóns af sinni al-
kunnu snilld um kvöldið.
■ KRÁARSTEMNING Á GRAND ROKK Hin sí
gilda kráarstemning ræður rikjum á Grand rokk.
Tilboð á barnum ásamt ýmsum óvæntum uppá-
komum og boltinn á breiðtjaldi.
■ LE CHEF Á NELLYS Dj. Le Chef sér um tón-
listina og fjörið á Neilys og allt öl á hálfvirði.
■ LIMMOSIN Á BÚÁLFINUM Hljómsveitin Lirn-
mosin verður í banastuði á Búálfinum í Breið-
holti.
■ MARGEIR Á HVERFISBARNUM Margeir sér
um skífusteikingar á Hverfisbamum.
■ PAPAR Á PLAYERS Sprellikaliarnir í Pöpum
sjá um rokna stuð á sportkránni Players í ná-
grenni risatyppisins.
■ PÉTUR STURLA Á SIRKUS Dj. Pétur Sturla
steikir skífur á Sirkus.
■ EUROVISION í EGILSBÚÐ Eurovision-veisla
er haldin í Egilsbúð, Neskaupstað. Söngvarar
og tónlistarmenn flytja innlend og erlend
Eurovision-lög. Dansleikur með Spútnik á eftir.
■ HÖRÐUR TORFA í BOLUNGARVÍK Hörður
Torfa heldur tónleika í Rnnabæ, Bolungarvík,
þar sem hann spilar m.a. efni af nýja disknum
sínum, Lauf. Tónleikarnir hefjast kl. 21.
■ KOLBEINN í BÚÐARKLETTI Kolbeinn Þor-
steinsson leikur fyrir gesti Búðarkletts, Borgar-
nesi.
■ UÓSBRÁ Á VIÐ POLLINN Hljómsveitin Ljós-
brá skemmtir gestum á Við pollinn, Akureyri.
■ PÍKUSÖGUR í VESTMANNAEYJUM Leikritið
Píkusögur verður sýnt í Vestmannaeyjum i
kvöld vegna mikilla eftirspurna en auk þess er
leikritið nú á ferð um landið.
■ SKUGGABALDUR Á AKRANESI Diskórokk
tekið Skuggabaldur sér um stuðið á H-Bar,
Akranesi. 500 kall inn eftir miðnætti.
■ STJÓRNUMESSA Á HÚSAVÍK Fosshótel.
Húsavík, heldur Stjömumessu með góðum mat
og miklu fjöri.
■ Á MÓTl SÓL Á AKUREYRI Ofurþoþpararnir í
Á móti sól mæta ferskir á akureyrska grund og
skemmta þarlendum í musteri skemmtanaiðn-
aðar Akureyrar, Sjailanum.
•Leikhús
■ BLÍÐFINNUR í dag verður leikritið Bliðfinnur
frumsýnt í Borgarleikhúsinu kl.14. Sagan segir
frá Blíðfinni, ungum, vængjuðum, blíðlyndum
dreng sem að heldur út í heim til að leita að vini
sínum, barninu, sem að hann týndi. Með hlut-
verk Blíðfinns fer Gunnar Hansson. Auk Blið-
finns koma við sögu í leikritinu margar persón-
ur og verur. Hilmar Örn Hilmarsson hefur samið
tónlistina í verkinu.
■ BRÚÐKAUP TONY OG TÍNU í kvöld sýnir
Leikfélag Mosfellssveitar leikritið Brúðkaup
Tony og Tínu í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ og
hefst sýningin kl. 20.
■ ENGLABÖRN í kvöld sýnir Hafnarfjarðarleik-
húsið leikritið Englabörn eftir Hávar Sigurjóns-
son. Sýningin hefst kl. 20 og er hún stranglega
bönnuð börnum.
■ MEÐ VÍFH) j LÚKUNUM Leikritiö Með vífið í
lúkunum eftir Ray Coone verður sýnt sem
endranær í kvöld á fjölum Borgarleikhússins og
hefst sýningin kl. 20.
■ SYNGJANDI í RIGNINGUNNI í kvöld sýnir
Þjóðleikhúsið hið margfræga leikrit Syngjandi í
,augardagur1
10/10
•Popp
■ AIRWAVES Á GAUKNUM Rokk og aftur rokk
á Gauki á Stöng i boði Airwaves. Fram koma
200.000 naglb'itar, Dr. Spock, Stjörnukisi, Ens-
ími, Sparta og Chicks on speed. Kvöldið verð-
ur síðan keyrt inní nóttina af Dj. Andy Weather-
all. eitt stærsta nafnið innan danstónlistar-
heimsins síðasta áratugs, Rými tekur við af
rokki. Honum til fulltingis verður Dj. Grétar, auk
þeirra Árna Einars og Ozy.
