Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 DV Fréttir Skoðanakannanir DV oftast næst úrslitum síðustu tvo áratugi: Könnun DV næst úrslitum í borginni - lokakönnun Gallups komst næst könnun DV Samanburður á síðustu skoðana- könnunum fyrir bogarstjómarkosning- amar i Reykjavik sýnir að meðalfrávik frá niðurstöðum kosninganna er minnst í könnun DV. Með öðrum orðum: DV komst næst úrslitunum í sveitarstjóm- arkosningunum 2002. Meðalfrávikið í könnun DV var 0,82 prósentustig. Gallup komst næst DV en meðalfrávik lokakönnunar Gallups var 0,88 pró- sentustig. í frétt DV í gær um frávik skoðana- kannana sagði að meðalfrávik í könnun Gallups hefði verið 1,48. Þá stóð Frétta- blaðið sig aðeins betur en sagði í frétt DV en meðalfrávik þeirra er 1,21. Reiknivillu er um að kenna i báðum til- vikum og eru hlutaðeigandi beðnir vel- virðingar á mistökunum. Nákvæmni kannana DV er síður en svo einsdæmi. 1 síöustu borgarstjómar- kosningum var meðalfrávik síðustu könnunar DV frá niöurstöðum kosning- anna ekki nema 0,2 prósentustig en þá var haft á orði að DV hefði beinlínis birt úrslit kosninganna daginn fyrir kjör- dag. Félagsvisindastofnun var þá i öðm sæti með meðalfrávik upp á 0,8 pró- sentustig. Skoðanakannanir hafa alla tíð skipað stóran sess í DV en upphaf þeirra má rekja aftur til fyrstu kannana sem Vísir gerði 1967. Meðalfrávik kannana frá úr- slitum kosninga hefur undantekningar- laust verið innan þeirra skekkjumarka sem blaðið setur sér. Glæsilegur árangur Þegar farið er aftur til alþingiskosn- inganna 1983 er DV með minnst meðal- frávik eða 2,2 prósentustig, meðalfrávik Skáis var þá 2,8 og Hagvangs 3,1 pró- sentustig. í borgarstjómarkosningunum 1986 var meðaifrávikið aftur minnst hjá DV eða 2,1 prósentustig, 2,3 prósentustig hjá ■ ▼ij ' ^önnunum DV frá 1983 ■ ' " ......'■ 'I - síSustu kannanir fyrir kosningar Meðaltalsfrávik í síðustu könnunum fyrir kosningar 1,5 1,2 Félagsvísindastofnun og 2,4 hjá Skáis. í alþingiskosningunum 1987 var DV hins vegar með næstminnsta meðalfrá- vikið, 1,2 prósentustig, en Félagsvísinda- stofnun komst næst úrslitunum með meðalfrávik upp á 1 prósentustig. í borgarstjómarkosningunum 1990 vom DV og Félagsvísindastofhun sam- an með minnst meðalfrávik eða 2,8 pró- sent. Fréttablaöið Félagsvís.st Heimur í alþingiskosningunum 1991 var með- alfrávik DV 1,2 prósentustig en 1 pró- sentustig hjá Félagsvísindastofnun. í borgarstjómarkosningunum 1994, þegar R-listinn velti borgarstjómar- meirihluta D-listans, var meðalfrávik könnunar DV og úrslita kosninganna 1,4 prósentustig en Skáís komst þá næst með 0,5 prósentustiga meðalfrávik. í alþingiskosningunum 1995 komst síðasta skoðanakönnun DV fyrir kjör- dag nær úrslitunum en dæmi vom um þá. Meðalfrávikið var 0,3 prósentustig. Frávik frá kjörfylgi Sjálfstæðisflokksins mældist þá 0,6 prósentustig en engin frá- vik vom á niðurstöðum könnunarinnar og kjörfylgis Framsóknarflokks og Þjóð- vaka Jóhönnu Sigurðardóttur. DV gerði síðan enn betur i borgar- stjómarkosningunum 1998 þegar meðal- frávikið reyndist 0,2 prósentustig. Frávikið í alþingiskosningunum 1999 varð reyndar meira en venja var til í könnunum DV eða 1,78 prósentustig að meðaltali. Með könnuninni sem birtist í blaðinu sl. fóstudag er DV aftur næst úrslitunum en meðalfrávikið var upp á 0,82 prósentustig eins og áður er sagt. Hér em ekki talin úrslit tvennra sið- ustu forsetakosninga en í báðum tilvik- um komust kannanir DV