Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Page 28
*
W
Lá mikið á í heiminn:
Faðirinn tók á
móti sjálfur
„Mér brá náttúrlega alveg gífur-
lega en þetta leystist ótrúlega vel,“
segir Jónatan Vemharðsson, sem á
Valentínusardaginn, þann 14. þessa
mánaðar, brá sér i hlutverk ljós-
móður og tók á móti dóttur sinni í
heiminn. „Konan min, Sylvía, var
farin að veikjast og ég búinn að
hringja upp á fæðingardeild til að
boða komu okkar en hún skrapp að-
eins í sturtu. Þá var sú litla bara til-
búin að mæta og ekki annað að gera
en bretta upp ermar.“ Jónatan segir
það hafa hjálpað sér að hafa áður
verið viðstaddur fæðingar og kveðst
ekki yfirliðagjam. Sylvía og dóttirin
unga fóm í sjúkrabíl upp á deild
skömmu eftir fæöinguna og dvöldu
þar í sólarhring. Þeim heilsast báð-
um vel. -Gun.
Rasismi á út-
varpsstöð MR
Árshátið Menntaskólans í
Reykjavík verður haldin á Broad-
way nk. fimmtudag. I tilefni af því
hefur verið starfrækt útvarpsstöð,
Útvarp MR, sem sendir út á FM
96,2 en útsendingu lýkur á fimmtu-
dag. Aðallega hefur verið send út
tónlist, en nýlega brá svo við að
tveir af þáttarstjórnendum sáu
ástæðu til að vera með brandara á
milli laga og það voru brandarar á
kostnað asískra innflytjenda.
Þáttarstjórnendum var snarlega
kippt úr stúdíóinu og fengu þeir al-
varlega viðvörun, en þeim sem
lengst vildu ganga þótti ástæða til
að reka þá úr málfundafélaginu
Framtíðinni. Það gekk þó ekki svo
langt og málið kom heldur ekki til
kasta nýs rektors MR, Yngva Pét-
urssonar. -GG
Vikuveðrið:
Frost og snjór
Norðanáttin og frostið sem ríkj-
andi er í dag lætur undan síga fyr-
ir austan- og suðaustanátt á morg-
un. Henni fylgir snjókoma og élja-
gangur um sunnanvert landið. Hit-
inn verður um ffostmark
sunnanlands en frost
verður norðanlands.
Seinni part vikunnar
snýst vindur aftur til norðlægrar
áttar með éljum fyrir norðan og
tiu stiga frosti. Þá léttir til syðra.
Um næstu helgi er aftur búist við
suðaustanátt með snjókomu vest-
an til og frosti um allt land. Vetur
kommgur minnir sem sagt á sig í
þessari viku enda þorraþrællinn i
lok hennar. Þá er viðeigandi að
frost sé á Fróni, jafnvel svo að
frjósi í æðum blóð.
-Gun.
HOLL ERU HEIMA-
FENGIN RÁO!
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJ ALST, OHAÐ DAGBLAÐ
MANUDAGUR 18. FEBRUAR 2002
Tók á mótl sjálfur
Sylvía Reynisdóttir og Jónatan Vernharösson ásamt hinni nýfæddu og óskíróu dóttur.
DVWYND HARI
Formaður VG um milljónaviðskipti Símans við stjórnarformann:
Farsinn verði rann
sakaður í heildina
samgönguráðherra vill ekkert segja
Friðrik
Pálsson.
„Gamli máls-
hátturinn um að
nú séu góð ráð
dýr á hér greini-
lega við í nýju
samhengi og
merkingu," sagði
Steingrímur J.