■ AIRWAVES Á SPOTLIGHT Leaves, Þórunn
Antonía, Dead Sea Apple og Maus spila á
Spotlight.
■ AIRWAVES Á THOMSEN Krilli, Frank
Murder, Einóma, Plastik, Biogen og llo spila á
Kaffi Thomsen. Þegar þeir hafa lokið sér af
taka Dj. Ingvi, Dj. Margeir, Dj. Paul Hunter(UK)
og Dj. Murray McKee(UK) við og skífuþeyta inn
í nóttina.
■ RAMPAGE Á PRIKINU Dj. Rampage sér um
taktfast kvöld á Prikinu.
■ RÚNAR ÞÓR Á RAUÐA UÓNINU Trúbbinn
Rúnar Þór leikur og syngur á Rauða Ijóninu.
■ RÚNAR ÞÓR Á RAUÐA UÓNINU i kvöld
leikur Rúnar Þór aftur á Rauða Ijóninu og þvi
ættu aðdáendur kappans sem ekki mættu í
gær að fjölmenna á staðinn.
■ S&H Á GULLÖLDINNI Gleöidúettinn Sven-
sen&Hallfunkel skemmtir gestum Gullaldarinn-
■ SKYTTURNAR A DUBLINER Gleðisveitin
Skytturnar sér um að hafa hátt á efri hæð
Dubliner.
■ SPILAFÍKLAR Á CELTIC Hljómsveitin
Spilafiklar spilar á Celtic Cross.
■ STUÐ Á KRINGLUKRÁNNI Hljómsveitin Létt-
ir sprettir sér um stuöið á Kringlukránni.
■ TOMMI Á KAFFIBARNUM Tommi White sér
um að þeyta skífum á Kaffibarnum.
rigningunni og hefst það kl. 20.
■ TÖFRAFLAUTAN Óperan Töfraflautan eftir
Wolfgang Amadeus Mozart verður flutt i kvöld í
íslensku óperunni. Sýningin hefst kl. 19 og hef-
ur hún fengið afar góðar viðtökur.
■ VIUI EMMU í Þjóðleikhúsinu i kvold verður
leikritið Vilji Emmu sýnt og hefst það kl. 20.
Höfundur er David Hare.
•Kabarett
■ FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ í ÞJÓÐLEIKHÚSINU
Fjölskylduhátíð til minningar um Hafdísi Hlíf
Björnsdóttur og til styrktar rannsóknum á
heilahimnubólgu verður haldin á stóra sviði
Þjóðleikhússins kl. 15. Hafdís Hlif Björnsdóttir
lést 21. júní sl„ þá tæplega 11 ára gömul, úr
bráðri heilahimnubólgu. Fjölskylduhátíðin er
haldin að tilhlutan félaga i Félagi íslenskra leik-
ara en allir sem á einn eða annan hátt koma að
skemmtuninni leggja málefninu lið og gefa
vinnu sína. Ágóði af fjölskylduhátiðinni verður
látinn renna óskiptur i minningarsjóð Hafdísar
Hlífar Björnsdóttur sem stofnaður var sl. sum-
ar í því skyni að efla rannsóknir á heilahimnu-
bólgu. Dagskrá fjölskylduhátíðarinnar á laugar-
dag verður afar fjölbreytt og við allra hæfi, ekki
sist yngstu kynslóðarinnar. Meðal þeirra sem
koma fram eru Gunnar og Felix, Solla stirða úr
Latabæ og Gleðiglaumur frá Bláa hnettinum,
auk fjölda annarra atriða. Miðaverð er kr.
1.000. Þeir sem ekki sjá sér fært að sækja
skemmtunina í Þjóðleikhúsinu en vilja láta sitt
af hendi rakna, skal bent á Minningarsjóö Haf-
dísar Hlífar Björnsdóttur sem varðveittur er í
Landsbankanum Smáralind, númer 0132-26-
18000, kennitala: 521001-3130.
•Fyrir börnin
■ LYGASÓGUR í NORRÆNA HÚSINU Danski
rithöfundurinn og teiknarinn Carl Quist
Mellersegir börnum nokkrar lygasögur í sögu-
herberginu í Norræna húsinu og hefjast þær kl.
14. Dagskráin fer fram á dönsku og íslensku,
með aðstoð Margrétar Lóu Jónsdóttur skáld-
konu. Carl Quist Mdller hefur sagt dönskum
börnum lygasögur siðustu árin og hefur m.a.
verið með vinsæla þætti í danska rikissjónvarp-
inu.
