Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Side 24
36 MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2002 Tilvera I>V lif ið ■ Dansandi Salka Valka Salka Valka er dansverk eftir Auöi Bjarna- dóttur, byggt á sögunni um Sölku Völku eft- ir Halldór Laxness, sem sýnt verður í Borg- arleikhúsinu kl. 20 í kvöld. Dansarar eru úr íslenska dansflokknum. Miðaverð er 2.400 kr. Tónleikar Listahátíð 2002 hafin: Mikið um dýrðir í borginni Listahátíð 2002 í Reykjavík hefur farið vel af stað. Hún var sett á laug- ardag í anddyri Borgarleikhússins og var sú athöfh hátíð út af fyrir sig. Úti á hlaði tóku hinir glaðværu Mobile Homme á móti gestum. Önn- ur stúlkan í hópnum gerði sér dælt við karlmennina og rak forsetanum rembingskoss á báðar kinnar, að viðstaddri unnustu hans. Ingibjörg Sólrún borgarstjóri setti hátíðina og Þórunn Sigurðardóttir listahátíðar- stjómandi flutti snjallt ávarp, kryddað setningum eftir Kiljan. Tónlistarmennimir Pétur Grétars- son og Sigurður Flosason léku brot úr spunaverki sínu, Raddir þjóðar, og Scola Cantorum frumflutti nýtt lag eftir Bára Grímsdóttur við Vor- kvæði Halldórs Laxness. Dansarar úr argentínska danshópnum E1 Escote dönsuðu ekta suður-amerísk- an tangó og gangsett var hljóðverk Finnboga Péturssonar myndlistar- manns, tileinkað Halldóri Laxness. I gær, sunnudag, voru fjölmörg at- riði á dagskrá hátíðarinnar. Öll hrifu þau gesti en fjölmennust var sýning hinna fljúgandi óróaseggja, Mobile Homme, yfir Austurvelli. í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, var opnuð viðamikil sýning á ís- lenskri samtímalist og einnig var dans- og myndverkið Brakraddir þar á dagskrá. Listahátið stendur út mánuðinn svo sannkölluð menning- arveisla er fram undan í höfuðborg- inni. -Gun. ■ F.U.C.K. NATO rpkkhátíð í Tjarnarfaíói Nokkrar rokkhljómsveitir hafa tekið sig saman um aö mótmæla fundahaldi NATO hérlendis með tvennum tónleikum í Tjarnar- bíói, í kvöld og á morgun. I kvöld koma fram Reaper, Citizen Joe, Dys, Brain Police, Snafu og Andlát. Tónleikarnir standa frá 19-23 og kostar 500 krónur inn. 16 ára aldurstakmark. ■ Thirteen á Cauknum Hallur Ingólfsson skipar einn hljómsveitina Thirteen sem nýverið gaf út sína þriðju breiðskífu, Magnifico Nova. Hallur, með aö- stoð valinkunnra listamanna, verður með tónleika á Gauknum í kvöld og er vert aö tékka á því. Klassík_______________________________ ■ 18. aldar tónlist í Ráðhúsinu Guömundur Kristmundsson og Hávarður Tryggvason flytja verk frá 18. öld fyrir víólu og kontrabassa í Ráöhúsi Reykjavikur. ■ Burtfarartónleikar i Salnum Jóhanna Marín Óskarsdóttir pianóleikari heldur burtfarartónleika sína frá Tónskóla Sigursveins i Salnum klukkan 20 i kvöld. Síðustu forvöð_________________________ ■ 3 spgmskir listmálarar í Revkiavik Þrir spænskir listmálarar Ijúka sýningu sinni i Galleri Reykjavik. Listmálararnir Carmelo Hldalgo, Marijo Murlllo og Rocío Gallardo eru Spánverjar sem búsettir eru í Reykjavík og starfa hérlendis að list sinni. Allir vel- komnir, aðgangur er ókeypis frá 12-18 i dag. Listir________________________________ ■ Örleikverk á SkólavóröMbgBLKI. 17.05 veröur flutt örleikverkið Hvers vegna elskar mig enginn? eftir Karl Ágúst Úlfsson og Fjölni Björn Hlynsson. ■ Gtosfleg tangósvning Cenlzas de tango er glæsileg tangósýning beint frá Argentínu. Tólf dansarar taka þátt í sýningunni en þeir skipa danshópinn El Escote. Sýnd i íslensku óperunnl kl. 20.30. ■ Fótboltasógur í Uikhúskiallaranum í tilefni af því aö íslandsmótið í fótbolta fer að hefjast er dagskrá Listakiúbbs Lelkhúskjallarans helguð fótbolta. Flutt verður leikgerð unnin upp úr Fótboltasögum eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Leikstjóri er Helga E. Jónsdóttlr, höfundur leikgeröar er Elísabet Rónaldsdóttir og leiklestur annast þeir Björn Jörundur Friöbjörnsson, Hllmar Jónsson og Stefán Jónsson. Dagskráin hefst klukkan 20.30 og kostar 1.000 kr. inn. DVMYND HILMAR ÞÓR Llsthneigðar mæðgur Sjónvarpsstjarnan Eva María og dóttirin Matthildur voru mættar viö opnun hátíðarinnar. Hollendingur- inn fliúgandi Óperan HolTendingurinn fljúgandi eftir Richard Wagner verður sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins í kvöld kl. 20. Uppfærslan er sam- starfsverkefni Islensku óperunnar, Þjóðleikhússins, Sinfóníuhljóm- sveitar íslands og Listahátíðar í Reykjavík. Hollendingurinn fljúg- andi er rómantísk ópera í þremur þáttum. Óperan gerist við strend- ur Noregs og fjallar um Hollend- inginn fljúgandi, sem að eilífu var dæmdur til að sigla um heimsins höf þar til hann fyndi konu sem sýndi honum sanna ást og sviki hann ekki. Leikhús DV-MYND HARI Við opnunina Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Tessa Biackstone voru meöal gesta við opnun Listahátíðar. DV-MYND HILMAR ÞÓR Blóðheitur tangó Dansflokkurinn Ei Escote frá Buenos Aires sýndi tilþrifamikinn tangó við setningu listahátíðarinnar. Það var fyrsta sýning hans af fimm og hann mun líka halda námskeið í Kramhúsinu áður en hann fer af landi brott. DV-MYND HARI Ahrifamesti kvenljósmyndari allra tíma Mary Ellen Mark opnaöi sýninguna American Odyssey á Kjarvaisstöðum. Þargetur að líta bandarískar myndir frá 36 ára tímabili, 1963-1999. DV-MYND HARt Á Kjarvalsstöðum Ljósmyndir Mark eru flestar af fólki sem orðiö hefur undir í hinu bandaríska þjóðfélagi og gefa því innsýn í heim sem mörgum er hulinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.