Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Qupperneq 22
Framtíðin er hrikalega björt Fyrir rúmum 10 árum var Hljómalind stofnuð. Fyrst var haldið til í kjallara á Grenimelnum, þaðan sem gert var út í Kolaportið og gefinn út pöntunarlisti af og til. Og fimmtudaginn 13. nóvember 1991 var verslun opnuð í Austur- stræti 8. Strax í byrjun var stefnan sett á að vera ekki einvörðungu plötubúð heldur nokkurs konar miðstöð hinna ólíku jaðarhópa. Hljómalind byijaði að flytja inn hljómsveitir og plötusnúða á árinu 1993 og hóf að senda út blaðlinga undir hin- um og þessum formerkjum, sem flótlega urðu að Extrablaðinu. Extrablaðið kom út í tæp 3 ár. Núna á þessu herrans ári 2001 er Hljómalind enn á fullri ferð, blað í gangi (þetta sem þú heldur á) og þessi líka fína tónleikasyrpa hafin undir nafninu Vetrardagskrá Hljómalindar. Þar kennir ýmissa grasa í heimsóknum erlendra tónlistarmanna. Að þessu sinni er hópurinn ærið skrautlegur, þekkt nöfn eins og Will Oldham, Low, Trans Am og minna þekktir spámenn eins og Par Lindh Project, Dismemberment Plan ofl. (sjá bls 5 til 8) og rjóminn af jaðarsveitum landsins. A aðeins nokkrum árum hefur það breyst að erlendir listamenn sækja það stíft að komast til Islands og má nánast tala um tískubólu. Samhliða hafa hurðimar út í heim verið að opnast hver af annari og tækifærin blasa við allt í kring um okkur. Þessi tækifæri þarf að grípa og sinna þannig að menningarsamskipti þau sem í gangi eru séu virkjuð ungu fólki til hagsbóta, því þeirra er ffamtfðin. Gróskan hér heima er með ólíkindum, gæði og metnaður er það sem einkennir ástandið og allir stefna að því sama, að stækka starfsvettvanginn og komast út f heim. Island er jú alltaf bara þessi litla eyja úti í Atlantshafi og hér búa bara um 280 þúsund manns. Þó svo að menningarlífið láti stundum eins og hér í landi þúfunnar, leynist milljónaþjóð. Menningin gæti svo auðveldlega orðið síldarævintýri nýrrar aldar. Snúum bökum sam- an fólk sem erum að sinna þessum málum og tryggjum Islandi glæsta ffamtíð í menningarsamfélagi ffamtfðarinnar, hér er mannauðurinn og sköpunnarkraffurinn og allar þær aðstæður sem þarf til að vera í fremstu röð meðal jafningja. Og er ekki kominn tími til að yfirvöld þessa lands átti sig á því að dægurmenning er líka menning sem þarf á aðhlynningu að halda. Og hér er verið að tala um eitthvað annað en mylsnuna af kökunni. Sýnum samstöðu í verki, sinnum unga fólk- inu og við munum uppskera ríkulega. Hljómalind mun í það minnsta ekki liggja á liði sínu í baráttunni fyrir fegurri fram- tíð og blómum í haga til handa okkur öllum. Það er von okkar að sem flestir fái eitthvað fyrir sinn snúð í Hljómalind og Vetrardagskránni sem við bjóðum upp á núna f upphafi vetrar. Einnig viljum við þakka öllum þeim sem lagt hafa okkur lið í baráttunni í gegnum tíðina. Biðj- um við ykkur svo bara öll vel að lifa og njóta líka. Kveðja úr Hljómalind, Kiddi og félagar 'l'ónlcikar í Hátíðasal MH 9. og 10. nóvembcr Kynning á Rás 2 kvöldin 6.-8. nóvcmbcr GOTIIIC ÍMPRESSIONS 1994 1 inkadiskur Pars (hans ..projcd") Vakli sln»\ hcnnsathygh projjgh.iuvi og var m.a kiörinu cinn a! líu hcstu proggdiskum allm tínu BILBO 1995 Hyggirá ,.1‘hc Hobbir* cftir Tulkicn. Iivintyralcgur Ui.skur < \ rir boni á ollum nkin. MUNDUS INCOMPERTUS 1W7 Hcr birtist HI.Hscm íullroötik) hljómsvcit. Ivcssi diskurcr |alnvcl cnn rullkouuuiri cn Gothic mÆZiffBföBOHyfflMBfii i TWr ll'1f11 llFII' .wiínhi: 'Pár Lindfi project 'J(P 9{jD O 1 K LIVE IN AMERICA IW) I llómlcikar við ('hapcl I liii luiskiVlann í Bandartkiunum. ...