Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Blaðsíða 10
10
Útlönd
MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2002
DV
Pretty-hjónin
Diane Pretty hefur nú fengið friðinn
sem hún þráði.
Diane Pretty
lést í gær
Enska konan Diane Pretty, sem
barðist harðri baráttu fyrir því að
fá að deyja, bæði fyrir breskum
dómstólum og síðan fyrir Mannrétt-
indadómstóli Evrópu fyrir um það
bil hálfum mánuði, lést á hjúkrun-
arheimili i nágrenni heimilis síns í
Luton á Englandi i gær. Pretty, sem
þjáðist af ólæknandi taugasjúkdómi
og var lömuð frá hálsi, hafði átt
erfitt með öndun síðustu tíu daga og
féll síðan í dá á flmmtudagskvöld.
Að sögn eiginmanns hennar gekk
hún síðustu dagana í gegnum það
sem hún hafði óttast mest, sem var
að þjást. „Við gátum ekkert gert til
að hjálpa henni og nú hefur hún
loks fengið friðinn sem hún þráði
svo heitt,“ sagði eiginmaðurinn.
Norsku krónprinshjónin
Hákon krónprins afNoregi fór einn í op-
inbera heimsókn til Þýskalands í gær,
eftir að hann og kona hans höfðu hlotið
alvarlegan sólbruna í viðtali við þýska
sjónvarpsstöð.
Konunglegur sól-
bruni í Noregi
Eldrauð, blind og sárþjáð er lýsing-
in sem á við um Hákon ríkisarfa Nor-
egs og eiginkonu hans, hennar kon-
unglegu hátign Mette-Marit, eftir við-
tal við þýsku sjónvarpsstöðina n-tv í
síðustu viku sem tekið var í tilefni op-
inberrar heimsóknar þeirra til Þýska-
lands, sem hefjast átti í gær.
Viðtalið við krónprinshjónin var
tekið í vorblíðunni í garðinum við
heimili þeirra í Skaugum, með þeim
afleiðingum að bæði hlutu þau alvar-
legan sólbruna, auk þess sem krón-
prinsessan fékk áverka á homhimnu
augna sinna. Eftir viðtalið voru þau
flutt á sjúkrahús þar sem þau fengu
meðhöndlun en var síðan leyft að fara
heim aftur.
Samkvæmt upplýsingum frá lækni
hirðarinnar, Jan Petter Blomhoff,
hlutu bæði hjónin annars stigs bruna
auk sárinda í augum og þrátt fyrir
bæði brunasmyrsl og augndropa er
enn töluvert í land með að þau nái sér
að fullu. Ríkisarfinn hélt þó til Þýska-
lands í gær en að sögn blaðafufltrúa
hirðarinnar verður krónprinsessan
eftir heima og verður að halda sig
innandyra í lítilli birtu meðan augu
hennar eru að jafna sig.
Þýska sjónvarpsstöðin hefur lýst
yflr leiða sínum yfir að notkun þeirra
á sterkum ljóskösturum hafi hugsan-
lega orðið til þess að ríkiserfinginn og
kona hans urðu svo illa úti vegna sól-
branans.
-GÞÖ
Sharon varð undir í atkvæðagreiðslu:
Likud-bandalagið
hafnar palestínsku ríki
Ariel Sharon, forsætisráðherra
ísraels, varð í gær undir í atkvæða-
greiðslu í miðstjórn Likud-bandalags-
ins þegar kosið var um það hvort
flokkurinn mundi styðja stofnun
palestinsks ríkis í fyrirhuguðum
friðarviðræðum.
Það var Binyamins Netanyahu,
fyrrum forsætisráðherra ísraels, sem
lagði tillöguna fram gegn vilja Shar-
ons og hlaut hún mikið meirihluta-
fylgi miðstjórnarmanna, 669:465, sem
verður að teljast mikið áfall fyrir
Sharon en fyrr á fundinum hafði hann
hvatt samflokksmenn sina til að loka
ekki á það að gert yrði ráð fyrir
palestínsku ríki í væntanlegum frið-
arsamningum við Palestínumenn.
