Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2002, Side 61
LAUGARDAGUR 16. MARS 2002_________________________________________
DV_____________________________________________________Helgarblað
Afmælisbörn
Jerry Lewis 76 ára
Gamanleikarar eldast eins og aðrir og í dag er Jerry Lew-
is 76 ára. Hann verður þó alltaf í huga margra göslarinn
mikli sem fékk áhorfendur í kvikmyndahúsum til að hlæja
sig máttlausa á sjötta og sjöunda áratugnum. Jerry Lewis var
skírður Joseph Levitch og er gyðingur eins og svo margir
frægir bandarískir gamanleikarar. Hann var „stand-up“
grínari þegar leiðir hans og Dean Martin lágu saman. Hófu
þeir farsælt samstarf sem skilaði sér í nokkrum gamanmyndum. Þegar upp úr
slitnaði hófu þeir feril hvor í sínu lagi sem gerði þá enn frægari. Lék Lewis í
mörgum eftirminnilegum gamanmyndum sem lifa góðu lífi í dag og hafa sumar
verið endurgerðar. í mörg ár hefur Jerry Lewis verið ósérhlífínn í baráttu sinni
fyrir ýmsa minnihlutahópa og hefur hann verið tilnefndur tii nóbelsverðlaun-
anna fyrir störf sín í baráttunni við taugahrörnunarsjúkdóma.
«*••«**•••**•••»«••••••»»»»**»•••«•»
Kurt Russell 51 árs
Kurt Russell á afmæli á morgun. Þessi ágæti leikari, sem aðallega hefur get-
ið sér orð sem spennumyndaleikari, á langan feril að baki i Hollywood. Hann
byrjaði hjá Disney sem barnaleikari og vann sig upp í táningahlutverk. Um tíma
hugðist hann hætta að leika og gerðist hafhaboltaleikari
en meiðsli gerðu það að verkum að hann varð að hætta og
þá var það næst að fara aftur í leiklistina. Þegar John
Carpenter fékk þá flugu í höfuðið að gera kvikmynd um
Elvis Presley valdi hann Kurt Russell til að leika goðið og
er það samdóma álit flestra að enginn hafi gert betur í að
feta í fótspor meistarans. Frá árinu 1983 hefur Russell ver-
ið í sambúð með Goldie Hawn og eiga þau einn son.
Russell er ofurhugi hinn mesti og gerir enn þann dag i dag
nánast öll áhættuatriði sjálfur.
Stjörnuspá
Gildir fyrir sunnudaginn 17. mars og mánudaginn 18. mars
Vatnsberinn (20. ian.-l8. febr.):
Spá sunnudagsins
Viðkvæmt mál sem teng-
ist fortíðinni kemur upp
og þú átt á hættu að
leiða hugann stöðugt að þvi þó að þú
ættir að einbeita þér að öðru.
Spá mánudagsins
Þó að þér fínnist vinnan vera
mikilvæg þessa dagana ættirðu
ekki að taka hana fram yfir vini
og fjölskyldu. Vertu heiðarlegur.
Hrúturinn (?1. mars-19. anrill:
f^KkSíhkiiiilMaÉÍÉÍÍiÍiikyÍ
Félagsllfið tekur ein-
hveijum breytingum.
Þú færð nýjar
hugmyndir og það gæti verið
upphafið að breytingum.
Spá mánudagsíns:
Það er hætta á deilum í dag þar
sem spenna er í loftinu vegna
atburða sem beðið er eftír. Skipu-
lagning er mikilvæg.
Tvíburarnir (21. mai-21. iúní):
Spá sunnudagsins:
rÞað er jákvætt
andrúmsloft í kringum
þig þessa dagana. Nýr
kunningjahópur kemur mikið við
sögu í kvöld.
Spa mánudagsins
Þú ættir að Ilta í eigin barm áður
en þú gagnrýnir fólkið í kringum
þig. Þú átt auðvelt með að vinna
með fólki í dag.
