Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Blaðsíða 1
Forstjóri Samkeppnisstofnunar þiggur laun fyrir lögbundna stjórnarsetu:
Fær
á ári
Georg Ólafsson, forstjóri Sam-
keppnisstofnunar, og Jón Ögmundur
Þormóðsson, skrifstofustjóri í við-
skiptaráðuneytinu, þiggja báðir
hundruð þúsunda króna í árslaun
fyrir að sitja i stjóm Flutningsjöfn-
unarsjóðs oliuvara. Guðrún Zoéga,
formaður kjaranefndar, segir nefnd-
ina ekki hafa vitað um þessar greiðsl-
ur en laun beggja embættismanna
em ákvörðuð af kjaranefnd.
„Ég hafði ekki hugmynd um að Ge-
org og Jón Ögmundur fengju greitt
hálfa milljón króna
fram hjá kjaranefnd
fyrir þessi störf,“ sagði Valgerður
Sverrisdóttir viðskiptaráðherra við
DV í gærkvöld og kunni heldur ekki
skýringar á því hvernig þessar
greiðslur gátu farið fram hjá kjara-
nefnd. „Hins vegar þykir mér eðhlegt
að þessir menn sitji í Flutningsjöfn-
unarsjóði olíuvara. Hvort þessi
nefndarstörf falli undir starfssvið for-
stjóra Samkeppnisstofnunar hef ég
ekki kynnt mér.“
1 reglum kjaranefndar segir að
embættismanni eigi ekki að greiða
sérstaklega fyrir að sitja í nefnd ef
seta hans í nefndinni er ákveðin með
lögum. í 6. grein laga um Flutnings-
jöfnunarsjóð segir að stjórnarfor-
mennska skuli vera í höndum for-
stjóra Samkeppnisstofnunar. Reglur
kjaranefndar gilda jafnt um nefhda-
setu og stjómarsetu. Samkvæmt
þessu á forstjóri Samkeppnisstofnun-
ar ekki rétt á sérstökum launum fyr-
ir stjómarformennskuna. Fyrir hana
hefur hann þó þegið 500.000 krónur á
ári.
Georg Ólafsson, forstjóri Sam-
keppnisstofnunar, sagði við DV á
þriðjudaginn var að kjaranefnd
hefði lagt blessun sína yfir þessar
greiðslur. Pappirar þar að lútandi
eru hins vegar ekki komnir í leit-
irnar. „En ég stend í þeirri trú að
kjaranefnd sé fullkunnugt um setu
mína í þessari stjórn og greiðslur
sem ég hef þegið fyrir hana,“ sagði
Georg við DV.
Reglur kjaranefndar segja enn
fremur að embættismenn skuli
ekki þiggja sérstakar greiðslur fyr-
ir setu í nefnd ef verkefni hennar
tengjast þeirri stofnun eða því
ráðuneyti sem þeir starfa við.
Skrifstofustjóri í viðskiptaráðu-
neytinu situr í stjóminni, skipaður
af ráðherra, og þiggur 400.000 krón-
ur á ári fyrir stjómarsetuna.
-ÓTG/GG
■ NÁNARI UMFJÖLLUN
Á BLS. 4 í DAG
KOQfhlM
Guöjón Þórðarson og
lærisveinar hans í Stoke
eru komnir upp í 1. deild
eftir tveggja og hálfs árs
baráttu. Þrátt fyrir þennan
árangur er framtíð Guðjóns
hjá félaginu óráðin.
Bls. 24
SAUÐBURÐUR HAFINN Á
MOLASTÖÐUM í FLJÓTUM:
19-21
KA ÍSLANDSMEISTARI
í ANNAÐ SINN:
Vann þrjá
leiki í röð