Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2001, Blaðsíða 26
42
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2001
íslendingaþættir________________________________________________________________________________________________________X>V
Umsjón: Kjarian Gunnar Kjartansson
Helgi Vilberg
skólastjóri Myndlistaskólans á Akureyri
85 ára__________________________
Ingólfur Ólafsson vélstjóri,
Jökulgrunni 6a, Reykjavík.
80 ára__________________________
Sigurður V. Jóhannesson,
Framnesvegi 10, Keflavík.
75 ára__________________________
Ingi Ásmundsson,
Vesturvegi 11, Seyöisfirði.
Margrét A. Kristinsdóttir,
Ljósheimum 20, Reykjavík.
Sigurjón Hallgrímsson,
Miðtúni 19, isafirði.
70 ára__________________________
Ámi Bjarnason,
Uppsölum, Varmahlíð.
Árni Einarsson,
Hjarðarhaga 32, Reykjavík.
Marta Svavarsdóttir,
Víðidal, Varmahlíð.
60 ára__________________________
Bjarni Þ. Jónsson,
Nesvegi 123, Seltjarnarnesi.
Ingibjórg Bjarnadóttir,
Háhölti 8, Keflavík.
Jóhanna Margrét Halldórsdóttir,
Staðarbakka 2, Akureyri.
Jóhanna Þórðardóttir,
Fagurgeröi 10, Selfossi.
Helgi Vilberg Hermannsson,
skólastjóri Myndlistaskólans á
Akureyri, Kaupvangsstræti 14,
Akureyri, varð fimmtugur í gær.
Starfsferill
Helgi fæddist á Akureyri og ólst
þar upp. Hann stundaði listnám við
Myndlista- og handíðaskóla islands
og lauk þaðan kennaraprófi 1973.
Helgi var kennari við Glerárskóla
og Eyrarskóla 1973-77, sat í skóla-
stjórn Myndsmiðjunnar 1973-74,
stofnaði Myndlistaskólann á Akur-
eyri 1974 ásamt Aðalsteini Vest-
mann og Úllu Árdal, varð skóla-
stjóri skólans 1977, stundakennari
við MA 1978-88 og hefur verið
stundakennari við HA 1997-2001.
Helgi hefur haldið fimm einkasýn-
ingar, í Hlíðarbæ 1975, Gallerí Háhól
1978, Slúnkaríki 1985, Gallerí Glugga
1987, Listasafninu á Akureyri 1994 og
tekið þátt í fjölmörgum samsýningum
heima og erlendis, hann hlaut lista-
mannalaun 1981 og 1984.
Helgi var formaður stjórnar
Norðurglugga 1986-88, gjaldkeri Gil-
félagsins 1991-93, formaður bygg-
inganefndar Gilfélagsins 1991-93,
ráðgjafi nefndar Akureyrarbæjar
um Listamiðstöðina í Grófargili
1992-94, fulltrúi Sjálfstæðisílokksins
í menningarmálanefnd Akureyrar
frá 1998, fulltrúi Akureyrar i stjórn
Minjasafnsins á Akureyri frá 1998,
fulltrúi í stjórn Sinfóníuhljómsveit-
ar Norðurlands frá 1998, ritari
Sjáifstæðisfélags Akureyrar 1998-99,
varaformaður 1999-2000 og formað-
ur frá 2000, ritari fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna á Akureyri 2001,
forseti Rótarýklúbbs Eyjafjarðar
2001-2002.
Helgi hafði forgöngu um að stofna
samstarfsnet um myndlistarkennslu
og listuppeldi með áherslu á staf-
ræna tækni - MARK 1998 með þátt-
töku myndlistaskólanna á Akur-
eyri, í Reykjavík og Kópavogi, full-
trúi íslands í yfirstjóm samtaka
myndlistaskóla fyrir ungt fólk á
Norðurlöndum 1997-2000 og í stjórn
NORDIGART frá 1999.
Helgi ritaði greinar um myndlist
og listmenntun í dagblöð og tímarit
Hermannsson, f. 23.10. 1953, d. 13.12.
1954; Hugrún Sif Hermannsdóttir, f.
30.12. 1958, sjúkraliði.
Foreldrar Helga: Hermann Hólm
Ingimarsson f. 17.03. 1931, d. 22.06.
1974, skipasmiður, og Helga Hrönn
Unnsteinsdóttir, f. 21.06. 1933, versl-
unarmaður.
1975-81, rit-
stjóri Menning-
arvefs Akureyr-
ar frá 1999, rit-
stjóri vefritsins
íslendings, mál-
gagns fulltrúa-
ráðs sjálfstæð-
isfélaganna á
Akureyri, frá
2001.
