Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Page 10
10
Útlönd
MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2002
Blóðbaðið heldur áfram fyrir botni Miðjarðarhafs:
Hamas-liðar skjóta flug-
skeytum í annað skipti
Ekkert lát er á blóöbaðinu fyrir
botni Miðjaröarhafs eftir tvær árásir
palestínskra skæruliða um helgina,
annars vegar sjálfsmorðsárás á pitsu-
stað í landnemabyggðinni Karei
Shomron á Vesturbakkanum, þar sem
tveir ísraelskir borgarar létust auk
sprengjumannsins og 27 særðust og
hins vegar skotárás við Mahane
Shmonim-herbækistöð ísraelska hers-
ins i borginni Hadera í norðurhluta
Israels, þar sem tveir Palestínumenn
féllu og þrír ísraelar særðust.
Að sögn talsmanna hersins var
grunsamlegur bíll stöðvaður í hliði
herbækistöðvarinnar og steig annar
tveggja Palestínumanna sem í bílnum
voru þá út og hóf skotárás á hermenn-
ina þar til hann var felldur. Ökumað-
urinn keyrði þá í burtu en skömmu
síðar sprakk bíllinn í loft upp og öku-
maðurinn með.
Þjóðfrelsisfylking Palestínumanna,
PLFP, hefur viðurkennt ábyrgð á
árásinni, en hún var að þeirra sögn
gerð til að hefna sprengjuárása Isra-
elsmanna á bæinn Nablus á Vestur-
Lögreglan í
Pakistan á hæl-
um ræningjans
Pakistanska lögreglan sagði í gær
að verið væri að kemba allt Punjab-
hérað í leitinni að manninum sem
grunaður er um að hafa leikið aðal-
hlutverkið í ráninu á bandaríska
blaðamanninum Daniel Pearl, sem
rænt var í Karachi þann 23. janúar sl.
Hinn grunaði, Amjad Hussain, sem
Pearl þekkti sem Imtiaz Siddiqui, er
talinn hafa framkvæmt ránið eftir
uppskrift Omars Sheihk, sem þegar er
í haldi lögreglunnar og jafnvel talið aö
Pearl sé enn í haldi hans og á lífi.
„Við vorum á hælunum á honum í
gær en þá var ráðist inn i íbúð hans i
Punjab. Ibúðin var auð en auðséð að
einhver hafði nýlega verið þar,“ sagði
talsmaður lögreglunnar, sem þegar
hefur handtekið tvo bræður Amjads
og einnig einhverja ættingja hans. Að
sögn nábúa Amjads hefur hann ekki
sést á svæðinu í nokkum tíma.
Þegar Pearl hvarf var hann að
vinna að blaðagrein um hugsanleg
tengsl skósólaflugræningjans, Richard
Reid, við al-Qaeda-samtök bin Ladens.
bakkanum í gærmorgun. Sú árás var
gerð til að hefna sjálfsmorðsárásar-
innar á pitsustaðinn á laugardaginn,
sem PLFP segist einnig bera ábyrgð á,
en að þeirra sögn var þar á ferðinni
átján ára gamall félagi samtakanna
frá nágrannabænum Qalqilya.
Að sögn talsmanna ísraelska hers-
ins urðu fjórar byggingar í Nablus
fyrir sprengjum, þar á meðal bæki-
stöð palestínsku öryggissveitanna og
lögreglustöð bæjarins.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Israels, kallaði saman öryggisráð sitt
eftir sjálfsmorðsárásina í gær og hót-
aði hefndum. „ísrael hefur aldrei tap-
Um eitt hundrað manns munu hafa
fallið í tveimur aðskildum árásum
skæruliðasamtaka maóista í vestur-
hluta Nepals í gær. Þeir fóllnu voru
flestir úr lögregluliði tveggja bæja í
afskekktum byggðum Achham-hér-
aðs, en auk þess voru hermenn og op-
inberir bæjarstarfsmenn meðal hinna
fóllnu.
Að sögn lögregluyfirvalda í hérað-
inu, var einnig nokkurt mannfall
meðal skæruliðanna, en það hefur
ekki enn fengist staðfest.
