Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Síða 25
37
MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2002
I)v Tilvera
Kærasta prins-
ins í höllinni
Friðrik krónprins í Danmörku hef-
ur fengið ástralska kærustu sína,
Mary Donaldson, til að gista hjá sér í
Amalienborgarhöll í kóngsins Kaupin-
hafn. Hirðstjóri Margrétar Þórhildar
drottningar staðfesti það við frétta-
mann danska blaðsins Berlingske
Tidende á dögunum.
Dönsku vikublöðin sem sérhæfa sig
í fréttum af kóngafólkinu og öðru
mektarfólki staðhæfðu að Mary heíði
búið hjá prinsinum frá því um áramót
en hirðstjórinn vísaði því aifarið á
bug.
Mary Donaldson flutti til London
frá Sydney skömmu fyrir jól.
Jennings látinn
Bandarlski kántri-kóngurinn Way-
lon Jennings er látinn á 65. aldursári
eftir áralanga baráttu við sykursýki.
Jennings var vel metinn tónlistarmað-
ur um allan heim og þekktur fyrir
sinn sérstæða stíl bæði hvað varðar
söng og útfærslu. Hann seldi meira en
fjörutíu milljónir hljómplatna á ferlin-
um og náði 89 sinnum inn á Billboard-
sveitasöngvalistann, þar af sextán
sinnum í efsta sætið og 53 sinnum á
topp tíu listann.
Jennings var góður vinur Buddy
heitins Hollys og frægt var þegar
hann missti af flugvélinni sem Buddy
fórst með árið 1959. Jennings sagði
einu sinni í viðtali að hann ætti
Buddy mikið að þakka. „Hann var sá
íyrsti sem fékk trú á mér þótt ég hefði
ekki meiri stjömuhæfileika en gamall
gúmmískór. En hann hafði trú á mér
og líkaði tónlistin min,“ sagði Jenn-
ings.
Willis að linast
Hörkutólið Bruce Willis segist vera
búinn að fá meira en nóg af því að
leika harðjaxla og vonandi verði hlut-
verk sitt í myndinni Hart’s War, sem
frumsýnd verður næstu daga, það síð-
asta í þeim dúr. „Ég er orðinn þreytt-
ur á því að hlaupa um stræti veifandi
byssu í ölium myndum. Þeir verða að
flnna einhvern annan til að gera það,“
segir Willis. í Hart’s War leikur Will-
is stríðsfanga í seinni heimstyrjöld-
inni sem lendir í því sem háttsettasti
fanginn í þýsku fangelsi að glíma við
morðmál, þar sem svartur landi hans
er sakaður um morö á hvítum her-
manni. „Ég tók að mér hlutverkið
vegna þess að söguþráðurinn endur-
speglar kynþáttavandamálin á svo
hreinskiiinn hátt, ekki sist vandamál-
in heima í Bandaríkjunum," segir
Willis.
Afmæli Heimdallar:
Stuttbuxna-
strákar í 75 ár
Heimdallur, félagsskapur ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavik, fagn-
aði 75 ára afmæli sínu á veitinga-
staðnum Rex í Austurstræti á fostu-
daginn. Komu þar saman núverandi
og fyrrverandi Heimdellingar, rifj-
uðu upp gamla tima og slógu á létta
strengi. Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttarlögmaður var sæmdur
heiðursmerki Heimdallar og Sam-
band ungra sjálfstæðismanna færði
félaginu gjöf og ámaðarkveðjur. Þá
heiðraði Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra og formaður flokksins,
Heimdeflinga með nærveru sinni og
flutti stutt erindi þar sem hann
meðal annars tæpti á mikilvægi fé-
lagsins sem aðhaldsafls fyrir þá
sjáifstæðismenn sem eldri væru og
þroskaðri.
Stuttbuxnastelpur
Helga Árnadóttir, stjórnarmaöur í Heimdalli, og Elva Dögg Melsteö Lottómær
voru í sannkölluöu afmælisskapi.
DV-MYNDIR EINAR J
Forsætisráðherra flytur Helmdalli árnaðaróskir
Davíö Oddsson, forsætisráöherra og formaöur Sjálfstæöisflokksins, ávarpaöi
Heimdellinga í tilefni dagsins.
