Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2002, Qupperneq 11
11
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2002____________________________________________________________________
E>V Útlönd
Þrír drepnir í innbyrðis blóðhefnd Palestmumanna:
Æstur múgurinn tekur
lögin í sínar hendur
Palestínskir byssumenn
Óánægöir palestínskir ættingjar og vinir tóku lögin í sínar hendur í gær og skutu þrjá
sakborninga, sem dæmdir höföu veriö í fimmtán ára fangelsi, til bana.
REUTER-MYND
Konur slást um neyðaraðstoðina
Afganskar konur berjast um neyöaraöstoö sem þeim stendur til boöa hjá Hallal Ahmed mannúöarsamtökunum í
höfuðborginni Kabúl. Þaö sem konurnar deila um er alls konar varningur til að bægja frá vetrarkuldunum.
íslamskir harðlínumenn
tengdir ráni á blaðamanni
Þrír Palestínumenn sem í gær voru
dæmdir af palestínskum herdómstóli
fyrir morðið á Osama Qmeil, foringja
úr öryggissveitum Palestínumanna,
voru skotnir til bana af æstum ætt-
ingjum og vinum fómarlambsins sem
ruddust inn i dómhúsið í Jenin á
Vesturbakkanum, rétt eftir að réttar-
höldum yfir sakborningunum lauk.
Herdómstóllinn hafði fundið þre-
menningana seka um morðið á Qmeil,
en þar sem þeir voru ekki dæmdir tU
dauða heldur tU fimmtán ára fangels-
isvistar ærðist lýðurinn sem beið
dómsins utan dyra og ruddist inn í
húsið með eina tuttugu vopnaða
byssumenn í broddi fylkingar. Létu
þeir skothríðina dynja á þremenning-
unum þar sem þeir voru í felum á sal-
erni dómhússins eftir að lögreglan
hafði reynt að koma þeim undan. Eft-
ir drápin voru líkin dregin út á götu,
þar sem byssumennirnir héldu áfram
að skjóta út í lofið.
Umræddur QmeU hafði verið grun-
REUTER-MYND
Vitnisburöur í máii Enron
Deborah Perrotta starfaði eitt sinn
hjá Enron og tapaöi 40 þúsund doll-
urum viö gjaldþrot fyrirtækisins. Hún
sagöi þingnefnd frá því í gær.
Risabónusar rétt
fyrir gjaldþrotið
Háttsettir fyrrum starfsmenn
orkusölufyrirtækisins Enron
greindu frá því í gær að æðstu
stjórnendur þess hefðu fengið miUj-
ónir dollara í bónusgreiðslur tveim-
ur dögum áður en fyrirtækið varð
gjaldþrota í desember. Siðan voru
þúsundir starfsmanna reknar og
þeim ekki greiddur uppsagnarfrest-
ur eins og þeim þó bar.
Kenneth Lay, fyrrum stjórnarfor-
maður Enron, féllst i gær á að koma
fyrir þingnefnd í næstu viku til að
svara spumingum um þetta mesta
gjaldþrot sögunnar vestanhafs. Lay
mætti ekki ,til yfirheyrslu á mánu-
dag, eins og til hafði staðið.
Barnamorðingj-
arnir dæmdir
í næstu viku
Réttarhöldin yfir barnamorðingjun-
um frá Kristiansand, sem nauðguðu
og drápu litlu stúlkurnar í Banaheia í
heimabæ sínum, í maí árið 2000, eru
nú á lokastigi. Á þriðjudag dæmdi
kviðdómurinn í Arendal Viggo Kristi-
ansen sekan um að hafa verið höfuð-
paurinn að verknaðnum þrátt fyrir að
hann hefði alla tíð neitað að hafa
komið nálægt morðstaðnum á þeim
tíma er voðaverkin voru framin.
í héraðsdómi var Viggo Kristian-
sen dæmdur til tuttugu og eins árs
fangelsisvistar en félagi hans Jan
Helge Andersen hlaut sautján ára
dóm, en það var hann sem játaði fyrir
lögreglunni að þeir félagar hefðu
framið níðingsverkið í Banaheia þeg-
ar þeir nauðguðu og drápu Lenu Slög-
dal Paulsen, 10 ára, og Stine Sofie Sör-
strönen, 8 ára.
