Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2001, Side 12
12
MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001
Skoðun I>V
Birt aftur vegna mistaka í blaðinu í gær.
Beðist er velvirðingar.
Réttlætið verður að hefnd
Víglundur Sívertsen húsasmíöameistari:
Já, og fannst hún fín, leiðinlegt samt
að styttan skyldi brotna hjá Ómari
Ragnarssyni.
Sigurður Sívertsen, 11 ára:
Já, ég var ánægður með Jón Gnarr.
Gísii Stefánsson flugvirki:
Nei.
Ellen Björnsdóttir móðir:
Já, mér fannst hún ágæt.
Edgar K. Gapunay danskennari:
Nei, ég var að vinna.
Jón Gunnar Gunnarsson nemi:
Já, mér fannst vanta meiri dýpt í
heildina séð.
Eftir árás á almannafæri
Fórnariambið veröur oft að sökudólgi.
Ragnar Jóhann Jónsson
skrifar:
Karl eða kona, sem fremur glæp,
sætir refsingu lögum samkvæmt.
Afbrot þeirra eiga sér alltaf ein-
hverjar skýringar, aðdraganda og
forsögu. Allt sem við gerum á sér
orsök og upphaf, sem eiga það til
að koma síðar fram í skelfilegum
afleiðingum og ógæfu fólks. Fyrst
og fremst á samt hver og einn að
vera ábyrgur gerða sinna.
Strax eftir að einhver hefur orð-
ið fyrir barðinu á afbrotamanni,
t.d. verið rændur, orðið fyrir lík-
amsárás eða jafnvel nauðgun, nýt-
ur fórnarlambið réttmæts skiln-
ings og samúðar. Síðan kemur að
því að taka þarf á afbrotinu, af
þeim sem það er ætlað, t.d. lög-
reglu og dómstólum. í umræðunni
vill það oft verða þannig að skiln-
ingur og samúð með afbrotamann-
inum vex og smám saman er hann
orðinn að hálfgerðu fórnarlambi.
í hugum manna snýst refsingin
upp i hefnd og umræðan getur átt
það til að einkennast talsvert af
því sjónarmiði að verið sé að ná
fram hefnd en ekki réttlæti. Skýr-
inga og afsakana er leitað, t.d. aö
afbrotamaðurinn hafi átt erfiða
æsku, honum hafi e.t.v. gengið illa
í skóla. Svo ekki sé talað um
drykkjuskap og eiturlyfjavanda-
mál. Nánast eins og viðkomandi
hafi smitast af flensu. Fórnarlamb-
ið verður því oft að sökudólgi og
ógæfa afbrotamannsins jafnvel tal-
in því að kenna. Og eftir því sem
afleiðingar afbrotsins eru meiri og
refsingin þyngri því meiri virðist
samúðin með afbrotamanninum.
Hámarki sínu virðist þessi
„skilningur" og umburðarlyndi ná
þegar glæpurinn verður af þeirri
stærðargráðu að hann reynist okk-
ur óskiljanlegur, t.d. þegar einhver
er myrtur á samviskulausan og
hrottafenginn hátt og algjörlega að
„í hugum manna snýst
refsingin upp í hefnd og
umrœðan getur átt það til
að einkennast talsvert af
því sjónarmiði að verið sé
að ná fram hefnd en ekki
réttlœti. “
tilefnislausu. Flest, ef ekki öll, vilj-
um við sýna samferðafólki okkar
skilning, tillitssemi og umburðar-
lyndi. Þetta er eins og margt annað
vandmeðfarið.
Bein afleiðing þess að misskilja,
afbaka og misnota þessar mætu
dyggðir, jafnvel í pólitísku upp-
hafningarskyni, er sú lítilsvirðing
sem hinu raunverulega fórnar-
lambi er sýnd, að ekki sé minnst á
tilfinningar aðstandenda sem horft
hafa upp á nauðgun, manndráp
eða jafnvel morð nákominna. Kall
þeirra eftir réttlæti er sagt stafa af
þorsta eftir hefnd og þetta er jafn-
vel gert í nafni umburðarlyndis.