Fjölskylda
Helgi kvænt-
ist 7.11. 1971
Soffíu Sævars-
dóttur, f. 27.6.
1950, hár-
greiðslumeist-
ara. Hún er
dóttir Sævars Halldórssonar, f. 10.9
1923, ljósmyndara í Reykjavik, og
Helgu Rannveigar Júniusdóttur, f.
27.4. 1925, d. 8.12. 1953, húsmóður.
Börn Helga og Sofííu: Rannveig;
Ýr, sambýlismaður Sveinn Sævar
Frímannsson; Helgi Vilberg jr.
Systkyni Helga, Unnsteinn Hólm
50 ára_______________________________
Gerður Guðnadóttir,
Efstahrauni 6, Grindavik.
Guðbjörn Gísli Egilsson,
Reykjavíkurvegi 16, Hafnarfirði.
Gunnar Þ. Júlíusson,
Stekkjarbergi 10, Hafnarfirði.
Helgi Snorrason,
Garöhúsum 55, Reykjavík.
Kolbrún Kristinsdóttir,
Sunnuvegi 4, Hafnarfirði.
Ólafia Einarsdóttir,
Hátúni lOa, Reykjavík.
40 ára_______________________________
Agnes Þóra Guðmundsdóttir,
Suöurhvammi 13, Hafnarfirði.
Anna Eiríksdóttir,
Kleppsvegi 44, Reykjavík.
Ásta Björk Björnsdóttir,
Flúðaseli 61, Reykjavik.
Elín Jóna Haraldsdóttir,
Reyrhaga 18, Selfossi.
Geir Arnar Geirsson,
Vesturbergi 155, Reykjavík.
Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir,
Stararima 47, Reykjavík.
Sigrún Hildur Ragnarsdóttir,
Stóru-Hildisey 2, Hvolsvelli.
Sólrún Hulda Ragnarsdóttir,
Vallarbraut 7, Akranesi.
Þorvaldur Ragnarsson,
Esjugrund 9, Reykjavík.
Ása
Snæb j örnsdóttir
- leiðrétting -
f grein um Ásu
Snæbjörnsdóttur, sem
varö sjötíu og fimm ára
þann 26.10. sl., var
ranghermt um konu
Snæbjörns, sonar Ásu.
Kona Snæbjörns er Hlíf
Pálsdóttir. Þau Snæbjörn og Hlíf
starfrækja saman Hótel Iðufell. Þetta
leiðréttist hér með.
----jr---------
IJrval
- gott í hægindastólinn
Andlát
Jón Pétursson, fyrrv. leigubílstjóri á
BSR, áður til heimilis á Skúlagötu 66,
Reykjavík, lést á Grund mánud. 5.11.
Marteinn Sívertsen, siöast til heimilis í
Litlageröi 7, Reykjavík, lést á hjúkrunar-
heimilinu Holtsbúð, Garðabæ, 4.11.
Arnbjörn Ólafsson, Hafnargötu 36,
Keflavík, andaðist á Heilbrigöisstofnun
Suðurnesja aö kvöldi fimmtud. 1.11.
Guöni Ineólfur Guðnason lést í umferö-
arslysi í Svíþjóð laugard. 3.11.
Þórólfur Jónsson frá Auðnum í Laxárdal,
Þinghólsbraut 61, lést á hjúkrunarheim-
ilinu Sunnuhlíö þriðjd. 6.11.
Kristján Stefánsson Wiium, Hveramörk
8, Hveragerði, lést á Sjúkrahúsi Suður-
lands mánud. 5.11.
Karl Guðmundsson frá Bæ í Steingríms-
firöi, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness 5.11.
Ása Björk Snorradóttir
myndlistarkennari í Hafnarfirði
Ása Björk Snorradóttir
myndmenntakennari,
Austurgötu 41, Hafnar-
firði, er fimmtug í dag.
Starfsferill
Ása Björk fæddist í
Reykjavík, ólst þar upp og
var þar búsett til 1974 en
hefur síðan átt heima í
Hafnarfirði. Hún lauk
kennaraprófi frá Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1981 og stund-
að framhaldsnám við Danmarks
Lærerhojskole og Slojdskolen
1996-97.
Ása Björk hefur kennt frá því
hún lauk námi, lengst af við Víði-
staðaskóla. Hún var formaöur Fé-
lags myndlistarkennara 1982-84, sat
í samstarfsnefndum um norrænt
samstarf myndlistarkennara 1983-
87, var formaður Kennarafélags
Reykjaness 1984-86, var formaður
jafnréttisnefndar Kennarafélags ís-
lands 1988-89 og starfaði með
Kvennalistanum frá upphafi.
