Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Síða 26
26
MfiIÐIKmMHIHS8. MAÍ 2002
H
Þriðja umferð Símadeildar karla í knattspyrnu hefst í kvöld:
Þurfum að laga margt
- segir Njáll Eiðsson, þjálfari ÍBV, sem mætir Fram í kvöld
3. umferð Símadeildar karla í
knattspyrnu hefst í kvöld þegar
Framarar taka á móti ÍBV á Laugar-
dalsvelli og hefst viðureignin klukk-
an 19.15. Fram hefur hafið mótið
ágætlega og gert jafntefli í leikjun-
um tveimur á útivelli en ÍBV hefur
ekki byrjað vel og tapaði óvænt á
heimaveÚi fyrir Keflvikingum í síð-
ustu umferð.
Njáll Eiðsson þjálfari sagði ýmsar
ástæður fyrir ekki betra gengi í
byrjun mótsins en menn væru að
koma inn eftir meiðsli og það tæki
einfaldlega tíma að púsla liðinu
saman.
„Síðari hálfleikurinn gegn Kefl-
víkingum sagði okkur það að við
þurfum að laga ansi margt í okkar
leik, bæði hvað lýtur að vöminni og
sókninni. Mig grunaði fyrir mótið
að byrjunin gæti reynst okkur erfið
eins og koma er á daginn. Ég er að
vona að við náum að rétta úr kútn-
um en við erum ekki að missa af
neinu enn þá. Eitt er víst að það
kemur enginn okkur til hjálpar
nema við sjálfir. Ég sagði fyrir mót-
ið að það yrði jafnt og það hefur
sýnt sig nú þegar það eru allir að
vinna alla. Ég á von á erfiðum leik
en jafnframt hörkuleik gegn Fram í
kvöld. Framarar hafa á að skipa vel
spilandi liði og þar innanborðs eru
sterkir einstaklingar," sagði Njáll
Eiðsson í samtali við DV,
- Hvað hefur komið þér einna
mest á óvart fram að þessu í Síma-
deildinni?
„Mér flnnst KR-ingar hafa verið
hvað sprækastir til þessa og þeir
hafa verið að leika bestu knatt-
spymuna. Ósigur íslandsmeistar-
anna frá Skaganum gegn nýliðum
Þórsara var mjög óvæntur," sagði
Njáll.
Þrír leikir verða annað kvöld og
leika FH-KR, Keflavik-Fylkir og ÍA-
Grindavík. Umferðinni lýkur á
fimmtudagskvöldið með leik KA og
Þórs á Akureyri.
-JKS
Keane
Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði og
leikmaður írska landsliðsins í knatt-
spyrnu sagðist í gær vilja leika áfram
með írska landsliðinu. McCarthy, þjálf-
ari tra, rak hann heim frá Japan og er
ólíklegt að hann breyti ákvörðun sinni.
„Ég vil spila fyrir írland og held að
spila
það þrái enginn meira að leika fyrir Ir-
land en ég,“ sagði Keane í gær. Þegar
Keane var spurður hvort það kæmi til
greina að hann léki á HM sagði hann:
„Kannski er það möguleiki, kannski. En
það er stutt í fyrsta leik.“
-SK
vill
Knattspyrnufélagiö Augnablik ( Kópavogi fagnar 20 ára afmæli um
þessar mundir. Af því tilefni mættust Augnablik og leikmenn sem skip-
uöu landsliö íslands árið 1982 í vináttuleik á dögunum. Þar voru margir
frægir kappar á ferö en landsliöiö sigraði örugglega, 3-0. í landsliöinu
léku meðal annarra Ásgeir Elíasson, Ómar Torfason, Arnór Guöjohnsen
og margir frægir kappar aörir. Á myndinni heilsast fyrirliöar liöanna. Til
vinstri er Þórólfur Árnason, framkvæmdastjóri Tals og fyrirliöi Augna-
bliks og til hægri Ásgeir Sigurvinsson, fyrirliði landsliðsins. Á milli
þeirra er Magnús V. Pétursson, dómari leiksins og besti og frægasti
dómari íslands. Á minni myndinni er Ellert B. Schram, forseti íþrótta- og
Ólympíusambands íslands og heiöursgestur á leiknum að heilsa
Andrési Þéturssyni. DV-myndir E.ÓI.
Afturelding
lagði Sindra
0-1 Þorvaldur Guðmundsson (42.)
Leikur Sindra og Afturelding-
ar í 1. deild í knattspymu á
Homafirði í gærkvöld var frek-
ar tilkomulítill að horfa á.
Sindramenn voru heldur meira
með boltann framan af og fengu
gott færi er Kristinn Þór Guð-
laugsson komst einn inn fyrir
vörn gestanna en gott skot var
vel varið.
