Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Qupperneq 2
MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2002
Fréttir
DV
Síminn í viðskiptum við fyrirtæki stjórnarformannsins án vitundar stjórnarmanna:
Einkafyrirtæki Friðriks í millj-
ónaviðskiptum við Símann
- samgönguráðuneytið samdi beint við stjórnarformanninn
Friörik
Pálsson.
Samgönguráðuneytið samdi við
Friðrik Pálsson, stjórnarformann
Landssímans, um að hann mætti
selja Símanum ráðgjafarvinnu í
nafni einkafyrirtækis síns sem heit-
ir Góðráð ehf. Síðan hafa Góðráð
innheimt milljónir króna árlega frá
Landssímanum.
Á árinu 2001 gaf
fyrirtækið Góöráð
ehf. út reikninga
að andvirði
7.619.900 krónur á
Landssímann og er
virðisaukaskattur
þar innifalinn. Fyr-
irtækið er í einka-
eigu Friðriks Péds-
sonar sem verið
hefur stjórnarfor-
maður Landssím-
ans frá 1999.
í yfirlýsingu sem
hlaðinu barst seint
í gærkvöld frá end-
urskoðanda Frið-
riks, Lárusi Finn-
bogasyni, kemur
eftirfarandi fram:
„Ég undirritaður
staðfesti hér með
að útskrifaðir
reikningar ráðgjafafyrirtækisins
Góðráða ehf. vegna útseldrar þjón-
ustu fyrirtækisins á árinu 2001 fyrir
Landssíma íslands hf. námu kr.
5.098.000 auk virðisaukaskatts."
Undir þessa yfirlýsingu skrifar Lár-
us fyrir hönd Deloitte & Touche.
Þessar verktakagreiðslur sam-
svara 635 þúsund krónum á mánuði,
með virðisaukaskatti, eða 425 þús-
und á mánuði án virðisaukaskatts.
Þessar greiðslur innihalda ekki
stjórnarlaun Friðriks hjá Landssím-
anum sem voru rúmlega hundrað
þúsund krónur á mánuði árið 2001
en hafa nú verið hækkuð i tæplega
150 þúsund krónur. Síminn hefur
með þessu lagt út hátt í 800 þúsund
á mánuöi vegna stjórnarformanns
Flosl
Eiriksson
- veit ekkert.
Magnús
Stefánsson
-kem affjöllum.
Sturla
Böövarsson.
síns á síðasta ári, ef virðisaukinn er
reiknaður með, en vel á sjötta hund-
rað þúsund án virðisaukaskatts.
Rétt er að taka fram að endurskoð-
endur fyrirtækisins hafa athuga-
semdalaust skrifað upp á viðskiptin.
Óuppiýst stjórn
Innan stjórnar er fátt vitað um
viðskipti Góðráða ehf. og Lands-
símans. „Ég kem af fjöllum," sagði
Magnús Stefánsson, varaformaður
stjórnar Lándssímans og fulltrúi
Framsóknarflokks, í samtali við
DV í gær. í sama streng tók Flosi
Eiríksson stjórnarmaður, sem sit-
ur þar fyrir hönd Samfylkingar.
„Ég hef heyrt minnst á fyrirtæk-
ið Góðráð ehf. en vissi ekkert um
að það ætti í viðskiptum við
Landssímann," segir Flosi.
Þórarinn Viðar Þórarinsson,
fyrrverandi forstjóri Landssímans,
vill ekki kannast við að hafa átt
neitt með umræddan samning um
ráðgjafarstörf að gera. Hann vísar
á Sturlu Böðvarsson samgöngu-
ráðherra, sem æðsta fulltrúa eig-
enda Landssímans, íslensku þjóð-
arinnar.
„Ég kýs að tjá mig ekki um það.
Mér finnst að samskipti stjórnar-
formannsins og fyrirtækisins
hljóti að snúa að eigandanum.
Stjórnarformaðurinn sækir sínar
heimildir til eigandans en ekki
sinna undirmanna," sagði Þórar-
inn Viðar. Þórarinn Viðar þver-
tekur fyrir að
hafa sem forstjóri
gert samning við
Góöráð um ráð-
gjafarþjónustu til
Símans.
