Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Side 25
i I Fucking Champs 10. okt. ásamt Ulpu og Singapore Sling 11. okt. ásamt Kuai 18. okt. ásamt Sofandi og Ensími 19. okt. ásamt Fídel og Mínus Vetrardagskrá Hljómalindar byrj- aði með pomp og prakt í seinustu viku þegar bandarísku híjómsveit- irnar Trans Am og Fucking Champs heimsóttu klakann. Sveit- irnar glöddu landann með góðu rokki ásamt nokkrum af fram- bærilegri sveitum landsins. Happafengur með Trans flm Bandaríska rokktríóið Trans Am heimsótti Island í annað sinn á rétt rúmu ári en sveitin gerði einmitt allt vitlaust á Gauknum í fyrra. I þetta sinn var annað eins ofurband með í för, nánar tiltek- ið The Fucking Champs, sem stendur svo sannarlega undir eigin nafhi og er ein flottasta rokksveit sem sést hefur í háa herrans tíð. I3andið erskipað þremur rokkhundum, einum grfðarlega þéttum trommuleikara og tveimur gítarleikurum, sem hafa lifað tímana tvenna og bera það greinilega með sér. Annar þeirra vakti sérstak- lega mikla kátínu íslenskra tónleikagesta enda vopnaður níu strengja gítar og með hárið niður á bak. Svona á ROKKIÐ líka að vera! The Fucking Champs tekur einfaldlega allar þungarokks- sveitir fyrr og síðar í nefið og því geta allir verið sammála um að það hafi verið mikill happafengur að fa hana hingað til lands. ou 6. og 7. nóv, e Prince Billv CWill Old \W i ndh Project 9. og 10. nóv. ásamt Dúndurfréttum Í %4s i Wssm& 5 LOW 15. nóv. ásamt Lúna 16. nóv. ásamt Náttfara Wolf Colonel 19. nóv. ásamt góðum gestum Nánari upplýsingar á www.hljomalind.is namsmannalinön %BÚN'ADAKBAN'KIN'N' Tramtur hanki pu uwstó mwta a Vstrariáðjgsfcrána' RADIO 1037 SÚRT AÐ YFIRCEFA KLAKANN Þó að The Fucking Champs hafi fangað hug viðstaddra var Trans Am samt sem áður aðalnúmerið. Flún fór í gegrium prógrammið af sinni alkunnu snilld og hleypti bókstaflega öllu í bál og brand þeg- ar leikurinn stóð sem hæst. Á tónleikunum í MS og á Gauknum fetuðu þeir félagar sig á milli rokksins og raftónlistarinnar eins og þeim einum er lagið en ákváðu síðan að treysta aðallega á rokkið á síðustu tónleikunum er fóru fram á Spotlight föstudaginn 12. októ- ber. Þeir tónleikar vom nokkurs konar bónus fyrir hina fjölmörgu Trans Am-aðdáendur hér á landi og ekki þótti hljómsveitinni sjál- ffi það leiðinlegt að fá að spila einu sinni enn fyrir landann áður en hún hélt tónleikaferðalagi sfnu áfram. Félagar beggja hljómsveita vom afár hugfangnir af landi og þjóð eftir að hafa virt Gullfoss, Geysi, Laugarvatn og Bláa lónið fyrir sér og vom frekar súrir yfir því að yfirgefa ísland. Traust íslensk bönd Landið sjálft var ekki það eina sem heillaði hina bandarísku gesti okkar því þeir vom einnig fúllir aðdáunar á íslensku böndunum sem himðu upp á þessum þrennum tónleikum. Fyrsta kvöldið sáu Singapore Sling og Ulpa, sem sendi síðan fyrstu breiðskífú sína frá sér tveimur dögum síðar, um upphitunina en síðan var komið að Graveslime og annarri hljómsveit er var að gefa út plötu, Kuai. Á aukatónleikunum startaði Náttfari síðan herlegheitunum og ekki er annað hægt að segja en að allar hljómsveitimar hafi staðið sig með mikilli prýði. The Fucking Champs, sem setti fimmtudagstónleikana á top 3 listann yfir bestu tónleika sína frá upphafi, og Trans Am, að sjálf- sögðu, slógu svo botninn í allt saman og reyndar var fólk komið til að sjá þær og fékk svo sannarlega nóg fyrir sinn snúð. Reyndar hefðu margir viljað fá að sjá sveitimar sameinast í hiimi mögnuðu Trans Champs en það verður ekki á allt kosið. Aðalatriðið var að báð- ar rokkuðu þéttar en djöfúllinn sjálfúr og sendu alla heim með bros á vör. Kuai Eftir að hafa látið mikið til sín taka yfir sumarmánuðina lagðist Kuai f örlítinn dvala um leið og laufin byrjuðu að falla. Hljómsveitin reis þó aftur úr rekkju í byrjun október með til- heyrandi hávaða og látum því auk þess að spila með Trans Am og Fucking Champs fór hún um framhaldsskóla borgar- innar til að kynna sig og fyrstu plötu sína. Líkt og hinir bandarísku félagar þeirra í Trans Am og Fucking Champs sýndu fjórmenningarnir í Kuai, þeir Steini, Siggi, Baldur og Egill, og sönnuðu að alvörurokktón- list lifir enn góðu lífi, þó áherslurnar séu vissulega aðrar en fyrir nokkrum áratugum. Gítarpælingarnar virðast stundum vera af einhverjum öðrum heimi og sömu sögu er að segja af kraftinum sem strákarnir ná að laða fram á góðum degi. Hægt er að fullvissa alla urn að það séu góðir tímar ffam und- an, ekki aðeins fyrir Kuai og aðdáendur hennar heldur einnig allt innlent tónlistarlíf sem er án efa ríkara eftir útgáfu fyrstu breiðskffu Kuai. 19. október 2001 vetrardagskrá hljómalindar 5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.