Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Side 6
6
MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2002
DV
Fréttir
Landssíminn hefði átt að grípa inn í rekstur @IPbell:
Sóuðu 10 milljónum á dag
- eyddu eins og drukknir sjómenn, segir Anand Kumar, stjórnarmaður @IPbell
„Þaö ríkti algjör ringulreið í
stjórnun fyrirtækisins. Án þess
að fjárfestar fengju rönd við reist
eyddu stjórnendur @IPbell 18
milljónum dollara í tómt rugl á
aðeins sex mánuðum," segir An-
and Kumar, einn þeirra sem kom
að viðskiptahugmyndinni um fyr-
irtækið sem valda átti heimsbylt-
ingu á fjarskiptasviðinu. Kumar
var einn flmm lykilmanna @IP-
bell og sat þar í stjórn en hafði þó
að eigin sögn ekkert með fjár-
málaumsýslu fyrirtækisins að
gera. Það fer saman við heimildir
um gluggann á
hverjum einasta
degi.
Anand Kumar
segir að hug-
myndin sem lá
að baki @IPbell
hafi verið frá-
bær en fjármála-
stjórnin og
starfsmannaval-
ið hafi verið í
rugli allt frá fyrsta degi.
„Óhæft starfsfólk var ráðið og
enginn vissi í hvað peningarnir
fóru. Fyrirtækið hafði til ráðstöf-
unar 40 milljónir dollara í upp-
hafi. 10 milljónir dollara í eigið fé
og 30 milljónir í lánsfé frá Hewlett
Packard, Skye Capital og fleirum.
Þetta var nóg fé til að byggja upp
gott fyrirtæki sem samkvæmt
áætlunum okkar hefði átt að
verða 200 milljóna dollara virði.
En mál þróuðust á allt annan veg
Frosti Bergsson. Þórarinn Viöar.
í stjórn @IPbell. Skorti yfirsýn.
hljóti þó að liggja hjá stjórnarfor-
manninum, Alan Bashforth. Sá
býr nú í skattaparadísinni Jersey
í Ermarsundi.
„Ég bendi á Enron-málið þar
sem spjótin beinast að stjórnar-
formanninum. Það sama hlýtur
að eiga við hér. Allt þetta mál
snýst þó um einfeldni og að menn
trúðu tunguliprum sölumönnum
frá Bretlandi sem töluðu sig út
úr hverju málinu á fætur öðru og
höfðu alltaf afsakanir á reiðum
höndum þegar ekkert
bólaði á tekjum,“ segir
Kumar.
fjárfestarnir hafi ekki reynt að
grípa inn í óstjórnina en það
hefðu þeir átt að gera til að forða
fyrirtækinu frá gjaldþroti og
þeirri martröð sem fylgir," segir
Kumar.
Hann segir @IPbellmálið allt
vera með hinum lygilegasta
hætti og líkir því við farsa.
„Það mætti gera kvikmynd um
það hvernig aUt þetta þróaðist út
í tóma vitleysu," segir Kumar.
Kumar kveðst sjálfur hafa haft
það hlutverk að byggja upp
bandarískan hluta fyrirtækisins.
Hann hafi ekki áttað sig á því
sem var að gerast Bretlandsmeg-
in fyrr en undir jól árið 2000.
„Þá gat ég ekki lengur staðið
við launagreiðslur til starfsfólks.
Það var ömurleg jólagjöf. Síðan
hafa rukkarar verið á hælum
mér og ég er síður en svo laus.
Enn hefur ekki verið óskað eftir
gjaldþroti félagsins i Bandarikj-
unum og á meðan svo er halda
rukkanir áfram að berast," segir
Kumar.
Mannorösmissir
Hann segist vera afar sorg-
mæddur vegna þess að nafn hans
sé flekkað í augum íslendinga
vegna málsins.