„Nú háttaði
þannig til að Sím-
inn var algjörlega
í eigu ríkisins,
nánast alveg þar
til ég fór í frí. Það
þýddi að sam-
gönguráðherra var um leið hluí-
hafafundur. Vald hans yfir málefn-
um fyrirtækisins er gríðarlega
Þórarlnn Vlöar
Þórarinsson
- spyrjiö Sturlu.
gærkvöld.
mikið. Hann segir stjórninni fyrir
verkum, að ráða og reka forstjóra
og allt hvað heita má í því efni. Al-
veg þangað til að hluthöfum fjölgar
þá eru orð ráðherra bindandi fyrir
fyrirtæki sem svo er háttað um.
Þannig að þú verður að beina þín-
um spurningum um þessi sam-
skipti í þann farveg. Ég hef ekki
gert neina samninga við Friðrik,"
segir Þórarinn Viðar og benti DV á
að spyrja Friðrik Pálsson sjálfan
hvaða heimild hann hafi haft til að
senda reikninga á Símann.
„Ég er hættur hjá þessu fyrir-
tæki eins og ég hygg að mörgum sé
orðið ljóst, þannig að ég held að
það sé ekki viðeigandi að ég sé að
tjá mig um slíka hluti. Visa þessu
beint á samskipti milli stjórnarfor-
manns og eiganda."
Alit á hreinu
Friðrik Pálsson, stjórnarformað-
ur Landssímans og eigandi Góðráða
ehf., staðfestir í samtali við DV að
félag hans eigi í milljónaviðskiptum
við Símann. Þetta væri ráðgjafar-
vinna sem hann hefði innt af hendi
í tengslum við @IPbell, einkavæð-
ingu Símans og önnur mál. Þá inn
heimti félag sitt flugmiða, hótel-
kostnað og annan kostnað sem félli
til vegna ferðalaga sinna á vegum
fyrirtækisins. Hann sagði að ráðu-
neytisstjóri samgönguráðuneytis yf-
irfæri reikningana en sendi þá sið-
an til forstjóra Landssímans sem
gengi frá þeim til útborgunar.
„Ég hef unnið ráðgjafarstörf fyrir
Símann og ekki dregið af mér. Þessi
kostnaður er síst ofreiknaður enda
hef ég unnið dag og nótt fyrir Sím-
ann og aldrei spurt hvort væri helgi
eða kvöld. Ég hef ekki verið þungur
á fóðrum," segir Friðrik.
Hann sagðist ekki hafa yflrsýn
yfir það hve mikinn kostnað Góð-
ráð hefðu innheimt fyrir síðasta ár
eða það sem af er þessu ári en
lagði áherslu á að ekkert væri of-
reiknað í þessu máli. „Ég hef ver-
ið heiðarlegur allt mitt líf og svo
er með þetta mál,“ sagði Friðrik
sem aðspurður taldi að stjórn Sím-
ans væri málið óviðkomandi og
því hefði ekki verið ástæða til að
kynna málið þar.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra vildi í gærkvöld ekkert segja
um Góðráð eða samskiptin við Frið-
rik Pálsson í tengslum við fyrirtæk-
ið. -rt/sbs
^Vestmannaeyjar:
Úttekt á sam-
göngum við
höfuðborgina
Á bæjarstjórnarfundi 7. febrúar sl.
samþykkti bæjarstjórn Vestmanna-
eyja að fela Þróunarfélagi Vest-
mannaeyja að beita sér fyrir úttekt á
ferðatiðni í almenningssamgöngum
frá höfuðborginni út á landsbyggðina.
Úttektin yrði nýtt í því skyni að fylgja
eftir kröfum um aukna tíðni almenn-
ingsferða til Vestmannaeyja i sam-
ræmi við þær kröfur sem fram komu
á fjölmennum borgarafundi í Vest-
mannaeyjum 1. febrúar sl.
