Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Page 9
MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2002
DV
9
Landið
Rúmur helmingur stjórnenda hættir í sveitarstjórn á Egilsstöðum:
Ungt fólk hefur ekki
tíma fyrir pólitík
Á Egilsstöðum er undirbúningur
sveitarstjómarkosninga í fullum
gangi. Á Austur-Héraði, Egilsstöð-
um og sveitunum austan Lagarfljóts
er raðað á listana af kjömefnd eftir
margs konar þreifmgar og athugan-
ir á hverjir gefi kost á sér til setu í
sveitarstjóm og hvort viðkomandi
njóti nægjanlegs trausts hæstvirtra
kjósenda i starfann.
Við síðustu kosningar komu fram
þrír listar á Egilsstöðum: Fram-
sóknarflokkur, sem fékk 4 menn
kjöma (af 9), Sjálfstæðisflokkur með
2 menn og Félagshyggja við Fljótið
sem fékk 3 menn.
Tveir af kjömum fulltrúum
Framsóknarflokksins hafa þegar
dregið sig í hlé, þeir Broddi Bjarna-
son og Halldór Sigurðsson, en vara-
menn þeirra, Eyþór Elíasson og
Bjöm Ármann Ólafsson, hafa tekið
sæti þeirra og gefa báðir kost á sér
áfram. Katrín Ásgrímsdóttir og Vig-
dís Sveinbjömsdóttir hafa ákveðið
að gefa ekki kost á sér. Er nú unnið
að því hjá Framsókn að flnna nýtt
fólk á listann í þeirra stað.
Hjá Sjálfstæðisflokknum hefur
efsti maður á „gamla“ listanum, Sig-
rún Harðardóttir, ákveðið að gefa
ekki kost á sér áfram og er nokkuð
víst að Soffla Lárusdóttir og Ágústa
Bjömsdóttir, sem voru nr. 2 og 3,
færist upp og taki 1. og 2. sæti nú. í
3. sætið, sem má kalla baráttusætið
á þeim lista, hefur Guðmundur
Sveinsson verið nefndur, en hann
hefur þó ekki tekið endanlega
ákvörðun þegar þetta er ritað.
Hjá Félagshyggju við Fljótið er
sömu sögu að segja. Tveir af þrem
fulltrúum þeirra hafa tilkynnt að
þeir verði ekki með lengur, þau
Helga Hreinsdóttir og Jón Kr. Arn-
arson. Líklegt er hins vegar að
Skúli Björnsson verði áfram og er
unnið að því einnig þar að flnna
nýja menn í stað þeirra sem hætta.
Ekki hefur heyrst að aðrir lands-
málaflokkar hyggi á framboð.
Allir þeir sem hætta í sveitar-
stjórn nú eiga það sameiginlegt að
hætta af einkaástæðum, enda flest
ungt fólk með stækkandi fjölskyldu
og margir af þeim með sjálfstæða at-
vinnustarfsemi svo tíminn verður
einfaldlega ekki nægur til að sinna
öllu í senn og fólkið sér fram á að
við þær aðstæður yrði kannski
engu þessara verksviða sinnt nægj-
anlega vel. Þó eru nokkrir sem hefa
starfað um alUangt skeið en telja sig
hafa lagt sitt af mörkum eða hafa
tæmt hugmyndaforða sinn.
-PG
I nýja íþróttahúsinu
Hér eru þau Reynir Óskarsson, Karen Óskarsdóttir og Bára Sif Gunnarsdóttir í íþróttahúsinu í Þykkvabæ sem veröur
senn tilbúiö til notkunar.
Þykkbæingar fá íþróttahús með vorinu:
Burðarvirki tívolíhúss
ber húsið uppi
í Þykkvabæ stendur nú yflr
bygging íþróttahúss. í húsinu verð-
ur löglegur körfuboltavöllur, auk
skólabókasafns og skólamötuneyt-
is. f Þykkvabæ er kennt upp í 7.
bekk grunnskólans. Eldri bömum
er ekið í skóla á Hellu.
„Húsið er 1.017 fermetrar að
grunnfleti, þar af er íþróttasalur-
inn hátt i 700 fermetrar. Við von-
umst til að húsið verði tilbúið í
marslok eða aprílbyrjun. Það er
ekki hægt að átta sig á því ná-
kvæmlega núna hvenær það klár-
ast, það vilja oft verða drjúgar inn-
ansleikjurnar í svona verkum,"
sagði Heimir Hafsteinsson, oddviti
Djúpárhrepps.
Félagsheimili Þykkbæinga
skemmdist mikið í jarðskjálftunum
sumarið 2000 og hefur verið tekið
úr notkun nema lítill hluti þess
sem nýttur er undir hreppsskrif-
stofuna. Nýja húsið kemur til með
að koma í þess stað og bæta íþrótta-
aðstöðu í Þykkvabænum verulega,
frá litlum sal í gamla húsinu í full-
kominn leikvang.
Burðarvirki hússins er komið úr
gamla tívolíhúsinu í Hveragerði,
alls þriðjungur af öðru húsinu sem
þar stóð.
-NH
Ly f t a r a
Þjónustudeild
Dalvegi 6-8 • 200 Kópavogur
Sími 535 3500 • Fax 535 3509
haraldur@kraftvelar.is
www.kraftvelar.is
Hafðu
samband og láttu
okkur leysa málið
Y KRAFTVClAR
Umhverfismálaráðuneytið
Prófnefnd
mannvirkjahönnuða
Námskeið prófnefndar mannvirkjahönnuða - löggilding
mannvirkjahönnuða - verður haldið í mars 2002. Prófnefnd
mannvirkjahönnuða er skipuð af umhverfismálaráðherra
skv. 48. gr. skipulags- og byggingalaga, nr. 73/1997.
Námskeiðið er ætlað mannvirkjahönnuðum sem óska
löggildingar umhverfisráðuneytisins að leggja aðal- og
séruppdrætti fyrir bygginganefndir og luku námi 1. janúar
1998 eða síðar. Athygli er vakin á að umsækjendur skulu
hafa lokið tilskilinni starfsreynslu áður en þeir sækja
námskeiðið skv. 48. gr. skipulags- og byggingalaga.
Ef rými er á námskeiðinu geta hönnuðir, sem þegar hafa
hlotið löggildingu, sótt um þátttöku í því. Námskeiðsgjald
er lægra en þeirra sem stefna á próftöku og löggildingu.
Umsóknareyðublöð fást afhent á skrifstofu Menntafélags
byggingariðnaðarins á Hallveigarstíg 1, Reykjavík. Þeim
skal skilað útfylltum þangað ásamt fylgiskjölum ekki síðar
en 1. mars nk. Haft verður samband við þá sem þegar hafa
sent inn umsókn.
Nánari upplýsingar í síma 552 1040
The New Multi Compact
Sportj epplingurinn
sem bætir kostum
jepplingsins við bestu
eiginleika smábílsins.
Verö: Beinsk. 1.648.000 kr.
Sjálfsk. 1.748.000 kr.
Aflmikil og sparneytin 16 ventla vél, HB
I meðaleyðsla aðeins 6.9 L á hundraðið.
SUZUKIBÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
Meðal staðalbúnaðar er:
Sítengt fjórhjóladrif, ABS hemlar,
álfelgur, upphituð framsæti,
þakbogar og rafdrifnar rúður.