Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Blaðsíða 22
34 MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2002 íslendingaþættir DV Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 95 ára Arnbjörg Davíðsdóttir, Borgarholtsbraut 67, Kópavogi. 80 ára Aðalheiður Þóroddsdóttir, Hlíöarhúsum 7, Reykjavlk. Áslaug Stefánsdóttir, Mörk, Akureyri. Kristján Guðmundsson, Hátúni 10, Vík. 75 ára Stella Jóna Guðbjörg Sæberg, Selvogsgrunni 22, Reykjavík. Aðalgeir Axelsson, Grenivöllum 28, Akureyri. Bergljót Sigurðardóttir, Stóragaröi 5, Húsavík. Kristjón Pálmarsson, Tobbakoti 2, Hellu. 70 ára Þórdís Sigurlaug Friðriksdóttir, Bólstaðarhlíö 45, Reykjavík. Ásdís Sigríður Pétursdóttir, Kolbeinsgötu 18, Vopnafiröi. 60 ára Birna G. Oskarsdóttir, Fellsmúla 17, Reykjavík. Erla Rosadóttir, Hraunbergi 11, Reykjavík. Guttormur Jónsson, Bjarkargrund 20, Akranesi. 50 ára Bryndís Hilmarsdóttir, Efstalandi 16, Reykjavlk. Stefán Agnar Magnússon, Hraunbæ 74, Reykjavík. Finnur Sturluson, Starengi 54, Reykjavík. Hallgrímur Guðjónsson, Látraströnd 21, Seltjarnarnesi. Þorgerður Árnadóttir, Hamraborg 14, Kópavogi. Ingibjörg Haraldsdóttir, Suðurbraut 10, Hafnarfirði. Ingibjörg Bertha Björnsdóttir, Vesturvangi 2, Hafnarfirði. Björn Marteinsson, Háteigi 11, Keflavík. Irena Maria Piernicka, Hafsilfri, Raufarhöfn. Kristín Pétursdóttir, Birkigrund 28, Selfossi. Ólafur Einarsson, Torfastöðum, Selfossi. Helga Vilmundardóttir, Heiðmörk 1, Hveragerði. Kristín Emma Finnbogadóttir, Hveramörk 14, Hveragerði. Guðbjört Einarsdóttlr, Eyrargötu 19, Eyrarbakka. 40ára Rúnar Jensen, Sólvallagötu 9, Reykjavík. Birna Guðjónsdóttir, Hrísateigi 37, Reykjavík. Stefanía D. Guðmundsdóttir, Hjarðarhaga 62, Reykjavík. Pétur Árni Rafnsson, Viðarrima 20, Reykjavík. Þóra Björk Sigurþórsdóttir, Vættaborgum 60, Reykjavík. Sigurþór Sigurþórsson, Melabraut 19, Seltjarnarnesi. Sigrún Sigurðardóttir, Fitjasmára la, Kópavogi. Hólmfríður Garðarsdóttir, Klukkubergi 29, Hafnarfiröi. Axel Bessi Baldvinsson, Arnarflöt 5, Súðavík. Ásgeir Elfar Tómasson, Ásvegi 28, Akureyri. Helga Ásta Símonardóttlr, Ásavegi 12, Vestmannaeyjum. Valgeir Valgeirsson, Helgafellsbraut 18, Vestmannaeyjum. Andlát Sölvi Guttormsson frá Síöu, Nestúni 6, Hvammstanga, lést á sjúkrahúsi Hvammstanga 10. maí. Tryggvi Andrés Jónsson, Hllðarenda, Isafirði, lést á sjúkrahúsi ísafjarðar 8. maí. Jón Magnússon frá Skuld, Lynghvammi 4, Hafnarfirði, lést á Sólvangi 10. maí. James Josph Dempsey lést á Landspltalanum, Fossvogi, 8. maí. Unnur Guðlaug Eyjólfsdóttir frá Steinum I Vestmanneyjum lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 10. maí. Einar Kristján Einarsson gítarleikari, Bergstaðastræti 64, Reykjavík lést á Landspítalanum 8. maí. Elín A.R. Jónsdóttir, Einholti 9, Reykjavík, lést á Hrafnistu, Reykjavík, 8. maí. Fólk í fréttum Þórunn Sigurðardóttir stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík Þórunn Slgurðardóttir er stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík sem hófst nú um helgina. Hún býr að Neðstaleiti 3 í Reykjavík. Starfsferill Þórunn fæddist í Reykjavík 29. 9. 