Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Síða 2
2 ____________ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 Fréttir DV Frækilegt björgunarafrek sautján ára pilts íVogum á Vatnsleysuströnd: Blés lífsandanum í mann á sjötugsaldri - sem sofnaði í heitum potti, var helblár og hættur að anda Lífsbjörgun þökkuö Þórður Vormsson, t.h., sést hér þakka Stefáni Berg Guömundssyni lífsbjörgunina á aöfaranótt sunnudags. Ekki mátti tæpara standa þegar Stefán kom að Þórði heibláum í pottinum, en hann var þá hætttur að anda. Miklir fagnaðarfundir voru þegar tvimenningarnir hittust í gær. DV-MYNDIR BÞ Eldur í sjónvarpstæki Ömurlegt var umhorfs í einu her- bergi dvalarheimilis aldraðra í Kjarnaskózgi í gærmorgun eftir að eldur kviknaði í sjónvarpstæki. Rýma þurfti eina hæö hússins en engum varð alvarlega meint af. Eldur á elliheimili: „Starfsfólk stóö sig frábærlega“ Eldur kviknaði í sjónvarpstæki hjá einum vistmanni dvalarheimilis aldr- aðra í Kjamaskógi sunnan Akureyrar í fyrrinótt og þurfti að rýma heila hæð í kjölfarið. Nokkrar skemmdir urðu á herbergi og barst töluverður reykur inn í nærliggjandi vistarverur. 15 vistmenn voru fluttir úr húsinu og að dvalarheimili aldraðra í Hlíð. Sum- ir höfðu skerta hreyfigetu en flutning- urinn tókst afar vel og hnökralitið að sögn Ingu Eydal, forstöðukonu dvalar- heimilisins. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út. Heimilið er beintengt við eftirlits- bráðaþjónustu og var því slökkviliðið komið á staðinn örfáum mínútum eft- ir að eldsins varö vart. Einn maður bjó í herberginu þar sem eldurinn kom upp og lét hann sjálfur vita með simhringingu að reykur kæmi frá sjónvarpinu. Að sögn Ingu tóku vist- menn ótíðindunum með stakri ró enda lífsreynt fólk á ferð. „Rýmingin gekk vel og starfsfólkið héma vann sitt starf frábærlega við erfíðar að- stæður. Sumir starfsmannanna fengu súrefni í sjúkrabilum að lokinni björgun en engum varð alvarlega meint af,“ sagði Inga. -BÞ Ábyrgðasjóður launa: Fjarmagn rýrnar „Staðan er ágæt,“ sagöi Björgvin Steingrímsson, deildarstjóri Ábyrgðasjóðs launa, aðspuröur um fjárhagsstöðu sjóðsins. „Fjármagnið hefur samt sem áður rýmað tölu- vert, það voru um 950 milljónir króna til staðar i fyrra en nú er tal- an nær 900 milljónum," sagði Björg- vin, en ársuppgjörð sjóðsins fyrir árið 2001 er væntanlegt. Aðsókn í sjóðinn hefur aukist með hverju ári og aðspurður segir Björgvin það vera verk ríkisstjóm- ar að ákveða framhaldið ef áfram heldur sem horfir. „Það er engin niðurstaða komin enn þá en það er ljóst að endurskoða þarf hlutina ef ástandið heldur áfram að versna," sagði Björgvin. -Vig Sautján ára piltur í Vogum á Vatns- leysuströnd, Stefán Berg Guðmunds- son, vann þaö einstæða afrek að bjarga manni á sjötugsaldri, Þórði Vormssyni, frá drukknun og blása í hann lífsandanum á ný aðfaranótt sunnudagsins síðastliðins. Maðurinn og pilturinn voru staddir á kosninga- vöku i húsi nágranna mannsins í Vog- um þegar atburðurinn átti sér stað. Maðurinn var fluttur rakleiðis á Landspítala Háskólasjúkrahús í Foss- vogi, þar sem hann dvaldi til aðhlynn- ingar. Hann fékk að fara heim síðdeg- is í gær. DV var