\ll l'm hoping ís that vvc can gct sonxí conccrts iii 1 ngland ( plcasc pul mc out oí my nuscry)!" /iv Wlh’tmorc. rttsijón l’U'-bUidsms m a /wllbounií tram rurmim) tfmntijtt uvnnjlktf/ (ait/*taft* RONDO 1995 Ilcr cr PIJ>að vcrða til scm 5 manna hljómsvcit og tckst lciða saman Kcith I JiKrsvui og l angcrmc Drcam. VENI VIDI VICI 2(X)I K-ssi var ik) konui út. I lcr cr lariö inn á nyjar hrautirog iiKiri spcnna iiulli ..popps" og ..klassikur**. Hár gctur grcinilcga ausið úr ót.Tmandi tónlistarkistu íPar jCínAli hsju x iznt frá séx J ~f~ 2 fxábæxa diJia á 7 áxtxni. íOciz fást í cHCjómaCinA (hoxni áJaugaocgs og -Kfafsfsaxstícjs J á 2.050 nsnza tónlsikadiJzuxinn (toöfaLdux J sstn Izostai 2.S50. c/HXwi fxaíUíinn. sx á 22% (íijnnlncjaiafiHœttL: Jöamtaís 7 dislzax á aésins 10.000 Izxónux. vetrardagskrá hljóma lindar 19.október 2001 Dautt rokk SM „Mundu alltaf, ekki gleyma, aldrei gleyma því sem þú hefur gert. Þvf það skiptir máli og allt sem þú hugsar og allt sem þér finnst, það skiptir máli, hvað svo sem það er. Og aldrei hunsa þig, aldrei." Þannig hljóma hvatn- ingarorð Hauks S. Magnússonar sem stend- ur á bak við útgáfufyrir- tækið Dauða-Rokk SM á Isafirði. Þó að nafnið gefi annað til kynna telst eina platan sem komið hefur út á þeim bænum til raftónlistarflórunnar en það þýðir samt ekki að pláss sé fyrir ólíkar hug- myndir. I raun gildir einu í hvaða flokk tón- listin fellur ef aðeins viljinn er fyrir hendi og áræðið til að rísa upp gegn auðvaldinu sem framleiðir geisladiska sem aldrei fyrr. Vfst þyk- ir að útgáfurisarnir liggi varla andvaka á meðan Haukur og fleiri bylting- arsinnar stunda iðju sína, enda markmiðið ekki að gera sig heima- komna á vinsældalistum heldur sýna og sanna að hægt sé að gera góða tónlist upp á eigin spýt- ur. Svo aðeins sé vikið að starfsemi Dauða-Rokks SM þá er hún sáraein- föld. Listamenn eða hljómsveitir láta í ljós áhuga og koma upptök- um til skila. Forvígis- menn Dauða-Rokks ákveða síðan í samráði við viðkomandi hvaða lög fara á plötuna og hvernig hulstrið muni líta út. Því næst er keyptur bjór og ein kvöldstund tekin f að brenna og pakka saman 25 eintökum af diskin- um. Tvö fara til fjöl- miðla en hin 23 í sölu til almennings og lífið er yndislegt ... Ofugt við það sem oft vill verða er enginn hængur; lífið er yndis- legt þegar svona starf- semi er við lýði þar sem þetta er hinn sanni bylt- ingarandi. Dauða-Rokk SM fer með friði og þröngvar sér ekki upp á neinn, eins og svo marg- ir í þessum bransa, og það er því algjörlega undir almenningi komið hvort hann hefur áhuga eður ei. Þar sem upplagið er afar takmarkað þurfa áhugasamir aftur á móti að hafa hraðar hendur ef þeir vilja ekki missa af neinu. Fyrsti diskur Dauða-Rokks, sem raf- tónlistarmaðurinn Jói átti heiðurinn af, seldist til að mynda upp á skömmum tíma og ef- laust sátu einhverjir eft- ir með sárt ennið. Þeir sem vilja ekki lenda í þvf aftur ættu því að fylgjast vel með eða ein- faldlega taka þátt í bylt- ingunni sjálfir með því að hafa samband við Hauk Dauða-Rokkara því einhvers staðar stendur að það blundi lítill listamaður f okkur öllum. Tonleikaveisla a Ras 2 1 sumar tók Rás 2 upp á þeirri nýbreytni að fara að útvarpa tónleikum á hverju kvöldi. Þetta hefur fallið mjög vel í kramið hjá fólki og hefur því ver- ið ákveðið að halda þessu áífam nú í vetur. Tón- leikarnir koma víðsvegar að, m.a frá tónlistarhátíð- um eins og Hróarskeldu og Glastonbury svo og að sjálfsögðu héðan af klakanum. Rás 2 hefur reyntað hljóðrita fslenska tónleika og tónlistaratburði á ís- landi eftir fremsta megni, það sem af er þessu ári má helst nefna Reykjavík Mini Festival, Tal-tón- leika sumarsins, Modest Mouse á Gauknum, út- gáfutónleika Jagúar og Galdrahátíð á Ströndum. Upptökur frá tónleikum Saul Williams, Faith- less, Ash, Tom McRae, Gonzales, John Hamm- ond, Ham, Iggy Pop, My Vitriol, Guru’s Jazzmat- azz, Coldplay og Cure eru meðal efnis sem útvarp- að verður nú á næstunni og í tengslum vjð komu bandarísku hljómsveitarinnar Low hingað til lands á vegum Hljómalindar í nóvember, þá verð- ur tónleikum þeirra frá þvf í Háskólabíói árið 1999, útvarpað þann 15. nóvember. Tónleikar á Rás 2 eru nokkuð sem áhugafólk um góða tónlist og tónleika ætti ekki að láta fram hjá sér fara. Þeir eru á dagskrá alla virka daga klukkan 21 og á laugardögum klukkan 16:08 er tónleikadagskrá vikunnar á eftir kynnt í tali og tónum. Upplýsingar um dagskrá og fleira er hægt að finna á heimasíðu Rúv www.ruv.is, undir „Tón- leikar á Rás 2“ og netfangið er amger@ruv.is .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.