næst endan- legum úslitum. Niðurstöður skoðanakannana DV hafa aflað blaðinu trausts hjá bæði al- menningi og stjómmálamönnum enda er beðið eftir könnunum DV fyrir hveij- ar kosningar. -hlh Kærunefnd útboðsmála: Ólögmæt ákvörðun hjá Borgarbyggð Kærunefnd útboðsmála hefur í tvígang úrskurðað Borgarbyggð í óhag eftir að sveitarfélagið bauð út sorphiröu og rekstur gámastöövar. Njarðtak ehf. á Suðumesjum var með lægsta boðið í hluta verksins en næstlægsta boð í annan hluta. Þrátt fyrir þaö tók Borgarbyggð ákvörðun um að ganga til samninga við Gáma- þjónustu Vesturlands sem ekki átti lægsta boð í verkið. Njarðtak kærði ákvörðunina og felldi kærunefnd útboðsmála úr gildi þá ákvörðun sveitarstjómar að semja við Gámaþjónustu Vesturlands. Kæm- nefndin taldi þá ákvörðun vera ólög- mæta og sagði í forsendum að Borgar- byggð bæri að leita samninga við Njarð- tak. Þá tók Borgarbyggð ákvörðun að hafna öllum tilboðum í verkið og bjóða verkið út að nýju í síðasta lagi 1. októ- ber nk. Einnig var ákveðið að þangað til yrði samið við Gámaþjónustu Vestur- lands um tímabundna þjónustu. Þessa ákvörðun kærði Njarðtak einnig til kærunefndar útboðsmála og þann 6. maí sl. felldi kærunefnd þá ákvörðun sveitarstjómar einnig úr gildi og kvað upp úr um að Borgarbyggð bæri skaðabótaábyrgð gagnvart Njarð- taki. Kærunefndin úrskurðaði að Borg- arbyggð skyldi greiða kr. 180.000 í kæm- kostnað. Kærunefnd hefur því úrskurð- að að Borgarbyggð skuli greiða kæm- kostnað, kr. 290.000, í þessum tveimur málum. Þá telur nefndin einnig að kær- andi eigi rétt til bóta vegna missis hagn- aðar þann tíma sem samningur um sorphirðu hefúr ekki komist á. -BÞ Rekstrarafkoman mun verri en menn sáu fyrir hjá FSA: Ekki nóg að skammta til nauðþurfta - segir formaður stjórnar - 111 milljóna króna tap Frá ársfundlnum Heilbrigöisráöherra og rektor Háskólans á Akureyri voru meöal þeirra sem sóttu ársfund Fjóröungssjúkrahússins á Akureyri. „Það er ekki nóg að skammta Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fé til nauðþurfta,“ sagði Bjarni P. Hjarðar, formaður stjórnar Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri (FSA) á ársfundi spítalans sem fram fór á Akureyri fyrir helgi. Heildarútgjöld vegna rekstrar FSA á árinu 2001 námu tæpum 2,5 milljörðum króna og hækkuðu um 15% frá fyrra ári. Gjöld umfram fjárveitingar og sértekjur námu 110,9 milljónum króna sem sam- svarar 4,2% fráviki. Fjárveiting ríkissjóðs á árinu nam 2.350 millj- ónum og hækkaði um 11% miðað við fyrra ár. Framlag Akureyrar- bæjar til viðhalds og stofnkostnað- ar var tæpar 20 milljónir en sér- tekjur tæpar 150 milljónir. Þetta þýðir að rekstrarafkoman var mun verri en áætlun gerði ráð fyrir. Ástæður þess eru fyrst og fremst raktar til aukinnar starf- semi, verðlagshækkana, kostnað- arauka vegna EES-samningsins og launahækkana. Þá var vaxtamun- ur óhagstæður. í september sl. var gripið til ým- issa aðhaldsaðgerða þegar ljóst varð aö í óefni stefndi. Ráðningar í lausar stöður voru takmarkaðar og yflrvinna háð leyfi frá viðkomandi framkvæmdastjóra. Dregið var jafnframt úr starfsemi á skurðstof- um og legudeildum og tækjakaup- um og viðhaldsframkvæmdum frestað til þessa árs, eins og segir í ársskýrslu. Stjórn FSA telur að ónógar Ijárveitingar og kostnaðar- hækkanir þrengi mjög að starfsem- inni og er í skoðun hvort heilbrigð- isráöherra, Jón Kristjánsson, skip- ar nefnd sem fari yfir hlutverk og rekstur spítalans. -BÞ Mun