Sigfússon, for-
maður VG, í sam-
tali við DV í gær-
kvöld. Tilefnið
voru upplýsingar um milljóna króna
greiðslur Landssímans tO Góðráða
ehf., ráðgjafarfyrirtækis Friðriks
Pálssonar, stjómarformanns Sím-
ans. Árið 1999 innheimtu Góðráð
rúmlega 5 milljónir króna auk virð-
isaukaskatts hjá Landssímanum
vegna ráðgjafarstarfa Friðriks Páls-
sonar og annars kostnaðar vegna
starfa hans. Þetta er fyrir utan laun
hans sem stjórnarformanns en þau
telja á annað hundrað þúsund mán-
aðarlega. Þetta fyrirkomulag er í
samráði við samgönguráðuneytið
sem yfirfer alla reikninga Góðráða
ehf. og vísar þeim til forstjóra Sím-
-
Steingrímur J.
Slgfússon.
Sturla
Böövarsson.
ans. DV hefur ekki upplýsingar vun
viðskipti Góðráða og Landssímans
árin 1999 og 2000 eða það sem af er
árinu 2002 en Friðrik Pálsson segir
þau vera mun minni en um var að
ræða árið 2001.
Steingrímur J. segir að í raun sé
sér alvarlega bmgðið yfir því hugar-
fari...sem virðist vaða uppi allt í
kringum einkavæðinguna. Menn
virðast geta gengið í opinbera sjóði
og skammtað sér sjálfir að vild. Sið-
an er reynt að hjúpa allt einhverri
leynd og allar upplýsingar þarf með
töngum að draga fram í dagsljósið,"
segir hann.
Hann segir óumflýjanlegt að sín-
um dómi að einkavæðingarfarsi
Landssímans verði rannsakaður í
heild. Velt við hverjum steini og síð-
an axli þeir ábyrgð sem hana eigi að
bera.
„Menn eiga ekki að komast upp
með að benda hver á annan og kenna
öllum öðrum um en þeim sjálfúm. Ég
hef velt upp spurningunni um hvort
samgönguráðherra beri ekki að
víkja úr embætti eftir þessa mis-
heppnuðu einkvæðingartilraun.
Sturla Böðvarsson er hinn vænsti
maður og ég efast ekki um að hann
er að reyna að vinna verk sin vel.
Málið snýst hins vegar ekki um hans
persónu, heldur um hvort það geti
gengið endalaust þannig fyrir sig hér
á landi að enginn beri pólitíska
ábyrgð hversu rosalegt sem klúðrið
er,“ segir Steingrímur J. Sigfússon.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra vildi í gærkvöld ekkert tjá sig
um samninginn við Góðráð.
„Ég vil ekkert um þetta segja. Það
er mitt svar við þessu,“ sagði Sturla.
Sjá nánar á bls. 2 -rt/sbs
Réttarhöldum fram haldið í máli ákæruvalds gegn dagforeldrum:
Þóra Steffensen réttarmeinafræð-
ingur mætir fyrir Héraðsdóm
Reykjaness í dag þar sem hún verð-
ur spurð út í rannsókn sína á 9
mánaða dreng sem lést eftir að hafa
verið í daggæslu á heimili í Kópa-
voginum í mai á siðasta ári. Þóra
komst m.a. að þeirri niðurstöðu að
áverkar bamsins hefðu verið það
alvarlegir að ljóst væri að drengur-
inn hefði ekki verið fær um að sýna
eðlilega hegðun eftir að það hlaut
þá. Þama var átt við skert meðvit-
undarástand eða að geta sýnt eðli-
legar hreyflngar. Þóra, sem bar
einnig vitni í máli ríkissaksóknara
í svokölluðu Öskjuhlíöarmáli, hef-
ur viðtæka menntun og reynslu á
sínu sviði, ekki síst erlendis.
Þegar foreldrar litla drengsins
komu með hann í dagvistunina að
morgni 2. maí er óumdeilt að hann
sýndi eðlilega hegðun og var í
góðu skapi þó svo að hann hefði
verið óvær um nóttina. Samkvæmt
þessu mun framburður Þóra
skipta miklu máli en ákæruvaldið
mun líklega vilja sýna fram á að
drengurinn hefði hlotið svokallað
Shaken Baby-Syndrome eftir að
það fór í daggæsluna. Dagfaðir er
ákærður í málinu fyrir manndráp
af gáleysi með því aö hafa hrist
bamið.
