Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Blaðsíða 12
12
Útlönd
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002
DV
REUTERS-MYND
Nýr forsætisráöherra í París
Jean-Pierre Raffarin, 53 ára gamall
landsbyggðarmaöur, verður forsætis-
ráðherra Frakklands næstu 6 vikur.
Nýr forsætisráð-
herra í Frakkandi
Nýskipaður forsætisráðherra
Frakklands, Jean-Pierre Raffarin,
skipar nýja stjóm landsins í dag
sem ætlað er að sitja við völd fram
að þingkosningunum eftir sex vik-
ur. Lionel Jospin, fráfarandi forsæt-
isráðherra, sagði af sér í gær, eins
og hann hafði lofað í kjölfar ófar-
anna í fyrri umferð forsetakosning-
anna í apríl þegar hann var sleginn
út af Jean-Marie Le Pen.
Raffarin er landsbyggðarmaður
og tiltölulega lítt þekktur meðal al-
mennings í Frakklandi. Hann fær
nú það erfiða verki að reyna að end-
urheimta traust kjósenda á stjórn-
málamönnum eftir velgengni hægri
öfgamannsins Le Pens i forseta-
kosningunum og um leið að tryggja
að mið- og hægriflokkarnir fái
meirihluta í þingkosningunum.
Talið er að Chirac forseti hafi
skipað Raffarin vegna hæfileika
hans til að sætta menn.
Fórnarlömb
ferjuslyss grafin
Tugir grátandi kvenna teygðu
hendur sinar til himins í leit að guð-
dómlegri blessun þegar siðustu lik
fómarlamba ferjuslyssins í Bangla-
dess í síðustu viku voru jarðsett í
dag.
Björgunarmönnum hafði fyrr um
daginn tekist að ná síðustu nitján
líkunum úr flaki ferjunnar í Meg-
hna-ánni. Á fjórða hundrað manna
drukknaði í slysinu og tuga er enn
saknað. Slysið er hið næstmesta í
sögu Bangladess.
Likin nítján voru sett í fjöldagröf
eftir bænastund á árbakkanum sem
um 150 karlar sóttu. Konurnar
fylgdust með álengdar og grétu. Lík-
in voru svo illa rotnuö að ekki var
hægt að flytja þau lengra.
Eymd í Afganistan.
Ekki staðið við
gefin loforð
Amin Fahang, ráðherra uppbygg-
ingarmála í Afganistan, kvartaði yfir
því í gær að þær þjóðir sem lofað
hefðu fjármagni til uppbyggingar-
starfsins í landinu hefðu ekki staðið
við gefm loforð nema að hluta til. Á
ráðstefnu sem haldin var í Tokyo í
janúar var Afgönum lofað 4,5 milljörð-
um dollara til næstu fimm ára, þar af
1,8 milljörðum í ár, og sagði Fahang
að aðeins helmingur þess fjármagns
heföi skilað sér þó árið væru nú nær
hálfnað. Fahang hyggst ræöa málið
við Gerhard Schröder, kanslara
Þýskaiands, þegar hann kemur til
Kabúl á fímmtudaginn.
Ariel Sharon hittir Bush Bandaríkjaforseta á fundi í dag:
Stefnir í samkomulag
um umsátrið í Betlehem
Rúmlega fimm vikna löngu umsátri
ísraelsmanna um Fæðingarkirkjuna i
Betlehem er loksins lokið eftir að
samkomulag náðist í gær eftir næst-
um tveggja sólarhringa langan samn-
ingafund sem haldinn var að tilstuðl-
an Bandaríkjamanna og Evrópusam-
bandsins.
Krafa ísraelsmanna hefur til þessa
verið að fá framselda um þrjátiu
meinta hryðjuverkamenn sem flúðu
ásamt um tvö hundruð óbreyttum
borgurum til kirkjunnar í upphafi
innrásar ísraelsmanna í bæinn og
mun samkomulag hafa náðst um að
þrettán þeirra veröi fluttir í gæslu-
varðhald til Ítalíu í gegnum Egypta-
land og aðrir 26 til Gazasvæðisins.
