Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 T>V Fréttir Númer þriggja sendiferðabíla talin rétt skráð og allir virðast með vegabréf: Reynt að koma Rúmen- unum út á fimmtudag - líklegast er að íslenska ríkið þurfi að standa undir kostnaði Lögregla vinnur að því að reyna að aðstoða Rúmenana 19, sem dvelj- ast hjá Rauða krossinum, við að komast úr landi með Norrænu á fimmtudag. Talið er að flestir ef ekki allir séu með gild vegabréf. Samkvæmt upplýsingum Gunn- laugs Valtýssonar hjá lögreglunni i Reykjavík virðist sem það muni faila á Islenska ríkið að greiða fór fólksins til baka með Norrænu. Fimm manna rúmensk fjölskylda hefur landvistarleyfi á Spáni og a.m.k. einn í 19 manna hópnum er með portúgalskt vegabréf. Aðrir eru með rúmenska pappíra. Feðgar, sem eru á meðal Rúmenanna, sögðust í gær ekki vera með vegabréf. Hins vegar ætluðu þeir að „fara og leita“ að þeim og gera lögreglu grein fyrir stöðunni í dag. Mál þetta hefur í raun snúist í andhverfu sína frá því að Rúmeníu- fólkið kom til höfuðborgarsvæðisins fyrir helgi. Það kom til landsins á þremur Mercedes-sendiferðabílum með Norrænu á fimmtudag. Þegar hópurinn gerði grein fyrir sér í Reykjavík og bað um pólitískt hæli um helgina kvaðst fólkið í raun ekk- ert kannast við bílana þrjá. Fólkið sagðist heldur engin vegabréf hafa undir höndum. Lögregla hafði hins vegar upplýs- ingar um að fólkið hefði komið á bíl- um og hóf að rannsaka málið. Eftir að þrír karlmenn í hópnum - þeir sem taldir voru hafa verið bílstjórar - höfðu verið handteknir og settir í fangaklefa, gaf einn þeirra sig og benti á hvar bílarnir voru niður komnir, á tjaldstæðinu í Laugardal. Þegar lögreglan fór þangað á sunnu- dagskvöld og hóf að leita í farangri fólksins þar kom fljótlega í ljós að ein- hverjir höfðu haft vegabréf meðferðis. Þeir sem ætluðu sér að sækja um pólitískt hæli hafa nú allir hætt við slíkt. Lögreglan er hins vegar að að- stoða fólkið við að komast í burtu, á svipaðan hátt og með marga aðra útlendinga sem hingað koma árlega. Margir hafa haldið því fram að Schengen-samningurinn sem íslend- ingar eru nú aðilar að sé ein af ástæðunum fyrir því að framan- greint fólk komst inn í landið. Smári Sigurðsson, yfirmaður al- þjóðadeildar ríkislögreglustjóra, kveðst ekki viss um það en segir að ekki þurfi lengur vegabréfsáritanir fyrir fólk frá Rúmeníu inn í lönd á Schengen-svæðinu. Því sé ekki landamæravarsla fyrir reglubundn- ar ferjusiglingar. Hins vegar verði menn væntanlega að gera grein fyr- ir ökutækjum sínum. Gera má ráð fyrir að vinna þurfi hratt og að margir hlutir þurfi að ganga upp eigi fólkið að komast utan með Norrænu á fimmtudag - ekki síst þar sem það þarf að vera búið að aka austur á Seyðisfjörð fyr- ir hádegi á fimmtudag. Fólkið hefur dvalið í húsnæði Rauða krossins í Kópavogi síðustu daga. -Ótt DV-MYND ÞÖK Bílar og vegabréf virðast í lagi Efsvo fer sem horfir fer fólkiö aftur meö Norrænu á fimmtudag eftir vikudvöl - meöan á henni stóö var beöiö um pólitískt hæli, dvaliö hjá Rauöa krossinum í Kópavogi og sumir kvöldlangt í fangageymslum áöur en þaö uppgötvaöist aö fólkiö var á bílum og var meö vegabréf. Harðar deilur vegna aðildarumsóknar í steinsteypunefnd: Sementsverksmiðjan rís gegn aðild Aalborg Portland - hótar í trúnaðarbréfi að draga sig út úr nefndinni ef af aðild verður Sm£*TS»ÍHKSMm»K TSVNAPARMAL. Aðild Aalborg l’ortland ísland hr. að Stclnstcypuncfnd Mlnnisalríði tll umf jutluiiar ú fundi neftidarinnar pann 24. maí 2002 Fyrirta'kíð Aalborj; Portland islaitd hf. (AP) hcfar mi óskað cdir aðild að