Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2002, Qupperneq 11
11
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2002__________________________________________________________________________________________
DV Útlönd
Bandaríkjamenn halda áfram loftárásum á meintar bækistöövar al-Qaeda:
Sjo forust þegar bandarisk
birgðaflugvél fórst í Pakistan
Bandarísk eldsneytisbirgöavél af
gerðinni Herkules KC-130, meö sjö
manna áhöfn innanborðs, fórst í
Pakistan í gær með þeim afleiðingum
að allir í áhöfninni fórust. Að sögn
bandarískra hernaðaryfirvalda bendir
ekkert til þess að vélin hafi verið skot-
in niður, en að sögn sjónarvotta kom
upp eldur í henni rétt áður en hún
steyptist til jarðar í fjallendi nálægt
Shamsi-herflugvellinum í nágrenni
borgarinnar Quetta í suðvesturhluta
Pakistans. Vélin mun hafa verið í að-
flugi þegar slysið varð, en bækistöð
hennar mun hafa verið í Jacobabad,
austur af Shamsi, og var hún i venju-
bundnu birgðatlugi.
Þetta er annað mannskæða flugslys-
ið sem Bandarikjamenn verða fyrir
siðan þeir hófu aðgerðir í Afganistan,
en um miðjan október fórst herþyrla,
þar sem tveir hermenn létu lífið.
Slysið í gær varð í kjölfar loftárása
bandarískra sprengjuflugvéla á meint-
ar æfingabúðir al-Qaeda samtaka Os-
ama bin Ladens og talibana í Zhawar
Kili-héraði í austurhluta Afganistans,
en grunur leikur á að þar reyni hóp-
Bandarískir sérsveitarmenn
Bandarískir sérsveitarmenn úr fjaiiaherdeiid bandaríska hersins sem hafa þaö
hlutverk aö elta uppi al-Qaeda liöa Osama bin Ladens í fjallahéruðum Afganistans.
arnir að endurskipuleggja lið sitt. Er kjölfar árásanna í gær voru tveir
þetta í fimmta skipti í vikunni sem háttsettir foringjar al-Qaeda hand-
loftárásir eru gerðar á svæðið, en í teknir af bandarískum sérsveitar-
mönnum. Þeir eru nú yfirheyrðir í
von um að þeir geti varpað ljósi á
verustað Osama bin Ladens og múlla
Omars, trúarleiðtoga talibana.
Bandaríkjamenn undirbúa nú
flutning um 400 stríðsfanga til Guant-
anamo-herstöðvarinnar á Kúbu, en
þar er herinn að koma upp aðstöðu
fyrir 2000 fanga, sem ætlunin er að
rétta yfir á staðnum.
í gær bárust þær fréttir frá Afgan-
istan að héraðstjórinn í Kandahar
hefði látið lausa sjö háttsetta foringja
úr liði talibana sem sjálfviljugir hefðu
gefið sig fram síðustu tvo daga og
munu þrír þeirra vera fyrrum ráð-
herrar í ógnarstjóm talibana. Þeir eru
Obaidullah Akhund, ráðherra vamar-
mála, múlla Nooruddin Turabi, ráð-
herra dómsmála, og múlla Saadudin
iðnaðarráðherra, auk þess sem
yfirmaður öryggislögreglunnar í borg-
inni Herat var í hópnum. Mennimir
voru látnir lausir án samþykkis af-
ganskra yfirvalda og hafa bandarísk
stjórnvöld farið fram á skýringar.
Talið er líklegt að mennimir hafi
þegar flúið land.
Anflnn Kallsberg
Færeyski lögmaöurinn fær danska
forsætisráöherrann í heimsókn.
Kallsberg bindur
vonir viö fundinn
Anfmn Kallsberg, lögmaður Fær-
eyja, bindur vonir við að vixmu-
heimsókn Anders Foghs Rasmus-
sens, forsætisráðherra Danmerkur,
til Færeyja í næstu viku leiði til ár-
angurs í viðræðum um sjálfstæði
eyjanna. Anders Fogh hefur þó lýst
því yfir að hann verði ekki með
neinar nýjar tillögur um sjálfstæðis-
málin í farteskinu.
„Þegar danski forsætisráðherr-
ann kemur í vinnuferð til Færeyja
geng ég út frá því að við munum
ræða það sem nú er efst á baugi. í
þvi sambandi vil ég að sjálfsögðu að
það sé gert af alvöru og að við náum
einhverjum árangri," segir Kalls-
berg í viðtali við dönsku fréttastof-
una Ritzau. Og bætir við að hann
vilji meðal annars ræða um sam-
skiptin 1 utanríkismálum.
REUTER-MYND
Brostnar vonir í Hong Kong
Farandverkamaður frá meginlandi Kína brestur í grát fyrir utan áfrýjunardómstói í Hong Kong í morgun. Dómstóllinn
úrskuröaöi aö þúsundir kínverskra farandverkamanna fengju ekki að dvelja til langframa í Hong Kong. Þar meö hefur í
raun veriö gefíö grænt Ijós á aö farandverkamennirnir veröi fluttir meö valdi aftur til kínverska meginlandsins.