Tveir samningamenn Palestínu-
manna héldu til fundar við meinta
hryðjuverkamenn í kirkjunni í morg-
un og var búist við að brottflutningur
þeirra hæfist strax í dag ef samkomu-
lag næðist.
Fulltrúar hafa einnig verið sendir
til Ítalíu og Egyptalands til að undir-
búa flutninginn og fá samþykki
Beðist vægðar í Betlehem
Palestínsk kona, móöir eins meintra
hryðjuverkamanna sem dvalið hafa
síðustu fimm vikurnar í Fæðingar-
kirkjunni, biöur syni sínum vægðar.
ítalskra stjómvalda fyrir móttöku og
gæslu mannanna. Engar fréttir höfðu
í morgun borist af brottflutningi Isra-
elsmanna af svæðinu og heldur ekki
ljóst hvenær óbreyttir borgarar fá að
yfirgefa kirkjuna.
Samkomulagið milli deiluaðila náð-
ist nokkrum stundum áður en Ariel
Sharon, forsætisráðherra Israels,
gengur á fund Bush Bandaríkjaforseta
í Washington í dag en í gær hitti hann
þá Colin Poweli utanríkisráðherra og
Donald Rumsfeld varnarmálaráð-
herra þar sem hann jafnaði aðgerðir
ísraelsmanna á Vesturbakkanum við
aðgerðir Bandaríkjamanna eftir
hryðjuverkaárásimar þann 11. sept-
ember sl.
Á sama tima héldu ísraelskar her-
sveitir áfram aðgerðum í bænum
Tulkarm á Vesturbakkanum, að
þeirra sögn til að leita uppi hryðju-
verkamenn. Þá voru tveir palestínsk-
ir byssumenn skotnir tfl bana í gær í
nágrenni bæjarins Kissufun í suður-
hluta ísraels eftir að þeim hafði tekist
að læðast yfir landamærin.
REUTERSMYND
Páfa svarin hollusta
Nýr liðsmaður Hfvaröarsveitar vatíkansins í Róm sver páfa hér hollustu sína við hátíðlega athöfn eins og venja hefur
verið í þau tæplega fímm hundruð ár sem lífvarðarsveitin hefur starfað. Hún er eingöngu skipuð einhleypum
svissneskum mönnum, sem verða að vera aö minnsta kosti 174 sentímetrar á hæð og skegglausir.
Frelsi Aung San Suu Kyi í Burma fagnað víða um heim:
Efast um lýðræðisvilja
herforingjastjórnarinnar
Baráttukonan Aung San Suu Kyi,
leiðtogi stjórnarandstöðunnar í
Burma, hitti erlenda stjómarerind-
reka á heimili sínu í Rangoon í
morgun. Sólarhringur var þá liðinn
frá því herforingjastjómin í Burma
lét hana lausa úr stofufangelsi þar
sem henn hafði verið haldið í hálft
annað ár. Síðar hitti Suu Kyi félaga
sína í Lýðræðisfylkingunni.
Fram undan er löng og ströng
barátta fyrir því að endurreisa lýð-
ræði í landinu og innleiða pólitísk-
ar umbætur.
Leiðtogar þjóða heims fognuðu
mjög frelsi Suu Kyi sem fékk friðar-
verðlaun Nóbels árið 1991 en sögðu
jafnframt að frelsi hennar væri að-
eins fyrsta skrefið í átt til endur-
reisnar lýðræðisins.