meiri afli Fiskaflinn síðastliðinn aprilmánuð var 68.676 tonn samanborið við 25.483 tonn í aprílmánuði árið 2001 og nemur munurinn alls 43.193 tonnum. Þessi munur ræðst að miklu leyti af verkfalli sjómanna í aprfl í fyrra og er helsti munurinn í botnfiskveiði. Af botnfiski bárust 46.543 tonn á land, samanborið við 22.100 tonn 1 aprílmánuði 2001, sem er munur upp á rúm 24 þúsund tonn. Alls var þorskveiði um 7.500 tonnum meiri í aprfl í ár, ýsuaflinn rúmlega 3.200 tonnum, ufsaaflinn 2.700 tonnum og karfaaflinn 9.200 tonnum meiri nú, samanborið við aprflmánuð ársins 2001. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstof- unni nam heildarafli landsmanna fyrstu íjóra mánuði ársins 1.119.859 tonnum sem er rúmlega 162 þúsund tonnum meiri afli en á sama tímabili síðasta árs. Betri loðnuveiði á vetrarvertíðinni 2002 ásamt minni heildarafla aprflmánaðar 2001 skýrir að mestu þennan mun á milli ára. Botnfiskafli ársins 2002 er orðinn 164.367 tonn, flatfiskaflinn 11.801 tonn, uppsjávaraflinn 930.173 tonn og skel- og krabbadýraaflinn 13.335 tonn. -BÞ Mjólkurbúum fækkar Mjólkurbúum fækkar um tvö þetta árið og eru líkur á enn frekari hagræð- ingu í mjólkuriðnaði. Á Húsavík hefur vinnsla þegar lagst niður og vinnslan á Hvammstanga er á síðustu mjólkur- dropunum. Samkvæmt heimildum DV eru miklar líkur á að breytingar verði á eignarhaldi Norðurmjólkur á Akureyri innan tíðar. Rætt hefur verið um að styrkja osta- gerð á Akureyri ef skipulagsbreytingar verða á vinnslu samfara eignarhalds- breytingum en á móti kemur að aðrir liðir s.s. skyr- eða jógúrtframleiðsla gætu átt undir högg að sækja. Á Akur- eyri eru þegar framleidd 50-60% af öll- um ostum á landinu og er talið hag- kvæmast að búin sérhæfi sig enn frekar í tfltekinni framleiðsluvöru. Markaðshlutdeild stærstu búanna skiptist þannig að Mjólkurbú Flóamanna er með um 41%, Norðurmjólk á Akur- eyri er með um 27% og KS á Sauðárkróki er með um 10%. Auk þessara staða eru rekin bú á Blönduósi, Isafirði, Egilsstöð- um Búðardal og Vopnafirði. -BÞ Verndun Þjórsárvera: Lón væri um- hverfisglæpur brottfluttir Gnúpverjar hafa I samþykkt áskorun I til hreppsnefndar I og íbúa Gnúpveija- I hrepps um að ' fryggja til frambúð- I ar \erndun Þjórs- I árvera og fossaraö- F arinnar í Þjórsá og B|rgir heimfla engar frek- Sigurðsson. ari framkvæmdir á virkjunarsvæðinu. Áskorunin, með nöftium þeirra sem styðja hana, var af- hent oddvita hreppsnefhdar I fyrradag og einnig var henni komið á framfæri við oddvita listanna tveggja sem eru í framboði til sveitarstjómarkosninga í sameinuðu sveitafélagi Gnúpveija- og Skeiðahrepps. „Þjórsárver hafa ekki aðeins mikla sérstöðu í íslenskri náttúru heldur eru þau einstakt vistkerfi á veraldarvísu og þar er mesta heiðagæsavarp f heimin- um. Teljum við að þaö sé meira en um- hverfisslys að setja þar upp lón - það væri umhverfisglæpur," segir Birgir Sig- urðsson, rithöfundur og helsti talsmaður brottfluttra Gnúpverja sem standa í mót- mælaaðgerðunum. Hreppsneftid Gnúp- veija hefur lagst gegn þessum fram- kvæmdum og segir Birgir enn fremur að þetta sé í fyrsta skipti sem sveitarfélag snýst gegn virkjunaráformum innan sinna vébanda. „Það er ljóst að þegar bamabamaböm þeirra sem nú lifa eru komin til vits og ára yrði þessi dýrmæta náttúruperla í þann veginn að tortímast með öllu vegna þessara virkjunarfram- kvæmda,“ segir Birgir að lokum. -Vig

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.