Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2002, Side 6
6
LAUGARDAGUR 16. MARS 2002
Fréttir
H>‘V
Iðnþing Samtaka iðnaðarins ályktar um ESB:
Telja rétt að ísland
sæki um aðild
- innri markaður Evrópu okkur mikilvægastur, segir utanríkisráðherra
Samtök iðnaðarins hafa mótað
sér þá stefnu að rétt sé að sækja um
aðild að Evrópusambandinu. Þetta
kemur fram í ályktun Iðnþings í
gær. Rökin eru fyrst og fremst sögð
efnahagsleg og lúta að starfsskilyrð-
um fyrirtækja á íslandi og lífskjör-
um almennings. Önnur mikilvæg
rök varði fullveldi landsins og þátt-
töku við mótun og töku ákvarðana
sem snerta hagsmuni og framtið
þjóðarinnar á ílestum sviðum.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra flutti ræðu á Iðnþingi um
samkeppnisstöðu íslands í samfé-
lagi þjóðanna. Sagði hann m.a. að í
því róti sem varð eftir hryðjuverkin
í Bandaríkjunum 11. september 2001
sé rikari ástæða en oftast áður að
huga að samkeppnisstöðu íslands.
Hann ræddi nokkuð mikilvægi EES-
samningsins fyrir íslendinga, en
með honum, EFTA-samningnum og
fríverslunarsamningum sé aðgang-
ur að 37 ríkjum með samtals 700
milljónum íbúa. Þá sagði Halldór að
þó að ísland sé ekki aðili að evr-
unni, þá verði ekki hjá því komist
að við metum stöðu okkar gagnvart
henni. í lokaorðum sínum sagði
hann síðan um hugsanlega aðild að
Evrópusambandinu:
„Ekki verður horft fram hjá því
að efnahagslegar aðstæður hafa
sterk áhrif á efnahagslegar forsend-
ur hér á landi. Þvl verðum við að
fylgjast grannt með þróun mála og
meta sífellt stöðu okkar í sam-
keppni þjóðanna. Þar skiptir Evr-
ópa og innri markaðurinn mestu
máli, þar ræðst framtíð iðnaðarins,
þar ræðst framtíð íslands."
Samkvæmt niðurstöðum við-
horfsrannsóknar, sem Gallup gerði
fyrir Samtök iðnaðarins dagana 14.
til 26. febrúar, kemur fram að yfir-
gnæfandi meirihluti þjóðarinnar
telur að hefja eigi viðræður um að-
ild að ESB. Kemur það heim og sam-
an við afstöðu félagsmanna Sam-
Frá lönþingi í gær
lönþing telur ekki eftir neinu aö
bíöa meö aö taka upp viöræöur viö
ESB um aöild.
taka iðnaðarins í könnun sem
Gallup gerði sl. haust. Spurt var:
Ertu hlynntur eða andvígur aðild ís-
lands að Evrópusambandinu? Alls
sögðust 52% hlynnt aðild, 23%
hvorki né og 25% andvíg. Hefur
þeim sem eru hlynntir aðild fjölgað
um 9 prósentustig á einu ári.
í ályktun Iðnþings segir að stöðug-
leiki í efnahagsmálum og starfsum-
hverfi sé nauðsynlegur þróttmiklu
atvinnulífi og skilyrði þess að erlend-
ir fjárfestar vilji festa fé sitt á íslandi.
„Það verður sífellt ljósara að íslenska
krónan er íslensku efnahagslífi of
dýrkeypt vegna hárra vaxta, óörygg-
is sem henni fylgir og neikvæðum
áhrifum á erlendar fjárfestingar. Það
er áhyggjuefni að við munum ekki
njóta þess gengisstöðugleika og lægri
vaxta sem keppinautar okkar innan
ESB búa nú þegar við.“
í ljósi niðurstaðna kannana sem
Samtök iðnaðarins hafa beitt sér
fyrir telur Iðnþing ekki eftir neinu
að bíða með að taka upp viðræður
við ESB um aðild og upptöku á
gjaldmiðlinum evru. -HKr.
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 19.31 19.20
Sólarupprás á morgun 07.40 07.52
Síödegisflóö 20.04 00.06
Árdeglsflóð á morgun 08.17 12.50
Kólnandi veöur
Snjókoma eða éljagangur
norðvestantil en annars fremur hæg
suðaustlæg eða breytileg átt, skýjaö
og sums staðar dálítil slydda eða
rigning.
