Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2002
DV
Fréttir
Rútubílstjórinn sem var dæmdur fyrir manndráp af gáleysi:
Ég vil vara unga
rútubílstjóra viö
- segir Steingrímur Guðjónsson - ábyrgð rútufyrirtækjanna er engin
Steingrímur Guðjónsson, bílstjóri
rútunnar sem valt út af einbreiðri brú
yfir Hólsselskíl á Hólsijöllum í Öxar-
fjarðarhreppi 16.
júlí 2000, er mjög
ósáttur við að
Hæstiréttur hafi
snúið við dómi
undirréttar og
dæmt hann fyrir
manndráp af gá-
leysi. Hann segir
að með dómnum
sé verið að slá
skjaldborg um
Vegagerðina og fyrir það þurfi hann
nú að blæða.
„Ég vO vara unga rútubílstjóra við
því að með dómnum eru þeir alfarið
gerðir persónulega ábyrgir fyrir lífi
og limum farþega en ábyrgð rútufyrir-
tækjanna er engin,“ segir Steingrím-
ur. Þá sé ökukennslu mjög ábótavant,
sérstaklega hvað varðar rútuakstur
úti á þjóðvegunum.
Þrjátíu erlendir farþegar voru með
bifreiöinni þegar slysið varð en 11
slösuðust og einn lést er hann varð
undir öðrum farþegum þegar rútan
féll út af brúnni. Steingrimur segir aö
Hæstiréttur noti m.a. sem sönnun fyr-
ir hraða gögn sem starfsmenn Vega-
gerðarinnar hafi talið ómarktæk. Því
hljóti að vera eðlilegt að hann sem
sakborningur njóti vafans.
Steingrímur var sýknaður í undir-
rétti þann 18. júlí sl. sumar en ríkis-
saksóknari skaut máli þessu til
Hæstaréttar 28. ágúst 2001. Hæstirétt-
ur sneri dómnum við og var Stein-
grímur þann 7. febrúar sl. dæmdur i
30 daga skilorðsbundið fangelsi og
greiðslu málskostnaðar og auk þess til
sviptingar almenns ökuréttar í 6 mán-
uði. Áður hafði sýslumaðurinn á
Akranesi afturkallað aukin ökurétt-
indi Steingríms.
Ábyrgur ökumaður
I niðurstöðu Héraðsdóms Vestur-
lands 18. júlí 2001 segir m.a.:
„Þá er rétt að hér sé þess getið aö
þau vitni sem voru í rútunni, leiö-
sögumaður og tveir farþegar, bera að
ákærði hafi almennt verið gætinn,
varkár og ábyrgur ökumaður. Að öllu
þessu athuguðu verður það niður-
staða dómsins að slysið við Hólssels-
kU hafi að langmestu leyti orðið
vegna aðstæðna sem ákærði sá ekki
fyrir og mátti ekki gera sér grein fyr-
ir og að ósannað sé að ákærði hafi
ekið svo gáleysislega inn á brúna yfir
HólsselskU 16. júlí 2000.“
Hann var því sýknaður af ákæru
fýrir brot á þessum greinum. Þá taldi
dómur að ekki hefði verið sannað að
ákærði hefði brotið gegn varúðarregl-
um umferðarlaga og bæri þvi einnig
að sýkna hann af ákæru fyrir brot á
þeim ákvæðum og enn fremur af
kröfu ákæruvaldsins um sviptingu
ökuréttar.
Pappaspjald með blekklessu
„Ég sé að fuUt af rökum fyrir sýknu
minni er varpað fyrir róða og þau
ekki notuð við dómsuppkvaðningu
Hæstaréttar. Þar er m.a. um að ræða
vitnisburð fararstjóra og farþeganna
sjálfra, auk ýmissa gagna á vettvangi
sem ekki var tekið tUlit tU, einnig rök
fagmanna sem vitnuðu fyrir undir-
rétti. Eftir stendur pappaspjald með
blekklessu á sem er skífan úr ökurit-
anum.
