Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2002, Síða 4
Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2002
I>V
Smávægilegar breytingar á boxfrumvarpinu frá meirihluta menntamálanefndar:
Gunnar Birgisson varð
yfir í þriðju lotunni
- og frumvarpið samþykkt með miklum meirihluta í gær
Frumvarp um
ólympíska hnefa-
leika eða áhuga-
mannahnefaleika
var samþykkt eft-
ir aðra umræðu
á Alþingi í gær
með 38 atkvæð-
um gegn 20.
Tveir greiddu
ekki atkvæði en
þrír voru fjar-
staddir. Þar með hafa líkurnar á
því að frumvarpið nái í gegn aukist
verulega en önnur umræða er sú
umræða sem mestu skiptir varð-
andi framgang málsins. Gunnar
Birgisson, sem er fyrsti flutnings-
maður frumvarpsins og er að
leggja það fram í þriðja sinn, sagð-
ist þó í gær ekki ætla að fagna sam-
þykkt þess fyrr en það væri endan-
lega komið í gegn en vissulega
væru líkurnar nú orðnar talsverð-
ar. Tvær breytingartillögur komu
fram við frumvarpið fyrir aðra um-
ræðu og var önnur felld en hin
samþykkt. Tillagan sem felld var
kom frá Katrínu Fjeldsted, þing-
manni Sjálfstæðisflokksins, og
gekk út á að heimilað yrði að æfa
ólympískt box en bannað yrði að
keppa í því. Jafnframt vildi Katrín
að íþrótta- og Ólympíusambandið
setti strangar reglur um þetta box
og að farið yrði eftir ströngustu ör-
yggisreglum sem gilda í nágranna-
löndunum. Tillagan sem var sam-
þykkt kom hins vegar frá meiri-
hluta menntamálanefndar og geng-
ur út á að í staðinn fyrir að notað
verði hugtakið „ólympiskir hnefa-
leikar“ um íþróttina verði notað
orðið „áhugamannahnefaleikar".
Jafnframt eru í þessari breytingar-
tillögu ákvæði sambærfleg við það
sem var hjá Katrínu Fjeldsted um
að við samningu reglna fyrir þessa
íþrótt verði miðað við ýtrustu ör-
yggisreglur í nágrannalöndunum.
Jafnframt er heimilað að versla
með vaming sem tengjast áhuga-
mannahnefaleikum.
Gunnar Birgisson segir þessar
breytingar á frumvarpinu einungis
til bóta og enginn munur sé á hug-
tökunum „ólympískir hnefaleikar"
og „áhugamannahnefaleikar" og
hin ákvæðin séu einnig gagnleg.
Frá árinu 1956 hafa hnefaleikar
verið bannaðir hér á landi en fram
að þeim tíma voru þeir talsvert iðk-
aðir. Frumvarpið gerir ráð fyrir að
áhugamannahnefaleikar verði lög-
leiddir og Iþrótta- og Ólympíusam-
band íslands setji reglur um íþrótt-
ina. „Rétt er að taka fram að
ólympískir hnefaleikar eru keppn-
isgrein á Ólympíuleikum og hafa
verið það lengi. Algjört einsdæmi
er að ólympísk keppnisgrein sé
bönnuð með sérstakri löggjöf. Að-
ild að Ólympíuleikum felur í sér
viðurkenningu á þeim greinum
sem keppt er í á leikunum hverju
sinni“ segir í greinargerð með
frumvarpinu. Bent er á að gera
verði skýran greinarmun á áhuga-
mannahnefaleikum og atvinnu-
mannahnefaleikum. Reglur og ör-
yggiskröfur greinanna séu afar
ólíkar. Þannig er til dæmis skylt að
nota höfuðhlífar í ólympískum
hnefaleikum en ekki í atvinnu-
mannahnefaleikum og hver leikur
stendur i þrjár lotur hjá áhuga-
mönnum í stað allt að tólf í at-
vinnumennskunni. -BG
Gunnar
Birgisson.
Áttatíu einbreiðar brýr á hringveginum:
Miklar framkvæmdir
á næstu árum
- en björninn verður ekki unninn í bráð. Norðurárdalur á dagskrá 2004
DV-MYND EINAR ÖRN
Brúin breikkuð
Brúin yfir Gljúfurá í Vestur-Húnavatnssýslu var breikkuö sl. sumar. Þaö munar
um hverja brú sem breikkar.
