Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Qupperneq 1
Frækileg bjorgun Björgunarafrek Sautján ára piltur úr Vogum á Vatnsleysuströnd, Stefán Berg Guömundsson, bjargaöi manni á sjötugsaldri, Þóröi Vormssyni, frá drukknun aöfaranótt sunnudagsins. Þóröur kom heim af Landspítalanum í gær og þá var myndin tekin afþeim félögum, þegar hann hitti Stefán og þakkaöi honum iífgjöfma. Sjá bls. 2 Nær 2500 sjúklingar á biðlista - á Landspítala Háskólasjúkrahúsi Tæplega 2500 manns eru nú á biðlistum eftir læknisverkum hjá Landspítala Há- skólasjúkrahúsi. Þessi hópur hefur beðið eftir læknis- verkum í meira en þrjá mánuði, sam- kvæmt nýrri úttekt sem gerð var á stöðu biðlista í byrjun þessa mán- aðar. Að þessu sinni er notuð ný aðferð til að flokka biðlista. Þeim er skipt í tvo flokka, annars veg- ar svokallaða vinnulista þar sem sjúklingar fá þjón- ustu innan þriggja mánaða. Hins vegar eru það sem kallað er eiginlegir biðlist- ar, en á þeim eru sjúklingar sem beðið hafa eftir læknisverkum í þrjá mánuði eða meira. Samkvæmt þeirri aðferð sem nú er notuð til að flokka sjúk- linga á biðlistum hefur sjúkling- um sem bíða eftir þjónustu kvennasviðs, geðsviðs og lyf- lækningasviðs fækkað frá því í maí 2001. Svipaður fjöldi barna bíður eftir þjónustu, en öll börn- in eru á vinnulistum og fá því þjónustu innan þriggja mánaða. Hins vegar hefur fjölgað á biðlistum eftir almennum skurð- aðgerðum, augnaðgerðum og bæklunaraðgerðum. Fækkað hef- ur á biðlistum eftir hjartaaðgerð- um og lungnaaðgerðum, háls,- nef- og eyrnaaðgerðum, lýtaað- gerðum, þvagfæraaðgerðum og æðaaðgerðum. í heildina er fjöldi á biðlistum skurðlækningasviðs svipaður og hann var í maí 2001. Sjúklingum sem bíöa eftir inn- lögn á öldrunarsvið og þeim sem bíða eftir varanlegri vistun á öldrunarstofnun hefur fjölgað á milli ára. -JSS Aukin spenna í Kasmírdeilunni Pervez Musharraf, forseti Pakist- ans, sagði í ávarpi til þjóðarinnar í gær að Pakistanar vildu ekki stríð við Indveija vegna Kasmírdeilunn- ar. „Stríðshættan vofir yfir,“ sagði Musharraf og bætti við að Pakistanar geti ekki talist ábyrgir fyrir aðskilnaðarbaráttunni í Kasmír. Á sama tíma hélt pakistanski herinn áfram tilraunum með skammdrægar eldflaugar sem Ind- verjar líta á sem hreina ögrun, en flaugamar sem eru af gerðinni Abdali hafa um 180 kílómetra skot- drægni og næðu þar með flestum landamærastöðvum Indverja. „Við erum mjög ósáttir við þessar tilraunir, en lítum á að þær hafi ver- ið gerðar til að bæta baráttuþrekið heima fyrir,“ sagði talsmaður ind- verska utanríkisráðuneytisins. Jack Straw kom til Islamabad í gær og mun hitta Musharraf á fundi í dag um hugsanlegar leiðir til sátta. UNDIRBÚNINGURINN FYRIR MAKEDÓNÍULEIKINN: Það verður allt vitlaust í Prilep 27 ÖSKJUHLÍÐARSKÓLI í REYKJAVÍK: Eldað eftir myndum www.intersport.is VINTERSPORT 100% SPORT BÍLDSHÖFÐA SMÁRALIND SELFOSSI s. 510 8020 s. 510 8030 s. 482 1000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.