Léttskýjaö sunnanlands
Él norðantil, slyddu- eða snjóél á
Austurlandi en léttskýjað
suðvestanlands. Hiti 1 til 4 stig
sunnantil en 0 til 6 stiga frost
norðantil.
Thor Thors, fyrrum bankastjóri í New York:
íslendingar eiga að
kaupa íslending
- ekki nóg að hengja fálkaorðu á Gunnar Marel
DVJvlYND REYNIR TRAUSTASON
Save the shíp
Thor Thors vill aö íslensk stjórnvöld þakki Gunnari Marel Eggertssyni fyrir gríöar-
lega kynningu í Ameríku meö því aö kaupa af honum víkingaskipiö íslending.
DV, NEW YQRK:______________________
„í mínum huga er enginn vafi á
því að íslendingar eiga að kaupa
víkingaskipið og koma því fyrir á
safni,“ segir Thor Thors, fyrrum
bankastjóri í New York og varafor-
maður íslensk-ameriska verslunar-
félagsins, um víkingaskipiö Islend-
ing sem hefur legið í geymslu í
Connecticut.
Thor var einn þeirra sem báru
hitann og þungann af komu íslend-
ings til Bandaríkjanna sumarið
2000. Hann hefur um árabil unnið
að þvi að kynna ísland og allt sem
íslenskt er í sjálfboðavinnu. Thor
segir að ferð skipsins frá íslandi tU
Grænlands og suður með strönd
Norður-Ameríku tU New York, þar
sem komið var við í mörgum höfn-
um, hafi skUað íslandi gríðarlegri
kynningu. MiUjónir manna hafi
fylgst með og á hverjum stað sem
skipið hafði viðkomu hafi verið bið-
röð eftir að komast um borð.
„Sagt var frá ferðum skipsins í
öUum stærstu fjölmiðlum í Banda-
ríkjunum og fólk vUdi fá að vita aUt
um ferðina. Þessi ferð gerði mikið
fyrir ísland í Ameríku," segir Thor.
Hann segir að íslensk stjómvöld
ættu að sýna þakklæti sitt í verki.
„Ferð skipsins vakti svo mikla at-
hygli að það verður ekki metið tU
fjár. Dugnaður Gunnars Marels
skipstjóra er einstakur og mér
finnst að íslensk stjórnvöld ættu að
koma tU móts við hann og kaupa
skipið. Það er ekki nóg að hengja á
hann fálkaorðuna. Hann á meira
skUið og ekki má gleyma ávinn-
ingnum af því að kaupa skipið og
auka áhuga almennings á íslandi á
sögu vikinganna," segir Thor.
Hann segist hafa minnst á þetta
við ráðamenn á íslandi en talað fyr-
ir daufum eyrum. Thor segir að ís-
lensk börn séu ekki frábrugðin
þeim amerísku sem hafi haft mik-
inn áhuga á skipinu. „Það ætti að
koma skipinu fyrir á safni. Þá gætu
íslensk börn fengið að skoða skipið
og fengið að fræðast um sögu vík-
inganna sem þau vita ekki nógu
mikið um. Ef annað dugar ekki
mætti hugsa sér að efna tU söfnun-
ar sem bæri yfirskriftina „Save the
ship“,“ segir Thor. -rt
Launamál Fréttablaðsins á borð Blaðamannafélagsins:
Eru nú í innheimtu-
ferli hjá lögmanni
FRÉTTABLAÐIÐ
Kurr hefur verið meðal starfs-
manna Fréttablaðsins undanfamar
vikur vegna vangoldinna launa og
var haldinn fundur í síðustu viku
vegna stöðu mála. Lúðvík Geirsson,
framkvæmdastjóri Blaðamannafé-
lags íslands, staðfesti að nokkrir
blaðamanna á Fréttablaðinu hafi
leitað tU félagsins vegna vangold-
inna launa.
„Það hafa komið nokkur mál hér
inn á borð og þau eru nú í inn-
heimtuferli hjá okkar lögmanni."
Sagði Lúðvík að þar væri bæði um
að ræða mál blaðamanna sem enn
væru að störfum á blaöinu og eins
manna sem þegar hafi látið þar af
störfum vegna vangoldinna launa.
