Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2002 DV Fréttir Forstjóri Samkeppnisstofnunar þiggur laun fyrir lögbundna stjórnarsetu: Fimm hundruð þúsund fram hjá kjaranefnd - og 400 þúsund til skrifstofustjóra í viðskiptaráðuneytinu „Við vissum ekki um þessar greiðslur vegna stjómarstarfa í Flutningsjöfnunarsjóði og höfum því aldrei fjallað um þær,“ segir Guðrún Zoéga, formaður kjara- nefndar, um laun sem forstjóri Samkeppnisstofnunar og skrif- stofustjóri í viðskiptaráðuneytinu þiggja fyrir að sitja 1 stjórn Flutn- ingsjöfnunarsjóðs olíuvara. Laun beggja embættismanna eru ákvörðuð af kjaranefnd. Hlutverk hennar er m.a. að meta hvaða aukastörf tilheyri aðalstarfi og hver beri að launa sérstaklega. Skýtur því skökku við aö kjara- nefnd skuli ekkert hafa fjallað um þessar greiðslur. Guðrún Zoéga vill ekki kveða upp úr um hvort stjómarlaun þessara embættismanna í Flutn- ingsjöfnunarsjóði séu óeðlileg í ljósi reglnanna. Nefndin hafi sett sér viðmiðunarreglur en meta verði hvert tilvik fyrir sig. Guð- rún segir að nefndin geti haft frumkvæði að þvi að úrskurða um mál en gefur ekki upp hvort það standi til í þessu tilviki. Reglur kjaranefndar 1 reglum kjaranefndar segir að embættismanni eigi ekki að greiða sérstaklega fyrir að sitja í nefnd ef seta hans i nefndinni er íslenskir tóbaks- neytendur ná ekki fram kröfum í Bandaríkjunum Þeir Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. og Gunnar G. Schram lagaprófess- or hafa síðan á árinu 2000 haft milligöngu um að láta á það reyna hvort íslenskir tjónþolar vegna tó- baksneyslu kynnu að eiga skaðabóta- kröfur á hendur bandarískum tóbaks- framleiðendum. Undirritaðir voru 18 samingar við lögfræðifirma í Texas. Tilraunir lögfræðifirmans til að koma málunum fyrir dómstóla i Texas, þar sem firmað taldi að málin ættu mögu- leika, hafa ekki tekist. Ástæðan er sú að tóbaksfyrirtækin hafa getað fengið málunum vísað til alríkisdómstóla sem hafa hafnað því að skilyrði séu fyrir hendi til að koma fram þessum kröfum. Tilraunh til að finna lög- menn í öðrum ríkjum Bandaríkjanna hafa ekki tekist. í upphafi voru líkumar ekki taldar miklar að ná mætti fram kröfum ís- lenskra tjónþola. Það er nú talið full- reynt. -GG Þjófar í Heiðmörk Þjófar voru á ferð í Heiðmörk i gær og brutust inn í og ollu skemmdum á a.m.k. þremur bílum samkvæmt upp- lýsingum frá lesendum DV. Innbrotin áttu sér stað á miðjum degi í gær, þeg- ar bílamir stóðu á bílaplani nálægt Vífilsstöðum. Þegar blaðið fór í prent- un var einungis búið að kæra eitt af þessum innbrotum samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglunni í Hafnarfirði. Lesendur þeh sem höfðu samband viö DV vora bæði hissa og sárh yfir því að bílar þehra skuli ekki vera óhultir á björtum degi og í þehri umferð sem liggur um Heiðmörk á sunnudögum og vildu vara göngugarpa við því að skilja síma og peningaveski eftir í bíl- um sínum. -snæ ákveðin með lög- um. í 6. grein laga um Flutningsjöfn- unarsjóð segir að stjórnarfor- mennska skuli vera í höndum for- stjóra Samkeppnis- stofnimar. Reglur kjaranefndar gilda jafnt um nefnda- setu og stjórnarsetu. Samkvæmt þessu virðist blasa við að forstjóri Samkeppnisstofnunar eigi ekki rétt á sérstökum launum fyrir stjórnarformennskuna. Fyrir hana hefur hann þó þegið fimm hundruð þúsund krónur á ári. Georg Ólafsson, forstjóri Sam- keppnisstofnunar, sagði við DV á þriðjudaginn var að kjaranefnd hefði lagt blessun sína yfir þessar greiðslur. Pappirar þar að lútandi eru hins vegar ekki komnh í leit- imar. „Ég sit i og sit fundi hjá ýmsum nefndum og ráðum sem ekki er greitt sérstaklega fyrir, t.d. í