Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Qupperneq 24
36
MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2002
Tilvera I>V
11 f i
Suðræn sveifla
Carlos Sánchez frá Perú og
Alberto Sánchez Castellón frá
Kúbu sýna dans og koma blóði
gesta á hreyfingu í sjóðheitri
sveiflu í Listaklúbbi
Leikhúskjallarans í kvöld. Húsið
er opnað kl. 19.30 og mun
Alberto taka á móti gestum fyrir
utan Þjóðleikhúsið á stultum.
Dagskráin hefst kl. 20.30.
Krár
■ BINGO A KAUPFHLAGINU Það er
tilvalið að styrkja gott málefni í kvöld
og skella sér á bingó á Kaupfélag-
inu. Allur ágóði bingósins rennur til
langveikra barna. Frábærir vinningar
í boði frá verslunum og fyrirtækjum í
miðbænum. Bingóið hefst stundvís-
lega kl. 9 og er bingóstjóri kvöldsins
enginn annar en Bubbi sjálfur.
Klassík
■ HVAÐ ERTU TONLIST? I kvöld kl.
20.00 heldur námskeiðið Hvað ertu
tónlist? á vegum Endurmenntunar
HÍ í samvinnu viö Salinn og Kópa-
vogsbæ áfram. Úr handraða Jónasar
Ingimundarsonar, gestur verður
Guðni Franzson klarínettuleikari.
Námskeiöið er í Salnum, Kópavogi.
■ FLAIITUTÓNAR í LISTASAFNI
Flaututónleikar verða í Listasafni
íslands við Fríkirkjuveg í kvöld og
hefjast þeir kl. 20. Frumflutt verða
verk eftir Eirík Áma Sigtryggsson,
Flnn Torfa Stefánsson, Mist
Þorkelsdóttur og Þorkel
Sigurbjörnsson. Tónleikarnir eru á
vegum Tónskáldafélags íslands og
liður í tónelikaröðinni Myrkum
músíkdögum. Rytjendur eru
flautuleikararnir Martial Nardeau,
og Guðrún S. Birgisdóttir og Snorri
Sigfús Blrgisson píanóleikari.
Leikhús
■ SLAPPAÐU AFI Nemendamóts-
nefnd Verslunarskóla Islands sýnir í
kvöld söngleikinn Slappaðu af! í
Borgarleikhúsinu. Leikstjóri er
Gunnar Helgason, tónlistarstjóri Jón
Ólafsson og danshöfundur Guöfinna
Bjömsdóttir. Handritið skrifaði Felix
Bergsson en söngleikurinn gerist á
íslandi á sjöunda áratugnum og er
tónlist þess tíma, soul-tónlistin,
allsráðandi í sýningunni. Sýningin
hefst kl 20.
Kabarett
■ EURpyiSlpN-GLEÐI AUSTFIRÐ-
INGA Það er orðinn árlegur viðburð-
ur aö blús, rokk og djassklúbburinn
á Nesi komi suöur með sýningu
sem sýnd hefur verið fýrir austan.
Þema sýningarinnar í ár er
Eurovision-keppnl og verða helstu
smellirnir úr keppnum síöustu ára
teknir fyrir. Sem dæmi um lög sem
flutt verða eru la det swlnge, Nína,
Fly on the wings of love, Waterloo
og Gleðibanklnn. Verö meö þriggia
rétta kvöldverði er 5.700 en 2.500
bara á sýninguna. Dansleikur með
hljómsveitunum Ozon og Aiþjóða
danshljómsveitinni er á eftir á aðal-
sviði.
Fundir
■ MARGUR VERÐUR AF
FORDOMUM FAVIS Fordómar gegn
femínisma er aðalefni málfundar
sem Jafnréttisnefnd Háskóla íslands
og Stúdentaráðs stendur fyrir í dag
kl. 12.05-13 í Norræna húslnu. Til
máls taka Helga Baldvins- og
Bjargardóttlr, Stefán Jökulsson
fjólmiðlafræðingur og Elísabet
Þorgeirsdóttir, ritstjóri Veru. Aö
loknum framsögum fara fram
umræður undir stjórn Þorgerðar
Einarsdóttur,, lektors í kynjafræðum
við Háskóla íslands.