viðstatt í gærkvöld þegar maðurinn og hinn ungi bjargvættur hans hittust í fyrsta sinn eftir að slys- ið átti sér stað. Orð fá ekki lýst þeim fagnaðarfundum sem þar urðu. Að þeim loknum ræddi DV við manninn og piltinn um slysið og hina giftusam- legu björgun. „Við vorum að fylgjast með kosn- ingaúrslitunum aðfaranótt sunnu- dagsins," sagði Þórður. „Það var af- skaplega gott veður svo ég ákvað að skreppa yfir til nágranna. Það er alltaf gaman að hitta góða vini og félaga. Eftir nokkurn tíma ákvað ég að skella mér í pottinn hjá nágrannan- um. Mér finnst afskaplega gott að slappa af í hita. Hins vegar hef ég alltaf mátt passa mig á því að sofna ekki, því ég slaka svo vel á. Ég þarf til dæmis alltaf að hafa fremur lítið vatn í baðkarinu, svo engin hætta sé á ferð- um, þvi það hefur komið fyrir að ég hef sofnað í því. Þá er ég afskaplega fljótur að sofha ef ég leggst út í sólina hérna úti undir húsveggnum hjá mér. Svo fór að ég sofnaði þama í pottin- um.“ Ekki er vitað með vissu hversu lengi Þórður lá i pottinum, en þegar Stefán kom þar að sá hann strax hvers kyns var. „Hann lá á botninum í pottinum," sagði Stefán. „Ég dró hann upp og þá var hann hættur að anda. Hann var orðinn fjólublár, æðarnar þrútnar og hann var með opin augun.“ Stefán, sem lært hefur skyndihjálp, reisti Þórð þegar upp, beygði hann fram og sló hann á bakið, þannig að vatnið gusaðist upp úr honum. Þórður fékk þá meðvitund og reyndi að rísa á fætur. Hann datt þegar og missti þá aftur meðvitund. Stefán hóf hjarta- hnoð og Þórður komst þá enn til með- vitundar. Stefán passaði að hann reyndi ekki að standa á fætur fyrr en frekari hjálp bærist, talaði við hann og útskýrði fyrir honum hvar hann væri og hvað hefði gerst. „Auðvitað var mér brugðið," sagði Stefán. „En ég hef lært skyndihjálp og fór beint í að vinna við björgunina." Á meðan á björgunaraðgerðum stóð hringdi húsráðandi þegar á sjúkrabfi i Keflavík, sem var kominn eftir tíu mínútur. Þeir félagar sögðu sjúkralið- ana eiga hrós skilið fyrir hröð og góð viðbrögð. Meðan Þórður var á leið tU Reykja- víkur í sjúkrabílnum ræddi hann við sjúkraflutningamennina. „Þeir sögði við mig: „Þú varst hreinlega dáinn, í þess orðs fyllstu merkingu. PUturinn hefur bjargað lífi þínu, það er hundrað prósent öruggt.“ Útlit er fyrir að aUt að 40-50 starfs- mönnum verði sagt upp hjá Flugþjón- ustunni í Keflavík um næstu mánaða- mót. Stærstu hópamir sem sagt verð- ur upp vinna í hlaðdeUd, flugeldhúsi og hreingemingadeUd. Einnig verður sagt upp í fleiri deUdum en í minna mæli. í kjölfar hörmungaratburðanna í Bandaríkjunum 11. september hefur orðið mikdl samdráttur hjá Flugleið- um, bæði í flugi og þjónustu, eins og Það sem gerðist er aUtaf að rifiast betur og betur upp fyrir mér. Svo hef ég verið að spyrja og fá upplýsingar um það sem gerðist," sagði Þórður enn fremur. Hann kvaðst eiga að taka það rólega næstu tvo sólarhringa, því hætta væri á eftirköstum. Ef örlaði á þeim ætti hann að láta þegar vita á spítalanum. Þórður kvaðst ekki í vafa um að hann væri ekki lengur í þessu jarðlífi hefði Stefán ekki brugðist svo skjótt og örugglega við sem raun bar vitni. „Mér þykir