Enn liggja ekki fyrir nákvæmar
áætlanir um hvenær búið verður að
breikka allar þær áttatíu einbreiðu
brýr sem eru á hringveginum. Eins
og fram kom í DV í gær verða ellefu
brýr breikkaðar i ár, þar af margar
þeirra sem hættulegastar hafa verið
í gegnum árin. Má þar meðal ann-
ars nefna annars vegar Þjórsár-
brúna og hins vegar brúna yfir
Norðurá í Borgarfirði, upp undir
brún Holtavörðuheiðar. Sú vegaá-
ætlun sem nú er unnið eftir gildir
allt til ársins 2004 og er þar gert ráð
fyrir framkvæmdum við allmargar
einbreiðar brýr á næstu þremur
árum. Hitt ber þó að hafa í huga að
vegaáætlun þessi verður tekin til
endurskoðunar nú á útmánuðum og
gæti þá sitthvað í framkvæmdaröð-
inni breyst.
Meðal brúa sem eru á fram-
kvæmdaáætlun næsta árs er brúin
yfir Síká í Hrútafirði en hún hefur
mörgum verið skeinuhætt í gegnum
árin. Þá er á árunum 2003 og 2004
gert ráð fyrir fjárveitingum við
framkvæmdir við breikkun brúnna
yflr Skarðsá og Víðidalsá í Langadal
á Hólsfjöllum.
Fjölmargir flöskustútar
Þær brýr sem eru svo á áætlun
2004 eru fjölmargar. Umfangsmesta
framkvæmd þess árs er, að sögn
Rögnvaldar Gunnarssonar hjá fram-
kvæmdadeild Vegagerðarinnar,
bygging nýs vegar inn Norðurárdal
í Skagafirði. Það er rösklega tíu
kilómetra kafli, allt frá Silfrastöðum
og inn að Öxnadalsheiði. Á þessari
leið eru alls fjórar einbreiðar brýr
sem hafa í gegnum árin verið mikl-
ar slysagildrur. Þetta sama ár stend-
ur einnig til að fara í framkvæmdir
við brúna á Hrúteyjarkvísl sem er
spræna sem fellur úr Skjálfanda-
fljóti ofan viö Goðafoss. Einnig er
þetta árið í bígerð að breikka brúna
yfir Berufjarðará - sem og Klifanda
í Mýrdal sem er skammt austan við
Pétursey.
En þrátt fyrir að ellefu brýr verði
breikkaðar í ár og síðan talsverðar
framkvæmdir allt fram til ársins
2004 er björninn ekki unninn. Marg-
ir flöskustútar, sem hinar einbreiðu
brýr eru, verða áfram til staðar,
ekki síst á Austurlandi. Ekki er
komið á áætlun að breikka þær
tvær mjóu brýr sem eru yfir ár á
Jökuldal. Né heldur allmargar mjó-
ar brýr sunnan Egilsstaða, svo sem
á Völlum, i Breiðdal og í Álftafirði
og Lóni.
-sbs
EJS'
420 milljónir
króna á sex
árum
Fjármálaráöherra hefur ákveðið
að taka tilboði EJS um hýsingu og
rekstur á nýju fjárhags- og
mannauðskerfi fyrir ríkið á grund-
velli útboðs Ríkiskaupa. Ákvörðun
þessi er byggð á tillögu stýrinefnd-
ar á vegum Rikisbókhalds sem er
framkvæmdaaðili málsins fyrir
hönd fjármálaráöuneytisins. Við
val á hagkvæmasta tilboði var lit-
ið til þriggja þátta: verðs (50%),
gæða högunar (30%) og gæða verk-
lags (20%). EJS hf. átti þrjú lægstu
tilboðin, þar á eftir voru tilboð
Anza hf. og Skýrr hf. Næstlægsta
tilboð EJS hf. var talið hagkvæm-
ast og nemur kostnaður sam-
kvæmt því alls 422 milljónum
króna á samningstímanum sem er
6 ár.
Guöni Ágústsson landbúnaðarráðherra:
VIII sendiherra íslenska
hestsins í veröldinni
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra segir brýnt að hefja
rannsókn á eðli
og umfangi
ferðaþjónustu í
dreifbýli og setja
fram stefnu-
mörkun í þeim
efnum. Þessa
skoðun sína
byggir ráöherr-
ann á niðurstöðu
skýrslu sem
hann kynnti í
gær um málið. Meðal tillagna sem
nefndin setur fram í skýrslunni er
að sett verði á fót embætti rann-
sókna- og gæðastjóra í ferðaþjón-
ustunni.
Guðni
Ágústsson.
Fram kemur í skýrslunni að
skortur hefur verið á „þolinmóöu"
lánsfé til uppbyggingar inn í grein-
ina þrátt fyrir mikla fjölgun gisti-
rýma og telur nefndin eðlilegt að
Lánasjóður landbúnaðarins komi í
auknum mæli að því að fjármagna
þessa uppbyggingu.
Guðni segir gríðarleg sóknar-
færi vera í þessari grein og bendir
á að íslenskir bændur geti orðið
mikilvægir tengiliðir milli er-
lendra ferðamanna og íslenskrar
náttúru og menningar. Þar geti ís-
lenski hesturinn leikið stórt hlut-
verk og spurning hvort ekki sé
eðlilegt að búa til sérstakt starf
„sendiherra íslenska hestsins."
