Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Blaðsíða 7
7
MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2002______________________
DV Fréttir
Meirihluti sinn-
ir ekki kalli ASÍ
- segir bæjarfulltrúi Framsóknarflokks
Samræmdar
aðgerðir hafa
verið í gangi
sem miða eiga
að því að halda
verðlagi í land-
inu stöðugu. 24.
janúar sl. gengu
forystumenn
ASÍ á fund for-
svarsmanna
flestra sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu. í kjöl-
farið hafa mörg þeirra tilkynnt
um lækkanir á gjaldskrám eða
álögum. Einar Sveinbjörnsson,
bæjarfulltrúi Framsóknarflokks í
Garðabæ, segir meirihluta bæjar-
stjórnar ekki ætla að svara kalli
ASÍ.
„Undanfarið hef ég ásamt full-
trúum Samfylkingar í bæjarstjórn
Garðabæjar skoðað leiðir sem
bæjarfélagið getur farið til að
draga úr verðbólgu næstu mánuð-
ina. Flest ef ekki öll sveitarfélögin
á suðvesturhorninu hafa tilkynnt
um einhverjar gjaldskrárhækkan-
ir. Meirihlutinn hér í bæ hefur
ekki verið til viðræðu um nokkr-
ar breytingar í þessa veru. Þvi er
borið við að álögur séu hvort sem
er svo litlar í Garðabæ og hætt
hafi verið við hækkanir í sund-
laugina. Tillögur um hækkun í
sund hafa hins vegar aldrei séð
dagsins ljós og því er nákvæmlega
ekkert verið að draga til baka í
þeim efnum. Hins vegar hækkuðu
fasteignagjöld bæjarbúa ríflega
um þessi áramót. Meðaltalshækk-
un sveitarfélaganna nemur 7,5%
en 10-15% hækkun í Garðabæ er
mjög algeng. Því var borin upp
neðangreind tillaga á fundi bæjar-
stjórnar nýverið. Hún hlaut þvi
miður litlar undirtektir, þó henni
hafi verið vísað til bæjarráðs
svona fyrir siðasakir. Það er að
mínu mati alvarlegt umhugsunar-
efni að Garðabær skuli ætla sér
að skorast úr leik í baráttunni við
verðbólguna. Það lýsir hugarfar-
inu hér í bænum þegar sagt er að
Garðbæingar séu hvort eð er svo
fáir og skattar svo lágir að lækk-
anir í Garðabæ hafi ekkert að
segja í þessum efnum. Þetta sé
mál ríkisins og fjölmennustu
sveitarfélaganna!
Meirihlutinn hefur ekki viljað
hlusta á okkur, en þau eru orðin
fá sveitarfélögin sem ekki hafa
sinnt tilmælum ASÍ og aðhafst
eitthvað. Sagt var að fasteigna-
gjöldin ættu að hækka í takt við
verðlag, en ég vil að eitthvað af
þeirri hækkun verði dregið til
baka, t.d. eitt prómill. Sem þáttur
Garðabæjar í þeirri viðleitni að
halda verðbólgu í skefjum er lagt
til að á yfirstandandi ári verði
álagningarprósenta fasteigna-
skatts íbúðarhúsnæðis lækkuð úr
0,385% í 0,375%. Lækkunin komi
öll til frádráttar á greiðsluseðli
fyrir aprílmánuð ásamt tilkynn-
ingu um endurreikning fasteigna-
skatts. Tekjulækkun bæjarsjóðs
er áætluð um 5 millj. kr vegna
þessa eða á bilinu 1.500 til 2.500
krónur fyrir flesta húseigendur í
Garðabæ. Til samanburðar er
áætlað að verðbólgutengdar verð-
bætur á langtímalánum bæjar-
sjóðs nemi 63 milljónum króna á
þessu ári. Því er það ekki síður
hagur bæjarins en fólksins í land-
inu að það takist að hægja á ferð
verðbólguhjólsins," segir Einar
Sveinbjörnsson.
Laufey Jóhannsdóttir, Sjálf-
stæðisflokki, er forseti bæjar-
stjórnar. Hún segir að lækkun
verðskráa hafi verið rædd á síð-
asta bæjarstjórnarfundi og skoða
eigi málið frekar í bæjarráði, en
ekki liggi fyrir hvernig. „Gert var
ráð fyrir ákveðnum hækkunum í
fjárhagsáætlun, eins og t.d. hækk-
un í sundlaug o.fl. og gert var ráð
fyrir hækkun á leikskólagjöldum.