Liónið (23. iúlí- 22. ágústl:
iffi
mm
Spá mánudagsms
Varastu að sýna fólki tortryggni
og vantreysta því. Þér gengur bet-
ur í dag ef þú vinnur með fólki
heldur en að vinna einn.
Bogmaðurinn (22. nðv.-2i. des.l:
Spá sunnudagsins
’Dagurinn verður
H skemmtilegur að
| mörgu leyti. Þú
kynnist einhveiju nýju og færð
áhugaverða áskorun.
Spá mánudagsins:
Tilfinningamál verða í brennid-
epli. Þú skalt halda þig utan við
þau ef þau snúa ekki að þér beint.
Kvöldið verður ánægjulegt.
Fiskarnir fis. febr.
-2P. marg):
Spá sunnudagsins
*Þú finnur fyrir breyt-
ingum í einkalífinu.
Þú þarft á athygli vina
þinna að halda á næstunni.
Happatölur eru 4, 22 og 34.
Spá mánudagsins
Fjölskyldan ættí að eyða meiri tíma
saman. Það er margt sem kemur
þér á óvart í dag, sérstaklega við-
mót fólks sem þú þekkir litið.
Nautið (20. april-20. maí.l:
eftir fyrrimælum sem þú færð.
Happatölur þínar eru 1,12 og 15.
Spá mánudagsins:
Þú verður fyrir sífelldum truflun-
um í dag og átt erfitt með að ein-
beita þér. Fólk virðist vera upp-
tekið af sjálfu sér.
Krabbinn (22. iúní-22. iúií):
1
Spá sunnudagsins
FÞér miðar hægt við
ákveðið verkefni sem
þú hefúr tekið að þér.
Þetta er ekki hentugur timi til að
gera miklar breytingar.
Spa manudagsins:
Dagurinn einkennist af tímaskorti og
þú verður á þönum fyrri hluta dags-
ins. Reyndu að ljúka þvi sem þú getur
í tíma og ekki taka of mikið að þér.
VQgin i23. sept,-23, okt.l:
Þú verður upptekinn
fyrri hluta dagsins og
missir þar að leiðandi af
einhveiju sem þú hefur beðið eför.
Happatölur þínar eru 3, 8 og 12.
| Þú þarft að huga þig
' vel um áður en
ákvörðun er tekin í
mikilvægu máli. Breytingar í
félagslífinu eru nauðsynlegar.
Dagurinn verður á einhvem hátt
eftirminnilegur og þú tekur þátt í
einhveiju spennandi. Þú ættir að
taka virkari þátt í félagslífinu.
IVIevian (23. áeúst-22. seotJ:
Þér finnst þér ef til
^^^►vill ekki miða vel í
* vinnunni en þú leggur
mikilvægan grunn fyrir starf
næstu vikna.
Spa manudagsins
Þú átt mjög annríkt fyrri hluta
dagsins og fólk er ekki jafntilbúið
að hjálpa þér og þú vildir. Þegar
kvöldar fer allt að ganga betur.
Sporðdrekinn (24. okt.-2i. nóv.t:
Spá sunnudagsins
| Þú heyrir óvænta
pigagnrýni í þinn garð
I og átt erfitt með að
sætta þig við hana. Ekki láta ann-
að fólk koma þér úr jafnvægi.
Spá mánudagsins
Einhver sýnir þér viðmót sem þú
áttir ekki von á. Þó að þú sért
ekki sáttur við það skaltu ekki
láta það koma þér úr jafnvægi.
Stelngeitin (22. des.-i9. ianá
Spá sunnudagsins:
Vinnan gengur hægt
en þú færð hrós fyrir
vel unnið starf. Kvöld-
ið verður rólegt en ef til vill áttu
von á gestum.
Spa mánudagsins
Þú heyrir eitthvað sem kemur þér
á óvart en þú færð betri skýringu
á því áður en langt um líður.
Happatölur þínar em 5, 9 og 24.