Þessi niðurstaða kemur sannarlega
á óvart og gæti hugsanlega átt eftir að
hafa alvarlegar afleiðingar i for með
sér. Sharon sagðist virða niðurstöð-
una og sagði að hún hefði engin áhrif
á ætlun sína um að sitja áfram í for-
sætisráðherrastólnum og fyrirætlanir
um að koma á friði.
Ariel Sharon.
Hann hafði áður sagt í ávarpi að
friður kæmist ekki á í Mið-Austur-
löndum fyrr en hryðjuverkin væru úr
sögunni og rækileg uppstokkun hefði
orðið í forystuliði Palestínumanna.
„En áður verður í fyrsta lagi að binda
enda á ofbeldið og hryðjuverkin og í
öðru lagi verða palestínsk stjómvöld
að tryggja algiöra uppstokkun, ekki
bara í forystuliðinu heldur líka hvað
varðar öryggi og efnahag og ekki síst
að koma á lögum og reglu meðal þjóð-
arinnar,“ sagði Sharon og bætti við að
fyrr væri ekki um neitt að semja.
Á sama tíma hafa ísraelsmenn
frestað öllum aðgerðum á Gaza-svæð-
inu og sent Vciraliðið aftur heim en
það var kallað út eftir sjálfs-
morðsárásina á skemmtistaðinn í ná-
grenni Tel Aviv á þriðjudaginn þar
sem fimmtán manns létust.
Að sögn Binyamin Ben-Eliezer,
vamarmálaráðherra ísraels, þýðir
það ekki að ísraelsher sé að gefast upp
gegn hryðjuverkunum heldur aðeins
að verið sé að endurskoða baráttuað-
ferðimar.
Þrátt fyrir það hafa hafa róstur
haldið áfram á svæðinu og á fóstudag
var þrettán ára palestínskur drengur
skotinn til bana og tveir aðrir særðir
þegar til ófriðar kom við gæslustöð
ísraelska hersins við bæinn Qami.
REUTERSMYND
Ungir maóistar marséra í Nepal
Ungir maóistar ganga hér fylktu liði til að fagna góðum árangri sínum í baráttunni gegn stjórnarhernum í Nepal, en í
gær kom til harðra bardaga þar sem að minnsta kosti 27 þeirra létu lífið.
Sjö farast í eldsvoða í
Huddersfield á Englandi
- fjórir handteknir, grunaðir um íkveikju
Lögreglan i Huddersfleld á Eng-
landi hefur handtekið fjóra menn
vegna rannsóknar á bruna sem varð
sjö manns að bana í fyrrinótt, en
meðal hinna látnu voru fimm syst-
ur á aldrinum sex mánaða til þrett-
án ára.
Eldsins varð vart um tvöleytið að
staðartima i fyrrinótt og að sögn
lögreglu lék strax grunur á aö um
íkveikju væri að ræða, þar sem þrir
til fjórir menn sáust hlaupa af vett-
vangi.
Að sögn sjónarvotta voru þeir af
asísku bergi brotnir, á aldrinum 18
til 20 ára og sáust þeir henda ein-
hverju að húsinu sem talið er að
hafi verið bensínsprengjur.
Ellefu manns voru í húsinu þegar
eldurinn kom upp og tókst fjórum
fullorðnum að bjarga sér á hlaupum
undan eldinum sem að sögn sjónar-
Frá vettvangi í Huddersfield
Rannsóknarliðar lögreglunnar í
Huddersfield að störfum.
votta breiddist út með leifturhraða.
Tvö þeirra dvelja nú á sjúkrahúsi,
annað illa skorið eftir að hafa
stokkið út um glugga og hitt illa
brennt.
Húsið, sem er tveggja hæða, er í
eigu pakistanskrar fjölskyldu sem
þar bjó og talið er að telpurnar hafi
verið þar gestkomandi ásamt móður
sinni og verið nýkomnar frá
Pakistan í frii. Grunur leikur á að
öll hafi þau verið sofandi á efri
hæðinni þegar kveikt var í, en talið
er að upptök eldsins hafi verið á
neðri hæðinni þegar bensín-
sprengjunum var kastað þar inn um
glugga í anddyri.