„Ég lagði mannorð mitt að veði
og er nú að gjalda dýru verði fyr-
ir aðild mína að þessu. Mér þyk-
ir vænt um Island þar sem ég á
marga góða vini. Mér líður
hræðilega illa og það er sorglegt
að Landssíminn, sem er í þjóðar-
eign, skyldi verða fórnarlamb í
þessu rugli þegar fyrirtækið
tekst á við sína fyrstu stóru fjár-
festingu erlendis. Ég vorkenni
Þórarni Viðari sem segist hafa
misst starfið vegna þessa og vera
fórnarlamb nornaveiða og á
svörtum lista hjá forsætisráð-
herra. Sérstaklega er þetta leitt í
því ljósi að hugmyndin að baki
@IPbell var góð. Það er dapurlegt
að eftir svona reynslu verður
fólk hrætt við að takast á hendur
stórar, erlendar fjárfestingar,"
segir Anand Kumar.
Frétt DV í janúar
Anand Kumar staöfestir í fréttinni aö Síminn ienti í kióm skýjaglópa og greip ekki inn í atburöarás-
ina þegar peningar streymdu út í óráösíu.
Aögerðalaus
Landssími
Hann segir
þó jafnframt að
stóru fjárfest-
arnir í @IPbell
hefðu átt að
halda vöku
sinni og taka yf-
ir fjármála-
stjómina í tíma.
Landssíminn,
Opin kerfi og
Fjárfestingar-
banki atvinnu-
lífsins áttu um
fjórðungshlut í
@IPbell.
„Ég held að
Þórarinn Viðar
hcifi haft svo
margt á sinni
könnu að hann
hafi ekki haft yf-
irsýn yfir það
sem þarna var
að gerast. Það er
mín skoðun að
Friðrik Pálsson.
Tíö feröalög.
DV sem lýsa Kumar sem manni
sem Landssíminn hafði haft góða
reynslu af áður en @IPbell rak á
fjörur fyrirtækisins. Kumar býr í
Washington DC í Bandaríkjunum
þar sem rukkarar vegna @IPbell
eru á hælum hans nær daglega.
Hann hefur fengið úttekt DV,
Sími í klóm skýjaglópa, þýdda og
staðfestir þá frásögn og að skýja-
glópar hafi stjómað fjármálum
@IPbell með þeim afleiðingum að
milljónir dollara eru gufaðir upp.
Milljónir dollara frá islandi
Eins og DV hefur greint ítar-
lega frá lögðu íslendingar @IPbell
til 5 milljónir dollara í upphafi
ársins 2000 og áttu þar með 24
prósenta hlut í fyrirtækinu. Af
því átti Landssíminn tæplega 4
milljónir dollara en Opin kerfl
tæpa milljón dollara. Þeir fengu
tvo menn í stjórn, þá Frosta
Bergsson frá Opnum kerfum og
Þórarin Viðar Þórarinsson frá
Landssímanum. Aðrir í stjórn
voru Alan Bashforth, sem gegndi
stjórnarformennsku og Anand
Kumar sem jafnframt hafði það
hlutverk að byggja fyrirtækið upp
í Bandaríkjunum.
Aðeins ári síðar var fyrirtækið
gjaldþrota og við blasti að Síminn
hafði tapaö á núvirði hálfum
milljarði króna. Fyrirtækið sem
hafði yfir að ráða á núvirði 4
milljörðum íslenskra króna var
gjaldþrota og hugmyndin um
heimsbyltingu andvana. Á nú-
virði eyddu stjórnendur, sam-
kvæmt framburði Kumars, um 1,8
milljónum íslenskra króna á að-
eins 5 mánuðum. Það samsvarar
því að 12 milljónir króna fuku út
og fjármálastjórninni mátti líkja
við það að drukknir sjómenn
væru á ferð. Það var sóað og
sukkað með peninga," segir Kum-
ar.
Áætlanir í molum
Friðrik Pálsson stjórnarfor-
maður og Þórarinn Viðar Þórar-
insson, þáverandi forstjóri
Landssímans, voru á tíðum
ferðalögum á árinu 2000 ásamt
Frosta Bergssyni til að hlúa að
fjárfestingu sinni. Til að stjórna
fjármálum @IPbell var Bretinn
John Minshull-Beech fenginn.