sam- keppnisráði, auglýsinganefnd og víðar,“ sagði Georg i samtali við DV sl. föstudag. „Ég fæ ekki sér- staklega greitt fyrir þetta nema fyrh formennsku i Flutningsjöfn- unarsjóði. Sá sjóður stendur utan við gildissvið samkeppnislaga að Mýrdalur: Þrastarhreiður finnst í dráttarvél - annað árið í röð Þegar Karl Pálmason, bóndi í Kerlingardal í Mýrdal, setti drátt- arvélina sína í gang í gærmorgun tók hann eftir því að skógarþröst- ur flaug undan vélarhlífinni. Þrösturinn var þá búinn að gera sér hreiður ofan á ventlaloki vél- arinnar og komið eitt egg i hreiðr- ið. Að sögn Karls er þetta húlega sami þröstur og gerði sér hreiður i dráttarvélinni í fyrra. Síðastliðið vor verpti þrösturinn fjórum eggj- um og kom þá upp ungum þrátt fyrh aö vélin væri notuð við bú- störfin. „Það var alveg sama þó ég væri að vinna á vélinni allan dag- inn í fyrra - ef ég stöðvaði vélina einhvers staöar þá var þrösturinn kominn á hreiðrið," segir Karl. -SKH minu viti og störf mín þar eru því ekki hluti af venjubundnum störf- um mínum sem forstjóri Sam- keppnisstofnunar. Ég stend í þeirri trú að kjaranefnd sé full- kunnugt um setu mína í þessari stjórn og greiðslur sem ég hef þeg- ið fyrir það,“ segh Georg. Greiðslur til skrifstofustjóra í viðskiptaráðuneytinu vekja einnig athygli í Ijósi reglna kjara- nefndar því í þeim segh að emb- ættismenn skuli ekki þiggja sér- stakar greiðslur fyrir setu í nefnd ef verkefni hennar tengjast þehri stofnun eða því ráðuneyti sem þeir starfa við. Skrifstofustjórinn situr í stjóminni skipaður af ráð- herra og þiggur fjögur hundr-uð þúsund krónur á ári fyrh stjóm- arsetuna. Olíufélögin þrjú eiga hvert sinn fulltrúa í stjóminni og þiggur hver þeirra fjögur hundruð þús- und krónur á ári fyrh stjómar- störfin. Fáir fundir Fáir fundir voru haldnir í stjórn sjóðsins í fyrra; stjómar- menn nefna allt frá þremur upp í sex til átta fundi, en enginn þeirra mundi nákvæman fjölda þegar DV innti þá eftir því. Ástæðan fýrh fáum fundum er m.a. sú að Sam- keppnisstofnun annast að miklu leyti daglegan rekstur sjóðsins. Það birtist m.a. í því að aðstoðar- forstjóri Samkeppnisstofnunar þiggur jafnháa greiðslu og for- stjórinn fyrir störf í þágu sjóðsins; fimm hundmð þúsund krónur á ári. Hann er starfsmaður stjómar- innar og eru laun hans greidd úr Flutningsjöfnunarsjóði eins og laun stjórnarmanna. Launakjör hans heyra hins vegar ekki undh kjaranefnd og gilda því viðmiðun- arreglur hennar ekki um hann. Flutningsjöfnunarsjóður olíu- vara heyrir undir viðskiptaráðu- neytið en stjóm sjóðsins og Sam- keppnisstofnun annast daglegan rekstur í sameiningu samkvæmt lögum. Eins og heitið gefur til kynna er hlutverk sjóðsins að end- urgreiða oliufélögunum flutnings- kostnað og jafna þar með kostnað- inn yfh landið. í þessu skyni er lagt sérstakt flutningsjöfnunar- gjald á allar olluvörur sem fluttar eru til landsins. Gjaldið er ákvarð- að af Samkeppnisstofnun og renn- ur óskipt 1 Flutningsjöfnunarsjóð - fyrir utan laun stjómarmanna og starfsmannsins sem fyrr er get- ið. Samtals námu þessar greiðslur 2,4 milljónum króna i fyrra. -ÓTG NATO-fundurinn: Strangar öryggis- reglur í Leifsstöð Shangar öryggisreglur gilda nú í Leifsstöð vegna NATO-fundarins. Bhgjar þjónustuaðila í fríhöfninni hafa t.d. ekki getað komið með vörar nema þegar verslanhnar era opnar og hafa þurft að afhenda vöruna beint í verslunina en fram að þessu hafa þeir getað komið á hvaða tíma sem er og skilið vörana efth í mót- tökunni, þangað sem verslanirnar sækja þær. Að sögn lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli er engin af versl- ununum orðin vörulaus enn þá, þrátt fyrh þessar