Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2002, Qupperneq 2
2
LAUGARDAGUR 16. MARS 2002
Fréttir
DV
Thermo Plus-málið vindur upp á sig:
Nítján undir smásjá
- bæði einstaklingar, virt fyrirtæki sem og opinberir aðilar
Rannsókn á málefnum kælitækja-
framleiðandans Thermo Plus í
Reykjanesbæ er nú komin á skrið
hjá Fjármálaeftirlitinu eftir að þrír
af stofnendum fyrirtækisins lögðu
fram kæru vegna umsýslu ákveðins
fjármálafyrirtækis með hlutabréf.
Samkvæmt staðfestum heimildum
DV er þar um að ræða Sparisjóð
Keflavíkur og snýst málið m.a. um
hvað orðið hafi um hlutabréf Fimm
ehf. i Thermo Plus sem voru í
vörslu sjóðsins. Þetta mál er þó að-
eins toppurinn á ísjakanum. Búast
menn jafnvel við skriðu kærumála
frá fjölda hluthafa gegn stjórn fyrir-
tæksins vegna meintra fjársvika.
Kærendumir þrír reyna nú að kom-
ast í samband viö hluthafa til að
auðvelda Fjármálaeftirlitinu
vinnslu málsins. Hafa þeir bent
fólki á að hafa samband í gegnum
tölvupóstfang thermo@torg.is eða
senda símbréf á faxnúmer 49-0609
sem er jafnframt talhólfsnúmer.
Samkvæmt upplýsingum DV hefúr
Fjármálaeftirlitið nú undir höndum
gögn er bendla 19 aðila sem tengjast
Thermo Plus við hugsanleg misferli.
Snýst það m.a. um meint veðsvik, fóls-
un gagna, fjársvik og brot á fjölda laga-
greina. Þar er um að ræða meint brot
á lögum um verðbréfaviðskipti, lögum
um verðbréfasjóði, lögum um hlutafé-
lög, þinglýsingarlögum, lögum um lög-
menn ásamt siðareglum lögmanna,
lögum um viðskiptabanka og spari-
sjóði, lögum um ársreikninga, lögum
um virðisaukaskatt, lögum um endur-
skoðendur, lögum um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins, lögum
um gjaldþrotaskipti, og almennum
hegningarlögum.
Óskað eftir aðstoð
Auk stjómarmanna fýrirtækisins,
framkvæmdastjóra og lögfræðings
Thermo Plus, snúa fyrirliggjandi gögn
að Lögfræðistofu Suðumesja, Spari-
sjóði Keflavíkur, Pricewaterhou-
Frétt DV 17. mars í fyrra
Ein frétt afmörgum sem sagöi af
gjaldþroti Thermo Plus.
seCooopers (áður endurskoðunarskrif-
stofunni BDO sem rann inn í PwC),
Eignarhaldsfélagi Suðumesja, Sýslu-
manninum í Keflavík og Lífeyrissjóði
Suðumesja.
Er óskað eftir aðstoð um að afla
gagna sem kærendum hefur verið
meinaður aðgangur að. Þá er óskað eft-
ir að rannsókn málsins nái til þriggja
landa. Þar er um að ræða Kanada og
Bretland en þar rak fyrirtækið m.a.
dótturfélag sem varð gjaldþrota í fyrra.
Einnig er um að ræða Kýpur þar sem
stofnað var eignarhaldsfélag m.a.
stjómarmanna, í þeim tilgangi að
komast yfir tækni- eða framleiðsluleyfi
Thermo Plus.
Teygir anga sína víða
Ótrúleg þögn hefúr verið um málið
síðan i fyrravor og vakti það m.a. at-
hygli manna sem tengdust málinu í
Bretlandi. Ljóst er að angar fjár-
málaumsvifa Thermo Plus teygja sig
víða um islenskan fjármálaheim og
eins og áður sagði til að minnsta kosti
þriggja landa. Virðist vera sem reynt
hafi verið með skipulögðum hætti að
koma í veg fyrir rannsókn þar til mál-
ið fymtist að hluta á næstu mánuðum.
DV hefur heimildir fyrir þvi að mönn-
um hafi beinlínis verið hótað ef þeir
hefðu sig ekki hæga. Um gríðarlega
hagsmuni er að tefla þar sem gjaldþrot-
ið í heild var mjög stórt, líklega á bil-
inu 800-1000 miiljónir króna. -HKr.
Háskóli íslands:
Hagfræði
með lög sem
aukagrein
- nýmæli í boði
Viðskipta- og
hagfræðideild Há-
skóla íslands býður
í fyrsta sinn í haust
upp á nám til BA-
gráðu í hagfræði
sem aukagrein. Að
sögn Ágústs Ein-
arssonar, prófess-
ors og deildarfor-
seta viðskipta- og
hagfræðideildar,
ætti þetta nám að henta mjög vel þeim
sem hafa áhuga á hagfræði - og vilja
tengja það námi í lögfræði.