1944. Hún lauk prófi frá Leiklistar- skóla LR 1967 og var í framhalds- námi í leiklist i Stokkhólmi 1970-1971. Þórunn var blaðamaður á Vísi 1967-74, á Þjóðviljanum 1974-86 og ritstjóri sunnudagsblaðs þar um tíma. Einnig var hún fararstjóri á Spáni frá 1987-89. Þórunn var leikari hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Þjóðleikhúsinu 1967-82 og kenndi leiklist í Leiklist- arskóla íslands, Fósturskólanum og KHÍ. Hún hefur verið leikstjóri hjá LR, LA, Leiklistarskóla íslands, RÚV, Þjóðleikhúsinu, áhugaleikfé- lögum úti um land og erlendis. Hún hefur samið allmörg leikrit sem sýnd hafa verið hjá LR, Þjóðleikhús- inu og víðar eða verið flutt í útvarp. Þórunn sat í stjóm Félags leik- stjóra á íslandi 1979-82, í þjóðhátíð- amefnd Reykjavíkur 1978-83 í rit- nefnd 19. júní 1979-80, var fuiitrúi íslands í Norræna leikstjóraráðinu 1991-94, sat í ritnefnd Nordic Theatre Review, var formaður Barnamenningarnefndar mennta- málaráðuneytisins og sat í stjóm Menningarsjóðs Félags leikstjóra á íslandi. Þá var hún verkefnisstjóri hjá Bamaheillum 1996 og stjómandi verkefnisins Reykjavík Menningar- borg, árið 2000. Fjölskylda Þórunn giftist 11.8. 1972 Stefáni Baldurssyni, f. 18.6. 1944, þjóðleik- hússtjóra. Foreldrar Stefáns era Baldur Stefánsson, fyrrv. verkstjóri hjá ÁTVR, og k.h., Margrét Stefáns- dóttir. Böm Þórunnar og Stefáns eru Baldur, f. 2.4. 1971, framkvæmda- stjóri hjá Maskinu ehf. Hans kona er Þóra Björk Ólafsdóttir, ættfræð- ingur hjá íslenskri erfðagreiningu. Þau eiga saman soninn Stefán Loga, Merkir Islendingar 23.9. 1956, ; Katrín, f. myndlistarmaður í New f. 24.5. 1999 og Þóra Björk á soninn Fáfni Fjölnisson, f. 9.12.1995; Unnur Ösp, f. 6.4. 1976, kvikmyndagerðarkona og leiklistarnemi. Sambýlismaður henn- ar er Björn Thors, kvikmyndagerðarmað- ur og leiklistamemi. Systkini Þórunnar eru Kolbeinn, f. 11.8. 1943, flugstjóri í Lúx- emborg; Jón, f. 23.8. 1946, rekstrarhagfræðingur, Guðbjartur, f. 7.12. 1949, kennari við Iðn- skólann í Reykjavík; Guðrún Sigríður, f. ferðaheildsali á Ítalíu: 28.2. 1967, York. Foreldrar Þórunnar: Sigurður Ólason, f. 19.1. 1907, d. 18.1. 1988, hrl., og k.h., Unnur Kolbeinsdóttir, f. 27.7.1922, kennari og bókavörður. Ætt Föðursystkini Þórunnar: Ágúst, afi Sturlu Böðvarssonar alþm; Tómas verslunarmaður, afi Sturlu Tómasar Gunnarssonar, kvik- myndaleikstjóra í Kanada; Kristín kennari, amma Sjafnar Ingólfsdótt- ur, formanns Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar; Unnur frá Gröf, móðir Halldórs, Hauks og Hilmars sem reka Sérleyfis- og hópferðabíla Helga Péturssonar. Sigurður var sonur Óla, oddvita á Stakkhamri, bróður Jóns, b. í Borgarholti, Jóns- sonar, b. í Borgarholti, Jónssonar, bróður Kristínar, langömmu Óléifs Thors. Önnur systir Jóns var Krist- tn, langamma Ingunnar, móður Sturlaugs H. Böðvarssonar á Akra- nesi. Móðir Sigurðar var Þórunn Sigurðardóttir, b. á Skeggstöðum, Sigurðssonar, og Margrétar Þor- steinsdóttur, b. á Æsustöðum, Ólafs- sonar, bróður Guðmundar, afa Ólafs Davíðssonar þjóðsagnasafnara og langafa Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Unnur er dóttir