Sleinsttypu- nefnd (SSN). Af því lilcfni fiiriun við hjá Sciiwnlsverksmiðjunni hf. (SV) þc.v.s i leil, að málalcitan þcirra vcrði ricdd í ncfndinni áður cn lil krcmi að fyrinrckið fcngi að laka saiti á fundum, cnda Idjuin víð eðlilcct að ncfndin ákvcði sjálf í hcild nýja aðild. Við liðfum Ijallað gaunigæfilcf,a uni forsendur aðildar ÁP að SSN. cn cins og kunnugt cr á SV nö f crfiðri og að okkar maii afar ðjafnri samkcppni við AP. Hkki cr armað sýnl cn að AP sé gcn klcift að heita yfirirurðaMicrð móðurfyriitaikis síns í Trúnaðarbréf Sementsverksmiöjunnar Ótti er viö að Aalborg Portland veröi gert kleift aö beita yfirburöastærö móö- urfyrirtækis síns í Danmörku til verulegrar lækkunar á sementsveröi í þeim tilgangi aö gera út af viö Sementsverksmiðjuna sem nú er meö um 80% markaöshlutdeild. Sementsinnflytjandinn Aalborg Portland íslandi hf. hefur formlega óskað eftir aðild að steinsteypu- nefnd iönaðarráöuneytisins. Hefur fyrirtækið mætt hörðum viðbrögð- um vegna þessa. Fyrir fund nefnd- arinnar þann 24. maí 2002 var lagt fram trúnaðarskjal frá Sements- verksmiðjunni hf., þar sem greini- lega kemur fram að AP er ekki tal- inn æskilegur aðili. Þá kemur einnig fram hótun um að Sements- verksmiðjan hf. á Akranesi dragi sig út úr nefndinni ef af aðild AP verður. Nefnd hagsmunaaðila Steinsteypunefnd er fremur óformleg nefnd í sinni núverandi mynd og án skriflegra samþykkta eða félagslaga. Mun hún hafa þróast upp úr nefnd sem ráðuneytið stofn- aði til árið 1967 og veitti forystu i nokkur ár i tengslum við umræðu um hugsanlega hættu á steypu- skemmdum af völdum alkalikísil- efnahvarfa. í minnisatriðum sem Bjami Óskar Halldórsson Framkvæmdastjóri Aalborg Portland þykir samkeppnin í sementssölu vera komin á sérkennilegar brautir. Eini samkeþþnisaöilinn, Sements- verksmiöjan hf., vilji ekki aö AP fái aöild aö steinsteypunefnd iönaöar- ráðuneytisins en stjórnarformaöur Sementsverksmiöjunnar er jafnframt starfsmaöur ráðuneytisins. lögð voru fyrir nefndarmenn fyrir nefndarfundinn 24. maí sem trúnað- armál, kom fram að núverandi aðil- ar að nefndinni eru fyrirtæki og stofnanir, sem eiga mikla hagsmuni í steinsteyptum mannvirkjum á ís- landi, og hefur forstjóri Rannsókna- stofnunar byggingariðnaðarins ver- ið eins konar framkvæmdastjóri nefndarinnar. Að mati Sements- verksmiðjunnar er höfuðmarkmið Steinsteypunefndar (SSN) að fjár- magna rannsóknir, sem ætlaö er að verða tO framþróunar og styrktar íslenskri framleiðslu og lúta beint að hagsmunum steypuiðnaðarins, eigenda steinsteyptra mannvirkja á íslandi og íslensks þjóðarbús. Hafa má í huga að nýr stjórnarformaður Sementsverksmiðjunnar, Gunnar Örn Gunnarsson, er jafnframt starfsmaður iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytisins. Þá segir SV um mat á aðfld Aal- borg Portland: „Við lítum svo á, að aðild AP yrði að þjóna ofangreindu markmiöi, en Har&ar dellur Litlir kærleikar hafa veriö á milli fulltrúa Sementsverksmiöjunnar á Akranesi og sementsinnflytjandans Aalborg Portland íslandi hf. Nýjustu vendingar í málinu sýna svo ekki veröur um villst aö mikil harka er hlaupin í samskipti fyrirtækjanna, eins og trúnaðarbréfiö hér aö ofan sýnir glögglega. sýnist aftur á móti svo myndi ekki verða.