Að sögn sjónarvotta var þetta ein
mesta hemaðaraðgerð sem maóistar
hafa staðið fyrir á svæðinu síðan þeir
byrjuðu baráttu sina gegn ráðandi yf-
irvöldum fyrir sex árum og var ríkis-
stjórnin því strax kölluð saman til
neyðarfundar til að ræða ástandið.
Maóistarnir, sem berjast gegn
stjómarskrárbundnu veldi Gyan-
endra konungs, beindu árásum sínum
aöallega að opinberum byggingum í
bæjunum og einnig að flugvelli hér-
aðsins og birgðageymslum stjómar-
hersins. Nokkrar byggingar voru
að stríði og þar verður engin breyting
á í því sem Palestínumenn heyja nú
gegn okkur,“ sagði Sharon.
Árásin á pitsustaðinn er sú fyrsta
sem beint er gegn landnemabyggðum
á Vesturbakkanum, en staðurinn var
þéttsetinn ungu fólki á laugardags-
kvöldið þegar sjálfsmorðsliðinn lét til
skarar skríða.
Þá bárust fréttir af því að þrír Ham-
as-liðar hefðu fallið í bardaga á Gaza-
svæðinu á laugardag og annar þegar
bílsprengja sprakk í bænum Jenis á
Vesturbakkanum. Þá féll ísraelskur
hermaður í skotbardaga við liðsmenn
al-Aqsa-samtakanna á Vesturbakkan-
um á föstudag, rétt eftir að Fischer,
utanríkisráðherra Þýskalands, hafði
hitt Arafat á fundi í Ramallah.
Hamas-samtökin tilkynntu í gær að
þau hefðu í gær í annað skipti skotið
heimatilbúnum flugskeytum á byggð-
ir ísraela á noröur-Gaza-svæðinu án
þess að valda skaða. Skeytunum var
beint gegn Kfar Aza á norður-Gaza-
svæðinu og hefur það valdið mikilli
reiði og ótta meðal Israelsmanna.
r.
Nepalskir stjómarhermenn.
sprengdar í loft upp og bankar rændir
áður en uppreisnin var bæld niður.
Skotbardagar milli öryggissveita
hersins og skæruliðanna stóðu í
margar klukkustundir frá miðnætti í
gær og fram eftir degi.
Arásirnar voru gerðar í kjölfar þess
að Bahadur Deuba forsætisráðherra
fór fram á framlengingu neyðarlaga,
sem sett voru í kjölfar árása maóista í
nóvember sl.
Fjöldaútför í Lagos
Um 120 fórnarlömb sprenginganna í sprengjugeymslum nígeríska hersins í Lagos í Nígeríu voru borin til grafar um helgina og
voru kistur þeirra vafóar þjóófána Nígeríu. Flest fórnarlambanna drukknuöu þegar þau reyndu aö komast undan eldunum sem
kviknuóu i kjölfar sprenginganna en óttast er aó tala þeirra, sem flest voru konur og börn, sé um þúsund.
FÉLAG JÁRNIÐNAÐARMANNA
AÐALFUNDUR
FÉLAGS JÁRNIÐNAÐARMANNA
Aðalfundur Félags járniðnaðarmanna verðurhaldinn
laugardagsmorguninn 23. febrúar á Grand Hótel í
Reykjavík, 4. hæð.
Afhending gagna og kaffisopi frá kl. 09.30
Fundurinn hefst kl. 10.00
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Boðið er til hádegisverðar að loknum fundi.
Félagsmenn utan af landi fá endurgreiddan hluta
ferðakostnaðar.
Reikningar félagsins liggja frammi til skoðunar fyrir
félagsmenn miðvikudaginn 20. og fimmtudaginn 21.
febrúar, frá kl. 12.00-17.00.
MÆTIÐ STUNDVISLEGA.