Þessi samþykkt kemur i kjölfar
mikillar umræðu um samgöngumál
Vestmannaeyinga, sem tengjast
rekstri Herjólfs. -GG
Ibúar bíða óþreyjufullir eftir lausn
„Það er erfitt fyrir mann að segja
um hvemig á að standa að rann-
sókn svona máls. En það er liðin
vika frá atburðunum og enn hefur
ekkert komið fram sem varpar ljósi
á þá,“ segir Gunnar Kr. Ólafsson,
íbúi á Hvolsvelli. Gunnar er einn
þeirra sem áttu bíl sem kveikt var í
um síðustu helgi og er orðinn lang-
eygur eftir niðurstöðu í málinu.
„Manni hefði þótt eðlilegt að fengin
hefði verið aðstoð frá rannsóknar-
lögreglunni í upphafi. Það er líka
kominn orðrómur í bænum um
hverjir hafi gert þetta og fyrir þá er
ekki hlaupiö að því aö hreinsa
mannorð sitt meðan og ef málið
upplýsist ekki,“ segir Gunnar. Hann
kveðst hafa verið í sambandi við
lögregluna fyrst á eftir og svörin
DVWND NJÖRÐUR
Vlð brunarústirnar
Gunnar viö bílinn sinn sem kveikt
var í um síöustu helgi.
hafi verið í þá veru að málið væri í
rannsókn. „Það er mjög erfitt fyrir
fólk héma ef málið skýrist ekki.
Tíminn sem liðinn er frá þessum at-
burðum er orðinn það langur að
fólk er orðið uggandi yfir að eitt-
hvað svipað endurtaki sig,“ segir
Gunnar Kr. Ólafsson.
„Það hefur ekkert nýtt komiö
fram við rannsóknir á íkveikjunum
sem færir okkur nær niðurstöð-
unni,“ segir Kjartan Þorkelsson,
sýslumaður Rangæinga, og tekur
fram að mikil vinna hafi veriö lögð
í rannsókn málsins. „Það eru allir
okkar menn að vinna í þessu og
búið er að yfirheyra talsverðan hóp
en lausnin er enn ekki fundin," seg-
ir sýslumaðurinn.
-NH
Guðni í fullum rétti að leigja Knúti Bruun
Svo virðist sem Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra hafi verið í
fullum rétti til þess að leigja Knúti
Bruun það land sem samningur
þeirra á milli segir til um. Ekki hafi
verið um tvíleigu á landinu að
ræða. Skrifað var undir samninginn
fyrir nokkmm dögum, en þá þegar
bámst athugasemdir, m.a. frá Nátt-
úrulækningaheimilinu í Hveragerði
þess efnis að um einn hektari lands-
ins væri þegar leigður heimilinu. í
Héraðsskjalasafni Ámesinga liggur
hinn upphaflegi leigusamningur
sem gerður var við Heilsuhæli
NLFÍ, nú Heilsustofnun NLFÍ, um
leigu landsins af rikinu, en frumrit
samningsins er varðveitt í gögnum
samningur frá árinu 1953 tekur af allan vafa
ölfus-
hrepþstjóra
hrepps.
Skólastjóri Garö-
yrkjuskóla ríkisins
undirritaði samn-
inginn árið 1953, eða
fyrir nær 50 árum,
og af hálfu ríkisins
Hermann Jónasson,
þáverandi landbún-
aðarráðherra og
Jónas Kristjánsson
læknir fyrir hönd Náttúrulækninga-
hælisins. í 8. gr. samningsins segir
m.a. að hvenær sem ríkið telur sig
þarfnast landsins til notkunar undir
opinber mannvirki ríkis, hrepps eða
bæjarfélags eða vegna sérstaks at-
. Guðni
Agústsson.
vinnureksturs, er
leigutaka skylt að
láta af hendi leigu-
rétt sinn til lands-
ins, að nokkrum
hluta eða að öllu
leyti. Hafi ekkert
verið gert við landið
annað en að girða
það, fellur leigan
sjálfkrafa niður án
sérstakrar uppsagn-
ar. Það er staða málsins í þessu til-
felli.