•Opnanir
■ HRINGRÁS VATNS OG SPEGLAR í HAFN-
ARBORG Sýningarnar Hringrás vatnsins og
Speglar verða opnaðar í neðri sölum Hafnar-
borgar, Apótekinu og Sverrissal, i dag kl. 15.
Sýningarnar standa til 5. nóvember og eru opn-
ar alla daga kl. 11-17, nema þriðjudaga. Jónína
Guönadóttir sýnir í Apótekinu. Hún hefur haldið
fjöida einkasýninga og verið virkur þátttakandi í
íslensku myndlistarlífi undafarna áratugi. Á sýn-
ingunni eru myndverk unnin í leir, steinsteypu,
gler og önnur þau efni sem listformið krefst.
Þessi sýning, Hringrás vatnsins, er unnin útfrá
þeim hugleiðingum að allt sem viö látum frá
okkur skili sér til baka og hafni í viðkvæmri og
brothættri hringrás. Kristján Pétur Guðnason
sýnir Ijósmyndir í Sverrissal. Þetta er fyrsta
einkasýning Kristjáns en hann hefur áður tekið
þátt í nokkrum samsýningum. Kristján hefur
starfað við Ijósmyndun í 30 ár og fengíst tals-
vert við listaverkatökur fyrir einstaklinga og
söfn auk þess að starfrækja Ijósmyndavinnu-
stofu og skyldan rekstur. Á sýningunni Speglar
eru rúmlega tuttugu Ijósmyndir sem sýna speg-
ilmyndir úr náttúru og umhverfi, teknar á síðast-
liðnum 14 mánuðum.
■ MARGMIÐLAÐUR MEGAS í NÝLÓ Sýningin
eöa listþingið Omdúrman: Margmiðlaður Meg-
as í Nýló er helgað Megasi, Magnúsi Þór Jóns-
syni, og er því ætlað að gefa innsýn I heim
Megasar, vinnubrögð og höfundarverk - þaul-
unnið, frjótt, djarft, heiðarlegt, beitt og óvægið.
Þingið verður opnað I dag. Megas er óvenju
„margmiðlaður" listamaður; allt í senn trú-
badúr, poppari, tónskáld, Ijóðskáld, myndlistar-
maður, rithöfundur, skáldfræðimaður, rokk-tröll.
Hann hefur alla tíð verið umdeildur listamaður,
og umdeild persóna, enda duglegur við að
hrista upp í samborgurum sínum. Á liönu ári, ef
til vill frá því honum voru veitt verðlaun Jónasar
Hallgrímssonar, hefur hann þó fengið verð-
skuldaða athygli og viðurkenningu sem mikils-
verður listamaður. Stefnt er að því að hafa Ný-
listasafnið lifandi allan sýningartímann og eru
fyrirhugaðar ýmsar uppákomur: m.a. tónleikar,
málþing, hljómorðakvöld, kvikmyndasýningar og
spjallkvöld. Fjölmargir lista- og áhugamenn leg-
gja þinginu lið að þessu leyti. Allir salir Nýlista-
safnsins eru helgaðir Megasi. Aðrir listamenn
koma þó við sögu. Uppi, í SÚM-sal, er sýning
með verkum nokkurra aðila sem hafa haft áhrif
á Megas og er hún í umsjá Þorvaldar Þorsteins-
sonar, myndlistarmanns. í kaffistofu á miðhæð
er stefnt að því að bjóða upp á netkaffi þar sem
hægt verður að skoða/lesa umfjöllun um Meg-
as og texta eftir hann. Þar verður til sýnis ýmis-
legt forvitnilegt úr fórum listamannsins og stikl-
ur frá ferli hans. í forsal ,á miðhæð og forsal
niðri verða myndverk og texti Megasar I fyrir-
rúmi en í Gryfju verður til sýnis ýmislegt úr að-
fangasafni Megasar. Um vegglist þar sjá Jó-
hann Ludwig Torfason og Halldór Baldursson,
myndlistarmenn. Af viðburðum má nefna tven-
na st'ærri tónleika, auk tónlistarkvölda. Þann
31. október verður hljómorðakvöld þar sem
bandariskir gestir og íslenskir flytja texta, Ijóð
og tónlist. Málþing um höfundarverk Megasar
verður 10. nóvember. Sjálfur mun Megas koma
fram á þinginu, oftar en einu sinni, á tónleikum
og rabbkvöldi. Þingið stendur til 30. nóvember.
■ BYNHILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR Á CAFÉ
PRESTO Brynhildur Guðmundsdóttir opnar I
dag klukkan 15 sýninguna flökt [taktur ein-
semd snertingj á Cafe Presto, Hlíðasmára
16
19. október 2001