Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Side 6
6 MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2002 Fréttir DV íslendingur enn á uppboði: Tilboð dregið til baka Aðeins eitt tilboð barst i íslenska víkingaskipið íslending á síðasta uppboði á bandaríska uppboðsvefn- um e-Bay. Tilboðið var síðan dregið til baka. Islendingur verður enn settur á uppboð á vefnum í dag. Skipið er nú í slipp Westbrook í Connecticut. Gunnar Marel Eggertsson, eig- andi íslendings, sagði við DV í gær að skýring tilboðsgjafans á því að hann hefði dregið tilboðið til baka hefði verið sú að hann hefði talið sig hafa boðið of hátt verð í skipið. Gunnar kvaðst ekki vita hversu há upphæð hefði verið boðin í íslend- ing. Sá sem gerði tilboðið hefði kall- að sig „Snypo“. Það væri allt sem vitað væri um hann. Spurður hvaða leikur væri næst- ur í stöðunni kvaðst Gunnar Marel halda áfram að setja skipið á upp- boð og reyna aliar tiitækar leiðir tO að losna við það. „Ég hef mjög skamman tíma til stefnu,“ sagði Gunnar Marel. „Ég get ekki boðið öðrum né sjálfum mér upp á þetta ástand öllu lengur.“ Hann kvaðst ekki hafa orðið var við að nein alvara lægi að baki því að kaupa íslending hingað til lands. Það væri engin vinna í gangi sem miðaði að því. Hins vegar léti al- menningur mikið til sín taka í fjöl- miðlum og vildi greinilega fá skipið heim. „Þetta er orðið háifpinlegt bæði fyrir mig og stjórnvöld. Ef þau kaupa hann þá virkar það eins og verið sé að skera mig niður úr skuldasnörunni. I sannleika sagt óska ég þess hálft í hvoru að hann verði seldur eitthvað annað - þá al- veg eins til Japans eða Kína.“ íslendingur fer aftur á uppboð í dag á e-Bay-vefnum. -JSS Týndur maður fannst á ófærum vegi Flutningabíll fauk út af í Lóni: Bílstjórinn missti handlegg Björgunarsveitir Slysavarnafé- lagsins Landsbjargar frá Egilsstöð- um að Djúpavogi leituðu frá því á hádegi á sunnudag að rúmlega fer- tugum manni sem hafði ætlað frá Egilsstöðum til Hafnar í Homafirði á laugardagskvöld. Maðurinn fannst um þrjúleytið á sunnudag heill á húfi en bíl sinn, lítinn fólksbíl, hafði hann fest á fjallveginum um Öxi sem liggur niður í Berufjörð. Tugir björgunarsveitarmanna hófu leit að manninum og vom þjóðvegir á þess- ari leið keyrðir á björgunarsveita- jeppum. Maðurinn gat ekki látið vita af sér þar sem farsímasamband á þessum slóðum er mjög slæmt, jafnvel ekkert. Brást hann hins veg- ar rétt við aöstæðum og beið í bíl sínum þar til aðstoð barst. Fjallvegurinn um Öxi er hafður opinn á sumrin en sökum slæmrar veðráttu í vor hefur færð á honum veriö með verra móti. Á færðarkorti Vegagerðarinnar hefur vegurinn verið merktur rauður um hríð sem þýðir að hann er ófær. -GG Flutningabill fauk út af veginum skammt frá Volaseli í Lóni um kl. 18.30 á laugardag og slasaðist bíl- stjórinn mikið. Bíllinn var að flytja fisk frá Djúpavogi til Hafnar en þegar hann kom syðst í Lónið var þar komið mikið hvassviðri og ofsarok á köflum og í einni hvið- unni tókst flutningabíllinn á loft og skall niður á hliðina á mel 10-15 metra utan við veginn. Bílstjórinn var í bílbelti en lenti með vinstri handlegginn út um gluggann og undir bílinn en honum tókst að hringja í eiganda bílsins og segja hvernig komið var. Læknir, sjúkrabíll, tækjabíll, slökkvibíll og kranabíll komu fljótlega á staðinn en mjög erfitt var að athafna sig á slysstað vegna veðurofsans. Bíl- stjórinn var fluttur með sjúkravél til Reykjavíkur, þar sem hann gekkst undir aðgerð, en handlegg- ur hans var fjarlægður á slysstað. Bíllinn er mikið