„Hagfræðin verður kennd hjá okkur
til 60 eininga og lögfræðin til 30 ein-
inga í lagadeild. Árleg kynning á há-
skólanámi fyrir framhaldsskólanema
verður einmitt í Háskóla íslands nú á
sunnudag, en mikil aðsókn hefúr verið
að námi í viðskiptafræði og hagfræði
við deildina undanfarin ár,“ sagði
Ágúst í samtali við DV. Ljóst er að
laganám er að taka miklum stakka-
skiptum hérlendis en nú er boðið upp
á lagakennslu að Bifröst og í Háskólan-
um í Reykjavík, auk Háskóla íslands.
Þessir skólar - ásamt öðrum skólum á
háskólastigi - kynna námsframboð sitt
á sunnudaginn. -sbs
Ágúst
Einarsson.
Þrjátíu kíló
Gylfi Jónsson lögreglufulltrúi sýndi
blaðamönnum hasssendinguna
stóru í gær. Kílóin er þrjátíu.
Stríð milli nýs formanns Ferðamálaráðs og hvalfriðunarsinna:
Skjótum og njótum
- segir Einar K. - hvalaskoöunarmenn segja ný „móðuharðindi“ fram undan
Óróleiki er inn-
an ferðaþjónust-
unnar vegna þess
að nýr formaður
Ferðamálaráðs,
Einar K. Guðfinns-
son, hyggst berjast
fyrir hvalveiðum á
ný af fullum
þunga. Einar var
einn flutnings-
manna frumvarps
um hvalveiðar í
fyrra og hefur
lengi talað fyrir
þeim sjónarmið-
um. Hann er enn
sama álits þrátt
fyrir að vera orð-
inn formaður
Ferðamálaráðs en
þeir sem byggja af-
komu sína á hvala-
skoðun telja til-
vistargrundvöll sinn í hættu.
„Að sjálfsögðu veldur þetta óróa
innan greinarinnar," segir Hörður Sig-
urbjamarson, framkvæmdastjóri um-
svifamestu hvalaskoðunar á íslandi,
Norðursiglingar á Húsavík. Hann telur
það algjört glapræði fyrir atvinnuveg-
inn ef Einar hyggst halda fast við fýrri
stefnu. „Það væri lítil skynsemi fýrir
æðsta prest ferðaþjónustunnar að
beita sér fýrir hvalveiðum við núver-
andi aðstæður. Það er engin spuming
að það yrði ávísun á meiriháttar
móðuharðindi fýrir ferðaþjónustuna ef
hvalveiðar hæfúst aftur,“ segir Hörð-
ur. Aukinheldur segir hann það orka
tvímælis að menn séu kjömir pólitískt
til slíkrar ábyrgðar. Hins vegar trúi
hann ekki að Einar muni halda fast
við fýrri afstöðu.
DV náði tali af Einari þar sem hann
var staddur í Lundúnum í gær og
verða orð hans síst til að sefja þann
óróa sem uppi er í greininni. „Fyrri
skoðanir mínar varðandi hvalveiðar
em núverandi skoðanir minar. Ég
mun ekki hvika frá því að ég tel að ís-
lendingar eigi að hefja hvalveiðar sem
allra fýrst. Reynslan frá Noregi sýnir
ótvírætt að hvalveiðar fara ágætlega
saman með ferðaþjónustunni. Allar
hrakspár sem menn höfðu uppi áður
en hvalveiðar hófúst að nýju i Noregi
hafa reynst marklausar. Ég óttast það
síst af öllu aö hvalveiðar skaði ferða-
þjónustuna. Þvert á móti held ég að
með hvalveiðum undirstrikum við að
íslendingar séu þjóð sem nýti auðlind-
imar af skynsemi," sagði Einar.
Hann viðraði ennfremur að ef til vill
myndi hann beita sér fyrir nýju slag-
orði í feröaþjónustunni af þessu tilefiii.
Hvalskurður
Stórhveli skoriö á suðurhveli jarðar.
Nýr formaður Ferðamálaráðs vill
hvalveiðar og -skoðun.
Slagorðið gæti orðið: „Skjótum og njót-
um“.
Um 60.000 manns skoðuðu hvali
með íslenskum fýrirtækjum f fýrra og
veltir greinin orðið milljörðum króna
árlega. Áfram er gert ráð fýrir aukn-
ingu að sögn Harðar enda segir hann
um vannýtta auðlind að ræða. Hann er
algjörlega ósammála Einari um að
skoðun og veiðar á hvölum geti farið
saman og er líklegt að hvalaskoðunar-
menn muni fara fram á fund með Ein-
ari vegna málsins.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra skipaði Einar sem tók við af
Tómasi Inga Olrich, núverandi
menntamálaráðherra. -BÞ
Höröur
Sigurbjarnarson.
Einar K.
Guðfinnsson.