“ Eru síðan tíndar til ýmsar röksemdir sem eiga að styðja það að Aðild Aalborg Portland íslandi hf. fái ekki aðild að steinsteypunefnd. Nefnd- inni sé í sjálfsvald sett hverjir eigi að- ild að henni og að mati nefndarmanna eigi Sementsverksmiðjan hf. (sem er með 80% markaðshlutdeild) í afar ójafnri samkeppni við AP. Þætti miður að AP fengi aðild „Ekki er annað sýnt en að AP sé gert kleift að beita yfirburðastærð móðurfyrirtækis síns í Danmörku til veriflegrar lækkunar á sements- verði í þeim tilgangi að gera út af við SV og verða þannig allsráðandi á íslenskum markaði. Þannig kæm- ist AP í svipaða stöðu og móðurfyr- irtækið hefur í Danmörku. Okkur þætti mjög miður ef AP fengi að ger- ast félagi i SSN án undangenginnar umræðu í nefndinni." Þá koma fullyröingar um undir- boð AP á íslandi og er vísað tfl mun hærra verðs á sementssölu fyrir- tækisins í Færeyjum. Síðan segir: Hótun um úrsögn „Komi til aðildar AP, er dregið í efa að þátttaka Sementsverksmiðjunnar í SSN þjóni lengur hagsmunum fyrir- tækisins. Ef af yrði kæmi fremur til álita að beina fjármunum SV til ein- stakra rannsóknaverkefna, sem yrðu fyrirtækinu beint tfl hagsbóta." Samkeppnin í skrýtinn farveg Framkyæmdastjóri Aalborg Portland íslandi, Bjami Óskar Hall- dórsson, svaraði þessum röksemd- um í bréfl til nefndarmanna. Tekur hann fram að menn geti ekki leyft sér hvað sem er undir liðnum trún- aðarmál. Skorar hann á aðila að leggja fram haldbær gögn frá Hag- stofu Færeyja eða öðmm aðUum því tU sönnunar að AP níðist á Færey- ingum. Hafði Sementsverksmiðjan reyndar áður kært AP fyrir meintar sömu sakir, en Samkeppnisstofnun sá þá ekki ástæðu tU aðgerða. „Við hjá Aalborg Portland íslandi hf. hörmum þann farveg sem „sam- keppnin" er komin í,“ segir Bjami Óskar HaUdórsson. -HKr. sjíivarjuJJ REYKJAVÍK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 23.19 23.33 Sólarupprás á morgun 03.31 02.47 Sí&deglsflóö 19.52 24.25 Árdegisflóó á morgun 08.15 12.48 Skýjað á landinu Norðaustlæg eða breytileg átt, 5-10 m/s. Skýjaö að mestu og þokuloft viö norðurströndina, súld eða rigning um landið austanvert, en annars skýjaö og hætt við skúrum. Hiti víða 10 til 16 stig, en nokkuð svalara á annesjum norðan- og austantil. Dumbungur Norðaustan 5-10 m/s og rigning, einkum austanlands. Annars staðar þokuloft og skýjað, víðast hvar. Hiti 7-13 stig. Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur O 43 43 Hiti 7° Hití 7* Hiti 8° til 13° til 14° til 14° Vindun 5-10'c Vindur: 4_9m/» Vindur: 5-9 * Noröaustan 5- 10 m/s og rigning, einkum austanlands. Hfti 7 tll 13 stig. Fremur hæg austlæg eöa breytlleg átt, skýjaö meö köflum og stöku skúrir, en sums staöar þokuloft úti viö ströndina. Fremur mJlt veöur. Suöaustlæg eöa breytileg átt. Skýjaö meö köflum og úrkomulrtiö. Áfram fremur mlit í veöri. mbm m/s Logn 0-0,2 Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stlnnlngsgola Kaldi 5,5-7,9 8,0-10,7 Stinnlngskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassviöri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsave&ur 28,5-32,6 Fárvi&ri >= 32,7 AKUREYRI skýjaö 7 BERGSSTAÐIR þoka 5 BOLUNGARVÍK skýjað 6 EGILSSTAÐIR þoka 5 KIRKJUBÆJARKL skýjað 10 KEFLAVÍK skúr 7 RAUFARHÖFN þoka 4 REYKJAVÍK skýjað 8 STÓRHÖFÐI skýjað 10 BERGEN alskýjaö 11 HELSINKI léttskýjað 11 KAUPMANNAHÖFN skýjaö 15 ÓSLÓ rigning 11 STOKKHÓLMUR 13 ÞÓRSHÖFN rigning 9 ÞRÁNDHEIMUR rigning 15 ALGARVE heiöskírt 15 AMSTERDAM léttskýjað 12 BARCELONA léttskýjaö 12 BERLÍN rigning 10 CHICAGO skýjaö 15 DUBLIN rigning 10 HALIFAX þokumóða 10 FRANKFURT þokumóða 11 HAMBORG skýjaö 14 JAN MAYEN þokuruöningur 4 LONDON skýjað 12 LÚXEMBORG léttskýjað 9 MALLORCA léttskýjaö 13 MONTREAL alskýjaö 16 NARSSARSSUAQ léttskýjað 5 NEWYORK skýjað 18 ORLANDO skýjaö 23 PARÍS þokumóða 9 VÍN léttskýjaö 17 WASHINGTON þokumóöa 18 WINNIPEG heiösklrt 18

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.