Hinir grunuðu voru handteknir í
gærkvöld en nánari upplýsingar um
nöfn þeirra eða ástæðu fyrir
íkveikjunni fengust ekki uppgefnar.
mmnmm:
Loftið féll niður
Óttast er að allt
að átta verkamenn,
sem unnu að við-
gerðum, hafi slasast
alvarlega þegar
hluti þaks Baikon-
ur-geimferðstofnun-
arinnarí Kazakhst-
an féll niður í gær.
Byggingin er 70 til
100 metra há og
hýsir meðal annars Buran-geim-
skutlima sem notuð er til að ferja
geimfara til alþjóðlegu geimstöðvar-
innar sem er á sporbraut um jörðu.
Engar nánari fréttir höfðu borist af
slysinu í gærkvöld en að sögn rúss-
neskra yfirvalda voru björgunarlið-
ar á leiðinni á slysstaðinn og var
óttast að mennimir væru enn fastir
undir rútunum.
Ellefu farast I lestarslysi
Að minnsta kosti ellefu manns
eru taldir af og meira en hundrað
slasaðir eftir lestarslys sem varð í
Uttar Pradesh-héraði í norðurhluta
Indlands í gær.
Að sögn stjórnvalda er ekki útlok-
að að um skemmdarverk sé að ræða
en þrettán af 24 vögnum lestarinnar
munu hafa lent út af sporinu.
aðgerðum
Pervez Mus-
harraf, forseti
Pakistans, til-
kynnti í gær að
gripiö yrði til víð-
tækra aðgerða
gegn hryðjuverk-
um í landinu í
kjölfar sjálfs-
morðsárásarinnar
í Karachi á mið-
vikudaginn þar sem fimmtán
manns létu lífið. Flestir hinna látnu
voru franskir tæknimenn sem unnu
fyrir pakistanska sjóherinn en til-
ræðismaðurinn ók bil sinum í veg
fyrir hópferðabifreið sem þeir ferð-
uðust með.
Ariana hefur áætlunarflug
Afganska rikisflugfélagið Ariana
hefur byrjað áætlunaraflug milli
Kabul og Islamabad í Pakistan og
var fyrsta ferðin farin í gær og var
jafnframt fyrsta flugið milli höfuð-
borgtanna síðan í tíð talíbanastjórn-
arinnar.
Pakistanska flugfélagið PIA mun
einnig fljótlega hyggja á áætlunar-
flug flug milli borganna og þykir
það vísbending um að afganskur
efnahagur sé eitthvað að rétta úr
kútnum.
Eldflaugaárás í Pakistan
Sprengjuflaug var um helgina
skotið að yfirgefnu skólahúsnæði í
Pakistan þar sem talið er að banda-
rískir sérsveitarmenn, sem leita al-
Qaeda-liða í fjaUendinu á landa-
mærum Afganistans, hafi bæki-
stöðvar sínar. Flaugin mun hafa
misst marks þannig að ekki var ótt-
ast um að neinn hefði farist eða
slasast. Þetta er í annað skipti sem
eldflaug er skotið að hugsanlegri
bækistöð bandarísku sérsveitanna á
svæðinu á undanfórum tveimur
vikum og leikur grunur á að al-
Qaeda-liðar hafi verið þar að verki.
Gin- og klaufaveiki
Óttast er að skæður gin- og
klaufaveikifarandur geti verið í
uppsiglingu í Suður-Kóreu eftir að
sjúkdómsins var vart á fjórum
svínabúum í norðurhluta landsins
um helgina en áður hafi verið til-
kynnt um þrjú tilfelli í nágrenni
Seúl, höfuðborgar landsins.
Powell bjartsýnn
Colin Powell, ut-
anríkisráðherra
Bandaríkjanna,
sagði í viðtali í gær
að hann væri bjart-
sýnn á að samkomu-
lag um fækkun lang-
drægra kjamaflauga
næðust á leiðtoga-
fundinum sem fyrir-
hugaður er í Moskvu í lok mánaðar-
ins.
Pervez lofar