REUTER-MYND
Slobodan Milosevic
Fyrrum Júgóslavíuforseti fór mikinn
fyrir stríösglæpadómstól SÞ í gær.
Búist við að leið-
togar NATO verði
kallaðir í dómsal
Slobodan Milosevic jós enn úr
skálum reiði sinnar í garð stríðs-
glæpadómstóls Sameinuðu þjóð-
anna þegar hann var yfirheyrður í
gær. Búist er við að þegar réttar-
höldin yfir honum hefjist í næsta
mánuði muni hann breyta um bar-
áttuaðferðir og kalla leiðtoga
NATO-ríkjanna í vitnastúkuna.
Milosevic geispaði og leit í sífellu
á úr sitt þegar saksóknarar stríðs-
glæpadómstólsins i Haag ræddu um
framkvæmd réttarhaldanna sem
hefjast 12. febrúar. Þar mun Milos-
evic svara til saka fyrir stríðsglæpi
í Kosovo.
Júgóslavíuforsetinn fyrrverandi
vaknaði hins vegar til lífsins þegar
forseti réttarins gaf honum orðið.
Þá ítrekaði Milosevic það sem hann
hefur áður sagt, það er að það sé
NATO en ekki stjórnvöld í Belgrad
sem sé hinn sanni þorpari.
Nauðguðu syni
sínum í fangelsinu
Fjörutíu og eins árs gamall Ósló-
arbúi, sem afplánaar dóm f Ila-fang-
elsinu í Ósló, hefur nú verið ákærð-
ur fyrir að hafa nauðgað 16 ára
gömlum syni sínum með aðstoð
konu sinnar er mæðginin heimsóttu
heimilisfóðurinn f fangelsið. Þegar
faðirinn hafði fengið nægju sína
neyddi hann drenginn til að eiga
mök við móður sína í heimsóknar-
herbergi fangelsins. Faðirinn hótaði
drengnum að hann myndi senda
flokk manna sem gengju af honum
dauðum ef hann léti ekki að vilja
sínum. Fanginn, sem hafði kvartað
undan litilli kyngetu, hafði fengið
kynorkulyfið viagra, með aðstoð
eins fangavarðanna, áður en
mæðginin heimsóttu hann í fang-
elsið.
Fanginn er dæmdur fyrir nauðg-
anir og sifjaspell, þar sem drengur-
inn hefur m.a. veriö eitt af fórnar-
lömbum hans. í apríl á síðasta ári,
þegar fanginn fékk orlof úr fangels-
inu og dvaldi nokkra daga á heimili
sínu, nauðguðu hann og kona hans,
syni sínum margoft eftir því sem
drengurinn sagði í borgardómi
Óslóar í gær. Bæði hjónin harð-
neita öllum sakargiftum og átta sig
ekkert á því hvað syni þeirra geng-
ur til með ákærunni. -GÞÖ
Kaþólikkar og mótmælendur enn í hár saman:
Barist á götum Belfast
Kaþólikkar og mótmælendur
börðust á götum Belfast á Norður-fr-
landi í gær, skammt frá kaþólskum
stúlknaskóla sem á siðasta ári varð
tákn fjandskaparins sem er á milli
þessara tveggja hópa.
Holy Cross-skólinn í norðurhluta
Belfast verður lokaður í dag í kjöl-
far átakanna í gær og nótt. Sautján
laganna verðir hlutu meiðsl þegar
þeir reyndu að stilla til friðar.
Ströng öryggisgæsla er í
námunda við skólann. Bensín-
sprengjum, flugeldum og flöskum
var kastað að farartækjum lögregl-
unnar sem svaraði fyrir sig með þvf
að skjóta plastkúlum. Tveir menn
REUTER-MYND
Eldar í Belfast
Lögregiuþjónn viö brennandi bíl á
átakasvæöunum í Belfast í nótt.
urðu fyrir kúlum lögreglunnar.
Mótmælandinn David Trimble,
fyrsti ráðherra norður-írsku heima-
stjórnarinnar, og kaþólikkinn Mark
Durkan aðstoðarráðherra hvöttu
menn til að gæta stillingar.
„Við hvetjum alla á svæðinu til
að staldra við og íhuga áhrif frekari
ofbeldisverka á samfélög þeirra,“
sögðu þeir Trimble og Durkan í
sameiginlegri yfirlýsingu.
Ekki er ljóst hvernig átökin
hófust en fylkingamar kenna hvor
annarri um að eiga upptökin. Lög-
regla sagði að lætin hefðu hafist eft-
ir hádegi og færst í aukana eftir að
skólabömin voru flutt heim.
■3^
J. R. BÍLASALAN
www.jrbilar.is
NISSAN TRADE TURBO,
7/99, ekinn aöeins 17.000 km. 5 gíra,
virðisaukaskattsbíll. Áhvílandi ca
800.000. Verð 1.350.000 + vsk. Verð með
vsk. 1.690.000.
Til sölu á JR Bílasölu, Bíldshöfða 3,
sími 567-0333
Visa/Euro raðgreiðslur.