Þetta er að sjálfsögðu afskræming
á því og dyggðin þar með orðin að
synd og hinn gullni meðalvegur
þyrnum stráður.
f Noregi og á íslandi
„í Noregi þora stjómmála-
menn að gera breytingar. Hér
má engu breyta, og þrátt fyrir
frelsisfjasið í sjálfstœðismönn-
um virðist sem Sjálfstæðis-
flokkurinn sé í raun ekki
flokkur fyrir frjálslynt fólk á
íslandi. “
Magnús Baidursson
skrifar:
Athyglisvert er að fylgjast með
pólitík í Noregi. Þar er nú tekin við
stjórn hægri- og miðflokka. Það er
fróðlegt að sjá hvernig stjórnmála-
menn starfa þar og bera saman við
ísland. Nýja stjórnin hefur nú þegar
lækkað skattana. Verð á áfengi
verður lækkað og dregið verður úr
styrkjum til landbúnaðar. Er á döf-
inni að lækka skatta hér á almenn-
ing? Nei, ekki aldeilis, Fyrirtækin
fá skattalækkun en almenningur er
áfram skattpíndur. Um það sér fjár-
málaráðherra Sjálfstæðisflokksins.
Getur einhver ímyndað sér að
stjórnvöld hér lækkuðu verð á
áfengi? Óhugsandi, enda ráða áfeng-
isvarnarfrömuðir svonefndir og
reykingavarnarfrömuðir öllu hér.
íslenskir stjórnmálamenn hafa
ekki bein í neánu til að standa fyr-
ir neinum breytingum. Eða að
draga úr styrkjum til landbúnaðar?
Auðvitað ekki. Hér ræður landbún-
aðar-elítan og LÍÚ-elítan, svo og sér-
hagsmunahóparnir öllu. í Noregi
þora stjórnmálamenn að gera breyt-
ingar. Hér má engu breyta, og þrátt
fyrir frelsisfjasið í sjálfstæðismönn-
um virðist sem Sjálfstæðisflokkur-
inn sé í raun ekki flokkur fyrir
frjálslynt fólk á íslandi. Fremur
flokkur ríkisútþenslu og miðstýr-
ingar.
Útgjöld ríkisins þenjast út, menn-
ingin er ríkisrekin líkt og báknið
allt sem Sjálfstæðisflokkurinn þótt-
ist vilja burt. Ráðherrar hans slá öll
met í vanhæfni, jafnvel ósvífni. í
Noregi ráða stjórnmálamenn, hér
virðast ráða hugsjóna- og huglausir
hagsmunaverðir.
Átakalínunet
Deilan um Linu.net berst nú um víðan völl og
eru margir kallaðir í þessum mikla slag Alfreðs
Þorsteinssonar við sjömenningana i minnihluta
borgarstjórnar Reykjavikur. Lengst af hefur
þessi deila verið bundin við borgarmörkin og
þær miklu skuldir sem stofnað hefur verið til í
tengslum við fyrirtækið og hefur mörgum þótt
nóg um, enda hliðarverkanir málsins miklar og
stórfenglegar. Ein afleiðing þessa stríðs er sala
Perlunnar í Öskjuhlíð, sem er auðvitað mikið
áfall fyrir höfuðleiðtoga sjálfstæðismanna, Davíð
Oddsson, því þetta sérlega minnismerki hans
gengisfellur vitaskuld talsvert ef óbreyttir kaup-
sýslumenn fara aö búa til úr þessu einhverja
gróðasjoppu, svo ekki sé talað um ef sá kaupa-
héðinn yrði Skífu-Jón sem sjálfstæðismenn hata
eins og pestina! En næsta fórnarlamb þessa
stríðs kynni svo að verða sjálft Ráðhúsið ef
marka má fréttir og eru menn þá komnir ansi
nálægt hinum biblíska tóni - að gefa víxlurun-
um kost á að setja upp borð sín í musteri Dav-
íðs.
Ljósleiðarí sjálfstæöismanna
En þrátt fyrir þung áfóll virðast deiluaðilar
ekkert á því að draga úr bardagaþunganum og
nú hefur Alfreð Þorsteinsson þróað málið yfir á
nýtt stig með því að skrifa grein í blöðin þar
sem hann stillir upp ljósleiðaratengingu Lands-
virkjunar norður í land til Akureyrar og kallar
það „ljósleiðara sjálfstæðismanna". Alfreð minn-
ir á að í Landsvirkjun stjórna sjálfstæðismenn-
irnir Friðrik Sophusson og Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson auk þess sem á Akureyri sitji í bæjar-
stjórastól sjálfstæðismaðurinn Kristján Þór Júlí-
usson. í sameiningu eru þessir menn að vinna
að því í góðri samvinnu við orkuveitufyrirtæki
Akureyringa, Norðurorku, að búa til ljósleiðara-
kerfi á Akureyri, eins og lesa mátti um í fróð-
legri frétt í DV í gær.