Fyrir dóm í undirrétti kom starfs-
maður Vegagerðarinnar, sem les rit-
ann, og hann sagði að ekki væri hægt
að lesa upplýsingar á ökuritanum tU
fullnustu nema senda hann tU fram-
leiðanda erlendis. Þaö var hins vegar
aUdrei gert. Það sem Hæstiréttur legg-
ur tU grundvaUar og dæmir mig fyrir
er síðan of mikiU hraði sem skráður
sé á ökurita."
Steingrímur segir að fjöldi bUstjóra
hafl sýnt fram á að ökuritinn sýni
ekki þegar hægt er skyndUega á
birfreið, það strikist hreinlega ekki á
skífu ökuritans.
Klúður við rannsókn
„Að mínu mati er þessi dómur
Hæstaréttar jafnmikið klúður og varð
við rannsókn flugslyssins í Skerja-
firði. Ef þetta hefði verið flugvél þá
hefði Rannsóknarnefnd flugslysa
mætt á svæðið. Rannsóknarnefhd um-
ferðarslysa lætur hins vegar ekki sjá
sig á slysstað en löngu seinna gefur
hún út beiðni um að láta taka af mér
ökuskírteinið. Þá er sú könnun sem
gerð var á slysstað að mínu mati klúð-
ur. BUlinn var dreginn á hliðinni
marga metra og þar með voru mikU-
væg sönnunargögn eyðUögð. Síðan
var honum hent upp á vagn og ekið tU
Reykjavíkur og i geymslu við Sunda-
höfn. Þar er hann geymdur frá 16. júlí
2000 tU 1. september 2000. Þá fyrst er
hann skoðaður.
Á slysstað kom hins vegar bifvéla-
virki sem sýndi mér brot í fjöðrum
þar sem að hans mati sást að gömul
sprunga hafði verið fyrir í fjöðrinni.
Þegar bUlinn er skoðaður 1. septem-
ber það ár var þetta aUt saman
haugryðgað."
- En er ekki eðlUegt að ábyrgðin sé
á endanum ökumannsins?
„Min ábyrgð er auðvitað tU staðar
sem ökumanns. í dómi undirréttar
segir að slysið hafi mátt rekja tU að-
stæðna. Ég keyri eftir þeim upplýsing-
um sem mér eru gefnar. Vegagerðin
gefur mér þær upp í formi skUta. Ég
var búinn að fara yfir 73 einbreiðar
brýr í þessum túr áður en ég kom að
þessari. Hún var ekki merkt neitt
öðruvísi en aUar hinar. í frumrann-
sókn lögreglu kom hins vegar fram að
vegarstæðið er beint sitt hvorum meg-
in við brúna en brúin skökk á akst-
ursstefnu. Þarna var ekkert sem gaf
tU kynna að ég þyrfti að hægja á mér
niður i 20 km hraða. Þar var heldur
ekkert skUti sem segir að brúrn sé
svona ofsalega mjó.“
- Hefur þú möguleika á að áfrýja
málinu?
„Þetta er hæstaréttardómur og ég
reikna ekki með að hafa fjárhagslega
burði tU að fara tU erlendra dómstóla.
Mín tUfmning er sú að verið sé að slá
skjaldborg um Vegagerðina svo hún
þurfl ekki að fara að greiða trygginga-
félögum farþeganna skaðabætur.
Ég skU ekki frekar en mínir lög-
fræðmgar af hverju þessum dómi er
snúið. Bara lestur á vitnisburði far-
þega segir að ökumaður hafi keyrt ró-
lega og varlega að brúnni. Svo er sagt
í dómnum að ég hafi ekki haft nægj-
anlega reynslu. Hvar í ósköpunum á
ég að fá hana? Ég veit ekki um neitt
rútufyrirtæki sem sendir sína bU-
stjóra út um land á tómum rútum tU
þess eins að þeir afli sér reynslu.
Þetta segir mér hins vegar að öku-
kennslu á Islandi er mjög ábótavant.
