Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2002, Side 24
36
___________________MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2002
Tilvera I>V
Lopatöskur 1
Gallerí Sautján
Á Kafílhúsinu í GaUerí Sautján á
Laugavegi stendur yfir sýning á
lopahandtöskum sem ungur bresk-
ur listanemi, sem hefur verið
skiptinemi í textíldeildar Listahá-
skóla íslands undanfama þrjá mán-
uði. Afraksturinn má sjá á
afgreiðslutíma verslunarinnar 17 og
stendur sýningin út mánuðinn.
•Klassík
■ SÖNGTÓNUIKAR 1 kvöld, kl. 20,
verða söngtónleikar þar sem
Hlöðver Sigurðsson tenór og Ant-
onía Hevesi píanóleikari flytja ís-
lensk sönglög eftir Karl 0. Runólfs-
son, Sigfús Halldórsson, Sigvalda
Kaldalóns og Sveinbjörn Svein-
bjömsson, svo og óperuaríur og
sönglög eftir V. Bellini, G. Donizetti,
G. Fauré, U. Giordano og F.
Schubert.
•B í ó
■ FILMUNPUR Að þessu sinni sýnir
Fiimundur frönsku teiknimyndina
Le roi et l’oiseau, eða Konungur-
inn og fuglinn, frá 1979. Hún er
gerð af einum ástsælasta teikni-
myndagerðarmanni Frakka, Paul
Grimault, og skrifar hann einnig
handritið i samvinnu við skáldið
Jacques Prévert en það er byggt á
einu ævintýra H.C. Andersens. Kon-
ungurinn og fuglinn verður sýnd í
Háskólabíói í dag, kl. 22.30.
• Op n anir
■ BÚTASAUMSHÁTIÐ í GERPUBERGI
Hin árlega vorhátíð íslenska búta-
saumsfélagsins verður í Menning-
armiðstöðinni Gerðubergi. Hátíðin
er í tengslum við aðalfund félags-
ins sem verður haldinn sama dag
kl. 12-13 á sama stað. Haldin verða
stutt námskeið fyrir félagsmenn
og helstu bútasaumsverslanir
verða með kynningar. Félagar úr
klúbbnum Bútalist á Selfossi
halda sýningu á verkum sínum og
verður hún opnuð kl. 14. Sýningin
verður opin til 21. apríl.
■ KÍNVERSK LIST Á KJARVALSSTÖP-
UM Sýningin Kínversk samtíma-
Ust er þessa dagana i Listasafni
Reykjavíkur en á henni eru til sýn-
is 26 verk úr einkasafni Ferdin-
ands Leferinks. Verkin era áhrifa-
mikil og litsterk en ákaflega ólik
hefðbundinni kínverskri mynd-
list með allri sinni mýkt. Meðal
listamanna sem verk eiga á sýning-
unni eru Fang Lijun, Yue Minjun og
Yang Shaobin.
Kínversk list í Listasafni Reykjavíkur:
Frá Kína til
Kjarvalsstaða
Á laugardaginn var sýningin Kín-
versk list opnuð á Kjarvalsstöðum
en hún samanstendur af verkum úr
eigu hollenska listaverkasafnarans
Ferdinands Leferinks. Leferink hef-
ur um langt skeið safnaö verkum
eftir unga og framsækna kínverska
myndlistarmenn og er þetta í fyrsta
sinn sem hann sýnir safnið opinber-
lega. Verkin á sýningunni era eftir
sex málara sem allir eiga það sam-
eiginlegt að hafa komið fram á sjón-
arsviðið eftir átökin á Torgi hins
himneska friðar árið 1989. Verkin
þykja í senn litsterk og áhrifamikil
og gefa góða innsýn í kínverska
málaralist á okkar dögum.
Fjórar stúlkur
Þrjár yngismeyjar virða fyrir sér verkið Félaga
eftir myndlistarmanninn Zhang Xiaogang.
. DV-MYNDIR EINAR J
I góðu tómi
Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur,
ásamt Ferdinand Leferink iistaverkasafnara en öll verkin á sýningunni
eru úr einkasafni hans.
Sposkir á svip
Sigurður A. Magnússon rithöfundur og Helgi Helgason voru meöal gesta
á opnun sýningarinnar Kínversk list á Kjarvalsstöðum.
Norðlensk tónlistarveisla
Blásið var til sannkallaðrar tón-
listarveislu að norðlenskum hætti í
Háskólabíói á sunnudaginn þegar
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
hélt þar tónleika ásamt Karlakóm-
um Heimi og Álftagerðisbræðum.
Þar að auki sungu Sigrún Hjálmtýs-
dóttir og Óskar Pétursson einsöng
og dúetta eins og þeim er einum lag-
ið á tónleikunum. Um tónsprotann
hélt Guðmundur Óli Gunnarsson en
konsertmeistari var Sigrún Eð-
valdsdóttir. Ekki var annað að
heyra en Reykvíkingar kynnu vel
að meta þetta framlag norðan-
manna til tónlistarlifsins því að þeir
klöppuðu vel og lengi fyrir tónlistar-
mönnunum að leik loknum.
Stund milll strióa
Félagar í Karlakórnum Heimi
slaka á í hléi, líta í blöðin og
fá sér kaffisopa áður en lagt
er í seinni hálfleik.
Glatt á hjalla
Einsöngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir og Óskar Pétursson
slógu á létta strengi í hléi.
DV-MYNDIR EINAR J.
Sigrún Eövaldsdóttir, fiöluleikari og konsertmeistari, ásamt eiginmanni
sínum, Halldóri Pétri Þorsteinssyni.