Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2001, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 8001
I>V
Fréttir
Flateyrarkvikmyndin í faðmi hafsins fær afsvar hjá Kvikmyndasjóði:
Hin glaða þorpsímynd
sögð ósannfærandi
- hallærislegur hroki, segir Einar Oddur Kristjánsson
Sögusviöið er of þröngt og hin
glaða þorpsímynd ósannfærandi.
Þetta er mat Kvikmyndasjóðs ís-
lands sem hafnaði umsókn kvik-
myndafélagsins 1 einni sæng ehf.
um styrk vegna gerðar kvikmyndar-
innar I faðmi hafsins sem byggð er
á verðlaunahandriti kvikmynda-
sjóðs frá 1998. Kvikmyndafélagið
hefur nú selt sýningarréttinn á
myndinni til Sjónvarpsins sem
væntanlega mun sýna landsmönn-
um hana um næstu páska. Upphaf-
lega sótti kvikmyndafélagið um
styrk til Kvikmyndasjóðs 1998, það
hefur verið gert allar götur síðan og
alltaf verið gefið afsvar.
„Mér finnst þetta svar Kvik-
myndasjóðs um að hin glaða þorps-
ímynd sé ósannfærandi óskaplega
hallærislegur hroki,“ sagði Einar
Oddur Kristjáns-
son, alþingismað-
ur Vestfirðinga, í
samtali við DV.
Einari Oddi
bregður fyrir í
hlutverki prests í
umræddri kvik-
mynd.
Það eru þeir
Lýður læknir
Árnason og
Jóakim Reynis-
son sem skrifa
handritið að
kvikmyndinni í Faðmi hafsins.
Myndin segir frá brúðkaupi í litlu
sjávarþorpi úti á landi. Á brúð-
kaupsnóttina hverfur brúðurin og í
leit sinni teymist brúðguminn æ
lengra út í hluti sem eru á mörkun-
Einar Oddur
Kristjánsson
Óskaplega hall-
æristegt.
Þorfinnur
Ómarsson
Höfnum oft góö-
um hugmyndum.
.Lýður
Árnason
Handritiö sótt í
þjóösögurnar.
um að vera þessa heims. Framvind-
an er allsérstök og sækir efnivið að
einhverju leyti i brunn íslenskra
þjóðsagna.
Hjá Kvikmyndasjóði lásu menn
handrit myndarinnar yfir og í sér-
stakri lestrarskýrslu sem gerð var
segir að grunnhugmynd myndar-
innar sé nýstárleg en efnistökum
aftur á móti áfátt. Aðalpersónur séu
samúðarfullar, aukapersónur flatar,
sagan gangi ágætlega upp en hliðar-
sögur séu yfirborðskenndar. - í
samtali við DV sagði Þorfinnur
Ómarsson, framkvæmdastjóri Kvik-
myndasjóðs, að auðvitað væru þeir
menn sem læsu yfir handrit þau
sem bærust til sjóðsins ekki óskeik-
ulir en þeir ynnu sín störf eftir
bestu samvisku. Skiljanlegt væri að
mönnum sárnaði ef verk sem þeir
væru ef til vUl búnir að vera með f
smíðum til fjölda ára fengju ekki
styrki en við því væri fátt aö segja.
Eðli málsins samkvæmt þyrfti líka
oft að hafna ýmsum hugmyndum,
þótt góðar væru. -sbs
Skagafjörður:
Bæjarfulltrúi ótt-
ast að steinullin
hverfi úr bænum
Nýi meirihlutinn í sveitarstjóm
Skagafjaröar hyggst ná fram 600
milljóna króna lækkun skulda sveit-
arsjóðs fyrir lok ársins, 370 milljón-
ir í gegnum veitumar, 100 miiljónir
með stofnun húsfélagsins um eignir
sveitarfélagsins og 130 milljónir
með sölu steinullarbréfanna sem
verða m.a. boðin starfsmönnum til
kaups.
Meirihluti sveitarstjómar Skaga-
íjarðar bar fram tiilögu á sveitar-
stjómarfundum í vikunni þess efn-
is: að fela sveitarstjóra að gera aðil-
um aö hluthafasamkomulagi Stein-
ullarverksmiðjunnar hf. tilboð um
sölu á hlutabréfum sveitarfélagsins.
Gísli Gunnarsson, oddviti sjálf-
stæöismanna í minnihluta, sagði
ljóst að bréfín væm virt á gengi um
2,1, sem hann taldi ekki viðunandi.
Gísli taldi mikla bjartsýni að ætla
að selja bréfln á þessu ári og sagði
að ýmsir væru þeirrar skoðunar að
ef sveitarfélagið myndi selja sinn
eignarhlut i fyrirtækinu yrði hætt-
an sú að verksmiðjan yrði flutt úr
bænum með tíð og tíma. -ÞÁ.
Þórarinn B. Jónsson á Akureyri:
Segir Tækifæri
ekki tækifæri
- ekki umburðarlynt fjármagn
DVJviyND GVA
Bestu vinir
Óhætt er aö segja að þær Alma Dögg Guömundsdóttir og mexíkóski smá-
hundurinn hennar, hún Bella, séu bestu vinir enda kann Bella líka
hvergi betur viö sig en í fanginu á Ölmu.
