Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Síða 28
Starfsmanni Læknavaktarinnar vísað úr starfi: Grimur um veru- legan fjárdrátt - málið til rannsóknar hjá lögreglu Læknavaktin ehf. er fyrirtæki 60 heimilislækna á höfuðhorgarsvæö- inu sem annast læknavaktir á því. Samkvæmt upplýsingum DV vaknaði grumu' fyrir skömmu um að ekki væri allt með felldu varðandi bókhald Læknavaktarinnar ehf. Grunur beindist strax að viðkom- andi starfsmanni og var hann þegar látinn yfirgefa vinnustaðinn. Málið var siðan rannsakað af háifu fyrir- tækisins og í framhaldi ákvað stjðrn þess að kæra málið til lögreglunnar í Kópavogi. Atli Ámason, lækningafram- kvæmdastjóri Læknavaktarinnar og stjómarformaður fyrirtækisins, kvaðst ekki vilja tjá sig um efnisat- riði málsins. Hið eina sem hann kvaðst viija segja væri að mál af slík- um toga væra alltaf alvarleg. Um- rætt mál væri komið í ákveðinn far- veg. Það væri alltaf áfall þegar starfsfólk brygðist trúnaði vinnu- veitenda sinna. -JSS Grunur leikur á að starfsmaður Læknavaktarinnar ehf. hafi dregið sér talsvert fé frá fyrirtækinu. Heimildir blaðsins herma að um milljónir króna geti jafhvel verið að ræða. Starfsmanninum hefur verið vikið úr starfi og málið verið kært til lögreglu. Þar er nú unnið að rannsókn þess. Læknavaktin Starfsmanni sagt upp vegna gruns um fjárdrátt. DVWND HARI Orói í háloftunum Frönsku listamennirnir Mobile homme skemmtu Jóni Sigurössyni og fjölda manns meö trommuleik og skrípalátum á Austurvelli I gær. Hópurinn er eitt af fjölmörgum atriöum Listahátíöar Reykjavíkur 2002 sem sett var í Borgarleikhúsinu á laugardaginn. „Stoke í 1. deild: Ovissa um fram- tíð Guðjóns „Þeir fóra fram á árangur og ég tel að ég hafi fært þeim hann. Nú er boltinn hjá þeim að koma með al- mennilegan samn- ing handa mér,“ sagði Guðjón Þórðarson, knatt- spymustjóri Stoke, í samtali við DV-Sport eftir að lið hans hafði tryggt sér sæti í ensku 1. deildinni um helgina. „Þeir“ sem Guðjón vísar til er stjóm Stoke en fyrir henni fer Gunn- ar Gíslason. Hann segir ekkert ákveð- ið með framtíð Guðjóns hjá félaginu þrátt fyrir árangurinn. „Við munum reyna að frnna út hvaða manni við treystum til að ná sem bestum ár- angri með liðið á næstu árum, hvort sem það verður Guðjón eða einhver annar. Við ætlum okkur hins vegar að ræða við Guðjón í vikunni og heyra hans skoðanir og framtíðará- ætlanir," sagði Gunnar. Guðjón hefur ekki áhyggjur af óvissunni, segist hafa verið í sam- bandi við önnur lið. „Eitt er víst að ég verð ekki atvinnulaus þótt stjóm Stoke bjóði mér ekki nýjan samning." Sjá DV-Sport, bls. 24. -ósk Guójón Þóröarson. Víbríuveiki hefur greinst hér á landi, að sögn yfirdýralæknisembættis: Fiskur getur stráfallið af þessari skæðu veiki - í vissum tilfellum, segir dýralæknir fisksjúkdóma Svokölluð víbríuveiki var í fyrsta sinn staðfest í fiski hér á landi í nóv- ember á síðasta ári. Greindist hún í tveggja kílóa eldisþorski af viiltum upprana í lokuðu strandkeri á bor- holusjó. Um 20 prósenta affóll urðu á fiskinum. Þá greindist kýlaveikibróð- ir í fyrsta sinn í regnbogasilungi hér á landi á árinu. Loks var rauð- munnaveiki í fyrsta sinn staðfest í ál sem alinn var hér í tilraunaskyni. Þetta kemur fram í ársskýrslu yfir- dýralæknisembættisins fýrir árið 2001. „Menn þurfa stöðugt að vera á veröi gagnvart fisksjúkdómum," sagði Gísli Jónsson, dýralæknir í fisksjúkdómum, við DV. Hann sagði að víbríuveikin lýsti sé þannig að blæðingar yrðu í roði. Ef veikin væri búin að vara í nokkra daga kæmu fram sár. Fiskur gæti stráfallið af veikinni í vissum tilfellum. Verið væri að þróa bóluefni gegn þessum sjúkdómi, einkum í þorski. Ef þorsk- eldi yrði tekið upp hér væri víbríu- veikin helsti bakteríusjúkdómurinn sem þyrfti að líta til. Þessi veiki gæti borist í lax og silung. „Víbríuveikin er elsti sjúkdómur sem greindur er i fiskeldi yfirhöfuð,“ sagði Gisli. „Ég tel að hann hafi ekki borist hingað fyrr vegna norðlægrar legu landsins. Þessi sjúkdómur bloss- ar upp á vorin eða fyrri hluta sum- ars, þegar hitastig sjávar eða vatns hækkar mikið. Við náum ekki þess- um hita i sjó hér.