Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2001, Page 22
26
ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001
íslendingaþættir____________________________________________________________________________________________________ DV
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
95 ára________________________
Sigurveig Sigtryggsdóttir,
Syöri-Neslöndum, Mývatnssveit.
85 ára________________________
Guörún Guömundsdóttir,
Vesturgötu 32, Hafnarfiröi.
Sigríður Guömundsdóttir,
Lindargötu 57, Reykjavík.
80 ára________________________
Heiödís Eysteinsdóttir,
Löngumýri 57, Garðabæ.
Vilberg Skarphéöinsson,
Steinagerði 4, Reykjavik.
75 ára_________________
Gísli Höskuldsson,
Hofsstöðum, Borgarf.
Laufey Runólfsdóttir,
Hamraborg 32, Kópavogi.
70 ára_________________________
Kristbjörg Sigurjónsdóttir,
Vallargötu 4, Vestmannaeyjum.
Sigurlaug Eiríksdóttir,
Hóiakoti, Skagaf.
50 ára_________________________________
Sigurður Guöni
Gunnarsson,
fiskverkandi og
útgerðarmaöur,
Efstalundi 7, Garðabæ.
Eiginkona hans er Kristín
M. Ólafsdóttir. Þau taka
á móti ættingjum og
Jnum að Dalshrauni 15, Hafnarfirði,
augard. 15.12. kl. 19.30.
lagný Júlíusdóttir,
uækjartúni 18, Hólmavík.
Sóimundur Jónsson,
Hrisateigi 35, Reykjavík.
Yngvi Pétursson,
Dalhúsum 74, Reykjavík.
40 ára_________________________________
Björg Sigurvinsdóttir,
Vanabyggð 9, Akureyri.
Harpa María Gunnlaugsdóttir,
Fannafold 182, Reykjavík.
Jóhannes Eiríksson,
Viðarási 21, Reykjavík.
Jón Þóröarson,
Bæjarholti 3, Hafnarfirði.
Matthías Hannesson,
Hringbraut 62, Keflavík.
Ólafia Karlsdóttir,
Þiljuvöllum 22, Neskaupstað.
Vilborg Jónsdóttir,
Herjólfsgötu 24, Hafnarfirði.
Þorbjörn Helgi Þóröarson,
Öldutúni 6, Hafnarfirði.
Aðventu-leíðískrossar
12V-34V
Sent í póstkröfu, sími 898 3206
Smáauglýsingar
550 5000
Fólk í fréttum
Einar Oddur Kristjánsson
alþingismaður og varaformaður fjárlaganefndar
Einar Oddur Kristjánsson, alþm.
og varaformaður fjárlaganefndar
Alþingis, segir tekjuafgang ríkis-
sjóðs verða um þrjá milljarða, sama
og gert var ráð fyrir við upphaf fjár-
lagagerðar í haust. Þetta kom fram í
DV-frétt í gær.
Starfsferlll
Einar fæddist á Flateyri í Önund-
arfirði 26.12. 1942 og ólst þar upp.
Hann stundaði nám við MA 1959-61.
Einar var skrifstofumaður
1961-65 og póstafgreiðslumaður á
Flateyri 1965-68. Hann var einn
stofnenda fiskvinnslunnar Hjálms á
Flateyri, hefur verið framkvæmda-
stjóri þar frá 1968, framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags Flateyrar frá
1974 og er alþm. Vestfjarða fyrir
Sjálfstæðisflokkinn frá 1995.
Einar sat i hreppsnefnd Flateyr-
arhrepps 1970-82, í stjórn Vinnu-
veitendafélags Vestfjarða 1974-95 og
formaður VSÍ 1989-92, sat í vara-
stjórn SH 1983-89, í aðalstjórn
1989- 94, er stjórnarformaður Vél-
bátaábyrgðarfélags ísfirðinga frá
1984, í stjórn Skógræktarfélags Vest-
ur-ísafjarðarsýslu frá 1985 og for-
maður Skjólskóga Vestfjarðar frá
1999, í stjórn Icelandic Freezing
Plant Ltd í Grimsby 1987-89, sat í
stjórn Sambands fiskvinnslustöðva
til 1995 og var formaður SAS, Sam-
bands atvinnurekanda í sjávarút-
vegi 1992-95.