Ég vU meina að hér sé verið að út-
skrifa fjöldann aflan af fólki sem varla
kann að keyra bUa. Þetta fólk á svo
kannski að fara að keyra strætó nið-
ur Laugaveginn daginn eftir að það
fær skírteinið. Þá spyr ég líka: Hver
er ábyrgð eigandans í svona tilfeU-
um?“
-HKr
Húsdýragarðurinn:
Fræðst um Gutt-
orm í farsíma
Nýtt kerfi með upplýsingaþjónustu
var tekið í notkun í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum í gær og var þaö
vígt með pomp og prakt af Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra.
Kerfið er sett upp og rekið af Islands-
síma og í gegnum farsíma er bæði
hægt að fá upplýsingar um einstök
dýr í garðinum og almennan fróðleik
um þær tegundir sem þar finnast.
„Þeir sem tU dæmis vUja fylgjast með
hvernig stóra bolanum Guttonni líður
og hvemig litlu kálfunum hans vegn-
ar geta hringt og fengið helstu fréttir
segir Pétur Pétursson, upplýsingafuU-
trúi Islandssíma. Hann segir að aug-
lýsingaskUtum hafi verið komið upp
víðs vegar um garðinn með þeim
símanúmerum sem við eiga. I fram-
haldinu verður boðið upp á ratleiki í
garðinum með þessari tækni og
einnig opnast möguleikar til að tengja
hana fræðslustarfi garðsins.
-Gun
DV-MYND HARI
Þau vígöu tæknlna
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Óskar Magnússon, forstjóri Íslandssíma, hvort meö sinn kálfinn sem báöir
eru undan tuddanum Guttormi sem frægur er fyrir stærö sína.
Góð þátttaka í prófkjöri Samfylkingar:
Nokkrir hurfu frá vegna gjalds
Um 2.300 manns tóku þátt í próf-
kjöri Samfylkingarinnar i Reykja-
vík vegna framboðslista R-listans
til borgarstjómarkosninganna í
vor. Að sögn Katrínar Theódórs-
dóttur, formanns prófkjörsnefndar,
er það ívið meiri þátttaka en búist
var við, en nokkuð hafi verið um
það að nýir stuðningsmenn hafi
tekið þátt í prófkjörinu, enda nýtt
fólk meðal prófkjörskandídata og
töluverð símasmölun í gangi. Ekki
verður talið fyrr en á þriðjudag þar
sem beðið verður þess að póstlagð-
ir atkvæðaseðlar skili sér, en þeir
þurfa að vera með löggiltum póst-
stimpli frá fostudeginum 15. febrú-
ar sl.
Félagsmenn í Samfylkingunni og
nýir félagsmenn greiddu ekki fyrir
þátttökuna í prófkjörinu en Katrin
Theódórsdóttir segir að um stuðn-
ingsmannaprófkjör hafi verið að
ræða og fyrir þá kostaði þátttakan
500 krónur, sem var til þess að
standa straum af kostnaöi vegna
þeirra þátttöku. Þó var ekki tekið
gjald af ellilífeyrisþegum, náms-
mönnum og öryrkjum.
„Það voru örfá dæmi þess, lík-
lega um 15, að fólk hyrfi frá þegar
því var tjáð að þátttakan kostaði
500 krónur. En ég tel að þeir sem
ekki gátu séð af þeim peningum
hafi ekki verið einlægir stuðnings-
menn,“ segir Katrín Theódórsdótt-
ir. Þeir sem þátt tóku i prófkjörinu
voru Helgi Hjörvar, Hrannar Bjöm
Amarsson, Sigrún Elsa Smáradótt-
ir, Stefán Jóhann Stefánsson, Stef-
án Jón Hafstein, Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, Pétur Jónsson og
Tryggvi Þórhallsson.
-GG
Hafnarfiörður:
Bæjarsijórinn
hlaut yfir-
burðakosningu
Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri í
Hafnarflrði, er sigurvegari í próf-
kjöri sjálfstæðismanna í Hafnarflrði
til bæjarstjómar-
kosninganna á
komandi vori.