Hollvinir Ingólfsbæjar:
Borgin hætti
viö hótel
Samtökin Hollvinir Ingólfsbæjar
hafa afhent Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur borgarstjóra lista með
undirskriftum 133 ibúa Grjótaþorps
og nágrennis auk 244 undirskrifta
fólks úr öðrum hverfum borgarinn-
ar þar sem skorað er á borgaryfir-
völd að hverfa frá byggingaráform-
um í suðausturhomi Grjótaþorps.
Hollvinir vilja standa vörð um þær
fornleifar sem fundust við Aðal-
stræti á liðnu sumri og telja þær
ómetanleg menningarverðmæti.
Þarna sé að finna heimili einnar
fyrstu fjölskyldu sem settist að í
landinu og fátt líklegra en húsráð-
endur hafi verið landnámshjónin
Ingólfur Arnarson og Hallveig
Fróðadóttir.
Þá segir í áskoruninni að því hafi
verið haldið fram að sátt ríkti um
fyrirhugaða hótelbyggingu og bíla-
geymslu, yfir og undir fornminjun-
um, en undirskriftaskjölin beri
annarri skoðun íbúa vitni. -aþ
Samtök verslunar:
Mótmæla
varúðar-
merkingum
Á Alþingi hefur verið lagt fram
frumvarp til laga um breytingu á
áfengislögum þar sem lagt er til að
sérstakar varúðarmerkingar verði
teknar upp á umbúðir áfengis; ann-
ars vegar til varnar vanfærum kon-
um og hins vegar ökumönnum vél-
knúinna ökutækja.
Samtök verslunarinnar mótmæla
frumvarpinu og telja að með því sé
allt of langt gengið í forræðishyggju
og að dæmið hafi ekki verið reiknað
til enda.
Samtökin segja að verði frum-
varpið að lögum muni það hafa í för
með sér hækkun á verði áfengis auk
þess sem vöruúrval muni hugsan-
lega minnka til muna. Þá lýsi það
skammsýni að ef frumvarpið verði
að lögum sé gert ráð fyrir gildistöku
þegar í stað og enginn aðlögunar-
tími sé veittur.
Þá segja samtökin að merkingun-
um sé ætlað að vara fólk við hætt-
um sem öllum eru kunnar og því
ekki ástæða til að leggja þennan við-
bótarkostnað á dreifmgarfyrirtæki.
-aþ
Þórarinn B. Jónsson, bæjarfúlltrúi
Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, lagðist
á bæjarstjómarfundi á þriðjudag gegn
því að Akureyrarbær yki hlutafé sitt í
fjárfestingarsjóðnum Tækifæri, en þessi
sjóður var settur upp m.a. fyrir atbeina
bæjarins til þess að stuðla að fjárfest-
ingu og nýsköpun hjá fyrirtækjum á
Norðurlandi. Þórarinn sagði að upphaf-
lega hefði verið talað um að sjóðurinn
ætti að bjóða umburðarlynt fjármagn til
að gefa norðlenskum fyrirtækjum tæki-
færi, en þegar til hafi komið hafi fjár-
festingarstefna sjóðsins orðið allt önnur.
Ströng skilyrði og 20% arðsemiskrafa -
sem sé gríðarlegur fjármagnskostnaður
fyrir viðkomandi fyrirtæki - sé gerð til
sjóðsins sem útiloki mörg fyrirtæki frá
þjónustu hans, fyrirtæki sem þó hefðu
þurft á þessari aðstoð að halda, en engu
að síður hafi sjóðurinn tapað um 40
miiljónum á fjárfestingum sínum. Taldi
Þórarinn vafasamt að bærinn væri að
setja fé sitt í sjóð af þessu tagi. Hann
sagði jafhframt að sér hefði ekki þótt
mikið þótt sjóðurinn hefði tapað jafnvel
enn meira fé ef upphafleg markmið
hans hefðu náð fram að ganga og boðið
hefði verið umburðarlynt fjármagn. Þá
hefðu margir í það minnsta fengið tæki-
færi.
Þórarinn er þama í minnihluta, því
bæði Kristján Þór Júlíusson, Jakob
Bjömsson og Sigurður J. Sigurðsson,
sem allir kvöddu sér hljcðs vegna þessa
máls, telja sjóðinn af hinu góða. Þeir
töldu hins vegar eðlilegt að málið yrði
skoðað gaumgæfilega áður en bærinn
legði meira fé i sjóðinn, en sú tillaga var
ekki til formlegrar afgreiðslu á fúndin-
um í gær. -BG
Handvttrttsfélk sélnaéllar
(Ölæátlegut jólamarkaíiur
Til stendur að setja á laggirnar mjög
áhugaverðan jólamarkað í salarkynnum Þinghús
Café í Hveragerði (gamla Hótel Hveragerði) frá
1. desember til 24. desember- marlcað með sem
breiðast úrval af jólavörum.
Nir sem hafa áhyga á að tryggja sér bás hafi
sanebðnd við Helgu i sima 483 5212,
83 4663 eða 696 3357 eða með tölvupóstl
á netfanglð shelgasv®mmedia.ls