Fyrsta tónþing Gerðubergs:
Atli Heimir undir smásjánni
Á undanförnum árum hefur
menningarmiðstöðin Gerðuberg í
Breiðholti staðið fyrir svokölluð-
um rit- og sjónþingum við miklar
vinsældir. Þar eru rithöfundar og
myndlistarmenn spurðir spjörun-
um úr og fjallað um líf þeirra og
list í víðu samhengi. Á laugardag-
inn var fyrsta tónþing Gerðubergs
haldið en eins og nafnið gefur til
kynna stendur til að kryfja ís-
lenska tónlistarmenn og tónskáld
til mergjar á slikum þingum. Sá
sem fyrstur lenti í smásjánni var
Atli Heimir Sveinsson en hann hef-
ur lengi verið í fremstu röð ís-
lenskra tónskálda. Stjómandi
þingsins var Hildur Helga Sigurð-
ardóttir blaðamaður en spyrlar
voru þeir Guðni Franzson og Guð-
mundur Emilsson tónlistarmenn.
Á milli yfirheyrslna voru leikin
tóndæmi eftir Atla Heimi til að
gefa fyllri mynd af verkum hans i
fortíð og nútíð.
Tónelsk hjón
Hjónin Margrét Indriðadóttir, fyrrverandi fréttastjóri, og Thor Vilhjálmsson
rithöfundur voru meðal fjölmargra sem sóttu tónþing Atla Heimis Sveins-
sonar á laugardaginn.
DV-MYNDIR EINAR J
Stund milli stríða
Aðstandendur tónþingsins varpa öndinni léttar í hléi. Viö hljóðfærið situr
tónskáldið sjálft en að baki því standa Guðmundur Emilsson, Guðni
Franzson og Hildur Helga Sigurðardóttir.
Ungir sem aldnir
Tónlistarmenn á öllum aldri fjölmenntu á tónþingið. Hér er einn af yngri
kynslóðinni, Bibbi Curver, ásamt unnustu sinni, Tinnu Ævarsdóttur, en
líkt og Atli Heimir hefur Bibbi verið óhræddur við að feta nýjar og ókunn-
ugar slóðir í tónsköpun sinni.
Púttmót Björgvins og Birgis
Kylfingamir Birgir Leifur Haf-
þórsson og Björgvin Sigurbergsson
halda senn í víking til Kenía þar
sem þeir hyggjast taka þátt í alþjóð-
legu golfmóti. Slík reisa fæst ekki
gefins og til að afla fjár efndu þeir
félagar til púttmóts í Tennishöllinni
í Kópavogi um helgina. Fjölmargir
golfleikarar á öllum aldri tóku þátt
í mótinu enda eru flestir golfvellir á
höfuðborgarsvæðinu þaktir snjó um
þessar mundir og því lítið hægt að
leika. Þá hafa verðlaunin ábyggi-
lega ekki dregið úr áhuga manna en
í fyrstu verðlaun var ferð til írlands
á vegum ferðaskrifstofunnar Úr-
vals-Útsýnar auk þess sem vegleg
verðlaun frá Nýherja og Nevada
Bob voru einnig í boði.
Melstaramir
Kylfingarnir Birgir Leifur Hafþórsson og Björgvin Sigurbergsson héldu fjár-
öflunarmót í Tennishöitinni f Kópavogi um helgina en þeir ætla að taka
þátt í stóru golfmóti í Kenía í Afríku.
DV-MYNDIR EINAR J
Samtaka nú
Þátttakendur í púttmótinu lögðu
sig alla fram enda vegleg verðlaun
í boði fyrir sigurvegarann, ferð til
eyjunnar grænu og golfparadísar-
innar írlands.
Bíógagnrýni
^ ^ Jjdupuioiii “
Par sem feluleikur og
kænska skipta máli
Sam-bíóin - Spy Game irJriy
Hilmar
Karlsson
s krifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Njósnarar ráða ráðum sínum
Robert Redford og Brad Pitt í hlutverkum tveggja CIA-njósnara sem snúa
bökum saman.