Einar var formaður Sjálfstæðifé-
lags Önundarfjarðar 1968-79, for-
maður fulltrúaráðs Sjálfstæðis-
flokksins í Vestur-Ísaíjarðarsýslu
1979-90, formaður kjördæmisráðs
sjálfstæðismanna á Vestfjöröum
1990- 92, var formaður efnahags-
nefndar ríkisstjórnarinnar 1988, sat
í efnahags- og viðskiptanefnd
1995-99, situr í fjárlaganefnd Alþing-
is frá 1999 og er varaformaður henn-
ar.
Fjölskylda
Einar kvæntist 7.10.1971 Sigrúnu
Gerðu Gísladóttur, f. 20.11. 1943,
hjúkrunarfræðingi. Foreldrar Sig-
rúnar voru Gísli Þorleifsson, múr-
arameistari í Reykjavík, og k.h.,
Brynhildur Pálsdóttir hjúkrunar-
fræðingur.
Börn Einars og Sigrúnar eru
BrynhUdur, f. 1.1. 1973, sagnfræð-
ingur í Reykjavík, en maður hennar
er Ulugi Gunnarsson hagfræðingur;
Kristján Torfi, f. 21.6. 1977, háskóla-
nemi; Teitur Björn, f. 1.4. 1980, há-
skólanemi.
Systir Einars er Jóhanna Guð-
rún, f. 11.3. 1941, fyrrv. skólastjóri í
Reykjavík.
Bróðir Einars, samfeðra, er Sig-
urður Guðmundur, f. 24.8. 1924,
stýrimaður og húsasmiður í Reykja-
vík, kvæntur Soffiu Jónsdóttur.
Foreldrar Einars: Kristján Eben-
ezersson, f. 18.10. 1897, d. 1947, skip-
stjóri á Flateyri, og k.h., María Jó-
hannsdóttir, f. 25.5. 1907, fyrrv.
stöðvarstjóri Pósts og síma á Flat-
eyri.
Ætt
Kristján var sonur Ebenezers,
skipstjóra á Flateyri, Sturlusonar.
Móðir Ebenezers var Kristín Eben-
ezersdóttir, b. í Innri-Hjarðardal,
Guðmundssonar, b. i Arnardal,
Bárðarsonar, b. í Arnardal, Illuga-
sonar, ættfóður Arnardalsættarinn-
ar.
Móðir Kristjáns var Friðrikka,
systir Bersebe, móður Guðmundar
Inga skálds, Halldórs, skálds frá
Kirkjubóli, og Ólafs skólastjóra, föð-
ur Kristjáns Bersa skólastjóra og
afa Ólafs Þ. Harðarsonar stjóm-
málafræðings. Friðrikka var dóttir
Halldórs, b. á Hóli 1 Önundarfirði,
bróður Ragnheiðar, langömmu
Gunnars Ásgeirssonar forstjóra og
Elsu Guðjónsson safnvarðar. Hall-
dór var sonur Halldórs, b. á Grafar-
gili, Eiríkssonar, bróður Elínar,
langömmu Ólafs, föður Gests skipu-
lagsfræðings og Valdimars, fyrrv.
yfirflugumferðarstjóra.
Móðursystkini Einars eru Mar-
grét, móðir Hrafns Tulinius prófess-
ors, fóður Torfa dósents, Þórs leik-
ara og Sivjar konsertmeistara,
Torfi, faðir Kristjáns, bæjarfógeta í
Vestmannaeyjum, og Björn iðnrek-
anda, faðir Ingibjargar, skólastjóra
Ballettskóla Þjóðleikhússins. María
er dóttir Jóhanns Lúthers, prófasts
á Hólmum, bróður Sigríðar, ömmu
Gunnlaugs Finnssonar, fyrrv. alþm.
á Hvilft, og Hjálmars, fyrrv. for-
stjóra Áburðarverksmiðjunnar. Jó-
hann var sonur Sveinbjarnar, b. í
Skáleyjum, Magnússonar, b. 1 Hval-
látrum, Einarssonar, bróður Eyjólfs
eyjajarls. Móðir Jóhanns var María
Jónsdóttir, systir Sesselju, móður
skáldanna Herdísar og Ólínu Andr-
ésdætra og Maríu Andrésdóttur 1
Stykkishólmi og einnig systir Sig-
ríðar, móður Björns Jónssonar ráð-
herra.