í byrjun næstu viku munu dómar-
arnir í Lögmannsréttinum kveða upp
dóm yfir tvímenningunum. -GÞÖ
Pakistanska lögreglan sem leitar
að bandaríska blaðamanninum
Daniel Pearl, sem var rænt fyrir
tveimur vikum, sagði í morgun að
hún hefði sýnt fram á tengsl bann-
aðs hóps íslamskra harðlínumanna
við mannránið.
Lögreglan handtók tvo menn í
hafnarborginni Karachi í gær, grun-
aða um að hafa sent tölvupóst með
myndum af Pearl. Fljótlega komu í
ljós tengsl við Jaish-e-Mohammad,
hóp sem er í tengslum við aðskiln-
aðarsinna í Kasmír.
„Jaish tengist ráninu á Pearl. Við
fengum þær upplýsingar frá mönn-
unum tveimur sem voru teknir í
Karachi í gærkvöld," sagði háttsett-
ur foringi innan lögreglunnar við
fréttamann Reuters.
Jaish-e-Mohammad var annar
tveggja hópa pakistanskra harðlínu-
REUTER-MYND
Enn ófundinn
Ekkert bólar enn á bandaríska
blaöamanninum Daniel Pearl sem
var rænt í Pakistan fyrir 2 vikum.
aður um að standa á bak við morð á
grunuðum palestínskum samverka-
manni ísraelsmanna og hafði morð
þremenninganna á Qmeil verið blóð-
hefnd fyrir það.
Að sögn sjónarvotta voru flestir
byssumannanna félagar Qmeils úr ör-
yggissveitum Yassers Arafats, en
sumir þeirra reyndu að villa á sér
heimildir með því að klæðast búning-
um lögreglunnar. Allir eru þeir með-
limir i ættflokkasamtökum sem lengi
hafa barist innbyrðis og hafði Qmeil
stýrt einum armi samtakanna sem
grunaður var um að hafa myrt sex
manns úr eigin röðum, sem grunaðir
voru um að vera í vitorði með Israels-
mönnum á árunum 1987-1993.
Áðurnefndir þremenningar voru
einnig meðlimir í umræddum ætt-
flokkasamtökum og höfðu viðurkennt
morðin fyrir herdómstólnum. Fyigdi
sögunni að þeir hefðu talið sig komast
upp með morðið þar sem palestínska
öryggislögreglan væri veikburða.
manna sem indversk stjómvöld sök-
uðu um að hafa staðið fyrir sjálfs-
morðsárásinni á indverska þingið í
Nýju-Delhi í desember.
Lögreglan sagðist einnig hafa
handtekið tvo menn í höfuðborginni
Islamabad og ráðist til inngöngu í
borginni Lahore í leit að manni sem
er hátt á lista yfir grunaða. Hann
var ekki í húsinu.
Daniel Pearl hvarf í Karachi 23.
janúar síðastliðinn þegar hann var
að reyna að komast í samband við
róttæka múslímahópa.
Áður en Pearl hvarf hafði hann
verið að vinna að frétt um Bretann
Richard Reid, sem var handtekinn
þegar hann reyndi að kveikja í
sprengju í skóm sínum um borð í
bandarískri flugvél yfir Atlantshafi.
Pearl var að kanna tengsl hans við
Osama bin Laden.
Skr. 5/98, ek. 51 þús.
Verð kr. 1050 þús.
Suzuki Baleno Wagon 2WD
Skr. 12/97, ek. 74 þús.
Verð kr. 860 þús.
Suzuki Baleno GLX, 4 d., bsk.
Skr. 7/99, ek. 39 þús.
Verð kr. 860 þús.
Ford Focus Wagon, bsk. Skr.
5/99, ek. 57 þús.
Verð kr. 1290 þús.
Gailoper 2,5 dísil, ssk. Skr.
7/99, ek. 29 þús.
Verð kr. 1690 þús.
Suzuki Jimny JLX, 4x4. Skr.
6/99, ek. 49 þús.
Verð kr. 1040 þús.
Suzuki Vitara JLX, bsk. Skr.
7/98, ek. 89 þús.
Verð kr. 1090 þús.
Suzuki Wagon R+, 5 d., 4x4
Skr. 5/00, ek. 8 þús.
Verð kr. 1140 þús.
Suzuki Swift GLX, 5 d., bsk.
Skr. 3/98, ek. 52 þús.
Verð 650 þús.
Tilboð 550 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
...✓/✓/...............
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, sími 568-5100