Rausnar-
legur
skilnaður
Leikkonan
Drew Barrymore
virðist ekki hafa
neitt sérstaklega
gott lag á því að
vera gift. Hún
var nú samt talin
eiginkona
grínistans og
leikarans Tom
Green í nærri sex
mánuði í lok sið-
asta árs.
Skilnaður þeirra eru nú orðinn
að veruleika og það þykir sýna gott
samkomulag þeirra hve örlát Drew
er við Tom í búslitum þeirra. Hún
hefur nefnilega ákveðið að fyrir
þetta sex mánaða hjónaband, þar
sem hann var eiginlega aldrei
heima, megi hann eiga húsið þeirra
í Beverly Hills.
Þetta er enginn hjallur heldur
reisulegt einbýlishús sem metið er á
um þrjár milljónir punda sem mun
vera um 400 milljónir íslenskra
króna.
Að vísu er enn verið að endur-
byggja húsið eftir að það skemmdist
mikið í eldi síðasta ár. Það ætti nú
samt ekki að koma að sök. Drew er
sjálf flutt inn í splunkunýtt hús sem
hún greiddi svipað verð fyrir og það
gamla en því nýja fylgja fleiri gesta-
hús.
Það er haft í flimtingum í
Hollywood að margir muni verða til
þess að biðja hennar á næstu mán-
uðum með það í huga að eignast
fasteign á eftirsóttum stað. Drew
virðist ekki vera fráhverf hjóna-
bandi því hún hefur sést úti á
galeiðunni með hinum og þessum
lausbeisluðum leikurum og stjöm-
um. Því er þess vegna spáð að hún
sofi ekki lengi ein í nýja húsinu.
Drew
Barrymore.
Cher
ræðst
gegn ráð-
herranum
Við lifum á vá-
legum tímum og
lítið fer fyrir rödd
skynseminnar.
Reyndar voru
einhverjir búnir
að skipuleggja
leit að rödd skyn-
seminnar en þá
hljómaði hún allt
í einu skýrt og
hátt. Það verður
að segjast að hún kom úr nokkuð
óvæntri átt, eða úr barka söngkon-
unnar Cher. Hún hefur svo sem
aldrei látið lítið fyrir sér fara og
verið óhrædd við að koma skoðun-
um sinum á framfæri. Hún réðst
um daginn gegn dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, John Ashcroft.
Hann er sem kunnugt er nokkuð
langt til hægri í amerískum stjórn-
málum.
Ashcroft er fremur viðkvæmur
fyrir nöktu holdi eins og vill verða
um siðavanda hægrimenn í Banda-
ríkjunum. Holdið þarf reyndar ekki
að vera lifandi því fyrir skömmu
fyrirskipaði Ashcroft að stytta af
berbrjósta kvenveru yrði hulin svo
hann þyrfti ekki að blygðast sin
þegar hann héldi ræður fyrir fram-
an hana. Reyndar hefur Ashcroft
einnig fyrirskipað að starfsmenn
ráðuneytisins verði að syngja ætt-
jarðarsöng eftir hann sjálfan á
hverjum degi. Cher hefur ekkert við
sönginn að athuga en henni finnst
fáránlegt að hylja styttuna. „Hvað
ætla þeir að gera næst?“ spyr Cher,
„setja Davíð í stuttbuxur og Venus
frá Míló í skyrtu? Þegar byrjað er á
þessu ákveða þeir kannski hvaða
bækur er rétt að lesa og þá missum
við aUt okkar frelsi.“
73
lu
Araraiiræii :I3ÍTW:IiI
Skráður 1983, ekinn 175.000 km.
2 dyra, útvarp, segulband,
vökvastýri, samlæsingar, litað gler,
plussáklæði og álfelgur.
Upplýsingar í Bílaböllinni hf.
Sími 567 4949.
Vib Fellsmúla
Sími 588 7332
Marstilboð
eða meðan birgðir endast
Heilir sturtuklefar
innifatfó
í veröi
Bíöndunartæki
Sturtusett
63.900,- stgr
kl. 10-14