STJÓRNIN
Uppreisn í Nepal:
Hundrað manns féllu
I árásum maóista
Joschka Fischer á ferð
Slæmt veður í
Afganistan kom í
veg fyrir að
Joschka Fischer,
utanríkisráðherra
Þýskalands, gæti
lent á flugvellinum
í Kabúl í gær á leið
sinni frá ísrael, þar
sem hann fundaði með ráðamönn-
um Palestínu- og ísraelsmanna á
laugardaginn. Fischer hafði ráðgert
að taka Hamid Karzai, leiðtoga þjóð-
stjómarinnar í Afganistan, með sér
heim til Þýskalands í tveggja daga
heimsókn í boði Gerhards
Schröders kanslara. Fischer kom
einnig við í Úzbekistan, þar sem
hann ræddi viö ráðamenn, en ekki
er vitað hvort hann gerir aðra til-
raun i dag.
Omar enn í Afganistan
Yusuf Pashtoon, háttsettur emb-
ættismaður hjá héraðsstjórninni í
Kandahar, sagðist í gær fullviss um
að Mullah Mohammed Omar, trúar-
leiðtogi talibana, sé enn þá í
Afganistan og sagðist hafa fyrir því
nokkuð öruggar heimildir að hann
væri í felum í Uruzgan-héraði um
miðbik landsins. Hann sagði aö
slæm vetrarveður kæmu í veg fyrir
að hægt væri að elta hann uppi.
vísað úr landi
Utanríkisráðherr-
ar Evrópusambands-
landanna mvrnu
koma saman í dag
til að ræða hugsan-
legar aðgerðir gegn
stjómvöldum í Zim-
babwe, eftir að yfir-
manni kosningaeftirlitsnefndar
ESB, Svíanum Pierre Schori, var
vísað úr landi í fyrradag, eftir að
hann hafði sýnt „pólitískan hroka“
að sögn stjómvalda. I kjölfarið var
sænsku blaðakonunni Gorrel
Espelund, einnig vísað úr landi, en
hún hafði sótt um dvalarleyfi til að
fylgjast með þingkosningunum sem
fram fara 9. og 10. mars nk.
23 farast í rútuslysi
Alls 23 farþegar létu lífið og 21
slasaðist þegar rúta fór út af vegin-
um i íjallahéruðum Perú í fyrradag
á þjóðveginum milli bæjanna Are-
quipa og Puno. Orök slyssins var
mikil hálka á veginum vegna rign-
inga og mun bílstjórinn ekki hafa
gert sér grein fyrir hálkunni og ek-
ið of hratt í beygju.
Kjarnorkuhamingja í írak
Saddam Hussein,
forseti Iraks, sagöi
á fundi með kjarn-
orkufræðingum um
helgina að þjóð sín
hefði engan áhuga á
að koma sér upp
gereyðingarvopn-
um. „Þrátt fyrir að
vopn séu nauösynleg til að verja
landið og byggja upp sterka ímynd
gagnvart óvininum þá höfum við
engan áhuga á að ganga í þann ger-
eyðingarklúbb,“ sagði Saddam og
bætti við að störf írakskra kjam-
orkuvísindamanna miðuðu að þvi
að auka þekkinguna, færa fólkinu
hamingju og stuðla að því að nýta
vísindin í þágu mannkyns.
Risalottóvinningar
Þrír Kalifomíubúar duttu heldur
betur í lukkupottinn um helgina
þegar þrir lottómiðar í ríkislottóinu
komu upp með 193 milljóna dollara
vinninga á hvem miða, sem nemur
tæpum 20 milljörðum íslenskra
króna. Að sögn talsmanna lottósins
er um met að ræða og höfðu vinn-
ingshafar ekki gefið sig fram í gær-
kvöld. Vinningstölurnar voru: 6-11-
31-32-39 og bónustalan 20.
Bretar flytja pílagrímana
Bresk stjómvöld tilkynntu í gær
að þau ætluðu að senda fjórar Her-
kúles-herflutningavélar til Kabúl í
Afganistan til þess að flytja píla-
grímana sem ætluðu að fljúga þaðan
til Mekka fyrir helgina, en komust
ekki vegna óvæntrar lokunar flug-
vallarins.
ESB-manni