óskaplega vænt um þennan pilt,“ sagði hann. „Ég mun aldrei gleyma þessu atviki meðan ég lifi. Ég vil jafnframt þakka sjúkra- flutningamönnunum og starfsfólki Landspitalans fyrir alla þeirra góðu umönnun." -JSS kunnugt er. Uppsagnirnar nú m.a. eru afleiðingar af þeim samdrætti. Þeir 40-50 starfsmenn sem munu fá uppsagnarbréf eru um 10 prósent af heildarfiölda starfsfólks hjá Flugþjón- ustunni. Uppsagnirnar munu taka gildi 1. september nk. Þá mun einnig taka gildi nýtt vaktakerfi í flugeld- húsi. Vöktum verður breytt þannig að einungis verður um dagvaktir að ræða. Er þetta gert í hagræðingar- skyni. -JSS Flugþjónustan: 40-50 manns sagt upp Krókódílar geta hlaupið á allt að 60 km hraða: Verið að draga upp óþarfa hryllingsmynd af málinu - segir bæjarstjórinn í Húsavíkurbæ, sem berst fyrir innflutningi krókódíla Reinhard Reynisson verður áfram bæjarstjóri í Húsavíkurbæ eftir að Húsavíkurlistinn vann sig- ur í bænum. Reinhard hefur verið mikill áhugamaður um að fá krókódíla til bæjarins en hann segir að þeir hafi aöeins verið minni háttar kosningamál. „Krókódílamálið er algjörlega prí- vatmál mitt og bæjarverkfræð- ings,“ segir Reinhard. Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra varaði i léttum dúr við krókódílunum í kosningabarátt- unni og sagði m.a. á fundi á Akur- eyri að þeir gætu hlaupið á allt að 60 km hraða. Viðbúið væri að þeir myndu borða Vinstri græna. Reinhard segir að þar sé átt við Nílarkrókódílinn sem sé miklu stærri og grimmari en þeir sem til stendur að flytja inn frá Colorado. Við kjöraðstæður geti krókódílar náð þessum hraða en í Ameríku hreyfi dýr sig ekki með slíkum hætti nema eitthvað sé að. „Þama er því að óþörfu verið að draga upp einhverja hryllingsmynd en ég get hins vegar tekið undir að það yrði hryllilegt ef þeir ætu bara Vinstri græna,“ segir Reinhard. Spurður hvort bæjarstjórinn geti útilokað slysahættu segir hann að ekki sé hægt að útiloka að naut stangi fólk. Hins vegar sé engin sérstök slysahætta samfara krókódílunum. Þeir verði á af- mörkuðu svæði og innan girðinga og í Colorado hafi menn verið með krókódíla í 15 ár án þess að nokk- uð hafi komið upp á. „Á kjörtíma- bilinu ætlum við okkur að bæta Guðni Relnhard Ágústsson. Reynlsson. verulega skilyrði til spretthlaupa fyrir mannskepnuna en ekki fyrir krókódilana. Þeir eiga að vera til annarra hluta.“ Húsvíkingar eru að reyna að fá leyfi fyrir krókódilunum sem gætu svamlað um í volgu affállsvatni frá orkustöð bæjarins. Næsta skref verður að sögn bæjarstjórans að láta yfirdýralæknisembættið fá frekari gögn um innflutninginn. M.a. hefur embættið áhyggjur af salmonellu en Reinhard er hóflega bjartsýnn á að leyfi fáist. Jákvæð umsögn Náttúruvemdar ríkisins liggur fyrir en Dýraverndunarfé- lag íslands er gegn málinu. Um- sögn yfirdýralæknis til ráðuneyt- isins mun vega þyngst að sögn bæjarstjórans. „Við höfum horft á 10-20 dýr til að byrja með,“ segir Reinhard sem telur æskilegast að flytja inn krókódílaunga en ekki fulloröin dýr. Þeim er ætlað að éta ferskan sláturúrgang og sér Reinhard fyrir sér í framtiöinni að húsvískar frúr muni skreyta sig með veskjum úr krókadílaskinni. Ef allt gengur