Flækist málið
Garra sýnist því stríðið um Linu.net vera að
ná nýjum víddum. Átakalínur sem áður voru öll-
um skýrar og auðskiljanlegar eru nú orðnar að
flóknu átakalínuneti, sem er ekki nema í meðal-
lagi gagnsætt og skiljanlegt. Þannig flækir það
óneitanlega málið að sjálfstæðismenn á Akureyri
og í Landsvirkjun séu að búa til sitt eigið
Linu.net norðan heiða á meðan sjálfstæðismenn
í Reykjavík eru alveg kolvitlausir út í Linu.net
sunnan heiða. Og ekki einfaldar það málið að
sumir sjálfstæðismenn - eins og Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson - eru stundum með Línu.neti og
stundum ekki, þeir eru með því fyrir norðan en
móti því fyrir sunnan. Hin stórpólitíska spurn-
ing sem nú blasir við er því hvort hægt verður
að halda uppi sama dampi í bardögum og áður,
eftir að átakalinurnar breyttust í þetta merkilega
átakalínunet. Þeirri spurningu hlýtur að verða
svarað i næstu þáttum hinnar pólitisku þáttarað-
ar um Línuna og netið - Garri biður spenntur.
Garri
Borgarstjórinn og oddvitinn
Gantast í Kína í góöra vina hópi.
í Kínaferð
Guðni Jónsson skrifar:
Altalað er að sendinefnd frá
Reykjavíkurborg sé þessa dagana
stödd í Kfna í boði borgaryfirvalda
tveggja borga þar. Að sögn á að ræða
þar m.a. um jarðhitamál og samstarf á
því sviði. Enginn sérstakur sérfræð-
ingur í orkumálum íslendinga er þó
sagður í ferðinni. Meirihlutinn konur.
Og þar á meðal fjandvinkonurnar
pólitísku, Ingibjörg Sólrún borgar-
stjóri og Inga Jóna Þórðardóttir, sjálf-
skipaður oddviti þeirra sjálfstæðis-
manna í minnihluta borgarstjórnar.
Nú ætti að vera tækifærið fyrir þær
tvær, „Ingurnar" að sannmælast um
samstöðu í komandi kosningum um
að þær verði báðar í 8. sæti, hvor á
sínum listanum. Eða hvort ætti ekki
boðsferð til Kína að nýtast til að eta,
drekka og gantast í góðra vina hópi?
Frímiðar og dagpeningar brúa jú
breiðu gjárnar.
Undarleg kvik-
myndagagnrýni
Guftmundur Thor Guðmundsson skrifar:
Það má sennOega deila um kvik-
myndir endalaust, enda smekkur
manna misjafn. Hins vegar finnst mér
óvönduð vinnubrögð og forheimska
alltaf leiðinleg. Skrif Sigríðar hjá
Fréttablaðinu finnst mér dæmi um
einstaklega kjánalega kvikmynda-
gagnrýni. Hún ætti fremur að skrifa
jólakökuuppskriftir í Skessuhornið
eða Garn & gaman. í nýlegri umOöllun
sinni um myndina „The Others" sem
sýnd er í Háskólabíói getur hún ekki
setið á sér eftir að hafa skrifað að
„sögulokin ætla ég ekki að upp-
ljóstra", og uppljóstrar endinum á
þann eina hátt sem vanhæfur kvik-
myndagagnrýnandi gæti gert. Vilji
Fréttablaðið láta taka sig og efni blaðs-
ins alvarlega ætti það að vanda betur
til skrifa um kvikmyndagagnrýni.
Brottkast í aksjón
Skapar toppverömæti.
Ótrúverðug
sjónvarpsfrétt
Sjðmaður á Suðurnesjum skrifar:
Sjaldan eða aldrei hef ég séð annað
eins fals og fréttaklúður og í Sjón-
varpinu um meint brottkast á flski.
Blaðamönnum boðið eða þeir knúið á
um að fara í túr með þessum um-
ræddu bátum? Skiptir ekki máli. Þeir
voru í þessum túrum. Hvort dettur
mönnum nú í hug að með þá um borð
yrði meira eða minna um brottkast?
Auðvitað meira. Miklu meira en
nokkru sinni hefur gerst. Annars
hefði þetta ekki orðið stórfrétt. Og
fréttamaðurinn ásamt ljósmyndara
fengu þjóðina til að hneykslast. Hví-
líkt andsk... rugl! Og allir ljúka upp
sama munninum: Hneyksli. Sann-
leikurinn er sá að enginn, ég fullyrði;
enginn sjómaður, né útgerðarmaður
myndi vilja missa af því „kerfi“ sem
þeir þykjast nú vera að gagnrýna svo
mjög. Það er brottkastið sem gefur
þeim verðmætin og ekkert annað
„kerfi“ myndi geta gert það. Það er
engu landað öðru en toppverðmæti,
og það vill enginn missa. - Ég segi:
Heyr á endemi!
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eða sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar með bréfunum á
sama póstfang.