Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 J3V 7 Fréttir Konur nær jafn fjölmennar og karlar á vinnumarkaði: Staða kvenna í stjórn unarstörfum er veik Sterk staða íslenskra kvenna á vinnumcirkaði skilar sér ekki í jafn- ræði kynjanna meðal stjómenda. Um 79 prósent kvenna á aldrinum 16-74 ára eru á vinnumarkaði, en 88 prósent karla. Hins vegar eru ekki nema 31 prósent kvenna kjömir fulltrúar eða stjórnendur í atvinnu- lífinu, meðan 69 prósent karla falla undir þann flokk. I honum eru helstu forystumenn á almennum markaði og í opinberum rekstri. Séu teknir framkvæmdastjórar i fyrirtækjum með skattskylda launa- summu yfir tíu milljónir króna, þá eru einungis 9 prósent af þeim hópi konur, en 91 prósent karlar. Þessar upplýsingar komu meðal annars fram í máli Eiríks Hilmars- sonar aðstoðarhagstofustjóra á nýaf- staðinni ráðstefnu Félags kvenna í atvinnurekstri mn nýsköpun. Upp- lýsingamar eru m.a. byggðar á vinnumarkaðsrannsóknum Hagstof- unnar. í erindi Eiríks kom enn fremur fram, aö minni munur er á þátttöku kynjanna í atvinnulífi meðal þeirra sem lokið hafa háskólanámi. í þeim hópi er atvinnuþátttaka kvenna 93 prósent og karla 95 prósent. Eiríkur telur að hvergi í heiminum sé at- vinnuþátttaka kvenna meiri heldur en á íslandi. Sem dæmi nefnir hann að annars staðar á Norðurlöndum er hún 7-9 prósentustigum minni heldur en hér. Þá sýna vinnumarkaðsrannsókn- ir Hagstofu, að um 26 þúsund ís- lendinga eru sjálfstætt starfandi og af þeim eru 27 prósent konur. Aftur Hlutfall i stjórnunarstoöum Sterk staöa íslenskra kvenna á vinnumarkaði skilar sér ekkl í jafnræði kynjanna meöal stjómenda. Af fram- kvæmdastjórum í fyrirtækjum með skattskylda launasummu yfir tíu milljónir króna eru einungis 9 prósent af á móti er nánast enginn munur á Qölda karla og kvenna í störfum sér- fræðinga. Af liðlega 23 þúsund sér- fræðingum á vinnumarkaði eru 52 prósent konur og 47 prósent karlar. Hvað varðar stjómendur fyrir- tækja em konur framkvæmdastjór- ar í 18 prósent þeirra og stjómarfor- menn í 36 prósent tilvika. I öllum atvinnugreinum landsins er meirihluti framkvæmdastjóra karlar. Aðeins í fræðslustarfsemi, hefibrigðis- og félagsþjónustu, svo og annarri samfélagsþjónustu er yfir fjórðungur framkvæmdastjóra konur. HeUdartölur era þær, að 81,8 Skólafólk á höfuðborgarsvæðinu: Mikill fjöldi skóla- fólks atvinnulaus - bæjarfélög grípa til aðgerða til að bæta ástandið prósent karla gegna starfi fram- kvæmdastjóra í atvinnugreinum landsins, en aðeins 18,2 prósent kvenna. Hins vegar benda nýrri töl- ur tU þess að konur séu i vaxandi mæli að taka að sér fyrirsvar fyrir atvinnurekstur. Hvað varðar nýsköpun kemur í ljós að karlar stjóma flestum stór- um framleiðslufyrirtækjum, fyrir- tækjum sem eru að leggja hæstu fjárhæðir í nýsköpun. 1 máli Eiríks kom enn fremur fram að telja megi víst að góð fylgni sé mUli menntunar og stjórnunar- starfa, ekki síst hjá konum. í þessu ljósi sé athyglisvert að rúmlega 62 prósent háskólanema séu konur og 38 prósent karlar. -JSS Gísll Guðmundsson. BMW öryggisbíll Bíllinn sem notaöur var til aö aka Colin Powell. „Vindhögg frá Boga“ „Hér er einhver reginmisskilnmgur á ferðinni,“ segir Gísli Guðmundsson hjá B&L vegna óá- nægju og frétta um leigu á 30 BMW-bíl- um í tilefni NATO- fundarins á dögun- um. „Ég vona svo sannarlega að Bogi, vinur minn Páls- son, rakni sem fyrst úr rotinu og átti sig á eftirfarandi meginatriðum þessa máls: Ríkið hvorki keypti né leigði BMW-bíl- ana sem notaðir voru vegna NATO-fund- arins. Bílamir voru lánaðir tU þessara nota endurgaldslaust. Þess vegna eiga útboðsreglur