Hann var fenginn að láni frá
Skye Capital gegn 100 þúsundum
punda greiðslu á ári eða sem
samvarar 14 milljónum íslenskra
króna. Samkvæmt frásögn
Kumars sváfu stjórnarmennirnir
á verðinum og létu stjórnarfor-
manninn og fjármálastjórann
ljúga sig frá öllum vandræðum.
„Það er gullvæg regla í fyrir-
tækjarekstri að stjórnendur eru
fastheldnir á fé þar til tekjur fara
að koma inn. Þarna voru slíkar
reglur algjörlega sniðgengnar.
Starfsfólkið keypti allt sem hug á
festi og stjómendur keyptu bún-
að af persónulegum ástæðum en
ekki faglegum. Sá búnaður virk-
aði aldrei. Þarna var hræðileg
óstjórn á ferð. John Minshull-
Beech var gjörsamlega óhæfur til
að sinna því starfi eins og sjá má
af því að engin uppgjör bárust á
réttum tíma og áætlanir voru í
molum,“ segir Kumar.
Aðspurður hver beri ábyrgð á
því hvernig fór segir hann að
sjálfur geti hann ekki skorast
undan því sem stjórnarmaður.
Stærstur hluti ábyrgðarinnar
Landssímlnn
Hálfur milljaröur féll í hendur manna sem eyddu á báöar hendur.
Sólar;
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 18.11 17.49
Sólarupprás á morgun 09.07 09.02
Síödegisflóð 22.16 14.27
Árdegisflóð á morgun 10.34 02.49
Frost á Fróni
Norðvestan 10-15 og él
norðaustanlands en norðlæg átt
5-10 og dálítil él norðvestanlands.
Léttskýjað sunnan til. Frost 5 til
12 stig.
Veðríð á mi
Snjóar syðra
Suöaustan 10-18 og snjókoma
með suöurströndinni en annars
hægari og skýjað meö köflum. Hiti
kringum frostmark sunnanlands en
frost 4 til 10 stig noröanlands.
Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur
tii 5* til 6° til 10“
Víndur: 5-9 ov'* Vindun 5-10"'/» Vindun 7-12 "V”
«- *
Fremur hæg austan- og suöaustanátt. Snjókoma eöa slydda suöaustan til en annars dálltil él. Frost 0 til 6 stig, kaldast noröanlands. Fremur hæg austan- og suöaustanátt. Snjókoma eöa slydda suöaustan tll en annars dálrtil él. Frost 0 til 6 stig, kaldast noröanlands. Noröaustlæg ótt. Éljagangur noröanlands en léttir til sunnan tll. Frost 2 til 10 stig, kaldast norövestanlands
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stlnnlngsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviðri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveður 28,5-32,6
Fárviðri >= 32,7
AKUREYRl snjóél -2
BERGSSTAÐIR snjókoma —3
BOLUNGARVÍK snjókoma -3
EGILSSTAÐIR léttskýjað -1
KIRKJUBÆJARKL. snjóéi -2
KEFLAVÍK úrkoma í gr. -1
RAUFARHÖFN alskýjaö -2
REYKJAVÍK snjóél -2
STÓRHÖFÐI snjóél 0
BERGEN skúr 5
HELSINKI skýjaö 6
KAUPMANNAHÖFN léttskýjað 5
ÓSLÓ skýjaö 5
STOKKHÓLMUR 7
ÞÓRSHÖFN hagl 5
ÞRÁNDHEIMUR skýjað 4
ALGARVE skýjað 17
AMSTERDAM léttskýjað 6
BARCELONA mistur 10
BERLÍN léttskýjaö 6
CH1CAG0 heiðskírt -3
DUBUN rigning 8
HALIFAX þokúmóða -1
FRANKFURT skýjað 6
HAMBORG léttskýjaö 7
JAN MAYEN snjóél -9
LONDON mistur 3
LÚXEMB0RG heiðskírt 6
MALLORCA skýjað 15
MONTREAL alskýjaö -4
NARSSARSSUAQ léttskýjaö -14
NEW YORK alskýjað 6
ORLANDO skýjað 11
PARÍS heiðskírt 8
VÍN skýjaö 7
WASHINGTON hálfskýjaö 3
WINNIPEG heiðskírt -6