Fjölskylda
Ása Björk giftist 24.6.1971 Kristni
Aadnegard, f. 25.3. 1948, hafnsögu-
manni. Hann er sonur Ola Aadne-
gard, f. 5.6. 1910, d. 4.2.
1981, og Maríu Ragnars-
dóttur, f. 28.6. 1921, hús-
móður á Sauðárkróki.
Böm Ásu og Kristins:
Elva Dögg, f. 21.3. 1969,
myndlistamaður í Hafn-
arfiröi, gift Ragnari
Kristjánssyni, doktor í
rafmagnsverkfræði og
eru dætur þeirra Iðunn
Björk, f. 25.6.1994, og Gefjun Glóð, f.
25.9. 1999; Örvar Már, f. 21.6. 1972,
söngnemi í Vínarborg, kvæntur
Þóru Björnsdóttur söngkonu og er
sonur þeirra Björn Ari, f. 9.9. 1997.
Alsystir Ásu: Auður Snorradóttir,
f. 24.2. 1955, d. 19.9. 1996.
Hálfsystkini Ásu Bjarkar, sam-
feðra, eru Bjarkar Snorrason, f. 13.6.
1945; Guðný Elín Snorradóttir, f.
16.10. 1950.
Foreldrar Ásu Bjarkar voru
Snorri Guðlaugsson, f. 8.5. 1920, d.
6.12. 1980, kaupmaður í Reykjavík,
og Brynhildur Björgvinsdóttir, f.
14.10. 1915, d. 30.1. 1974, húsmóðir.
Ása Björk tekur á móti gestum í
Bjarkarhúsinu viö Haukahraun
(Gamla Haukahúsinu) laugard.
10.11. frá kl. 20.00.
Sjötug
Sveinbjörg Jónsdóttir
húsmóðir í Njarðvík
Sveinbjörg Jónsdóttir
húsmóðir, Akurbraut 17,
Njarðvík, er sjötug í dag.
Starfsferill
Sveinbjörg fæddist í
Stykkishólmi, ólst upp í
Ási I Stykkishólmi og var í
barnaskóla þar. Hún flutti
til Reykjavíkur ung kona,
vann þar við barnagæslu
um skeið og starfaði síðan við mötu-
neyti á Keílavíkurflugvelli.
Eftir að Sveinbjörg gifti sig fluttu
þau hjónin upp í Borgarnes þar sem
þau bjuggu í nokkur ár. Þau voru
búsett á Hellissandi í fjögur ár,
fluttu síðan til Keflavíkur og þaðan
til Njarðvikur þar sem þau hafa átt
heima frá 1970.
Sveinbjörg starfaði og söng með
Kvennakór Suðurnesja um nokk-
urra ára skeið.
Fjölskylda
Sveinbjörg giftist 1.1. 1958 Guð-
jóni Ormssyni, f. 3.8.1920, rafvirkja-
meistara. Hann er sonur Orms
Ormssonar, f. 4.3.1891, d. 25.12.1965,
rafvirkjameistara í Borgamesi, og
k.h., Helgu Kristmundardóttur, f.
19.12. 1897, d. 3.5. 1977, húsmóður.
Börn Sveinbjargar frá
því áður eru Ásdís Mó-
eiður Sigurðardóttir, f.
2.1. 1951, læknaritari,
maður hennar er Ámi G.
Árnason og eiga þau þrjú
börn; Róbert Rósmann, f.
25.2. 1956, verkamaður.
Börn Sveinbjargar og
Orms eru Guðrún Svan-
hvít Guðjónsdóttir, f. 13.12.
1960, maður hennar er Gunnar Ind-
riðason og eiga þau þrjú börn; Helga
Maria Guðjónsdóttir, f. 5.3. 1962, mað-
ur hennar er Anton Már Antonsson
og á hún tvö börn auk þess sem Ant-
on Már á dóttur frá því áður.
Systkini Sveinbjargar: Pétur, lát-
inn; Guðríður, látin; Anna Pálína;
Páll Helgi, dó ungur; Jón Gunnar;
Sigriður; Gísli Berg; Ása Katrín, dó
ung; Pálmi; Sigurborg María.
Foreldrar Sveinbjargar: Jón Rós-
mann Jónsson, f. 11. 9.1885, d. 31.12.
1965, sjómaður og verkamaöur, og
Magðalena Svanhvit Pálsdóttir, f.
25.11. 1894, d. 4.9. 1964, húsmóðir.
Þau bjuggu í Stykkishólmi.
Sveinbjörg tekur á móti gestum á
heimili Guðrúnar dóttur sinnar,
Hlíðarvegi 20, Njarðvík, laugard.
