Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2002, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2002
I>V
9
Fréttir
og orðnir þreyttir á íyrirkomulaginu
heima. Þama var land tækifæranna."
- Og undirrót þeirra tœkifœra var af
pólitískum toga þegar Rússland opnaó-
ist umheiminum?
Fréttaviðtalið
Björn Þorláksson blaðamaður
„Já. Það vantaði í raun flestar nauð-
synjavörur þama en við sáum fljótt að
við hefðum mjög þröngan tímaramma.
Öll helstu fyrirtæki heimsins myndu
koma þarna fyrr eða síðar en við vor-
um fyrstir og vissum að við yrðum að
nýta okkur það forskot. Þess vegna höf-
um við unnið hratt og hljótt og reynt að
gefa forskotið aldrei frá okkur. í dag er
staðan orðin giörbreytt. Núna eru flest
stóríyrirtæki komin til Rússlands og
ekki sömu tækifæri og fyrr.“
Rússarnir það besta við Rúss-
land
- Funduð þiö snemma fyrir áhuga
stórfyrirtœkja líkt og Heineken á ykkar
starfi?
„Já, við fórum að fmna fyrir honum
fyrir tveimur ámm.“
- Hvernig hefur verið að vinna með
Rússum?
„Það hefur verið upp og ofan. Það
besta við Rússland er Rússar. Þetta er
djúpt fólk og miklir karakterar og ég
hef gaman af svoleiðis fólki þótt það sé
ekki alltaf auðvelt að eiga við það. Við
höfum verið afskaplega heppnir með
fólk og höfum eignast gott samstarfs-
fólk. Það hefur ekki komið nægilega
fram til þessa en við teljum okkur eiga
samstarfsfólki okkar geysilega margt
að þakka. Þetta var ungt fólk sem kom
ekki út úr „kommakerfmu" heldur
ferskt út úr háskólum þegar allar
breytingamar voru að eiga sér stað.“
- Hafló þið stýrt þessu þannig að þið
Magnús hafið báðir veriö búsettir að
mestu í Rússlandi undanfarið?
„Við höfum verið þama meira og
minna í mörg ár, já. Stundum höfum
við skipst á en viö höfum alltaf reynt
að hittast reglulega. Annar okkar hefur
alltaf verið á vakt.“
- Eru lögheimili ykkar beggja á ís-
landi?
Magnús hefur lögheimili þar en ekki
ég. Ég er með aðsetur í London og hef
verið mun minna heima á íslandi und-
anfarið enda era fjölskylduhagir okkar
Magnúsar mjög ólíkir.“
- Hvernig eru þínir persónulegu hag-
ir?
„Ég á íslenska unnustu sem heitir
Kristín Ólafsdóttir. Við höfum verið
saman í ein fimm ár en höfum þekkst
tvöfalt lengur. Hún býr með mér í
London og bjó á sínum tíma með mér í
Rússlandi."
Vonlaus vatnsútflutningur
Björgólfur Thor segir að fyrst eftir
að feðgarnir og Magnús fóra að vinna
saman hafi kviknað hugmyndir um að
flytja út íslenskan bjór og þeir hafl
unnið í því verkefni i tæpt ár. Ólíkt
ýmsum öðram íslendingum komust
þeir hins vegar að neikvæðri niður-
stöðu um möguleika þess. „Við sáum
að útflutningur á drykkjarvörum frá ís-
landi væri alls ekki fýsilegur og mér
finnst það hafa komið í ljós að undan-
fórnu. Það er einfaldlega of dýrt að
flytja inn hráefni til landsins, vinna
með dýra vinnuafli og flytja aftur út.
Maður sér líka hvemig hefur farið fyr-
ir vatnsútflutningnum."
Talsmaður Bravo-hópsins efins um að Rússlandsævintýrið yrði endurtekið:
Við fórum í gegnum
gífurlega erfiða tíma
- segir tugmilljarðamæringurinn Björgólfur Thor eftir viðskiptin við Heineken
Hlið Rússlands
Pétursborg hét lengst af Leníngrad é
síðustu öld 'og hefur jafnan þótt
liggja vel við samgöngum til vesturs.
hjá mér og Magnúsi. Við erum búnir
að vera meira og minna búsettir í Rúss-
landi við mjög erflðar aðstæður og það
hefur kostað fjölskyldulífið og fleira.