Sú hækkun hefur ekki komið
fram svo þannig erum við vissu-
lega ekki að skorast undan,“ seg-
ir Laufey Jóhannsdóttir. -GG
Einar
Sveinbjörnsson.
Sömu lög eiga að gilda alls staðar:
Ein undanþága
opnar fýrir fleiri
- segir Elísa Wium hjá Vímulausri æsku
„Við erum á þvi að sömu lög
eigi að gilda um þessi mál alls
staðar á landinu. Þegar farið er að
veita undanþágur fyrir einni
skemmtun verður erfitt að standa
á móti þegar fleiri fara að sækja
um á sínum forsendum," sagði El-
ísa Wium hjá Vímulausri æsku
við DV, vegna úrskurðar félags-
málaráðuneytisins um aðgang
ungmenna yngri en 18 ára á þorra-
blót á Kirkjubæjarklaustri um
næstu helgi. Elísa segir að það
komi skýrt fram hjá Sveinbjörgu
Pálsdóttur að þeir sem fái aðgang
undir 18 ára aldri verði í umsjá og
ábyrgð foreldra sinna, á fjöl-
skylduvænni skemmtun, „Ég ætla
ekki að draga úr því, en ég er
hrædd um að undanþága fyrir
einni skemmtun þýði að endalaust
sé verið að gefa eftir í þessum efn-
um. Þetta byrjar oft mjög sakleys-
islega, síðan er erfiðara að stoppa
það,“ sagði Elísa. Hún fagnar
breyttum vinnubrögðum sýslu-
manna vegna aðgengis unglinga
að skemmtunum. „Mér fmnst
mjög gott að sýslumenn séu famir
að halda reglumar. Ég hef oft
skrifað þeim fyrir verslunar-
mannahelgar og beðið þá um að
halda reglur sem voru settar 1990
um þær helgar. Áður fyrr datt eng-
um í hug að fara eftir þessu, nú
eru komnir yngri menn í stöðurn-
ar sem greinilega ætla að fylgja
svona málum betur eftir,“ segir El-
ísa hjá Vímulausri æsku.
-NH
Stórútsala
Yfirhafnir í úrvali
25-70% afsláttur
Allt á að seljast
Regnjakkar og úlpur á 2.900
Kanínuskinnin komin
Hattar og húfur í úrvali
Mörkinni 6, sími 588 5518
Opið laugardaga frá ki. 10-15
Trimform Berglindar 12 ára
Afþví tilefni bjóðum við dúndurtilboð:
1. Arskort kr. 46.800 (12.000 kr. afsláttur)
2. Mánaðarkort, 10 timar, kr. 5.900 (3.000 kr. afsláttur)
3.15 tíma 6 vikna kort, kr. 9.900 (Absolute Minecure, að
verðmæti 3.300 kr.,fylgir meðan birgðir endast.)
Hringdu og pantaðu frtan prufutíma t
síma 553 3818.
Meðal þess sem við bjóðum upp á:
Vöðvabólgumeðferð
Byggist á 30 mín.
meðferð í hvert skipti.
Þú finnur strax mun
eftir einn tíma.
Grindarbotnsvöðvar
Þvagleki er algengt
vandamál hjá konum.
Tímar í Trimformi hafa
gefið góða raun ef um
slappa grindarbotns-
vöðva er að ræða
Vöðvaþjálfun
f Trimformi er hægt
aö þjálfa upp alla
vöðva líkamans.
Auka vöðvaþol og
vöðvamassa.
Appelsínuhúð
Höfum margra ára
reynslu í að vinna á
appelsínuhúð og eftir
10 tíma meðferð er
sýnilegur árangur.
Grenningarmeðferð
Ef tekið er vel á
samsvara 40 mínútur
í Trimformi kröftugri
10 tíma hreyfingu.
Sláðu til, nýttu þér tilboðin
og byrjaðu strax.
Við höfum metnaðinn og reynsluna.
Skráðu þig í netklúbbinn okkar,
www.trimform.is
Sendum nýustu tilboðin.
Munið vinsælu gjafakortin
V
TRIM
Grensásvegi 50
^ Tilboðin gilda til 20. febr. '02.
FORM
Opið mán.-fim. 8-22,
föstud. 8-20, laug. 10-14.
M
...aðe/'ns betra
Verið velkomin í
sýningarsal okkar og
kynnið ykkur 2002
línuna. Fagleg ráðgjöf,
stutturafgreiðslutími og
persónuleg þjónusta.
Þúþarft ekki að leita lengra
til að fá það betra
Stuttur afgreiðslutími
Lágmúla 8 • S(mi 530 2800