Landbúnaðarráðherra segir það
allt satt og rétt sem Héraðsskjala-
safnið hafi opinberað. Hann hafi lát-
ið kanna mjög vel hvort samningur-
Knútur
Bruun.
inn stangaðist á við þarfir Garð-
yrkjuskólans og Heilsustofnunar
NLFÍ til þess að komast hjá mála-
ferlum vegna þessa 10,5 hektara
lands.
„Þeir hafa plantað þama trjám og
það verður þeim bætt, en það er af
og frá að framkvæmdir þama kunni
að skaða kaldavatnsból Heilsustofh-
unarinnar. Hugmyndir Knúts Bm-
un eru mjög glæsilegar og stór-
brotnar, en málið á bæði eftir að
fara gegnum deiliskipulag og
grenndarkynningu. Vonandi næst
farsæll endir á þessu máli. Ég er
reyndar fullviss um það,“ segir
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra. -GG
Mokveiði á loðnumiðunum
Loðnuskip fylltu
sig í fáum köstum á
miðunum austur af
Stokksnesi í fyrr-
inótt og héldu til
hafnar með full-
fermi en löndunar-
bið er nú í höfnum
á Austfjörðum. í
gær var nokkur kvika á loðnumið-
unum og skip áttu erfiðara með að
athafna sig.
Flensan komin
Inflúensa er farin að gera vart við
sig í Reykjavík og hefur hún ekki
síst lagst á ung böm það sem af er.
Auk hennar eru ýmsar slæmar
vímspestir í gangi á landinu.
Aftur saumað á Höfn
Ný vefnaðarvöruverslun var opn-
uð á Höfn í Homafirði fyrir helgina
en ekkert hefur fengist til sauma-
skapar á suðausturhomi landsins
síðustu mánuði. Það er Halldóra
Ingólfsdóttir sem á nýju verslunina
og rekur og þar verða þrjár Guð-
bjargir í vinnu. Þetta kemur fram á
hom.is,
Fréttir frá Birni í vikunni
Björn Bjamason
menntamálaráð-
herra kveðst skýra
frá því í vikunni
hvenær hann yfir-
gefi menntamála-
ráðuneytið. Hann
segir lista sjálfstæð-
ismanna verða
kynntan undir næstu mánaðamót
og að kosningabaráttan byrji af full-
um krafti eftir páska. Þetta kemur
fram á heimasíðu hans.
Skorin í andlitið
Átök urðu milli þriggja kvenna i
Hafnarstræti i fyrrinótt og var ein
þeirra flutt á slysadeild Landspit-
ala - háskólasjúkrahúss eftir að
hinar tvær höfðu ráðist á hana og
skorið hana með vasahníf í andlit-
ið. Sú slasaða hefur kært árásina
en hinar tvær voru ekki handtekn-
ar strax.
Tap hjá Aco-Tæknivali
Aco-Tæknival tapaði rúmum
milljarði króna árið 2001, sam-
kvæmt þvl sem fram kemur í árs-
uppgjöri fyrirtækisins og er það
verri afkoma en fjármálafyrirtæki
spáðu fyrir ári. Fyrirtækin Aco og
Tæknival voru sameinuð á síðasta
ári og hefur velta þeirra dregist
saman um 13% eftir það.
Sextán stútar
Sextán öku-
menn voru
teknir ölvaðir í
Reykjavík um
helgina auk
þess sem
nokkrir mæld-
ust rétt undir
mörkum og
voru látnir leggja bilum sinrnn á
staðnum. Þetta er óvenju mikill
fjöldi á einni helgi.
Seinkun á gangagerö?
Búist er við seinkun á útboðum
vegna jarðgangagerðar á Austur-
landi frá því sem áætlað var en ráð-
ast átti í forval meðal verktaka nú í
mars. Ástæðan er dráttur á sölu
Símans en fyrirhugað var að fjár-
magna gangagerðina með sölu ríkis-
fyrirtækja. RÚV greindi frá.
Safnað vegna hjartabarns
AUs 826.000 krónur söfhuðust á
ísafirði og nágrenni tU handa Rakel
Maríu Bjömsdóttur á Þórustöðum í
Önundarfirði. Rakel María er tæp-
lega eins árs en hefur tvívegis þurft
að fara til Boston í stórar hjartaað-
gerðir.