Eftið að járntjaldið í austri féll og
yfirlýsingar um að kalda stríðinu
væri lokið hefur njósnamyndum
fækkað verulega. Um leið og helstu
rithöfundar á þessu sviði, höfundar
á borð við John Le Carré og Len
Deighton hafa þurft að víkka sjón-
deildarhring sinn hefur Hollywood
dregiö í land í gerð njósnamynda. f
þau fáu skipti sem Hollywood gerir
alvöru njósnamyndir þá hefur aug-
um myndavélarinnar verið beint til
hins nýja óvinar í Asíu og Afríku, oft
á vandræðalegan hátt því það sem
vantar í njósnamyndir eftir kalda
stríðið er verðugur mótherji. KGB
stóð tæknilega jafnfætis CLA í njósn-
um en það gera ekki leyniþjónustur
Arabaríkjanna og Kínverja. Eina
leyniþjónustan sem væri verðugur
mótherji CIA er Mossad, sú ísra-
elska, en eins og allir vita þá eru
stjómvöld i Bandaríkjunum háð gyð-
ingum og ekki má móðga ísraels-
menn. Hvað sem þeir gera af sér þá
teljast þeir alltaf til helstu vinaþjóða
Bandaríkjanna.
Þetta er rifjað upp hér vegna þess
að í hinni ágætu njósnamynd Spy
Game hefur þetta vandamál með
mótherjann verið leyst. í myndinni
næst að tengja nútímanjósir við þær
gömlu „góðu“ sem stundaðar voru á
timum kalda stríðsins. Á viðunandi
hátt sameina Spy Game njósnir sem
byggðust á hugviti njósnarans sam-
an við tækni nútímanjósna án þess
nokkurn timann að missa sjónar á
markmiðinu að sýna okkur veröld
þar sem feluleikur og kænska skipta
mestu máli.
Spy Game er að mörgu leyti
óvenjuleg njósnamynd þar sem aðal-
persónan plottar og plottar alla
myndina án þess að yfirgefa aðal-
stöðvar CIA. Nathan Muir (Robert
Redford) er gamall í hettuni hjá CIA
og á að baki glæsilegan feril. Þegar
myndin hefst er hann að hefja sinn
síðasta dag hjá stofnuninni, er búinn
að pakka saman þegar hann fréttir
að helsti skjólstæðingur hans, Tom
Bishop (Brad Pitt), hafi verið hand-
tekinn af Kínverjum og það eigi að
lífláta hann eftir einn sólarhring.
Muir er kallaður á fund yfirmanna
sinna og látinn gefa skýrslu um Bis-
hop. Gegnum þessar yfirheyrslur
fáum við innsýn í njósnaheiminn
eins og hann var allt frá Víetnam til
Beirúts á níunda áratugnum þegar
samstarf Muir og Bishop endaði meö
hvelli. Muir kemst fljótlega að þvi að
hann er ekki að gefa skýrslu svo
hægt sé að bjarga Bishop, heldur er
CIA að leita að ástæðu til að hægt sé
að réttlæta að Kínveijar drepi hann.
Þegar Muir er orðinn sannfærður
um þetta kemur fljótt í ljós að þeir
sem eru að yfirheyra hann og halda
að þeir hafi öll tromp á hendi eru
eins og smábörn í samanburði við
Muir þegar kemur að kænsku njósn-
arans.
Tony Scott er reyndur spennu-
myndahöfundur. Hann hefur
kannski ekki sömu listrænu hæfi-
leika og bróðir hans, Ridley Scott, en
hann er fagmaður og veit hvernig á
að láta atburðarásina ganga snurðu-
laust fyrir sig. Gott jafnvægi er á
milli atburðanna í nútímanum og
upprifjunarinnar á samstarfi Muir
og Bishops. Þótt myndin sé rúmir
tveir klukkutímar dettur aldrei nið-
ur spennan sem myndast í byijun.
Scott er góður stílisti og eins og oft
áður mikið fyrir nærmyndatökur af
andlitum persóna, vill að það komi
fram hvað þær hugsi án þess að orð-
in séu framkölluð. Robert Redford
nær vel að persónugera hinn ískalda
njósnara Nathan Muir, rúnum stráð
andlitið segir okkur að þama er
maður sem hefur lifað tímana
tvenna. Brad Pitt gerir meira af því
að detta út úr hlutverki njósnarans
og verða mannlegur. Er ekki eins
kaldrifjaður og Muir vill hafa hann.
Samleikur þeirra er góður, það er þó
Redford sem er minnisstæðari.
Leikstjóri: Tony Scott. Handrit: David
Frost Beckner og David Arata. Kvlk-
myndataka: Daniel Mindel. Tónlist:
Harry Gregson-Williams. Aóallelkarar:
Robert Redford, Brad Pitt, Catherine
McCormack, Stephane Dillane og Mari-
anne Jean-Baptiste.