Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2001, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2001, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2001 Landið íslandsfugl á Dalvík: Bæjarstjóri á að fara með fjármálin - Rögnvaldur Skíöi Friöbjörnsson tekur viö starfinu þegar kjörtímabilinu lýkur næsta vor íslandsfugl ehf. hefur ráöið Rögn- vald Skíða Friðbjömsson, bæjar- stjóra í Dalvíkurbyggð, í stöðu fjár- málastjóra fyrirtækisins og mun hann hefja störf hjá íslandsfugli að loknu yfirstandandi kjörtímabili núsitjandi sveitarstjórnar Dalvíkur- byggðar en því lýkur næsta vor. Á fundi bæjarráðs Dalvíkur- byggðar sl. fimmtudag greindi Rögnvaldur Skíði frá þeirri ákvörð- un sinni að ráða sig til starfa hjá ís- landsfugli ehf. við lok þessa kjör- tímabils. Rögnvaldur Skíði baðst jafnframt undan því að vinna að málefnum íslandsfugls komi þau til umfjöllunar hjá sveitarfélaginu á meðan hann gegnir starfi bæjar- stjóra og varð bæjarráð við þeirri ósk. Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson hóf störf sem bæjarstjóri Dalvíkur- Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson, byggðar í júní 1994 og lýkur því i vor sínu öðru kjörtímabili í starfi bæjar- stjóra. Áður var Rögnvaldur Skíði skrifstofustjóri og síðar útibússtjóri Kaupfélags Eyfirðinga á Dalvík sam- tals í 22 ár. íslandsfugl ehf. er eins og kunnugt er kjúklingaframleiðslufyrirtæki sem hóf starfsemi sl. vetur. Varphús er á Árskógsströnd, eldishús í landi Ytra- Holts, sunnan Dalvíkur, og slátur- og vinnsluhús og útungunarstöð á Dal- vík. Slátrun hófst í ágúst síðastliðn- um og er slátrað milli 10 og 11 þúsund fuglum í hverri viku. Uppbygging Is- landsfugls hefur verið hröð og hún mun halda áfram. Nú er hafin bygg- ing annars varphúss á Árskógsströnd og er stefnt á að það verði komið und- ir þak í desember. Á fimmta tug starfsmanna eru nú á launaskrá hjá íslandsfugli ehf. -hiá Meirihluti sjálfstæðismanna býður Búseta velkominn á Álftanesið: Búseti byggir leiguíbúð- ir í Bessastaðahreppi Vatn Seyðfirðinga Vatnsbúskap á Seyðisfirði á aö bæta, finna heitt og kalt vatn úr jörðu, en það er í dag fengið úr lækjum. Seyðisfjörður: Leitað að heitu vatni og köldu Undanfarna daga hefur jarðbor- inn frá Alvarr leitað að heitu vatni á Seyðisfirði. Þessi leit hefur ekki borið árangur enn sem komið er. Þegar komið var niður á 120 metra dýpi kólnaði hitastigullinn. Borun er því hætt á þessum stað og ekki búiö að taka ákvörðun um næstu framkvæmdir í heitavatnsleitinni. En næsta verkefni er borun eftir köldu vatni fyrir bæinn. í dag er rekin rándýr hreinsistöð fyrir vatnið sem er tekið úr ánni og þarf ekki nema eitt umhverfisslys til þess að það verði ónýtt til mann- eldis. -KÞ Á fundi hreppsnefndar Bessa- staðahrepps 16. október sl. var samþykkt viljayfirlýsing milli Bessastaðahrepps og húsnæðis- samvinnufélagsins Búseta um að á vegum Búseta verði byggðar 15-20 leiguíbúðir í Bessastaðahreppi á næstu 2-4 árum. Viljayfirlýsing Bessastaðahrepps og Búseta er gerð með hliðsjón af sérstöku átaki til fjölgunar leigu- íbúða á höfuðborgarsvæðinu, sem félagsmálaráðherra, Páll Péturs- son, lagði grunninn að meö sam- komulagi sínu við íbúðalánasjóð, Samband lífeyrissjóðanna og Bú- seta í apríl sl. um að Búseti taki að sér að byggja og reka 300 leigu- íbúðir á höfuöborgarsvæðinu á næstu fjórum árum. Samkvæmt viljayfirlýsingunni stefnir Búseti að því að byggja og reka hagkvæmar íbúðir i Bessa- staðahreppi og verður lögð áhersla á minni íbúðir. Þá er gert ráð fyr- ir því að Bessastaðahreppur út- hluti í upphafi allt að þriðjungi þess fjölda leiguíbúða sem sam- þykkt verður að byggja og að þeg- ar íbúðir losna í framtíðinni muni Búseti