rUdsins ekki við í þessu tU- felli." „UtanrUcisráðuneytið fól verkfræði- stofunni Línuhönnun ehf. að sjá um framkvæmd fúndarins. Línahönnun ehf. hafði sfðan samband við B&L og önnur lúxusbUaumboð og spurðist fyrir um það hvort hægt væri að útvega 45 bUa tU þessara tUteknu nota. B&L svaraði sfðan um hæl að fyrirtækið treysti sér tU að útvega bUana þrátt fyrir mjög skamman fyrirvara. Svona gekk nú málið fyrir sig og því óþarfi að gera það flóknara en það er,“ segir Gísli. -hlh Láttu þér líða vel! h usg o Höfðatúni 12 105 Reykjavík Sfmi 552 5757 www.serhusgogn.is í vikunni var sagt frá því í DV að 879 umsækjendur um störf hjá Reykjavíkurborg væru enn án starfa en borgin hefur nú þegar ráð- ið tæplega 950 nema i sumarstörf. Verið er að vinna að því að ráða fleiri tU hinna ýmsu fyrirtækja og stofnana borgarinnar. Svipað ástand er í öðmm bæjarfélögum á höfuðborgarsvæðinu en varlega áætlað em milli eUefu og tólf hund- ruð nemar, á aldrinum 16-20 ára, at- vinnulausir, og eru þá eingöngu taldir þeir sem sótt hafa um hjá borginni og bæjarfélögum en ekki fengið störf. Bæjarfélög á svæðinu hafa þegar gripið tU aðgerða tU að bæta úr ástandinu eða eru að skoða hvemig bregöast eigi við. Guðjón Friðriksson, bæjarritari í Garðabæ, segir að mun fieiri umsókn- ir um störf hjá bænum hafi borist en áæfiað var að ráða í. Því haíi 80-90 umsóknir verið settar á biðlista en í fyrri viku var samþykkt í bæjarstjóm 10 miUjón kr. aukafjárveiting tU að skipuleggja vinnu unglinga í sumar. GarðyrkjudeUd og áhaldahúsi hafi verið falið að finna störf þannig að hægt væri að taka sem fiesta í vinnu. Þó sé líklegt að ekki verði um fuUa vinnu í aUt sumar að ræða fyrir þessa unglinga. Guðjón segir að aðeins sé um viðmiðunarfjárhæð að ræða og að hún verði endurskoðuð verði þess þörf. í Kópavogi var gert ráð fyrir að ráðið yrði í 230 sumarstörf hjá bæn- um en umsóknir um þau voru helm- ingi fleiri eða 460. Friðrik Baldurs- son, garöyrkjustjóri bæjarins, segir Gifs- Sanir ístoI Ertu enntiá að nota dúkahníf P B Mikil ásókn í sumarvinnu Um helmingi fleiri umsóknir um sumarstörf bárust borg og bæjarfélögum á höfuöborgarsvæöinu í ár en í fyrra. Nú er leitaö leiöa til að útvega atvinnu- lausum unglingum vinnu. að nú þegar hafi verið bætt við fjöldann sem ráðinn hefur verið þannig að nú séu 340 unglingar bún- ir að fá vinnu. í hádeginu í gær var síðan tekin fyrir tiUaga um að ráða fleiri þannig að þegar upp er staðið fái um 90% þeirra sem séu með gUd- ar umsóknir vinnu. Þeim sem eftir sitja verður svo boðið starf ef ein- hver af þeim sem þegar er búið að ráða mætir ekki. Unglingarnir verða ráðnir tfi hinna ýmsu stofn- ana bæjarins og því geti vinnutími verið mismunandi en Friðrik vonar að fáir sem engir þurfi að sitja að- gerðalausir í sumar í bænum. Ámi Þór Hilmarsson, yfirmaður fjölskyldusviðs Hafnarfjarðarbæjar, segir að umsóknir um störf hjá vinnuskóla og garðyrkjudeUd bæj- rains í ár hafi verið um helmingi fleiri en á síðasta ári. Því séu um 100 unglingar sem sóttu um án vinnu. En verið sé að útbúa erindi tU bæjarstjómar þar sem farið er fram á að málin verði leyst. Erindið verði væntanlega tekið fyrir á bæj- arstjómarfundi nk. fimmtudag og þá komi i ljós tfl hvaða ráða verði gripið þar i bæ. ÓSB Erum með sagir hraðastilli, sem henta vel til að saga gifsplötur. Tenging við ryksugu tryggir nánast ekkert ryk á vinnustað, Beinn og góður skurður sem minnkar alla eftirvinnu fyrir málara. Minni kostnaður við blikkkanta Armúll srml: 533 1334 rax: 5EB 0493 ..það sem fagmaðurinn notar!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.