“ I ársskýrslu yfirdýralæknisemb- ættisins segir enn fremur að kýla- veiki hafi til þessa fyrst og fremst heijað á lax og bleikju en regnboga- silungur hafi verið talinn ónæmur og því ekki bólusettur. Annað hafi kom- ið á daginn á liðnu ári þegar veikin hafi í fyrsta skipti greind í honum hér. Affóll hafi ekki orðið mikil en viðvarandi. Hafi endað með því að sérstakrar lækningar hafi verið þörf. Þá telst einnig til nýmæla að veik- in var í fyrsta sinn staðfest í villtum hlýra sem alinn er í tilraunaskyni í Neskaupstað, með um 58 prósent dauða í sýktri hjörð. Til að koma í veg fyrir frekara tjón var brugðist við með lyfjasprautun á eftirlifandi fiski og síðan hefur enginn drepist. I skýrslu yfirdýralæknis kemur enn fremur fram að mikil áhersla sé lögð á lágmarka notkun sýklalyfja í íslensku fiskeldi og er notkun þeirra á stöðugri niðurleið. -JSS Víbríuveiki í þorski Víbríuveiki greindist í fyrsta sinn hér á landi sl. haust. Hún var staöfest í eld- isþorski af villtum uppruna. Sveitarstjórnarkosningarnar 25. maí 2002: Hlutfall óhlutbundinna kosninga aldrei hærra íbúar Reykjavikurborgar og ísa- fjarðarbæjar hafa úr flestum fram- boðum að velja við komandi sveit- arstjómarkosningar 25. maí nk., eða 6 á hvorum stað. í Reykjavík bjóða fram Listi Höfuðborgarsam- takanna, Sjálfstæðisflokks, Frjáls- lyndra, Húmanistaflokksins, Reykjavíkurlistinn og Vinstri hægri snú. í ísafjarðarbæ bjóða fram Nýtt afl, Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur, Frjálslyndir, Samfylking og VG. í tveimur sveitarfélögum á Norðurlandi eru boðnir fram 5 listar. í sveitarfélaginu Skagaffrði eru listar Framsóknarflokks, Sjálf- stæðisflokks, Frjálslyndra, Skaga- fjarðarlistans og VG. Á Akureyri eiga kjósendur val um það að kjósa Framsóknarflokk, Sjálfstæð- isflokk, Lista fólksins, Samfylking- una eða VG. í 7 sveitarfélögum kemur aðeins fram einn listi og þar er því sjálf- kjörið. Þetta eru sveitarfélögin Borgarfjarðarbyggð, Höfðahrepp- ur, Hörgárbyggð, Aðaldælahrepp- ur, Tjömesheppur, Breiðdals- hreppur og Raufarhafharhreppur. í síðastnefnda sveitarfélaginu var kosningin kærð 1998 þar sem talið var að einn kjósandi hefði rang- lega verið tekinn inn á kjörskrá. Það mál þvældist lengi fyrir í fé- lagsmálaráðuneytinu. Nú kemur þar aðeins fram einn listi, F-listi. í 39 sveitarfélögum er kosning óhlutbundin, þ.e. þar kemur ekki fram neinn listi og allir kjörgengir íbúar í raun i framboði. Þetta er stærra hlutfall en nokkru sinni fyrr en rétt er að geta þess að sveitarfélögum hefur fækkað allnokkuð á kjörtímabil- inu - eru nú 122 og því í fyrsta skipti kosið til fyrstu sveitar- stjómar á allnokkrum stöðum í öUum landsfjórðungum. -GG Góð karfaveiði Góð karfaveiði hefur verið á Reykjaneshrygg. Um helgina voru mörg skip á landleið til löndunar og því óvenjulega fá íslensk skip á svæð- inu, eða 19 talsins, en þau era venju- lega um 30. Veiði ílestra skipa hefur þó ekki verið meiri en svo að vinnsl- an um borð hefur haft undan. Karfmn er hausskorinn og heilfrystur. -GG FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALOFEI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í slma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tókum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. S5ÍLS555 * * * * * * * * * * * * * * / é é é é é é

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.