skemmdur, ef ekki ónýtur. Um 12 tonn af fiski voru í bílnum. -JI DV-MYND JÚLIA IMSLAND 12 tonn af fiski Ofsarok og hvassviðri var í Lóninu þegar flutningabíllinn fauk út af veginum. Bílstjórinn slasaðist mikið og bíllinn er mikið skemmdur, ef ekki ónýtur. ■ nafnspjöld ■ kveðjukort ■ dreifimiðar HM ■ kynningarefni iiii FORMPRENT Hverfisgötu 78 101 Reykjavík Sími 552 5960 Fax 562 1540 Stafræn prentun forinprent@formprent.is samdægurs Barnalæknaþjónusta efld á landsbyggöinni Heilbrigðisráðherra, Jón Kristjánsson, stað- festi í gær á Reyðar- firði samning Land- spítala - Háskóla- sjúkrahúss við heil- brigðisstofnanir Aust- urlands, Suðaustur- lands og Isafjarðarbæj- ar um sérfræðiþjón- ustu á sviði barna- lækninga. Markmið samningsins er að færa sérfræðiþjónustu á sviði bamalækninga til þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda á viðkom- andi svæðum. Landspítalinn mun veita þjónustu í formi farlækn- inga sérfræðinga í bamalækning- um samkvæmt ósk yfirlæknis á hverjum stað. Viðkomandi heil- brigðisstofnanir sjá sérfræðingi fyrir fæði, húsnæði og ferðum en Landspít- alinn greiðir launa- kostnað, auk skipu- lagningar vegna vinnunnar. M.a. verður boðið upp á nýburaeftirlit og skoðar sérfræðingur- inn alla nýbura í við- komandi héraði sem fæðst hafa frá næst- liðinni komu. Vonast er til að með samkomulaginu sé stigið fyrsta skrefið í víðtækari samvinnu Landspítala og heil- brigðisstofnana á landsbyggðinni í sérfræðilæknisþjónustu. -GG Jón Kristjánsson, heilbrigöisráðherra. ' d>£ sjíl73J/ÍíjJJ REYKJAVÍK AKUREYRI Sólariag í kvöld 22.31 22.16 Sólarupprás á morgun 04.17 04.13 Síðdegisflóð 19.11 23.44 Árdegisflóð á morgun 07.27 12.00 Afram kalt Norölæg átt, 13-18 austanlands en annars víða 8-13. Él eða snjókoma norðaustan til, stöku él norðvestan- lands en víða léttskýjað sunnan- og vestanlands. Hiti 0-8 stig en víða vægt frost í nótt. _. _ 7Jh 3J JJJLJ'iýUJJ Búast má við norðlægri átt, 8-13 m/s og éljum eöa skúrum norðaustan til en bjartviðri annars staðar. Fremur kalt. Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Hiti 0° Hiti 1“ Hiti 2” til 8° til 8° til 8° Vindur. 8-13 m/s Vindur: 5-10'V* Vindur: 3-8 Él eöa skúrir noröaustan til en bjartviöri annars staöar. Fremur kalt. Hlýnar í veöri noröaustan lands. Bjart veöur víöast hvar. Þaö litur út fyrir hæga breytilega átt, léttskýjaö og milt veöur. f t 71 J/lúiíriJtí&J m/s Logn 0-0,2 Andvari 0,3-l,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinningsgola 5,5-7,9 Kaldi 8,0-10,7 Stinningskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassviðri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveður 28,5-32,6 Fárviðri >= 32,7 'JSiÆ Jil- •_* AKUREYRI BERGSSTAÐIR BOLUNGARVÍK EGILSSTAÐIR úrkoma skýjaö sl^jjaö skýjaö -1 -1 1 1 KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 2 KEFLAVÍK léttskýjað 0 RAUFARHÖFN alskýjaö 0 REYKJAVÍK léttskýjaö 0 STÓRHÖFÐl rykmistur 0 BERGEN skýjaö 7 HELSINKI léttskýjaö 12 KAUPMANNAHÖFN skýjaö 13 ÓSLÓ léttskýjaö 16 STOKKHÓLMUR 13 ÞÓRSHÖFN rigning 3 ÞRÁNDHEIMUR hálfskýjaö 10 ALGARVE heiöskírt 14 AMSTERDAM þokumóöa 10 BARCELONA þokumóöa 10 BERLÍN þokumóöa 14 CHICAGO rigning 8 DUBUN skýjað 9 HALIFAX heiðskírt 4 FRANKFURT rigning 13 HAMBORG þokumóöa 13 JAN MAYEN hálfskýjað 0 LONDON skýjað 10 LÚXEMBORG þokumóöa 11 MALLORCA þokumóða 12 MONTREAL heiöskírt 8 NARSSARSSUAQ heiöskírt 0 NEW YORK skýjað 16 ORLANDO léttskýjaö 22 PARÍS skýjaö 11 VÍN skýjað 15 WASHINGTON alskýjaö 16 WINNIPEG skýjaö 10

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.