Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Síða 11
11
MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2002
DV__________________________________________ Útlönd
Afganski samgönguráðherrann jarðsettur um helgina:
Skotiö á hóp gæsluliða
Óþekktur byssumaöur hóf snemma
á laugardagsmorgun skothríð á hóp
breskra friðargæsluliða í höfuðborg-
inni Kabúl í Afganistan og er það í
fyrsta skipti sem friðargæsluliðið
verður fyrir árás frá því það hóf þar
störf í síðasta mánuði. Gæsluliðamir,
sem sluppu ómeiddir, svöruðu skot-
hríðinni en árásarmaðurinn komst
undan á bíl.
Við nánari leit í borginni fundu
friðargæslusveitirnar flóttabílinn
sundurskotinn og einn látinn afgansk-
an mann auk fjögurra særðra.
Árásin var gerð stuttu eftir að Jack
Straw, utanríkisráðherra Bretlands,
kom í opinbera heimsókn til Kabúl,
þar sem hann ræddi við Hamid
Karzai um hugsanlega fjölgun í friðar-
gæslusveitunum, auk þess sem hann
var viðstaddur útfór Abdul Rahmans
samgönguráðherra sem drepinn var
af æstum múgi á Kabúiflugvelli á
fimmtudaginn.
Karzai notaði þar tækifærið til að
skora á hundruð syrgjenda Rahmans
Útför Abdul Rahmans
Nasar Ahmad, bróöir Abdul Rahmans, samgönguráöherra Afganistans, sem
drepinn var á flugvellinum í Kabúl á fimmtudaginn, grætur héryfir kistu
bróöur síns, en fjölmenn útför Rahmans fór fram í Kabúi um helgina.
að sýna stillingu og að Afganar verði
að hætta að drepa hver annan og snúa
frekar saman bökum til að koma á
varanlegum friöi.
Sjö manns hafa verið handteknir í
sambandi við morðið á Rahman og
þar af eru þrír háttsettir afganskir
embættismenn, en grunur leikur á að
um skipulagt samsæri hafi verið að
ræða. Einnig hafa þrír menn verið
handteknir í Sádi-Arabíu í sambandi
við málið.
Yfirvöld í Kabúl hafa fyrirskipað
rannsókn á árásinni á friðargæslulið-
ana og er henni stjómað af afgönsku
lögreglunni með aðstoð gæslusveit-
anna. Að sögn talsmanna stjómvalda
er ekki vitað hverjir árásarmennimir
voru, né heldur tilgangur árásarinn-
ar.
Þá bárust fréttir af því í gær að
skotið hefði verið á óbreytta borgara
nálægt bækistöðvum friðargæslu-
liðsins í Kabúl, þar sem einn 19 ára
piltur lét lífið þar sem hann var að
flytja ófríska konu á sjúkrahús.
Sprengjusérfræðingar IRA
IRA-mennirnir sem handteknir voru í
Kólumbíu í fyrra sakaöir um aö hafa
kennt uppreisnarmönnum sprengju-
gerö sita hér í fangaklefa sínum.
IRA-mennirnir
formlega ákærðir
IRA-mennimir þrír, þeir Jim
Monaghan, Martin McCauley og
Niall Connolly, sem handteknir
voru í Kólumbíu í fyrrasumar,
sakaðir um að hafa kennt liðs-
mönnum kólumbíska byltingar-
hersins FARC sprengjugerð, voru á
fóstudaginn formlega ákærðir í
málinu og eiga yfir höfði sér allt að
átta ára fangelsi verði þeir fundnir
sekir. Þeir neita sekt og segja aö
kólumbísk yfirvöld hafi sviðsett
málið til að koma í veg fyrir fyrir-
hugaðar friðarviðræður við skæru-
liðana.
George W. Bush og frú við upphaf ferðar
George W. Bush Bandarikjaforseti og frú héldu í gær í opinbera heimsókn til Japans, Suöur-Kóreu og Kína þar sem
Bush mun hitta þarlenda ráöamenn. Hér eru forsetahjónin viö komuna til Tókíó í gær, en þau höföu viökomu á
bandarískri herstöö í Alaska á leiöinni til Japans.