Kristleifur Kristjánsson, sér-
fræðingur í barnalækningum, bar
fyrir dómi á föstudag að útilokað
væri að drengurinn hefði hlotið
áverkana áður en hann fór í dag-
gæsluna. Það vora dagforeldrarnir
sem hringdu á sjúkrabíl síðdegis
þann dag sem atburðirnir áttu sér
stað. Barnið lést 42 klukkustund-
um síðar á sjúkrahúsi.
Þegar Þóra hefur borið vitni og
tveir aðrir sérfræðingar, munu
sækjandi og verjendur taka til
máls og flytja málið. Við svo búið
taka þrír héraðsdómarar það til
dóms.
-Ótt
Bíllinn hafnaði
við hjónarúmið
„Við vöknuðum í hvitum ryk-
mekki og sáum ekki handa okkar
skil. Konan mín, Björg Bragadóttir,
hélt það væri kominn jarðskjálfti og
hljóp út. Þá sá hún að bíll hafði
keyrt inn í herbergið okkar,“ segir
Þorvaldur Þráinsson í Kingstrup á
Fjóni í Danmörku en hann og kona
hans fengu bíl inn að hjónarúmi um
hálfflmm í gærmorgun. Þorvaldur
UV-MYNU: PUKVALUUK
Inn að rúml
Húsbóndinn hafói setiö innan viö
vegginn þar til klukkustund áöur en
bíllinn kom.
var nýlega sofnaður því hann hafði
setið við að horfa á íshokkí til hálf-
fjögur um nóttina. „Ég sat einmitt
við vegginn sem bíllinn kom inn
um,“ segir hann. „Rúmið fylltist af
múrsteinum og sjónvarpstækið kom
fljúgandi yflr okkur. Ég fékk stein í
hausinn og vankaðist aðeins." Þor-
valdur segir ökumenn bílsins hafa
verið á bak og burt þegar þau rönk-
uðu við sér. Þeir hafi verið á stoln-
um bíl en náðst skömmu síðar, enda
góðkunningjar lögreglunnar. Þess
má geta að þau Björg og Þorvaldur
eiga tvo drengi, Hauk Þorra og
Ingva Þór. Þeir era sjö og ellefu ára.
Öll sluppu þau við meiðsl. -Gun.
Ólafsfirðingar
þurfa að vanda
fjárhagsáætlun
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveit-
arfélaga telur óhjákvæmilegt að bæj-
arstjóm Ólafsfjarðar grípi til viðeig-
andi ráðstafana í rekstri bæjarfélags-
ins til að auka framlegð þess. Þetta
kemur fram í bréfi til stjórnar sveit-
arfélagsins 22. janúar sl. Einnig sé
nauðsynlegt að fjárfestingum verði
haldið í lágmarki þannig að sveitarfé-
lagið geti lækkað skuldir sínar.
Til að bæta fjárhagsstöðu sveitar-
félagsins sé mikilvægt að áform
sveitarfélagsins um breytt rekstrar-
form veitufyrirtækja nái fram að
ganga. Ennfremur telur nefndin
mikilvægt að sveitarstjórn vandi
betur til fjárhagsáætlana og kostnað-
areftirlit verði eflt. Eftirlitsnefndin
hefur óskað eftir því að innan
þriggja mánaða geri bæjarstjóm
nefndinni grein fyrir þeim ráðstöf-
unum sem hún hyggst standa fyrir
til að bæta rekstur og og fjárhags-
stöðu sveitarfélagsins. -GG
. n .. A A A A n .. A . A .. A .. ft _
KXKÍÖOmXKK
f Gitarinní
Stórhöfða 27,
X s. 552 2125. 3L
jl Rafmaqns gítar, X
magnari m/effekt
'K'ól og snúra 33.900kr'K
, A A A A A A A A rt n
KKKKKXXKKK
Talaðu við okkur um
:
,