Lögreglan leggur hald á 30 kíló af hassi:
Aldrei stærri sending
Karlmaður, 37 ára, hefur verið úr-
skurðaður í þriggja vikna gæsluvarð-
hald til 5. apríl vegna rannsóknar
fíkniefnamáls. Það var fýrr í vikunni
sem lögreglan í Reykjavík ásamt Toll-
gæslu fann 30 kíló af hassi og tók í sína
vörslu. Það er talið hafa komið til
landsins með sendingu í gámi frá
Skandinavíu. Lögreglan segir rann-
sókn málsins á frumstigi, en handlagn-
ing efnanna sé afrakstur rannsóknar-
vinnu sem staðið hafi yfir um nokkum
tíma. Þetta er stærsta sending fikni-
efna sem lagt hefúr verið hald á hér á
landi til þessa.
Hörður Jóhannesson, yfirlögreglu-
þjónn rannsóknardeildar lögreglunnar
í Reykjavík, tjáði DV í gær að maður-
inn, sem nú er í varðhald vegna þessa
máls, hafi ekki komið við sögu lög-
reglu áður. Hörður sagði rannsókn
málsins vera rétt að byija og ekki væri
neitt hægt að segja til um til hvers hún
leiði.
Samkvæmt nýlegum tölum frá SÁÁ
er gangverð á hassgramminu nú ríf-
lega tvö þúsund krónur. Má því áætla
að verðmæti hasssendingarinnar sem
nú hefur verið hald lagt á sé á bilinu
60 til 70 milljónir króna. -sbs
Blaöiö í dag
Mugabe vann,
Simbabwe
tapaði
Erlent fréttaljós
\J Mf Eitt sinn skal
hver deyja
& Leiöindi flensunnar
—
Reynsluakst- ur BMW X5
pÆB* DV-Bilar
Góðir einir og með öðru
Svepplr
Viltugiftast
mér?
bónorölö
Böm á
matseðlinum
Ágústa Skúladóttir
” ir '
Fangar sofa eins
og englar
EIR-síöan
Ákveður kolmunnakvóta
Sjávarútvegsráð-
herra gaf í gær út
reglugerð um
kolmunnakvótann
á árinu. Hann verð-
ur 282 þús. lestir.
Er hverju skipi
reiknuð aflahlut-
deild miðað við
bestu aflareynslu á þremur bestu
aflaárum síðustu 3ja ára. Ráðuneyt-
ið mun endurskoða ákvörðun sína
með tilliti til ákvarðana annarra
ríkja um kvótasetningu.
Verðlækkun í vændum
Vemdartollar á tómötum, gúrk-
um og paprikum sem hefur verið
lagður á 16. mars til 1. nóvember
hefur verið felidur niður. Búast má
því við verðlækkun á þessum teg-
undum nú þegar innlend fram-
leiðsla fer að streyma á markað.
RÚV greindi frá.
Nýtt nafn
Nýtt sameinað sveitarfélag í aust-
anverðri Rangárvallasýslu mun
heita Rangárþing eystra. Sendir
voru út 1114 atkvæðaseðlar - og til
baka var skilað 605. Alls 452 völdu
Rangárþing eystra. Sveitarfélagið
verður til með sameiningu slíkra í
eitt, eins og samþykkt var nýlega.
Kærir líka
Bandalag háskólamanna hefur
óskað eftir því að vera aðili að kæru
Samtaka verslunarinnar vegna aug-
lýsingar Sýnar sem auglýsingastof-
an Gott fólk - Mcann Erickson gerði
fyrir hana. Hún felur i sér „hvatn-
ingu til þess að misnota veikinda-
rétt,“ eins og BHM segir.
Fangi kærir
Fangi á Litla-Hrauni hefur kært
stjórnendur fangelsisins fyrir van-
rækslu í starfi að því er fram kom í
RÚV. Fanginn kveðst hafa orðið fyr-
ir árás af hendi samfanga síns og
fengið höfuðáverka. Hann segir
árásarmanninn haldinn geðsjúdómi
en fangelsisyfirvöld geri ekki við-
eigandi ráðstafanir.
Samningur um raddtækni
Raddtæknifyrirtækið Voice Era í
Bolungarvík hefur skrifað undir
samning við belgíska fyrirtækið
Babeltech um þróun raddtæknibún-
aðar. Babeltech þykir í fremstu röö
á sínu sviði og hefur samstarfið í
for með sér að Voice Era kemst inn
á markaði erlendis og fyrirhugað er
að fyrirtækið opni útibú á Norður-
löndum.
Gögn til ríkissaksóknara
Efnahagsbrota-
deild ríkislögreglu-
stjóra hefur afhent
ríkissaksóknara
gögn í málum for-
stöðumanna Þjóð-
menningarhúss og
Þjóðskjalasafns.
Rikissaksóknari,
sem óskaði eftir gögnunum, tekur
ákvörðun í framhaldinu um hvort
frekar verði aðhafst í málinu.
Sæöisbanka í Borgarfjörð
Stúdent viö Viðskiptaháskólann á
Bifröst hefur sótt um styrk til að
kanna möguleika á því að fyrsti
sæðisbankinn verði opnaöur hér-
lendis. í fréttum RÚV kom fram að
þekking og kunnátta starfsmanna í
nautastööinni á Hvanneyri gæti
komið að góðum notum yrði opnun
bankans að veruleika.
-aþ/sbs