Móðir Maríu var Guðrún, systir
Sigríðar, móður Esra læknis og
Maríu Pétursdóttur, fyrrv. for-
manns Hjúkrunarfélags Islands.
Bróðir Guðrúnar var Ásgeir, faðir
Haralds, fyrrv. forstjóra Rannsókna-
stofnunar byggingariðnarins, og
Önundar, fyrrv. forstjóra Olís, fóður
Ragnars, forstjóra Eurokorta. Guð-
rún var dóttir Torfa, kaupmanns á
Flateyri, Halldórssonar, og Maríu
Össurardóttur, b. í Súðavík, Magn-
ússonar, b. í Bæ í Súgandafirði,
Guðmundssonar, bróður Ebenesers
í Hjarðardal.
Sjötugur
MMI
Sigurfinnur Sigurðsson
fyrrv. skrifstofustjóri á Selfossi
Sigurfinnur Sigurðsson, fyrrv.
skrifstofustjóri hjá Vegagerð ríkis-
ins, Starengi 15, Selfossi, er sjötugur
í dag.
Starfsferill
Sigurfinnur fæddist í Birtinga-
holti og ólst þar upp. Hann lauk
gagnfræðaprófi frá Laugarvatni
1949 og lauk prófi frá Garðyrkju-
skóla ríkisins 1953.
Sigurfinnur stundaði garðyrkju-
búskap í Birtingaholti 1953-63. Þá
flutti hann á Selfoss þar sem hann
hefur búið síðan.
Sigurfinnur var skrifstofumaður
hjá KÁ til 1974 og skrifstofustjóri
hjá Vegagerð rlkisins til 2001.
Sigurfinnur starfaði mikið í röð-
um framsóknarmanna á Suður-
landi, var formaður FUF í Árnes-
sýslu og formaður kjördæmasam-
bands Framsóknarflokksins á Suð-
urlandi 1963-69, var formaður Versl-
unarmannafélags Árnessýslu um
skeið, sat í stjórn Starfsmannafélags
ríkisstofnana og var þar varafor-
maður og gjaldkeri í mörg ár. Þá sat
hann í fjölda samninganefnda, átti
sæti í Félagsdómi á vegum BSRB og
var formaður Goltklúbbs Selfoss um
skeið.
Sigurfinnur var einn af stofnend-
um og fyrsti formaður Þroskahjálp-
ar á Suðurlandi, átt sæti í svæðis-
stjórn um málefni fatlaðra þar, að
undanskildum fjórum árum sem
hann var skipaður formaður stjórn-
arnefndar í málefnum fatlaðra.
Fjölskylda
Kona Sigurfinns er Ásta, f. 8.2.
1933, húsmóðir. Ásta er dóttir Guð-
mundar Guðmundssonar, bónda á
Högnastöðum í Hrunamannahreppi,
og Kristbjargar Sveinbjörnsdóttur
frá Heiðarbæ í Þingvallasveit.
Börn Sigurfinns og Ástu eru
Kristbjörg, f. 24.4. 1953, deildarstjóri
við Landsbankann í Reykjavík, gift
Eirtki Einarssyni, vélvirkja og
starfsmanni hjá Toyota-umboðinu,
og eiga þau tvö börn; Sigríður Jón-
ína, f. 12.8. 1958, húsfreyja að Hross-
haga, gift Gunnari
Sverrissyni, bónda þar,
og eiga þau tvö börn og
tvö fósturbörn; Snorri, f.
24.7. 1967, verslunarstjóri
á Selfossi, kvæntur Sig-
rúnu Ólafsdóttur póstfull-
trúa og eiga þau tvö börn,
auk þess sem hún á tvö
börn frá fyrra hjóna-
bandi; Sigurður Már, f.
6.1. 1969, búsettur á Selfossi.
Hálfbróðir Sigurfinns, samfeðra,
er Ásgeir Sigurðsson, f. 1926, raf-
virki í Bandaríkjunum.
