Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2001, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001
DV
37
EIR á miðvikudegi
Misskilið skop
Þekktur læknir 1 Reykjavík hefur
hótaö að kæra höfunda og útgefend-
ur læknaskopsbókarinnar Með lífið
í lúkunum
vegna gaman-
sögu sem þar er
hermd upp á
hann. Hefur
læknirinn sent
bókaútgáfunni
Hólum erindi
þessa efnis og
er æfur.
„Sjálfum
finnst mér þetta
saklaust grin og
ég vona bara að
...... læknirinn nái
andanum þegar
líður á daginn. Hann ætti að vita að
tíminn læknar öll sár,“ segir Jón
Hjaltason, annar höfunda bókarinn-
ar um læknaskopið, sem ætlar að
reyna að milda lækninn áður en
lengra er gengið.
Læknafyndni
Ekki öllum
skemmt.
Reynir Tómas
Pillunni fylgdi frelsi.
Pillan fertug
Getnaðarvarnarpillan er fertug á
þessu ári. Hún kom fyrst fram í
formi sérlyfsins Anovlar í Þýska-
landi árið 1961 en barst ekki til Is-
lands fyrr en fimm árum síðar.
Reynir Tómas Geirsson, kvensjúk-
dómalæknir
og prófessor,
skrifar leið-
ara um pill-
una í nýjasta
hefi Lækna-
blaðsins og
segir þar
meðal ann-
ars:
„Fyrir 40
árum var úr
litlu að velja ... Smokkurinn var
eina áreiðanlega getnaðarvömin, ef
varlega var farið, en hann fékkst
ekki víða ... Pillan breytti lífi karla
og kvenna. Með henni kom frelsi til
að velja hvenær og hve oft börn
urðu til, frelsi til að njóta kynlífs án
ótta ... Um 60-70 % allra þungana
eru óvelkomnar eða verða ekki til á
réttum tíma í lífi fólks.“
Pillan hefur þróast og þroskast á
40 ára ferli sínum og þykir nú ein-
hver albesta getnaðarvörn sem völ
er á. Annmarkar og fylgikvillar
hafa verið sorfnir af og eftir stend-
ur afmælisbarn sem getur verið
stolt af því að hafa breytt heiminum
meira en flest annað á síðustu öld.
BjÖrn meö bók
í dag kemur út bók eftir Björn
Bjarnason menntamálaráðherra; I
hita kalda striðsins. Þar fjallar ráð-
herrann um utan-
ríkis- og öryggis-
mál af lands-
þekktri skarp-
skyggni og spegl-
ar nútímasögu Is-
lands í alþjóðlegu
umhverfi. Bókin
verður kynnt sér-
staklega á Hótel
Sögu síðdegis í
, , dag þar sem
legu samhengi. gjörn og nohlírir
af helstu sérfræð-
ingum þjóðarinnar í alþjóðamálum
munu fylgja henni úr hlaði og svara
fyrirspurnum gesta. Þar verður
bókin einnig seld á sérstöku kynn-
ingarverði.
Björn
ísland í alþjóö-
Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram
að Eddu-verðlaunin eru ekki nefnd
eftir Eddu Heiðrúnu Backman sem
var kynnir á hátíðinni í ár.
Bergstaðastræti 84
Guðmundur Franklín Jónsson,
verðbréfasali í New York, undirbýr
heimkomu sina með kaupum á þessu
fallega húsi. Þar bjó áður Gunnlaug-
im Briem, síðan Richard, sonur hans,
sem seldi Guðmundi Franklin ættar-
óðal sitt fyrir skemmstu. Annars hef-
ur Guðmundur Franklín fasta búsetu
á Manhattan i New York með útsýni
yfir Dakotabygginguna þar sem John
Lennon var myrtur.
Breytinga aö vænta
Konurnar styöja karlana.