Margir stjómmálaskýrendur hafa
ekki látið sannfærast um að herfor-
REUTERSMYND
Umkringd velunnurum
Baráttukonan Aung San Suu Kyi var
umkringd stuöningsmönnum sínum
þegar hún heimsótti höfuðstöðvar
Lýðræöisfylkingarinnar á fyrsta degi
nýfengins frelsis í gær.
ingjastjórnin ætli sér af alvöru að
innleiða lýðræði í Burma. Stjómar-
erindrekar sögðu að almennt væri
litið á lausn baráttukonunnar sem
tilraun herforingjanna til að fá
aflétt refsiaðgerðum sem Burma
hefur verið beitt undanfarin ár.
Herinn hefur farið með stjóm í
Burma í fjóra áratugi og stjómend-
ur hans segja að landið, þar sem
fjölmargir þjóðflokkar búa, kunni
að liðast í sundur verði lýðræði
komið á í of mikium flýti.
Suu Kyi segist ætla að nota ný-
fengið frelsi til að ferðast vítt og
breitt um landið til að ræða við
aðra baráttumenn fyrir lýðræði og
tfl að renna styrkari stoðum undir
fylgi við flokk sinn.
Við kvöldsetur í gær heimsótti
hún Shwedagon Paya, helgasta stað
Búddatrúarmanna í landinu.
Koizumi iofar aðgerðum
Bforsætisráðherra Jap-
ans, hét því í morgun
gegn hneykslismálum
sem hafa grafið und-
til þess að margir em famir að efast
um umbótavilja hans.
Níðingsprestur fyrir rétt
Bandaríski presturinn Paul Sh-
anley, sem hefur verið ákærður fyr-
ir að nauðga ungum dreng marg-
sinnis, verður færður fyrir dómara
í dag. Shanley er prestur kaþólsku
kirkjunnar.
Rörasprengjur í pósti
Tvær rörasprengjur fundust í
póstkössum í Nebraska og Kólóradó
í gær tfl viðbótar sprengjum sem
þegar höfðu fundist. Talið er að
óvinir ríkisvaldsins hafi komið
sprengjunum fyrir.
Nýr réttur fyrir drottningu
Kokkar hennar hátignar Elísabet-
ar Englandsdrottningar hafa búið
til nýjan gómsætan kjúklingarétt i
tilefni 50 ára krýningarafmælis
drottningarinnar og er honum ætl-
að að leysa af hólmi gamlan rétt
sem vinsæll er í lautarferðum og
var gerður þegar drottning var
krýnd árið 1952.
Leitað að talibönum
Kanadískir hermenn hafa undan-
fama þrjá daga leitað að talibönum
og vígamönnum al-Qaeda í austur-
hluta Afganistans.
Hertar reglur um byssur
Bl'lifi'’**' "’ii iM Gerhard Schröder
■P^fl Þýskalandskanslari
j|r| og sextán leiðtogar
fylkjanna urðu sam-
i mála um það í gær
^ að herða enn frekar
eign. Er það gert til að koma í veg
fyrir að harmleikurinn í Erfurt, þar
sem sautján létu lífið í árás í
menntaskóla, endurtaki sig.
Rekin fyrir brandara
Ann Winterton, þingmaður
breska íhaldsflokksins, var rekin úr
skuggaráðuneyti flokksins fyrir að
segja brandara sem byggðist á kyn-
þáttafordómum í veislu með rúgbý-
liöi á dögunum. íhaldið ætlar ekki
að liða slíkt framferði.
Lofar skattalækkun
Edmund Stoiber,
kanslaraefni þýskra
íhaldsmanna í kosn-
ingunum í haust,
lofaði i gær skatta-
lækkunum og bein-
greiðslum til fiöl-
skyldna til að laða
að sér enn fleiri
kjósendur. Samkvæmt könmmum
hafa íhaldsflokkamir forskot á jafn-
aðarmenn Schröders kanslara.
Leitað á rusiahaugi
Lögregla í San Diego i Kalifomíu
og bandarískir landgönguliðar leit-
uðu í gær í um fimm þúsund tonn-
um af sorpi að vísbendingum um
tveggja ára gamlan dreng sem hvarf
fyrir tólf dögum.