Vinnan var dýrasti hlutinn og mikill
fómarkostnaður því samfara. Sá kostn-
aður verður ekki metinn til fjár.“
- Nú heyrist stundum að vatnaskil
séu fram undan í atvinnvegum þjóðar-
innar. Hvaöa skilaboó viltu senda ung-
um stórhugum á íslandi?
„Að gefast aldrei upp og láta verkin
tala frekar en orð. íslendingar era oft
dálítið yflrlýsingaglaðir áður en hlut-
imir gerast en okkar mottó er að láta
verkin tala. Aðalatriðið er að vera fylg-
inn sér þegar maður kemur auga á
tækifæri.
Sterkir mótvindar
Við höfum lika fengið mjög sterka
mótvinda og stundum verið skammt í
vonleysisglampann en þá sneram við
bökum saman og neituðum að gefast
upp.“
- Hafið þió fundió fyrir úrtölum og
jafnvel afbrýðisemi?
„Kannski meira svona síðasta árið,
þvi fyrst nýverið hafa flölmiðlar greint
frá þessu. Við náðum að halda okkur
frá flölmiðlunum fyrst og það var mjög
þægilegt að enginn vissi um okkur eða
hvað maður var að gera. Maður gekk
niður götu og enginn vissi hver maður
var sem var gott. Ég veit ekki hvort
maður fann beinlínis fyrir afbrýðisemi
en við höfum líka fundið fyrir aðdáun
sem er mjög gleðilegt."
- Hvernig sérðu framtíöina fyrir þér?
Er stutt í nœsta œvintýri?
„Við erum tiltölulega ungir enn þá
og sprækir. Fyrst göngum við frá laus-
um endum í þessum samningi en sjá-
um svo til. Við eram ekkert að setjast í
helgan stein."
- Hyggstu flytja heim til íslands?
„Nei, ég reikna með svipuðum heim-
ilishögum áfram. Ég mun búa áfram í
London en sækja reglulega heim.“
Pétursborg
Borg heilags Péturs hefur breyst gríðarlega á allra síðustu árum, en borgin er
rómuð fyrir fegurð og hefur varöveist vel frá fyrri tíð. Þessi mynd er frá
Leníngradsárunum og sýnir fallega götumynd í miðborginni. Hér hófst
bjórævintýrið mikla.
Það er ekki á hverjum degi sem ís-
lendingar hasla sér viðskiptavöfl i út-
löndum með jafnglæsilegum hætti og
tríóið sem seldi Heineken rússnesku
bjórverksmiðjuna Bravo fyrir 41 millj-
arð íslenskra króna. Feðgamir og
Reykvíkingamir Björgólfur Guð-
mundsson og sonur hans, Björgólfur
Thor, hafa ásamt Magnúsi Þorsteins-
syni frá Akureyri sýnt og sannað að
rétt tímasetning og stórhugur getur
leitt til auðlegðar sem íslendingar
þekkja bara af afspurn en árin í Rúss-
landi hafa þó ekki verið neinn einhliða
dans á rósum. Bravo-tríóið hefur með-
vitað haldið sig utan kastljóss fjölmiðl-
anna undanfarið en í símaviðtali við
DV frá meginlandi Evrópu féllst
Björgólfur Thor, talsmaður hópsins, á
að lýsa síðustu árum og aðdraganda
sölunnar.
Hárrétt tímasetning
- Hver var aódragandi þess að þið
hófuð starfsemi í Rússlandi?
„Við Magnús höfum starfað saman
frá árinu 1993 en fyrirtækið sem við
vorum að selja núna er stofnað árið
1998. Við vorum saman í Viking Bmgg
í gamla daga og kynntumst þar bjórn-
um saman. í kringum 1997-1998 sáum
við að bjórmarkaðurinn í Rússlandi
var að breytast. Hann hafði verið mjög
vanþróaður en svo opnaðist gluggi -
tækifæri fyrir okkur - og við sáum
strax að glugginn yrði ekki lengi opinn
og ákváðum að fara á fuflt með bygg-
ingu nútímaverksmiðju. Við hugsuð-
um stórt og höfðum strax á bak við
eyrað að selja einhveijum bjórrisanum
þessa verksmiðju í framtíðinni. Við
vorum alveg klárir á að þessi markað-
ur yrði einn af fimm stærstu í heimi en
almennt vom menn mjög hikandi við
að fara til Rússlands. Það var því
snemma ákveðið að tfl að þetta yrði
framkvæmanlegt yrðum við að fara
sjálfir út og vinna mesta vinnuna sjálf-
ir til að hægt yrði að vekja áhuga stór-
fyrirtækja, s.s. Heinekens og Carls-
bergs. Við gerðum háar gæðakröfur frá
upphafi og lögðum strax upp með að
byggja risaverksmiðju. Fyrsta skrefið
var að kaupa mjög stórt land og bygg-
ingar undir það en síðan byggðum við
hana í fjóram pörtum svona eins og
legósett. Þannig fjármögnuðum við
verksmiðjuna hægt og þétt í stað þess
að leggja allt undir á einu bretti. Það
má segja að aflt hafi gengið eftir á
þremur áram í stað fjögurra til fimm
eins og við sáum fyrir.“
Fengu sambónd í Viking Brugg
Björgólfur Thor og Magnús kynntust
þegar Pharmaco átti Viking bragg og
unnu þeir saman þar á árunum
1991-1993. Á þeim tima öðluðust þeir
kunnáttu um hvemig reka ætti bjór-
verksmiðju sem reyndist mikilvæg
undirstaða til að byggja bjórverk-
smiðju á þessum rússneska risaskala.