Alsystkini Sigurfinns eru Ást-
hildur, f. 1929, húsfreyja í Birtinga-
holti; Arndís, f. 1930, húsfreyja að
Miðfelli; Ágúst, f. 1936, bóndi í Birt-
ingaholti; Magnús, f. 1942, bóndi í
Birtingaholti; Móeiður, f. 1943, hús-
móðir í Reykjavík.
Foreldrar Sigurfmns: Sigurður
Ágústsson, f. 13.3. 1907, d. 12.5. 1991,
bóndi, skólastjóri, tónskáld og org-
anisti í Birtingaholti, og k.h., Sigríð-
ur Sigurfinnsdóttir, f. 11.7. 1906, d.
16.5. 1983, húsfreyja.
Ætt
Systir Sigurðar var Sigríður,
móðir Helga leikara og
Ólafs biskups Skúlasona.
Sigurður er sonur Ágústs,
alþm. í Birtingaholti,
Helgasonar, b. þar, Magn-
ússonar, alþm. í Syðra-
Langholti, Andréssonar.
Móðir Helga var Katrín
Eiríksdóttir, ættfoður
Reykjaættar, Vigfússon-
ar.
Móðir Sigurðar var Móeiður
Skúladóttir Thorarensen, læknis og
alþm. á Móeiðarhvoli, bróður
Bjarna amtmanns og skálds. Skúli
var sonur Vigfúsar, sýslumanns á
Hlíðarenda í Fljótshlið, Þórarins-
sonar, ættföður Thorarensenættar,
Jónssonar. Móðir Skúla var Stein-
unn Bjarnadóttir landlæknis Páls-
sonar og Rannveigar Skúladótt-
urlandfógeta Magnússonar. Móðir
Móeiðar var Sigríður Helgadóttir,
konrektors í Skálholti, Sigurðsson-
ar.
Sigríður, móðir Sigurfinns, var
dóttir Sigurfmns Sigurðssonar, ís-
húsvarðar í Keflavík, og Jóninu
Þórðardóttur.
Sigurfinnur og Ásta verða að
heiman á afmælisdaginn.
Ágúst Eyjólfsson, Blómvallagötu 12,
Reykjavík, lést þriöjud. 27.11. Útför
hans hefur farið fram í kyrrþey.
Katrín Marta Magnúsdóttir frá
Skálakoti, Vestur-Eyjafjöllum, lést
miðvikud. 5.12.
Hilmar Önfjörö Magnússon,
Bræðraborgarstíg 49, lést á heimili sínu
þriðjud. 4.12.
---^---------
IJrval
- gott í hægindastólinn
Afmælisgreinar um hatiðarnar
Skilafrestur vegna afmælisgreina um jól og áramót
Jólablað DV kemur út laugardaginn 22. desember og áramótablaö DV kemur
út laugardaginn 29. desember.
Upplýsingar og myndir vegna afmælisgreina sem birtast eiga í jólablaði DV, þ.e.
greinar vegna afmæla 22. desember til 27. desember, þurfa að hafa borist
ættfræöideild eigi síöar en miðvikudaginn 19. desember.
Upplýsingar og myndir vegna afmælisgreina sem birtast eiga í áramótablaði DV,
þ.e. greinar vegna afmæla 29. desember til 2. janúar, þurfa aö hafa borist ætt-
fræöideild eigi síöar en fimmtudaginn 27. desember.
Útför Siguröar G. Helgasonar, sem lést
á Kumbaravogi mánud. 3.12., ferfram
frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriöjud.
11.12. kl. 13.30.
Guðmundur Ágústsson, fýrrv. fram-
kvæmdastjóri Fróns hf., Löngumýri 57,
Garðabæ, áður Tómasarhaga 44,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni þriðjud. 11.12. kl. 13.30.
Siguröur Magnússon, Frakkastíg 17,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bú-
staðakirkju þriöjud. 11.12. kl. 13.30.
Halldór S. Guömundsson húsasmíða-
meistari, Álfaskeiöi 98, Hafnarfirði,
verður jarösunginn frá Frikirkjunni í Hafn-
arfirði, þriðjud. 11.12. kl. 13.30.
Þórólfur Baldursson, síöast námsmaður
í Hróarskeldu, lést í Hróarskeldu
mánud. 26.11. Jarðarförin fer fram frá
Áskirkju fimmtud. 13.12. kl. 15.00.