Kolbeins, skálds í Kollafirði, Högnasonar, trésmiðs í Reykjavik, bróður Ólafs, afa listmál- aranna Steingríms og Örlygs Sig- urðssona. Högni var sonur Finns, b. á Meðalfelli í Kjós, Einarssonar, prests á Reynivölium, bróður Björns, langafa Baldvins, föður Björns Th. Bjömssonar listfræð- ings. Einar var sonur Páls, prests á Þingvöllum, Þorlákssonar, bróður Jóns prests og skálds á Bægisá. Móðir Högna var Kristín, systir Hans, afa Þorsteins Ö., leiklistar- stjóra RÚV. Kristín var dóttir Stef- áns Stephensens, prests á Reynivöll- um, Stefánssonar. Móðir Kristínar var Guðrún, systir Þuríðar, langömmu Vigdísar, fyrrv. forseta. Guðrún var dóttir Þorvalds, pró- fasts og skálds í Holti, Böðvarsson- ar. Móðir Kolbeins var Katrín, syst- ir Guðmundar, afa Hans G. Ander- sens sendiherra. Katrín var dóttir Kolbeins, b. í Kollafirði, Eyjólfsson- ar. Móðir Unnar var Guðrún, kenn- ari við Miðbæjarskólann, Jóhanns- dóttir, b. í Krókshúsum og á Hnjóti, Jónssonar, vinnumanns í Tungu í Örlygshöfn, Jónssonar. Móðir Guð- rúnar var Kristín Jónsdóttir, b. í Hænuvík, Bjamasonar. Ásgeir Ásgeirsson forseti var fæddur 13. maí 1894 í Kóranesi á Mýrum. Foreldrar hans vom Ásgeir, kaupmaður í Kóranesi, síðar bókhaldari í Reykjavík, Eyþórs son, kaupmanns í Reykjavík, Felixson- ar og k.h. Jensína Björg Matthíasdótt- ir, trésmiðs í Reykjavik, Markússonar. Ásgeir varð stúdent 1912 frá Menntaskólanum í Reykjavík, var við framhaldsnám við háskólana í Kaup- mannahöfn og Uppsölum 1916-1918. Heiðursdoktor við Manitobaháskóla 18.9. 1961. Kenndi sund í Vestmannaeyj um sumurin 1914 og 1915, var biskupsrit- ari 1915-16, bankaritari við Landsbankann í Reykjavík 1917-18. Kennari við Kennara- skólann 1918-1927, fræðslumálastjóri 1926. Skip Ásgeir Ásgeirsson aður fjármálaráðherra 1931 og gegndi því til 1932. Skipaður forsætis- og fjármálaráð- herra 1932 og gegndi því til 1934. Var bankastjóri Útvegsbankans 1938-1952. Hann átti auk þess sæti í mörgum nefndum og stjómum og tók við fjöl- mörgum heiðursmerkjum. Ásgeir var kjörinn forseti íslands 1952 og gegndi því embætti til 1968. Hann sat á Bessastöðum. Kona hans var Dóra Þórhallsdóttir, f. 23.2. 1893, d. 10.9. 1964. Hún var dóttir Þórhalls biskups Bjamasonar og k.h. Valgerðar Jónsdóttur. Böm þeirra: Þór- hallur, Vaia og Björg. Ásgeir lést i Reykjavík 15. 9. 1972. Helgi Þorgils sýnir í Gallerí Kambi: Hugsólir Vorboðinn á Suðurlandi felst meðal annars í því að Gunnar Öm myndlistarmaður opnar Galleríið sitt að Kambi. Vorboðinn í ár er Helgi Þorgils Friðjónsson sem sýnir myndir sínar. Sýninguna kallar hann Hugsólir og segir hann um myndir sínar: „Þetta er samansafn teikninga eða mynda sem unnar eru á pappír með mismunandi efni frá hinum og þessum tímum, sem eru kannski frekar hugrenningar en það sem flestir skilja sem teikningar, sem kveikja á örskömmum tíma neista sem er kviksettur á pappímum á þeirri stundu sem sindraflóðið á sér stað í vitundinni. Með langri þjálf- Stevie Wonder 52 ára Ein skærasta stjama poppsögunnar, Stevie Wonder, á af- mæli í dag. Wonder, sem fæddist blindur og var skírður Steveland Judkins, var uppgötvaður af Motown eigandanum Berry Gordy þegar hann var tólf ára gamail. Undir nafninu Little Stevie Wonder sló hann strax í gegn. Eftir að hafa tekið smáhlé á unglingsárunum kom hann fram sem fullskapaður tón- listarmaður þegar hann sendi frá sér plötuna Talking Book árið 1972. Eftir það var engin spuming hver var ffemstur meðal jafningja. Gildir fyrir þriðjudaginn 14. maí Vatnsberlnn (?0, ian.