Bindið burt
Bryndís Hlöðversdóttir alþingis-
kona er mótfallin hálsbindaskyldu
karlmanna á Alþingi og er tilbúin
til að styðja baráttu gegn siðaregl-
um þingsins sem kveða svo á um:
„Þetta gamla tákn karlmennsk- «■
unnar segir eitt og sér ekkert til um
það hvort menn séu snyrtilegir eða
ekki. Ég vil slaka á formfestunni og
styð það að svona hömlum verði
aflétt," segir Bryndis en margir telja
að lýðræðinu stafi ógn af hálsbinda-
skyldu þingsins sem útiloki menn
frá stjórnmálaþátttöku hafi þeir
ekki smekk fyrir hálsbindum. Bryn-
dís Hlöðversdóttir telur víst að kon-
ur á þingi myndu aldrei láta bjóöa
sér að vinna þingstörf eingöngu í
drögtum eða pilsum en slík kvöð
væri sambærileg við hálsbinda-
skyldu þingmanna af karlkyni.
Rétta myndin
hann gerir er tær snilld. Ég reyni
að vera fersk og byija daginn
Ogjama í Sundhöllinni þar sem ég
baða mig og hlusta á gömlu gufúna
á meðan. Að því loknu flnnst mér
gott að fara á Gráa köttinn og fá
mér kaffl og beyglu með túnflsksal-
ati. Svo vinn ég. Á kvöldin elska ég
að fara í göngutúra og bíó en ef ég
* , , u-* a, * i - ætla aö skemmta mér ærlega þá er
„Eg hef gaman af þvi að sæk]a hjá Olafí Gauki. þaö karókj SvQ er ég aö læra & ^
myndhstarsynmgar og safha ar hjá ólafi Gauki,“ segii' Andrea
reyndar islenskn myndhst. Kristjan Guð- sem býr ein j hundraðogeinum: „Ég er
mundsson er í nuklu uppahaldi hja mer töfftýpa á lausu j borg tækifæranna."
svo og Damel Magnusson en margt sem
Töff týpa
álausu
Nýr sjónvarpsþáttur Andreu
Rðberts um menningu, lis'tir og
lifsstíl hefúr göngu sína á Stöð 2
annað kvöld. Menningaráhugi og
lífsstíll Andreu sjálfrar kristailast
í eftirfarandi:
Með gítarinn
Andrea í læri
DV-MYND SKH
Sólarlag í Suöursveit
Vetrarsólin sest viö bernskuheimili Þórbergs Þóröarsonar úti á Hala í Suöur-
sveit. Þessi sjón hefur dansaö fyrir augum skáldsins í æsku áöur en hann
hvarf í sollinn í Reykjavík
Gyllti þríhyrningurinn
- nýríkir hjúfra um sig í híbýlum gamla Reykjavíkuraöalsins
Svæðið teygir sig frá Landspitalalóðinni, skáhallt eft-
ir hliðinni fyrir neðan Skólavörðuna og endar í punkti
við Reykjavíkurtjörn. Þama reisti gamli Reykjavíkur-
aðallinn mörg af fallegustu húsum höfuðborgarinn-
ar sem nú seljast eitt af öðru fyrir áður óþekktar
upphæðir. Kaupendur eru nýríkir athafnamenn á
fertugsaldri sem sjá sjarmann í gamla hverfmu
þótt flestir þeirra séu uppaldir í úthverfum. Sín
á milli kalla þeir svæðið Gyllta þríhyminginn.
Þeir segjast vera komnir til að vera. Það f
hins vegar eftir að velta á gengi verðbréfa í
kauphöllum víða um heim 1 nánustu fram-
tíð.
Sjafnargata 3
Sigurbjörn Þorkelsson, bamabarn
Sigurbjörns biskups, keypti húsið
eftir að hafa
slegið í gegn
hjá verðbréfa-
fyrirtæki Lem-
an-bræðra í
New York. Sig-
urbjörn er bú-
settur ytra og
hús hans við
Sjafnargötu
því eins konar
sumarbústað-
ur. Franfi hans hjá
Leman-bræðrum i
New York þykir
einstakm- og
hann er sá
maður sem
állir ungir
verðbréfa-
guttar
vilja likj-
ast.