Jón Stelnar heiðraður
Jón Steinar Gunnlaugsson hæstarréttarlögmaöur var sæmdur heiöursmerki
Heimdallar fyrir störfsín í þágu flokksins. Hér óskar Björgvin Guömundsson,
formaöur Heimdallar, Jóni Steinari til hamingju.
íslenskir hnefaleikamenn:
Frelsinu fagnað
Áhugamenn um hnefaleika komu
saman á Players sportbar í Kópavogi
á laugardaginn til að halda upp á að
áratugagamalt bann við ólympískum
hnefaleikum hefur verið numið úr
gildi hér á landi. Nú geta íslenskir
hnefaleikarar lumbrað hver á öðrum
með góðri samvisku og þurfa ekki að
hafa minnstu áhyggjur af því að lög-
reglan banki upp á og hneppi menn í
varðhald fyrir barsmíðamar eða geri
æfingatækin uppptæk. Ekki þurfa
þeir heldur lengur að stunda íþrótt
sína í dimmum skúmaskotum og
kjallaraholum þar sem enginn sér tfl
heldur geta þeir æft og keppt fyrir
opnum tjöldum. Eins og gefur að
skflja var létt yfir mönnum á laugar-
dagskvöldið og greinilegt á stemning-
unni að íslenskir hnefaleikakappar
eru langþráðu frelsi fegnir.
Rauðhetta frumsýnd:
Sígilt ævintýri
á fjalirnar
Ævintýrið um Rauðhettu og
úlfinn nýtur alltaf jafnmikilla
vinsælda meðal yngstu kynslóð-
arinnar og hér á landi vex ekki
það barn úr grasi sem ekki
kynnist sögunni af stúlkunni
rauðklæddu og raunum hennar.
Eins og algengt er með sígildar
sögur hefur Rauðhetta verið
seinni tíma höfundum endalaus
uppspretta hugmynda og hafa
margir gert sínar eigin útfærsl-
ur af þessu gamla ævintýri. Nú
hefur danska leikkonan
Charlotte Böving gert leikgerð af
Rauöhettu þar sem hún styðst
meðal annars við lítt þekkta og
lengri gerð hins góðkunna ævin-
týrs. Afraksturinn var frum-
sýndur í Hafnarfjarðarleikhús-
inu á laugardaginn fyrir smekk-
fullum sal af börnum á öllum
aldri sem vildu sjá og heyra sög- y
una góðu eina ferðina enn. Með
helstu hlutverk í sýningunni
fara leikararnir Björgvin Frans
Gíslason, Jóhanna Jónas og Þór-
unn Erna Clausen sem leikur tit-
ilhlutverkið.
Með hanskann á lofti
Bubbi Morthens og Ómar Ragnarsson höföu ástæðu til aö brosa á laugardaginn þegar haldið var upp á aö áratuga-
gamalt bann viö ólympískum hnefaleikum hefur veriö numiö úrgildi. Hér eru þeir félagar ásamt fyrsta flutningsmanni
tillögunnar, Gunnari Birgissyni alþingismanni.
DV-MYNDIR EINAR J
Alllr komu þelr aftur
Þrátt fyrir aö hafa lent í ýmsum raunum í leikritinu, eins og aö villast í skógin-
um og dvelja í úlfsmaga um tíma, stigu allir leikararnir heilir fram í lokin og
var fagnaö ógurlega af smáfókinu í salnum.
Rauöhetta að tjaldabaki
Þaö mæddi mikiö á Þórunni Ernu Clausen leikkonu í verkinu en hún fór meö
hlutverk Rauöhettu sjálfrar. Hér er hún ásamt systur sinni, Ragnheiöi
Clausen, og lítilli frænku þeirra sem einnig heitir Ragnheiöur.
I faömi fjölskyldunnar
Björgvin Frans Gíslason fer meö hlutverk trúbadorsins (svo) í sýningunni. Hér
hann aö lokinni sýningu ásamt foreldrum sínum, leikurunum Eddu Björgvins
og Gísla Rúnari.
C
<