reglur, og hafa menn reynt að aðlaga sig þessu. -snæ Haraldur Örn: Lagður af stað á toppinn Haraldur Örn lagði til atlögu við Everesttind í gær og náði upp í aðrar búð- h. Ferðin gekk vel og með þessu áfram- haldi ætti hann að ná toppnum aðfaranótt fimmtudags. Veðurspáin fyrir næstu daga er hag- stæð. Bjart hefur verið framan af degi en þykknað upp og snjóað síð- degis. Haraldur Örn stefnh á að ná þriðju búðum í dag. -snæ Kjósarhreppur: Listar bítast í fyrsta sinn í fyrsta skipti í sögu Kjósarhrepps í Hvalfirði gerist það nú við sveitar- stjómarkosningar að um listakosn- ingu verður að ræða. Um er að ræða Lista nýs afls á nýrri öld, sem Guð- ný ívarsdótth í Flekkudal er í for- svari fyrh, og hins vegar Lista kröftugra Kjósarmanna sem Guð- mundur Davíðsson í Miðdal leiðh. Guðný var kosin varamaður í sveit- arstjóm 1998 en Guðmundur aðal- maður, en hann er jafnframt núver- andi oddviti sveitarinnar. íbúar Kjósarhrepps eru 140 talsins og hef- ur heldur fækkað frá árinu 2000. -GG Sinueldar víða um borgina Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins haföi í nógu að snúast í gær. Fyrh utan að þurfa að slökkva nokkra smávægilega sinuelda viðs vegar um borgina tókst slökkviliðinu einnig að slökkva eld i ruslagámi við Hólabrekkuskóla á sjötta timan- um i gær. Þar fór betur en á horfö- ist því gámurinn stóð alveg uppi viö skólann og haföi mikill hiti mynd- ast í kringum glugga. Slökkviliðið var einnig kallað að einbýlishúsi í Kópavogi um svipað leyti en þar kviknaði í þurrkara sem stóð inni í bílskúr. Heimilisfólk var heima þegar eldurinn kom upp og gat gert viðvart. Ekki var um mikinn eld að ræða en þeim mun mehi reyk og þurfti að reykræsta húsið. -snæ Þórshöfn: 85.000 kall fyrir glóðarauga 19 ára Þórshafnarbúi hefur verið dæmdur til greiðslu 60.000 kr. sekt- ar og 25.000 króna miskabóta auk sakarkostnaðar fyrh líkamsárás. Maðurinn var staddur á Hafnar- bamum á Þórshöfn 15. desember í fyrra, 24. apríl 2001, og varð laus höndin. Hann sló mann í andlitið með krepptum hnefa með þeim af- leiðingum að fórnarlambið hlaut glóðarauga. -BÞ Rekstrargjöld til æskulýðs- og íþróttamála: Framlög fara lækkandi - sem hlutfall af skatttekjum Rekstargjöld sveitarfélaga til æskulýðs- og íþróttamála hafa lækk- að markvisst sem hlutfall af skatt- tekjum. Þetta kom fram í erindi sem Ólafúr Þór Ólafsson, stjórnmálafræð- ingur og íþrótta- og tómstundafúll- húi Sandgerðisbæjar, flutti á Akur- eyri fyrir helgina undir yfirskrift- inni: „Opinber stefnumótun á sviði frítímans - Era málefni fritímans á dagskrá í íslenskum stjórnmálum?" Fram kom í máli Ólafs að árið 1995 námu heildarútgjöld til mála- flokksins rúmum 2,3 milljörðum en árið 2000 var upphæðin 3,5 milljarð- ar. Sakir þess hve skatttekjur hafa aukist minnkar hins vegar hlutfalhð úr 8,3% árið 1995 í 6,3% árið 2000. DV-MYND SIGURÐUR HJÁLMARSSON Þrastaregg á ventlaloki / fyrra verpti þrösturinn fjórum eggjum í dráttarvélinni þrátt fyrir að hún væri notuö viö bústörf. „Hagsmunaaðilar innan opinbera frítímagehans eru veikir og ekki lík- legh til að hafa áhrif á stjómvalds- stofnanh. Því er krafan um aukna fagmennsku ekki á dagskrá stjórn- málanna,“ sagði Ólafur. Hann sagði að ef hagsmunahópar vildu hafa áhrif á sviði opinbera frí- tímageirans yrðu þeir að efla starf- semi sína. „Það tekur enginn afstöðu til mála sem hann hefur ekki vit- neskju um.“ Ólafur sagði um umfang opinbera frítímageirans að 1.038 stöðugildi væra hjá sveitarfélögum vegna mála- flokksins. Hins vegar sinntu um 6.000 einstaklingar störfum ixman frítímagehans. -BÞ , Georg Ólafsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.