Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Síða 9
MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2002
DV
Landið
9
Óley ehf. hættir starfsemi:
Loforð ríkisvalds-
ins stóðust ekki
Fjarvinnslufyrirtækið Óley ehf.
hætti að starfa um síðustu mán-
aðamót en fyrirtækið rak starfs-
stöðvar á Ólafsfirði og í Hrísey.
Óley var stofnað fyrir ári, upp úr
íslenskri miðlun Ólafsfirði ehf. og
íslenskri miðlun Hrisey ehf. For-
ráðamenn fyrirtækisins segja
ástæðuna vera svikin loforð ríkis-
valdsins.
Ekki hafi fengist næg verkefni
til að standa undir rekstrinum og
ekki voru horfur á þvi að aflað
yrði nýrra verkefna. Stjórn félags-
ins ákvað þvi í mars að skynsam-
legast væri að hætta starfsemi og
fmna leiðir til þess að semja við
þjónustuaðila sem fyrirtækið er í
skuld við þannig að ekki þurfl að
fara í gjaldþrotameðferð. Skýrist á
næstu vikum hvort það tekst. Fyr-
irtækið skuldar einnig starfs-
mönnum laun fyrir marsmánuð.
Að sögn forráðamanna fyrirtæk-
isins eru þetta mikil vonbrigði því
væntingar voru miklar um að
hægt væri að treysta grundvöll
undir þessa starfsemi þegar fyrir-
tækið var endurreist með samein-
ingu fyrir ári. Það er ljóst að lof-
orð ríkisvaldsins að flytja störf í
fjarvinnslu út á land hafa ekki
staðist og fyrirtæki landsins hafa
ekki enn komið auga á þessa leið
til að hagræða hjá sér.
Óley stóð í samingum við Al-
þingi um að taka að sér að verk-
efni fyrir Alþingi sem skapa átti
þrjú störf i þrjú ár. Verkefni þetta
verður unnið á Ólafsfirði og hefur
einn starfsmaður verið ráðinn, en
það er Magnús Sveinsson, og
væntingar eru um að annar starfs-
maður verði ráðinn um næstu
mánaðamót. Verða þeir þá starfs-
menn Alþingis og mun Alþingi fá
húsnæði það sem Óley hafði á
leigu í húsnæði Sparisjóðs Ólafs-
fjarðar. Þessa dagana er Alþingi
að ganga frá kaupum á þeim tækj-
um sem þarf til að hefja verkefnið
en það snýst um að skanna inn Al-
þingistíðindi frá því fyrir aldar-
mótin 1900 til ársins 1992 og eru
það um það bil 400 þúsund síður
alls.
-hiá
Verblækkun á
MASTERCRAFT
jeppadekkjum
sómmuc
(onliiKMifaH
Kópavogi - Njar&vík - Selfoss
Höldmr
Akureyri
Guggu ráð:
Nú er rétti tíminnfyrir
Casoron
Heldur trjábeðum og
gangstigum lausum við íllgresi
o
GARÐHEIMAR 60 ARA REYNSIA
Stekkjarbakka 6 * Mjódd ♦ Sími: 540 33 00 • Veffang: www.gardheimar.is
Sauðburðurinn hafinn
Systkinin Rebekka Hekla og Ófeigur Númi á Molastöðum í Fljótum með eitt
af þrjátíu lömbum sem þar voru komin þegar vika var af sumri. Að taka þátt í
sauðburði er í flestum tilfellum mikil upplifun fyrir börn og unglinga, einkum
þá sem koma að slíku í fyrsta skipti.
Veðurklúbburinn telur maí verða í kaldara lagi:
Gæti orðið slydda á
kosningadaginn nyrðra
Félagar í Veðurklúbbnum á Dal-
bæ á Dalvík eru mismunandi bjart-
sýnir á veðráttuna í maí. Fyrsti
sunnudagur i sumri lofaði ekki
góðu og margir hafa hann sem við-
mið fyrir sumarbyijun. Hugsanlega
er eftir smá-kuldakast með ein-
hverri lenju, þó ekkert á við það
sem kom í lok apríl.
Einhver minntist á hvítasunnu-
hret eða hvítasunnusnas, annar
sagði að það yrði slydda á kosninga-
daginn 25. maí. Það ætti nú vel við,
en sá yngsti í klúbbnum spáði ein-
muna bliðu þennan dag, enda væru
þá meiri líkur á því að menn mættu
á kjörstað með bros á vör og kysu
örugglega rétt.
Þann 12. maí kviknar maítunglið
í suðaustri. Flestir klúbbfélaga eru
á því að upp úr því fáum við veður
sem hægt er kalla sumarlegt. Samt
gera þeir ráð fyrir að hitastig í mán-
uðinum verði jafiivel undir eða um
meðallag. Kúbbfélagar segjast vona
að úrkoma verði einhver og þá helst
í formi rigningar en samt gæti hann
slyddað aðeins.
Allir voru sammála að það versta
væri búið og veðrið yrði í heildina
ágætt í mai, en kannski ívið kaldara
heldur en í meðalári. Hér áður fyrr
var sú trú að veðrið 1. maí myndi
standa til 4. i hvítasunnu. Ef illviðri
er um hvítasunnu boðar það ekki
gott fyrir sumarið. -hiá
Framsóknarmenn í Dalvíkurbyggð:
Oddvitinn snýr
til baka
Valdimar Bragason ráðgjafi kem-
ur aftur inn i bæjarmál Dalvíkur og
sest að nýju í efsta sæti á
lista framsóknarmanna
samkvæmt ákvörðun upp-
stiilingamefhdar. Hann sat
átta ár í bæjarstjóm og var
oddviti 1990 til 1994 og bæj-
arstjóri. Kristján Ólafsson,
núverandi oddviti, vill
hægja á og tekur þriðja sæti
listans. Sveinn Jónsson
bæjarfulltrúi lætur af störf-
um í bæjarpólitíkinni og
þiggur heiðurssæti listans,
það átjánda. Tengdadóttir Sveins,
Guðbjörg Inga Ragnarsdóttir, kem-
ur í annað sætið en Katrín Sigur-
jónsdóttir, sem var í því sæti, fer í
það fjórða.
„Þetta er vonandi fyrir góðu,“
sagði Valdimar í samtali við DV í
gær. Hann hafði skroppið út á sjó og
rennt færi. Um leið og blaðamaður
hringdi beit boltaþorskur á
hjá honum.
Framsókn er með fjóra
bæjarfulltrúa og í meiri-
hluta bæjarstjórnar, í sam-
vinnu við Sameiningu sem
fékk tvo bæjarfulltrúa
kjöma í síðustu kosning-
um. Efstu sæti lista fram-
sóknarfólks skipa Valdimar
Bragason ráðgjafi í fyrsta
sætið. í öðra sæti er Guð-
björg Inga Ragnarsdóttir
skrifstofumaður, í þriðja sæti er
Kristján Ólafsson umboðsmaður,
Katrín Sigurjónsdóttir skrifstofu-
maður í fjórða, Gunnhildur Gylfa-
dóttir bóndi í fimmta sæti og Þor-
steinn Hólm Stefánsson bóndi í því
sjötta. -hiá
Valdimar
Bragason.
Setuhreinsir
* ,
is
llmskammtari
Viltu auka hreinlætið
og lækka kostnaðinn?
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavik
Simi 520 6666 Bréfasftni 520 6665 • saia@rv.is
líttu á úrvalið f stórverslun okkar að Réttarhálsi 2
Lotus miðaþurrkuskápar
^_________
H )