Miðstræti 7
Eins og
herrasetur í
suðurrikjum
Bandaríkjanna.
Heimili Lilju
Pálmadóttur
(Hagkaup) og
eiginmanns
hennar,
Baltasars Kor-
máks. Keyptu húsið af Þorsteini Halldórs-
syni, rithöfundi og heimsborgara, og eigin-
konu hans, Andreu, sem fyrst kvenna rak
tískuskóla í Reykjavík. Þorsteinn starf-
rækti lengi Málaskóla sinn í húsinu.
Næpan
Guðjón Már Guð-
jónsson í OZ réðst
ekki í lítið þegar hann
keypti efri hluta
gamla Landshöfð-
ingjahússins sem kall-
að er Næpan. Eitt-
hvert sérstæðasta hús
borgarinnar; framand-
legt á sinn einfalda
hátt. í húsið hefur
Guðjón látið tengja
hlj ómflutningskerfi
án hliðstæðu sem
hvergi sést og
hljómar ein-
göngu þar sem
menn eru
staddir í
húsinu
hverju
sinni.
Freyjugata 46
Þarna býr Ólafur Jóhann Ólafsson,
forstjóri og rithöfundur, þegar hann
heimsækir fóðurlandið. Ólafúr er ann-
ars búsettur í New York. í húsinu bjó
áður Valdimar Þórðarson (Silli & Valdi)
og er þetta tilkomumikil eign á þremur
hæðum með matar- og þvottalyftu. Hún
mun þó ekki vera notuð lengur.
Fjölnisvegur 11
Heimili OZ-kóngsins Skúla Mogen-
sen (hann rekur ættir sínar til danskra
apótekara). Framhlið hússins var illa
farin vegna ósmekklegra lagfæringa
þegar Skúli keypti það fyrir fáum ár-
um en er nú allt annað og fegurra að
sjá. í bakgarði hefur Skúli látið byggja
einhvem fullkomnasta nuddpott í
heimi. Húsið.var lengst af í eigu Lud-
wigs Siemsen.
Laufásvegur 69
Heimili Bónusprinsins sem varð
Baugskóngur. Jón Ásgeir Jóhannesson
býr þar sem áður var Haukur Heiðar,
margfrægur bankamaður í Reykjavík,
sem lét skyndilega af störfum seint á átt-
unda áratugnum eftir bankahneyksli
sem fór hljótt. Haukur Heiðar sneri sér
að innrömmun málverka og var einmitt
með vinnustofú sína í þessu húsi.
Laufásvegur 73
Nýjasti meðlimur Gyllta þríhyrn-
ingsins er ekki enn fluttur inn í hús
sitt við Laufásveg. Þorsteinn Jónsson,
forstjóri Vífilfells og kóka kóla, festi
nýverið kaup á þessu húsi þar sem áð-
ur bjó Jakob Löve og fleiri
_____________ &
Bestir
„Og við erum dáðir
um viða veröld fyrir
frumkvæði og fram-
takssemi og þurfum
ekki á því að halda að
ganga í Evrópusam-
bandið, eins og flestar
aðrar þjóðir álfunnar."
(Ellert Schram hugsar
upphátt um íslendinga í Morgunblaöinu.)
ISLANDSBANKI
Ha?
„Örlar á framlegðarbata hjá
Skýrr.“
(Úr fréttabréfi íslandsbanka.)
FRETTABLAÐIÐ
Glöggir
„Brottkastið tengist fiskveiði-
stjórnuninni."
(Forsíöufrétt í Fréttablaöinu.)
Jafnaðarmenn
„Það var alltaf stirt
á milli okkar Olof
Palme.“ -v
(Jón Baldvin í viðtalsþættin-
um Prívat á Stöö 2.)
Amma
„Ég átti ömmu sem
gekk með skotthúfu og
fléttaði á sér hárið á
hverjum morgni og
sagði mér sögur ogg
ævintýr. Hún var fædd
árið 1872.“
(Þráinn Bertelsson um
ömmu sína í Fréttablaöinu.)