upp. -BÞ Skipulagsstofnun hefur fallist á fyrirhugaða stækkun álvers Norður- áls á Grundartanga. Segir í úrskurði stofnunarinnar að með framleiðslu- aukningu Norðuráls i allt að 300.000 tonn á ári muni mengun lofts, lands og sjávar aukast í Hvalfirði, sérstak- lega á þynningarsvæðum verksmiðj- unnar. - Mbl. greindi ffá. 27 milljóna fjárdráttur Efnahagsbrotadeild ríkislögreglu- stjóra hefur nú til rannsóknar mein- tan fiárdrátt fyrrverandi endurskoð- anda Tryggingarsjóðs lækna. End- urskoðandinn hafði sjálfur frum- kvæði að því að málið barst lög- reglu. í játningu viðurkennir mað- urinn að hafa dregið sér um 27 mill- ljónir króna á meira en 10 ára tíma- bili, en hann hafi skilað öllum pen- ingunum aftur. Samið um rekstur Valhallar Ríkið hefur samið viö Elías V. Einarsson veitingamann um rekst- ur Hótel Valhallar á Þingvöllum í sumar. Var samningur gerður í kjölfar útboðs. Hótelið verður opnað 7. júni og rekið fram i september. Féll fram af klettum Níu ára stúlka féll fram af klett- um og niður í fiöru við Krosshamra í Grafarvogi síðdegis á sunnudag. Fallið var alls 10-12 metrar og þar af 3-4 metrar 1 frjálsu falli. Hlaut stúlkan áverka á höfði, baki og vinstri handlegg við fallið. Sektað fyrir nagladekk Farið er að sekta ökumenn fyrir aö vera á negldum hjólbörðum. Lög- reglan á Akureyri var í sérstöku umferðarátaki í gær og sektaði nokkra ökumenn vegna þess aö þeir eru enn á negldum dekkjum. Sektin er 5.000 krónur á hvert dekk. Stórviöskipti í SR-mjöli SOdarvinnslan hf. í Neskaupstað og Samherji hf. á Akureyri juku eignarhlut sinn í SR-mjöli í um- fangsmiklum viðskiptum í gær. Talið er að viðskiptin með hlutabréf í SR-mjöli í gær hafi numiö um 2 milljörðum króna. Samanlagður hlutur Samherja og Síldarvinnsl- unnar í SR-mjöli er nú 41,82%. Vinnuslys á Grundartanga Kona klemmdist illa á hendi í verksmiðju Norðuráls á Grundar- tanga skömmu fyrir hádegi. Hún var fyrst flutt á Sjúkrahúsið á Akra- nesi en siðan til Reykjavíkur. Kon- an hlaut beinbrot á fingrum. Leyfi fyrir seiðaflutningaskip Fengist hefur leyfi fyrir því að hingað til lands komi norskt seiða- flutningaskip um miðjan næsta mánuð. Skipið mun sjá um fiutn- inga á seiðum fyrir fiskeldisfyrir- tækið Sæsilfur sem fengið hefur leyfi til laxeldis í Mjóafirði. - Inter- seafood greindi frá. 575 milljóna hagnaður Hagnaður Granda hf. og dóttur- fyrirtækis þess, Faxamjöls hfi, á fyrstu 3 mánuðum ársins 2002 nam 575 milljónum króna, en á sama tíma árið 2001 var hagnaðurinn 68 milljónir króna. Rekstrartekjur samstæðunnar á tímabilinu námu 1.673 milljónum króna samanborið við 1.257 milljónir króna á sama tima á síðasta ári og jukust um 33%. Vörubílalest í Helguvík Vörubílstjórar Islenskra aðalverk- taka hafa haft i nógu að snúast í alla nótt. Þeir standa nú fyrir lest vörubíla milli Helguvíkur og Keflavíkurflug- vallar, þar sem þeir flytja 25.000 tonn af steinefnum fyrir malbikunarstöð ÍAV. Efnið verður meðal annars notaö við malbikun flugbrauta á Keflavikur- flugvelli í sumar og er flutt til Helgu- víkur frá Noregi með 166 metra löngu skipi. - Víkurfréttir greindu frá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.