Afturelding skoraði svo á 42.
mínútu og var Þorvaldur Már
Guðmundsson þar að verki eftir
slæm mistök í vöm Sindra. Fátt
markvert gerðist í siðari hálfleik
og fór svo að gestimir fögnuðu
vel góðum sigri.
Maður leiksins: Nihad
Hasecic, Sindra. -GHa
Jí 2. DEILD KARLA
Víðir-Skallagrímur...........2-0
Haraldur Einarsson, Atli Hólmbergs-
son.
Leiknir R.-Selfoss...........1-3
Gissur Jónasson - Sigurður Andrés
Þorvarðarson 2, Ingþór Guðmunds-
son 2.
DEILD KARIA
Ægir-KFS .....................0-3
Árborg-Bruni .................2-2
HSH-Fjölnir...................1-1
Reynir S.-Grótta..............4-1
Magni-Neisti H................6-0
Vaskur-Eiling.................4-1
-JKS
Jón Arnór og
Logi til Frankfurt
Tveir af bestu leikmönnum ts-
lands í körfuknattleik, þeir Jón
Amór Stefánsson úr KR og Logi
Gunnarsson úr Njarðvík, eru á
leið til Þýskalands og munu æfa
með Frankfurt Opel Skyliners
sem leikur í efstu deild þar í
landi. Þetta boð kom í kjölfarið
á góðri frammistöðu þeirra á
móti i Frakklandi sem íslenskt
ungmennalið tók þátt í.
Skyliners er eitt sterkasta lið
Evrópu og lék í „Euroleague“ 1
vetur sem eru eins konar meist-
aradeild körfunnar.
Jón Arnór og Logi halda út 7.
júní og verða þar yfir helgi
ásamt Friðriki Inga Rúnarssyni
landsliðsþjálfara. Skyliners eiga
einnig tvö lið i 2. deúd og hugs-
anlegt að ef samningar nást að
þeir leiki með öðru hvoru liðinu
í 2. deild og verði síðan fluttir yf-
ir í aðalliöið ef þeir standa sig
vel þar. Jón Amór sagði í sam-
tali við DV-Sport að þetta sé eitt-
hvað sem gaman væri að prófa.
„Það er gaman að fara þama
út og sjá hvernig þetta er. Mað-
ur er bæði að spá í Bandaríkjun-
um og einnig Evrópu fyrir næsta
vetur. Eftir þessa helgi sér mað-
ur svo bara til hvemig manni
list á þetta.“ -Ben
NBA í nótt
Úrslitaleikur á vesturströndinni:
Boston-New Jersey . . .92-94 (2-2)
Pierce 31 (9 frák.), Walker 30 (9 frák.),
Rogers 12, Anderson 11 - Kittles 22,
Van Hom 21 (10 frák.), Kidd 19 (9
frák., 9 stoðs.), Harris 12.
Fimmti leikur er í New Jersey á
morgun. -EK
Gunnar Þór Gíslason, stjórnarformaður Stoke:
„Steve Cotterill er
mjög metnaðarfullur"
Steve Cotterill var í gær ráðinn nýr knattspymustjóri hjá Stoke sem
vann sér sæti í 1. deild í vor. Cotterill tekur við starfinu af Guðjóni Þórð-
arsyni en ákveðið var á dögunum að framlengja ekki samningi hans við
félagið. í yfirlýsingu Gunnars Þórs Gíslasonar, stjórnarformanns Stoke,
á blaðamannafundi í gær segir m.a. að Cotterill sé metnaðarfuflur þjálf-
ari sem stefnir að því að komast enn lengra í sínu fagi. Geröur var
þriggja ára samningur við Cotterill, sem er 37 ára gamall, og þykir hann
einn efnilegasti knattspymustjóri Bretlandseyja nú um stundir. -JKS
Tryggvi skoraði
og lagði upp eitt
Tryggvi Guðmundsson skoraði eitt marka Stabæk sem vann stórsigur,
5-0, á efsta liðinu, Molde, í norsku úrvalsdeildinni í knattspymu í gær-
kvöld. Tryggvi gerði þriðja mark leiksins og hefur þar með skorað fimm
mörk í deildinni en markahæstur er Harald Brattbakk hjá Rosenborg
með sex mörk. Marel Baldvinsson lék ekki með Stabæk vegna meiðsla
sem hann hlaut i landsleiknum við Norðmenn í síöustu viku. Jóhann B.
Guðmundsson var i byrjunarliði Lyn en var skipt út af á 72. mínútu. Lyn
er í efsta sætinu með 21 stig, Molde hefur 17 stig, Odd Grenland 16 stig
og Stabæk 15 stig.
-JKS
keppni í hveriu orði
Rafpostur: dvsport@dv.15