Hann hlaut 65%
atkvæða og bind-
andi kosningu
eins og Valgerður
Sigurðardóttir,
forseti bæjar-
stjórnar, sem varð
í 2. sæti.
Magnús Gunn-
arsson segir að þegar um prófkjör er
að ræða þar sem Hafnflrðingum er f
gefið tækifæri til að leggja flokknum
lið og velja einstaklinga getur niður-
staðan orðið mjög spennandi.
„Auðvitað ræðst niðurstaðan ekki
síst af því hversu duglegt fólk er að
kynna sig og koma sínum sjónarmið-
um á framfæri. Ég sé ekki betur en
að þetta sé mjög sigurstranglegur
listi, skipaður góðum einstakling-
um,“ segir Magnús Gunnarsson.
Þorgils Óttar Mathiesen sem skip- !
aði 3. sætið við síðustu kosningar gaf
ekki kost á sér en hans sæti hreppti '
Haraldur Þór Ólason. I 4. sæti er
Steinunn Guðnadóttir sem var í 5.
sæti en í 5. sæti Gissur Guðmunds-
son, sem áður var í 4. sæti. I 6. sæti
lenti ungur maður, Leifur Garðars-
son. -GG
Biskupstungnabraut:
Jeppi með fjórum
Japönum valt
Jeppabifreið með fjómm Japön-
um valt við Brúará á Biskups-
tungnabraut um klukkan 14 í gær.
Engin slys urðu á fólki en óhappið
er rakið til hálku, ekki síst vegna
þess að það tók að snjóa ofan á
sleipt yfirborð. Við sömu brú en á
öðram stað varð aftanákeyrsla
tveimur klukkustundum áður. Það
óhapp var rakið til óaðgæslu þess
sem ók aftan á.
Annar bíll fór út af Biskups-
tungnabraut klukkan rúmlega 16.
Var það á móts við Alviðru, sem er
skammt frá Soginu, Selfossmegin.
Fjóröa óhappið í Ámessýslunni sem
lögreglu var tilkynnt um varð síðan
klukkan rúmlega 17 en þá fór jeppi
út af veginum. Engin slys urðu á
fólki. -Ótt
Magnús
Gunnarsson.
Hungur eða sýk-
ing olli svart-
fugladauðanum
Ljóst er að tugþúsundir svartfugla,
mest stuttnefjur og langvíur, drápust
seinni hluta janúarmánaðar úti fyrir
Norðvestur-, Norður- og Norðaustur-
landi. Svartfugla rak frá Rifi á Snæ-
fellsnesi í vestri noröur og austur um
að Mjóafirði á Austfjörðum. Enn sem
komið er bendir flest til þess að fugl-
amir hafi drepist úr hungri þótt sýk-
ing hafi ekki enn verið útilokuð. Ein-
kennin hafa m.a. verið blæðingar í
meltingarvegi. Tveir fuglafræðingar
frá Náttúrufræðistofnun íslands voru
við rannsóknir á Norðausturlandi ffá
11. til 16. janúar sl. og telja þeir lang-
víurnar vera íslenska fugla en stutt-
nefjurnar ættaðar úr Norðurhöfum
líkt og ein endurheimta úr Grímsey
sýni. Á Keldum er verið að rannsaka
sýni úr fuglunum til að ganga úr
skugga um hvort um sýkingu sé að
ræða.
Ólafur Karl Nielsen, liffræðingur
hjá Náttúrufræðistofnun íslands, seg-
ir að ekki sé hægt að útiloka að hlýn-
andi sjór við Norður- og Austurland
eigi sinn þátt í þessu þrátt fyrir að
rannsóknir sýni að meira lif sé i sjón-
um. Ólafur Karl segir að auðvitað sé
ekki hægt að útiloka að vegna þess sé
átan neðar í sjónum. Fuglamir geta
kafað niður á 100 metra dýpi eftir æti.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem svart-
fugl hefur drepist í hrönnum hér við
land og nýlegt dæmi er um fugladauða
við vesturströnd Grænlands. -GG