Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2002, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 16. MARS 2002
27
DV
Helgarblað
Destiny’s Child.
Samningar
brotnir
með
Survivor
Þær dansa vel og syngja stelpumar
í Destiny’s Child. Limaburður þeirra
og listfengi hefur eflaust náð hámarki
í mögnuðu lagi þeirra, Survivor, sem
gerði allt vitlaust fyrir nokkrum mán-
uðum. Það eru hins vegar ekki allir
jafn ánægðir með lagið. Sérstaklega á
það við LeToyu Luckett og LaTaviu
Roberson en þær yfirgáfu hópinn árið
2000. Þær segja að með laginu Survi-
vor og þá sérstaklega línunum: „You
thought I wouldn’t sell without you /
Sold nine million" sé vegið að heiðri
þeirra og í raun brotið samkomulag
sem gert var þegar þær hættu sam-
starfinu. Þá skrifuðu allir hlutaðeig-
andi undir samning um það að gefa
engar yfirlýsingar um samstarflð eða
hvemig því lauk. Þær LaTavia og
LeToya halda því fram að með fyrr-
nefndri setningu sé verið að gefa í
skyn að þær hafi reynt að skemma
fyrir Destiny’s Child og þannig yfir-
geflð hljómsveitina sjálfviljugar. Hið
rétta sé að þær hafi verið reknar af
framkvæmdastjóra DC.
Krafa stallsystranna er að lagið
verði aldrei framar leikið í útvarpi né
spilað opinberlega á tónleikum. Lög-
maður þeirra segir að aldrei hefði átt
að gefa þetta lag út. Lögmaður DC vill
hins vegar halda því fram að allt sé
þetta tóm delia í LaTaviu og LeToyu
og þær hafi greinilega ekkert betra að
gera en að hugsa upp nýjar og nýjar
málshöfðanir. Auk þess sem LaTavia
og LeToya fara fram á að hætt verði
að spila lagið vilja þær fá umtalsverð-
ar skaðabætur.
Penelope Cruz
Hún sást daöra viö Matt Damon.
Daðraði við
Damon
Penelope Cruz er fræg leikkona á
fóstu. Hún er ekki bara á föstu með
einhverjum aula heldur er hún opin-
berlega kærasta Tom Cmise og hefúr
hvoragt þeirra dregið neitt af því að
þau séu ástfangin upp fyrir haus.
Það vakti því nokkra athygli þegar
ljósmyndarar náðu myndum af Cruz á
innilegu spjalli við Matt Damon en þau
hafa alltaf verið mjög góðir vinir síðan
þau léku sama í kvikmyndinni All The
Pretty Horses. Cruz og Damon stóðu
lengi á hljóðskrafi og sjónarvottar full-
yrtu að það hefði umtalsvert daður
verið í gangi, að minnsta kosti af hálfu
Cruz sem hefði stigið í vænginn við
Damon sem þykir nokkuð myndarleg-
ur svo ekki sé dýpra í árinni tekið.
Þetta myndu margir segja að væri
háifgert hættuspil þvi Cruise er valda-
mikill leikari og ekki vist að honum
líki að sjá kærustuna daðra við aðra
leikara og yngri á götum úti eða á al-
mannafæri.
Michael skyggði á
pabba gamla
Þegar menn ætla að gera betur en
vel þá fer oft verr en iila segir máltæki
sem enginn veit hvort er gamalt eða
nýtt. Þetta fékk leikarinn Michael Dou-
glas að reyna um daginn. Hann er son-
ur Kirk Douglas sem einnig var frægur
leikari á sinni tíð en hefur fyrir all-
löngu horfið úr sviðsljósinu.
Kirk gamli hefur sett saman bók um
æviferil sinn og afrek sem heitir My
Stroke of Luck sem mætti útleggjast
Fall mitt í lukkupottinn eða eitthvað í
Sþá áttina. Hann
var að kynna bók-
ina á dögunum í
verslunarmiðstöð
líkt og menn
þekkja héðan að
heiman úr jóla-
bókaflóðinu góð-
Michael Douglas kunna.
Hann skyggði á Michael sonur
aldraöan fööur hans ákvað að
mæta á staðinn
ásamt konu sinni Catherine Zeta-Jones
og hjálpa þeim gamla að vekja athygli
á bókinni.
Það dró að þeim svo mikinn múg að
lögreglan á staðnum neyddist til þess
að fylgja hjónunum af vettvangi mun
fýrr en ætlað var því óttast var að fólk
myndi troðast undir í látunum og fyr-
irganginum. Þegar Michael og
Catherine vom farin hvarf múgurinn
eins og dögg fyrir sólu og enginn sýndi
bók Kirk gamla hinn minnsta áhuga.
Opiö laugard. 10-16
www.orninn.is
ÖRNINNP*
STOFNAÐ 1925
Njóttu útiverunnar...
a jfc
Skeifunni 11, Sími S88 9890
Söluaðilar Dtisport, Keflavík - Hjólabaer, Selfossi - Sportvep Akureyri
Byggingavöruversl.Sauðárkr. Olíufélag útvegsmanna kafiröi
Eöalsport, Vestmannaeyjum - Pípó, Akranesi
Visa- og Euroraðgr.
2002 hjólalínan er komin
Gerðu góð kaup - Sama verð og í fyrra
KLEIN
Handcrafted Science*