„Við voram komnir með ýmis tengsl
við verkfræðistofur og brugghús, m.a.
Löwenbrau, sem kom sér afar vel en
áhuginn á Rússlandi kviknaði ekkert
endilega út frá bjórnum heldur af ein-
skærri ævintýraþrá. Við vorum ungir
- Þú veðjar ekki á vatnsútflutning-
inn?
„Nei.“
Mikið erfiði að baki
Aðspurður um samstöðu þremenn-
inganna í stórum ákvörðunum félags-
ins á framandi vígstöðvum viðurkenn-
ir Björgólfur Thor að dvölin úti hafi á
stundum verið þung. „Við fórum á köfl-
um í gegnum gífurlega erfiða tíma
þannig að ef ég fengi tækifæri til að
gera þetta aftur myndi ég hugsa mig
tvisvar um. En engu að síður höfum
við alltaf átt skap saman og okkm
lyndir vel. Við höfum í meginatriðum
verið samstiga með aflar ákvarðanir og
það hefur verið geysigott samband
milli mín og Magnúsar. Við höfum sagt
að við værum með „complimentary
skifls", þ.e.a.s. hæfir í mismunandi
hlutum. Ég reiði mig á Magnús á sum-
um sviðum og öfugt. Það er afskaplega
gott.“
- Hvaða tilfmningar bœrast núna
innra með þér þegar stórfiskinum er
loks landað?
„Ég upplifi mikinn létti. Þetta er
búið að vera takmark í langan tíma en
við höfum ekkert verið að flagga því
enda geta mál á þessu heimssvæði
breyst mjög fljótt og við vildum ekki
gefa út staðhæfingar í fjölmiðlum sem
við stæðum ekki við.
Að sjálfsögðu erum við einnig gríð-
arlega stoltir. Við komum út og settum
upp verksmiðju sem hentar einu besta
fyrirtæki greinarinnar frá a-ö. Við höf-
um fengið úttekt á öllum sviðum allt
frá bókhaldi til sölu- og markaðsstarfa
og höfum útskrifast með hæstu ein-
kunn. Þetta gerir mann stoltan en ég er
ekki enn búinn að ná peningaupphæð-
inni sem slíkri."
Vinnan mesta fjárfestingin
- Geturðu greint frá því hvaó þið
högnuðust mikió á sölunni til Heineken?
„í rauninni ekki en við eram búnir
að ávaxta okkar pund mjög vel. Tíminn
og vinnan era mestu fjárfestingarnar
Ævintýraleg velgengni
Björgólfur Thor er aðeins 34 ára en er þegar kominn í hóp alríkustu Islend-
inga. Hann býr í Lundúnum ásamt íslenskri unnustu sinni., Kristínu
Ólafsdóttur Með honum í Bravo-hópnum eru faðir hans, Björgólfur Guð-
mundsson athafnamaður í Reykjavík og Magnús Þorsteinsson sem starfaöi
hjá Sanitas-verksmiðjunni á Akureyri.
o Helsinki • Q
Stokkhólmuro • st-
Tallln Petursborg
Kaupmannahöfn
Riga
sound. vision.sou/
NS-11 eru hljómtæki sem hafa vakið athygli
fyrir það að uppfylla helstu óskir þeirra
sem eru að leita að hljómgæðum ásamt
fallegri og stílhreinni hönnun.
http://www. pioneer-eur. com
HLJÓMTÆKI
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
Þegar fegurð, stíll og gæði sameinast
Verð: 76.900,- stgr