Bush til þriggja Asíulanda
George W. Bush Bandaríkjaforseti
hélt i gær í sex daga opinbera heim-
sókn til þriggja Asíulanda og var
Japan fyrsti viðkomustaðurinn, en
þar mun Bush hitta Junichiro
Koizumi, forsætisráðherra Japans, á
fundi í dag. Ferðinni er síðan heitið
til Suður-Kóreu og Kina þar sem for-
setinn mun hitta helstu ráðamenn
þjóðanna.
Heimsóknin var upphaflega á dag-
skrá í haust en var frestað eftir
hryðjuverkaárásimar í Bandaríkj-
unum þann 11. september sl.
Þjóðirnar þrjár eru í hópi þeirra
sem lýstu strax yfir stuðningi við
Bandaríkin í baráttunni gegn
hryðjuverkum í heiminum og einnig
aðgerðimar gegn talibönum og al-
Qaeda-samtökunum í Afganistan,
sem em allt annað en búnar.
Er nokkuð ljóst að ráðamenn þjóð-
anna muni inna Bush eftir næstu
skrefum í baráttunni og óska frekari
skýringa á ummælum Bush um „öx-
ulveldi hins illa“, þar sem hann átti
við íran, Irak og Norður-Kóreu.
Bush sagði í viðtali fyrir ferðina
að japönsk stjórnvöld þyrftu að gera
nánari grein fyrir áætlunum sinum
til að bæta efnahaginn í landinu og
sagðist myndi ræða það sérstaklega
við Koizumi. „Það er augljóst að þeir
þurfa að endurskoða sín mál ef ekki
á illa að fara og sérstaklega skulda-
stöðu sina,“ sagöi Bush.
80 rotnandi lík
fundust í Georgíu
Mikil óhugur og reiði hefur gripið
um sig meðal fólks í Georgíu í
Bandaríkjunum eftir að um áttatíu
rotnandi lík fundust í nágrenni lík-
brennslu um 130 kílómetra norð-
vestur af Atlanta. Borin hafa verið
kennsl á sum líkanna og hefur þeim
verið komið fyrir í kirkju í nágrenn-
inu á meðan málið er rannsakað.
Umsjónarmaður líkbrennslunnar,
Ray Brent 28 ára, hefur þegar verið
handtekinn og ákærður fyrir svik og
vanrækslu í starfi.
HARTOPPAR
Frá| BERGkfóNN?; -
og HERKULES
Margir
verðflokkar
Rakarastofan
Klapparstíg
Tylö - vatnsgufuklefar
IYLÖ
Sérpöntum
vatnsgufuklefa eftir
þinum óskum.
Sænsk gæðavara.
Komið við eða pantið
myndalista hjá okkur.
Ármúla 21,
108 Rvk,
s. 533-2020
www.vatnsvirkinn.is.
VATNSVIRKINN ehf
510 4900
BILASALA
510 4900
ABjrbilamir
(áhv.
með 100% iáni
+ aukalán með
ábyrgðarmönnum)
Ath. öll skipti á öllum.
Chrysler Town & Country 3,8
1997,ek 41.000 km, sjálfskiptur, 7
manna. Verð 2.290.000
Glæsivagn með öllu
Ford Escort 75 Van 1,4 1997,
ek 68.000 km, 5 gíra.
Verð 580.000 Mjög gott útlit
Daewoo Musso Tdi, 155 hö. 6/01,
ek 14.000 km, sjálfskiptur, 31 “.
Verð 3.290.000 Hlaðinn
aukabúnaði
Korando E-320, 6 cyl. 1998,
ek 64.000 km, sjálfskiptur, 230 hö.
Verð 1.790.000
Renault Clio RN 6/00, 5 dyra,
ek 41.000 km.
Verð 990.000
Stórhöfda 26 - 112 Reykjavík
www.bilasalaisiands.is