„Þessi staða gæti auðvitað verið
hjá utanríkisráðherra og hún gæti
líka verið hjá mér,“ sagði Guðni
aðspurður hvar þessi sendiherra
yrði vistaður. „íslenski hesturinn
er mikilvægur lykill að landinu að
mati ferðaþjónustumanna, hann
aflar tryggra vina og aðdáenda
landsins og fjárfesting sem sett er
í kynningu á honum skilar sér
strax til baka. ísland sem upp-
runaland þessa hests gæti gert vel
í því að skipa sérstakan umboðs-
mann islenska hestsins í veröld-
inni. Annars vegar gæti hann að-
stoðað við markaðsstarf hesta-
bænda og hins vegar skapað nýja
ferðamenn sem hingað koma og
eyða gjaldeyri,“ segir Guðni
Ágústsson. -BG
Nýr leikhússtjóri:
Þorsteinn Bach-
mann valinn
Leikhúsráð Leikfélags Akureyrar
réð í gærkvöld Þorstein Bachmann
sem leikhússtjóra. Þorsteinn hefur
störf í næsta mánuði við hlið Sig-
urðar Hróarssonar, fráfarandi leik-
hússtjóra, en tekur formlega við
leikhúsinu í september nk.
Gífurlega margir hæfir umsækj-
endur voru um stöðuna, að sögn
Valgerðar Bjarnadóttur, formanns
leikhúsráðs LA, en einhugur varð
um ráðningu Þorsteins. Valgerður
sagði í samtali við DV í morgun að
ráðinu hefði ekki síst þótt sýn Þor-
steins vera spennandi. Hugmyndir
hans um framtíðarhlutverk LA hafi
verið skýrar, sterkar og spennandi
og þá sé Þorsteinn vel til þess fall-
inn að skapa góða liðsheild.
Þorsteinn er nýfluttur í bæinn og
starfar við leikhúsið. Hann er í sam-
búð með Laufeyju Brá Jónsdóttur
leikkonu og leika þau bæði í sýning-
unni Slavar! sem LA sýnir þessa
dagana.
Þrir umsækjendur voru kallaðir í
viðtöl. Auk Þorsteins voru það
Hrafnhildur Hafberg og Halldór
Laxness sem leikstýrir Slövum! -BÞ
Húsavík:
„Hættur í skít-
verkunum"
Sigurjón Benediktsson tannlæknir
segir að ástæða brotthvarfs síns úr
sveitarstjómarmálunum á Húsavík
hafi verið óviðun-
andi niðurstaða úr
skoðanakönnun
innan flokksins
um efstu sætin.
Hann sagði af sér
sem bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks-
ins sl. fimmtudag
eftir að fyrir lá að
honum yrði boðið
annað sætið á hst-
anum fyrir kosn-
ingamar í vor. Hann óskaði eftir að
leiða listann.
„Ég sagði nei takk þegar mér var
boðið annað sætið. Ég er búinn að vera
fulltrúi hér og taka við öllum þessum
skítverkum trekk i trekk. Mér fannst
langeðlilegast að vera ekkert að blanda
mér í þessi mál frekar fyrst maður hef-
ur ekki meiri stuðning," sagði Sigur-
jón í samtali við DV í gær.
Sjálfstæðismenn og framsóknar-
menn á Húsavík em að kanna sam-
starf fyrir næstu kosningar en Sigur-
jón segir að afsögn sín komi því máli
ekki við. Hann sé mjög áfram um að
samstarfshugmyndin verði skoðuð
nánar.
Hann vildi ekki viðurkenna að
þungt væri í sér vegna málsins. „Nei,
það er bara létt í mér, maður," sagði
tannlæknirinn og hló.____-BÞ
Flensan komin
Inflúensa hefur greinst hér á landi á
síðustu dögum. Á veirufræðideild há-
skólasjúkrahúss Landspítala hafa
greinst sex tilfelli frá 30. janúar sl.
Flensan er af A-stofni. Að sögn Haralds
Briem, sóttvamarlæknis hjá Land-
læknisembættinu, kemur flensan frá
nágrannalöndunum. Hún hefúr stung-
ið sér niður í Skandinavíu og Bretlandi
en er orðin faraldur í Frakklandi og
Portúgal.
Haraldur sagði að hér hefði eldra
fólk verið bólusett í miklum mæli, allt
að 40-50 þúsund manns á ári. Flens-
unni fylgdi nokkur hiti, beinverkir,
hálssærindi og höfuðverkur. Gera
mætti ráð fyrir að þeir sem veiktust
þyrftu að liggja í um viku og eldra fólk
ja&vel enn lengur. Fólki væri eindreg-
ið ráðlagt að fara vel með sig ef það
væri að standa upp úr veikindum.-JSS
Sigurjón
Benediktsson.