Að öðru leyti sagðist Lúðvík ekki
geta tjáð sig um málefhi blaösins
eða starfsmanna þar. Félagið myndi
Gunnar Smári Lúðvík
Egllsson. Geirsson.
ekki hafa frumkvæði að því að
skerast í leikinn. Það væri í hönd-
um starfsmanna að fara fram á
slíkt.
DV hefur heimUdir fyrir því að í
síðustu viku hafi verið haldinn
fundur meðal blaðamanna vegna
stöðunnar þar sem stjóm blaðsins
hafi verið settir úrslitakostir.
Brynjólfur Þór Guð-
mundsson, trúnað-
armaður starfs-
manna, vUdi hvorki
játa þvi né neita við blaðamann DV.
„Þetta er þannig mál að ég tel ekki
rétt af mér að tjá mig um það i fjöl-
miðlum, aUavega ekki að svo
stöddu," sagði Bi-ynjólfur.
Fréttablaðið er gefið út af Frétta-
blaðinu ehf. og er auglýsingum æfi-
að að standa undir öllum rekstri
blaðsins. Hóf það göngu sína á síö-
asta ári og kom inn á markaðinn á
sama tíma og farið var að bera á
samdrætti á auglýsingamarkaði.
Hefur sá samdráttur bitnað á fjöl-
miðlum, bæði prentmiðlum sem og
ljósvakamiðlum. Þá hefur samdrátt-
urinn greinUega komið fram í um-
svUum auglýsingastofa sem hafa
verulega dregið saman seglin á síð-
ustu misserum.
Gunnar Smári EgUsson, ritstjóri
Fréttablaðsins, sagðist ekki þekkja
tU þeirra mála sem séu á borði
Blaðamannafélagsins né kannaðist
hann við að einhver vandamál
væru í gangi varðandi starfsmenn
fyrirtækisins. Þá hafi auglýsinga-
markaðurinn þanist út síðan blaðið
hóf starfsemi sína, líklega um 450
milljónir króna á ársgrundveUi.
„Það gengur bara mjög vel hjá okk-
ur eins og sjá má og vonum fram-
ar,“ sagði Gunnar Smári EgUsson.
Hann sagðist einnig búast við að
bjart væri fram undan. -HKr.
Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur
qW
o o
HHi 0'
Hiti 0°
Hitl 0°
til 5' til 5® til 6«
Vindun 5-13 m/s Vindun 5-11 Vindur 5-10 m/5
Él noröan- og austantll, en bjart veöur annars staöar. Hæg austlæg eöa breytileg átt. Skýjaö meö köflum og stöku él noröaustantll. Frost um mest allt land. Hæg austlæg eöa breytlleg átt. Skýjaö meö köflum og stöku él noröaustantll. Frost um mest airt land.
í£ * kf
m/s
Logn 0-0,2
Andvarl 0,3-1,5
Kul 1,5-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinnlngsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldl 10,8-13,8
Ailhvasst 13,9-17,1
Hvassviðri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
AKUREYRI alskýjað 4
BERGSSTAÐIR alskýjaö 4
B0LUNGARVÍK snjókoma 4
EGILSSTAÐIR skýjað 4
KIRKJUBÆJARKL. skúr 3
KEFLAVÍK rigning 4
RAUFARHÖFN láþoka 3
REYKJAVÍK rigning 4
STÓRHÖFÐI úrkoma í grennd 5
BERGEN léttskýjað 5
HELSINKI heiöskírt 3
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 5
ÖSLÓ heiöskírt 6
STOKKHÓLMUR 7
ÞÓRSHÖFN skýjað 6
ÞRÁNDHEIMUR hálfskýjaö 2
ALGARVE skýjaö 17
AMSTERDAM alskýjaö 5
BARCELONA léttskýjaö 16
BERLÍN snjókoma 1
CH1CAG0 rigning 4
DUBUN rigning 6
HAUFAX skýjað -3
FRANKFURT rigning 9
HAMBORG snjókoma 3
JAN MAYEN snjókoma 12
L0ND0N rigning 7
LÚXEMBORG skýjað 7
MALLORCA léttskýjað 18
MONTREAL alskýjaö -6
NARSSARSSUAQ alskýjaö -6
NEW YORK þokumóöa 9
0RLAND0 þokumóöa 15
PARÍS skýjaö 12
VÍN léttskýjaö 12
WASHINGTON þokumóöa 11
WINNIPEG heiöskirt -19