10.11. kl. 16.00.
Níutíu og fímm ára
Guðbjörg Kristjánsdóttir
fyrrv. ráðskona á Eskifirði
Guðbjörg Kristjánsdóttir, hjúkr-
unar- og dvalarheimilinu Huldu-
hlíð, Eskifirði, er níutíu og fimm
ára er í dag.
Starfsferill
Guðbjörg fæddist í Ólafsvík en
missti föður sinn nýfædd og flutti
þá ásamt móður sinni austur á
Reyðarfjörö. Þar ólst hún upp hjá
Stefáni Björnssyni, pr. á Hólmum.
Guðbjörg flutti til Eskifjarðar
átján ára og hefur búið þar síðan.
Þar starfaði hún hjá Friðgeiri Fr.
Hallgrímssyni kaupmanni allt þar
til hann hætti verslun og var síðan
því að það tók til starfa í
ágúst árið 1989.
ráðskona hjá Símoni
Jónassyni, athafnamanni
þar, allt til hann lést 1972.
Auk þess sinnti hún víða
húshjálp og ræstingum,
sá m.a. um ræstingar í
læknabústaðnum og á
heilsugæslustöðinni í
fjörutíu ár.
Guðbjörg hefur búið á
hjúkrunar- og dvalar-
heimili Hulduhlíðar á Eskifirði frá Kristján Guðmundsson.
Fjölskylda
Hálfsystkini Guðbjarg-
ar, sammæðra, voru Una
Vigfúsdóttir og Skúli Vig-
fússon. Þau eru bæði lát-
in. Foreldrar hennar hétu
Guðrún Skúladóttir og
Karl ísfeld Níelsson Lilliendahl, rithöf-
undur og þýðandi, fæddist á Sandi i
Aðaldal 8. nóvember 1906. Hann var son-
ur Niels Lorenz Thorvald Jakobsson
Lilliendahl, kaupmanns á Akureyri, og
Áslaugar Friðjónsdóttur, hálfsystir
Guðmundar Friðjónssonar, skálds frá
Sandi, Sigurjóns, skálds, oddvita og al-
þingismanns á Litlu-Laugum, og Er-
lings, kaupfélagsstjóra og alþingis-
manns.
Karl lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1932 og stundaði
nám í íslenskum fræðum við Háskóla fs-
lands 1932-35. Karl var blaðamaður við Al-
þýðublaðið 1935-44, ritstjóri Vinnunnar,
tímarits Alþýðusambands íslands.
Karl ísfeld
Karl var skáldmæltur og gaf út frumsamin
og þýdd ljóð. Hans verður þó lengst minnst
sem eins fremsta þýðanda hér á landi.
Hann þýddi m.a. Kamelíufrúna eftir
Dumas; Jólaævintýri, eftir Charles Dic-
kens; Bör Börsson, eftir Johan Falk-
berger; Ævintýri góða dátans Sveiks í
heimsstyrjöldinni, eftir Jaroslav
Hasek og Og sólin rennur upp og Einn
gegn öllum eftir Hemingway.
Sumar þýðingar sinar vann hann í
samvinnu við konu sína, Sigríði Ein-
arsdóttur frá Munaðarnesi, systur Mál-
fríðar skáldkonu. Á það ekki síst við
bundið mál, s.s. þýðingar á finnsku goð-
sagnakvæðunum Kalevala sem er líklega allt
eins hennar þýðing. Karl lést 1960.
Jóhanna Guömundsdóttir, Rauöalæk
42, Reykjavík, veröur jarðsungin frá
Dómkirkjunni fimmtud. 8.11. kl. 15.00.
Friörikka Bjarnadóttir, Hrafnistu, Hafn-
arfiröi, áöur Selvogsgötu 24, Hafnar-
firði, veröur jarösungin frá Hafnarfjarðar-
kirkju fimmtud. 8.11. kl. 13.30.
Rósa Pálsdóttir, Grandavegi 47, veröur
jarðsungin frá Laugarneskirkju fimmtud.
8.11. kl. 13.30.
Sigríöur Lovísa Guölaugsdóttir, Afla-
granda 40, Reykjavík, veröur jarösungin
frá Fossvogskirkju föstud. 9.11. kl.
13.30.
Útför Kristínar Pétursdóttur, Grænuhlíð
14, Reykjavík, veröur gerö frá Fossvogs-
kirkju föstud. 9.11. kl. 15.00.
Lukka Ingvarsdóttir, Geitlandi 8,
Reykjavík, veröur jarösungin frá Bú-
staðakirkju föstud. 9.11. kl. 13.30.