gefa sveitarfélaginu kost á að auglýsa íbúðimar lausar til leigu, áður en til almennrar aug- lýsingar af hálfu Búseta kemur. Viljayfirlýsingin við Búseta var samþykkt í hreppsnefnd Bessa- staðahrepps með íjórum atkvæð- um fulltrúa Sjálfstæðisfélagsins í hreppsnefndinni. Þrír fulltrúar minnihlutans sátu hjá og létu bóka að þeir líti svo á að hér sé á ferð- inni mjög jákvætt mál, en viljayfir- lýsingin sé ótímabær, þar sem land, deiliskipulag og áætlaður kostnaður hreppsins viö landa- kaup, gatnagerð og lagnir liggi ekki fyrir. Viljayfirlýsingin var undirrituð á skrifstofu Bessastaða- hrepps á Bjarnastöðum fyrir skömmu. -DVÓ DV-MYND SIGURÐUR K. HJÁLMARSSON Vetrarlegt Það var orðið vetrarlegt norðan heiöa fyrsta vetrardag og snjór kominn í fjöll. Þessi fallega vetrarstilla er frá svæðinu vestanvert við Vatnsdalshóla. Sveitarfélögin: Holræsamál- in eru þeim um megn Bæjarráð Akraness fjallaði ný- lega um holræsamál sveitarfélaga landsins og telur ljóst að fjölmörg sveitarfélög munu ekki geta uppfyllt skilyrði mengunarvarnareglugerða varðandi holræsamál fyrir árið 2005 vegna gífurlegs kostnaðar. Bæjarráðið skorar á stjórn Sam- bands íslenskra sveitarfélaga að taka nú þegar upp viðræður við rík- is.stjómina um málið. Nauðsynlegt er áð leita leiða sem taki tillit til séraðstæðna hjá sveitarfélögum í því skyni að lækka framkvæmda- kostnað. Að auki verði óskað eftir frekari þátttöku ríkisins í heildar- kostnaði verkefnisins og sett verði ný tímamörk sem unnt verði að standa við. -DVÓ — Vífilsstaöaspítali. Vilja taka við rekstri Vífils- staðaspítaia Garðbæingar eru tilbúnir að taka við rekstri Vífilsstaðaspítala og reka þar hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Málið var rætt á síðasta fundi bæjarráðs Garðabæjar og var samþykkt samhljóða að taka upp viðræður við heilbrigðisráðherra og forstjóra sjúkrahússins um mögu- leika Garðabæjar eða eftir atvikum Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Holtsbúðar á því að sinna þeim rekstri. Bæjarráð segir mikla og vaxandi þörf fyrir dvalar- og hjúkr- unarrými í Garðabæ og brýnt sé að leita allra hugsanlegra leiða til þess að mæta þeirri þörf á næstu misser- um. Enn fremur var samþykkt að ræða framtíðarnýtingu á lóð Vífils- staðaspítala. -DVÓ Bjargvættur Vllhjálmur Blrgisson gangavörður - hann sýndi snarræði og slökkti eld I göngunum nýlega. Hratt ekið í göngunum: Tekinn á 121 km hraða og borgaði 50 þúsund í sekt Dregið hefur úr hraða í göngun- um en ástandið er þó ekki nógu gott að því er kemur fram á vefsíðu Spal- ar. Þrátt fyrir að dregið hafi úr hraðakstri í Hvalljarðargöngunum eftir tilkomu hraðaljósmyndavél- anna er ástandið hvergi nærri gott og í vikunni valt bifreið í göngun- um eins og kunnugt er. Alls voru 331 ökumaður festir á filmu vegna hraðaksturs vikuna 14. til 21. sept- ember síðastliðinn svo ein vika sé tekin af handahófi. Að sögn Viðars Waage, varðstjóra hjá lögreglunni í Reykjavík, óku flestir þeirra sem teknir voru fyrir of hraðan akstur á 80 til 100 km hraða á klukkustund. Mesti hraði sem hraðamyndavélin hefur mælt í göngunum var 121 km á klukku- stund og þurfti ökumaður bílsins að greiða 50.000 krónur í sekt. Sektir fyrir hraðakstur í göngunum eru sem hér segir: 5 .000 króna sekt ef ekið er á hrað- anum 81 km til 85 km. 10.000 króna sekt ef ekið er á hraðanum 86 km til 90 km. 15.000 króna sekt ef ekið er á hraðanum 91 km til 95 km. 20.000 króna sekt ef ekið er á hraðanum 96 km til 100 km. 30.000 króna sekt ef ekið er á hraðanum 101 km til 110 km. 40.000 króna sekt ef ekið er á hraðanum 111 km til 120 km. 50.000 króna sekt ef ekið er á hraðanum 121 km til 130 km. -DVÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.