-1S. fehr.l: Breytingar verða í kringum þig og þú fagnar þeim svo sannarlega. Það verður heldur rólegra hjá þér en verið hefur undanfarið. Helgi Þorglls. un er komið beintengi fmgurgóma við heilann. Það verður eins og gamla símamiðstöðin, þar sem símastúlkurnar gáfu beint samband við þann sem maður viidi tala við, með því að stinga tengi í samband á skiptiborðinu. Þá var maður hvar sem verða vildi á hnettinum, eða í sýslunni eða á landinu. Kannski í allt öðrum menningarheimi. Allt öðru umhverfi. Þannig er það einmitt þegar þú ert fyrir framan teikningamar, þú ert þar og ein- hversstaðar annarsstaðar á sama tíma...“ Gallerí Kambur er opið alla daga nema miðvikudaga og stendur sýn- ingin til 2. júní. Fiskarnir (19. fehr.-20. marsl: Einhver misskilningur Igerir vart við sig milli ástvina. Mikilvægt er að leiðrétta hann sem fyrst, annars er hætta á að hann valdi skaða. Hrúturinn (71. mars-19. anrih: Réttast væri fyrir þig að halda vel á spöðun- um á næstunni. Gefðu þér þó nægan tima með fjölskyldunni, hún hefur orðið dá- lítið út undan hjá þér undanfarið. Nautið (20. aprfl-20. mail: Sjálfstraust þitt er með meira móti um þessar mundir. Þess vegna er einkar heppilegt að ráðast í verkefni sem hafa beðið lengi. Tvíburarnir (21. maí-21. iúnll: V Þú færð ekki mikinn y^N^tíma til umhugsunar _ / I áður en þú verður að taka ákvörðun. Þess vegna skaltu leita þér ráðleggingar. Krabbinn (22. iúní-22. Iúlíl: Vinir þinir koma þér reglulega á óvart með undarlegu uppátæki. Satt best að segja rekur þig í rogastans. Happatölur þínar em 6, 16 og 23. Llónlð (23. iúlí- 22. ágústl: Draumar þínir rætast á næstimni og þú verð- ur í skýjunum. Það er sennilega leitun að hamingjusamari manneskju. Happatölur þínar em 2, 13 og 38. Mevian (23. ágúst-22. sept.l: /x. Þú verður fyrir ein- stöku láni i fjármálum, ^^V^lfclíklega gerir þú ein- ' f staklega góð kaup. Samningamálin í kringum það allt saman gætu hins vegar tekið á. Vogin (23. sept-23. okt.l: J Heimilislífið á hug Oy þinn alian og þú hugar V f að endurbótum á r f heimilinu. Allir virðast reiðubúnir til þess að leggja sitt af mörkum. Sporðdreki l?4. nkt.-?1. nnv.l: Þú grynnkar verulega á skuldunum, það er að segja ef þú skuldar eitthvað, því að þér græðist óvænt meiri upphæð en þú áttir von á. Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.l: ,Þú sérð ekki eftir því að leggja dálitið hart að þér um stundarsakir. Það borgar sig svo sannarlega. Happatölur þínar em 6, 9 og 20. Stelngeltin (22. des.-19. ian.): Þér bjóðast ný tæki- færi og það reynist þér dálítið erfitt að velja á milli þeirra. Þú fæst við flókin samningamál. Happatölur þinar em 3, 15 og 26.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.