Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2002, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2002, Side 31
LAUGARDAGUR 16. MARS 2002 31 DV Helgarblað Seldi náðanir á uppsprengdu verði - Roger Clinton hagnaðist um milljónatugi í forsetatíð bróður síns Svarti sauðurinn. Roger Clinton er ekki þægur bróðir en forsetinn átti aðeins einn. Ber er hver að baki nema sér bróður eigi. Þessi tilvitnun hljóm- ar einhvern veginn svona í Njálu og allir íslendingar skilja. Ailir vilja eiga góða bræður og milli bræðra er alveg sérstakt samband sem verður aldrei millum annarra minna skyldra karlmanna, hversu náin sem samskipti þeirra kunna að verða. Þeir eru til sem halda því fram að William Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafi verið með eindæmum seinheppinn for- seti að mörgu leyti. Hans verður eflaust lengst minnst fyrir þau fjöl- mörgu hneyksl- ismál sem vörpuðu skugga á feril hans og dvöl í Hvíta húsinu. Nægir þar að minna á fast- eignabrask og málarekstur sem kenndur var við Whitewater og stóð árum sam- an og setti blett á allt heimilis- hald Clinton- hjónanna. Það voru þó smá- munir hjá Lewinsky-mál- inu sem Clint- on barðist við allan sinn feril í embætti og verð- ur varla rakið hér frekar af tillits- semi viö lesendur sem eflaust muna betur eftir því máli en þeir kæra sig um. Nú hefur gamall draugur úr for- setatíð Clintons vaknað upp með látum og sá er enginn annar en Roger hálfbróðir hans. Enginn fyrirmyndarbróðir Roger þessi verður seint talinn til fyrirmyndarbræðra. Hann er ekki með hreina sakaskrá og hefur aldrei tekist að halda almennilega í það sem venjulegir Ameríkanar myndu kalla skikkanlega atvinnu. Hann gerði ítrekaðar tilraunir til þess að skapa sér feril sem bróðir forsetans meðan Clinton var í embætti og kom iðulega fram sem skemmtikraftur og söng og spilaði fyrir áheyrendur sem áttu að gera sér flutninginn að góðu i krafti skyldleika hans við forset- ann. Nú hefur nefnd sem rannsakaði sérstaklega náðanir í forsetatíð Clintons komist að því að Roger muni hafa hagnast um hundruð þúsunda dollara með því að bjóða dæmdum sakamönnum að hafa milligöngu um náðunarbeiðni þeirra. Roger mun hafa orðað það svo að hann myndi gegn vægu gjaldi sjá til þess að pappírarnir kæmust beint i hendur forsetans og fengju þar réttan stimpil. Nefndin telur víst að 13 sakamenn í það minnsta hafi notið þessarar þjónustu og til að bíta höfuðið af skömminni telur nefndin fullsann- að að Roger hafl stundað þessa þjónustu að hvatningu og undir- lagi bróður sins forsetans. Náðun til sölu Margar náðanir sem Clinton lagði blessun sína yfir í sinni for- setatíð þóttu umdeildar en þó tók steininn úr þegar hann var að yf- irgefa Hvíta húsið en þá voru sumir þeir náðaðir sem varla þóttu til þess hæfir. Sérstaklega verð- ur mönnum star- sýnt á kókaínsal- ann Carlos Vignali frá Los Angeles sem Clinton-stjórn- in náðaði en þar mun reyndar Hugh Rodham, mágur Clintons, hafa lagt hönd á plóg. Þessi og fleiri náðanir sem þóttu undarlegar voru í rauninni ástæða þess að umrædd rannsóknarnefnd var sett á fót. Clinton segir þennan öllu tilhæfulausan. Roger áburð með Hann segist persónulega hafa beð- ið Bill bróður sinn að náða sex nána vini sína en á það hafi ekkert verið hlustað og þeir sitja þá vænt- anlega allir inni og segir þessi málflutningur sína sögu um vina- hóp Rogers. Nefndin umrædda kemst að allt annarri niðurstöðu. Roger seldi þjónustu sína svo ákaft að hann setti sig í samband við Ritu nokkra Lavelle sem dæmd var fyrir meinsæri á níunda áratugnum. Frú Lavelle segir að milligöngumaður frá Roger hafi boðið þjónustu hans fyrir 30 þús- und dollara en þegar hún sagðist ekkert geta greitt bauö hann þjón- ustuna ókeypis. Síðasta daginn sem Clinton var forseti hringdi svo Roger í Lavelle og spurði hvort hún gæti útvegað 100 þús- und dollara til að tryggja sér náð- un. Hún bar enn við peningaleysi og beiðni hennar um náðun var hafnað. Milliganga kostar sitt Rannsókn nefndarinnar leiddi einnig í ljós að Roger Clinton fékk að minnsta kosti 335 þúsund doll- ara í ferðatékkum frá Taívan, Suð- ur-Kóreu og Venesúela og hann mun einnig hafa þegið 30 þúsund dollara fyrir að hvetja til þess að Tand Rover Musso Isuzu ALLT PLAST viðskiptabanni á Kúbu yrði aflétt. Hann tók þátt í ráðagerðum um að hafa áhrif á samgönguráðuneyt- ið bandaríska, fékk 50 þúsund doll- ara fyrir að fá Rosario Gambino eiturlyfjasala náðaðan og síðast en ekki síst 225 þúsund dollara fyrir að fá meðlim þekktrar glæpaíjöl- skyldu í Texas leystan úr haldi fyrir skjalafals. Sennilega má Clinton, fyrrver- andi forseti, vera nokkuð ánægður með að eiga ekki fleiri bræður en umræddan Roger. -PÁÁ Roger Clinton Hann hefur alltaf verið svarti sauðurinn í Clinton-ijölskyldunni og nú er að koma í Ijós aö hann er jafnvei enn svartari en áður var taliö. Kænuvogi 17 • Slmi 588 6740 • GSM 895-0585 Framleiðum brettakanta, sólskygni og boddíhluti á fiestar gerðir jeppa, heimasiaa- einnig 1 vörubfla og vanbila. Sérsmíði og viðgerðir. www.8imnet.is/aplast Greiðsluáskorun I nnheimtumenn rikissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöld sem á vom lögð: Staðgreiðsla og tryggingagjald sem fallið hafa í eindaga til og með 15. nóvember 2001, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. nóvember 2001 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. nóvember 2001 á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, áfengisgjaldi, launaskatti, aðstöðugjaldi, bifreiðagjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, búnaðargjaldi, iðgjaldi í Lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlitsgjaldi, vömgjaldi af innlendri framleiðslu, vömgjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjaldi, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi og álögðum opinbemm gjöldum, sem em: tekjuskattur, útsvar, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignaiskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstaria, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, þróunaisjóðsgjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldiaðra, skattur af verslunar- og skrifstafuliúvnæði, ofgieiddar baniabætur, ofgreiddur bamabótaauki og ofgrdddar vaxtalwetur. Fjámáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna, ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjámám í för með sér vemlegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjámámsgjald í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert fjámám. Þinglýsingargjald er 1.200 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Em gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyTst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vömgjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara. Loks mega þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara. Fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. nóvember 2001. Tollstjórinn í Reykjavík Sýslumaðurinn í Kópavogi Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Sýslumaðurinn í Keflavík Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgarnesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Ólafsfirði Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli Gjaldheimta Vestfjarða Gjaldheimta Austurlands Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.