Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 • r3 Sport i>v Agli boðið til Ítalíu - æfir undir stjórn NBA-þjálfara í einum frægustu búðum Evrópu Körfuknattleikssamband ís- lands fékk boð um að senda lið á sterkt alþjóðlegt mót sem fram fór í Frakklandi dagana 17.-21. maí. Þetta mót var ætlað fyrir Frakka, Slóvena og Þjóðverja sem eru að undirbúa sig fyrir úrslitakeppnina í Evrópukeppni unglingalandsliða, drengjum fæddum 1984. íslandi og Hollandi gafst kostur á að senda lið til leiks en háð þeim skilyrðum að senda nokkra eldri leikmenn í bland við leikmenn fædda 1984. Var þetta skilyrði sett inn svo við yrðum með samkeppn- ishæf lið. Það var tekin sú ákvörðun að senda lið til leiks og var settur saman 12 manna hópur, sex leik- menn fæddir 1984, þrír fæddir 1983, tveir fæddir 1982 og einn 1981. Það var eitthvað um að leik- menn gætu ekki gefið kost á sér. Það gafst enginn tími til æfmga enda fyrirvarinn enginn. Þetta var fyrst og fremst frábært tæki- færi fyrir unga efnilega leikmenn til að öðlast reynslu. Liðið vakti mikla athygli allra sem voru á mótinu og sigurinn gegn Slóvenum kom mönnum hressilega á óvart og var það eitt- hvað sem enginn átti von á. Á mótinu voru hinir ýmsu útsendar- ar liða í Evrópu og eins voru að- ilar frá umboðsskrifstofum. Egill í góöum málum Egiil Jónasson var að taka þátt í sínu fyrsta landsliðsprógrammi og væntanlega ekki því síðasta. Egill er hávaxnasti núverandi leikmað- ur landsins en hann er 212 cm. Faðir hans er Jónas Jóhannesson, fyrrverandi landsliðsmaður úr Njarðvík. Egill vakti athygli og hefur nú fengið boð um að taka þátt í Big Man Camp í Treviso á Ítalíu. Það er Benetton Treviso, hið fornfræga lið, sem skipuleggur þessar körfuboltabúðir. Þama fara ein- göngu leikmenn sem er boðið svo þetta er mikill heiður fyrir Egii og íslenskan körfuknattleik. Það var ítalskur aðUi sem var á mótinu sem býður Agli pláss í þessum búðum. Fyrirtækið sem hann vinnur hjá fékk úthlutað tveimur plássum og vUdi hann bjóða Agli annað. Margir NBA-þjálfarar í þessum Big Man Camp verða aUir þjálfarar DaUas Mavericks, Rick Majerus, þjálfari háskólaliðs Utah og fyrrum NBA-þjálfari, ásamt ítölskum þjálfurum á veg- um Benetton Treviso. Það má því með sanni segja að þetta sé stórkostlegt ævintýri fyrir EgU. -Ben Egill Jónasson er hér til hægri ásamt þjálfara sínum, Einari Johannssyni. DV-mynd Ben Annar flokkur karla í handknattleik: Stjarnan vann I bráðabana Það var enginn smáleikur sem boðið var upp á í 2. flokki karla þegar Stjarnan og KA léku tU úr- slita um Islandsmeistaratitilinn. Eftir venjulegan leiktíma var jafnt og þrátt fyrir tvær framlengingar var ekki enn búið að fá niðurstöðu og því kom tU bráðabana þar sem Stjaman fékk vítakast og skoraði sigurmarkið og sigraði því 25-24. Bæði lið eiga heiður skilinn fyr- ir frábæra frammistöðu í leiknum og munu menn ekki gleyma þess- um leik í bráð. Þar með varð Stjaman bæði Islands- og deUdar- meistari þetta árið og ekki annað sagt en að uppskeran hafi verið góð þetta árið. KA með frumkvæðið framan af % &§8sííÉú$í>'' ’.aL íslandsmeistarar Stjornunnar éru her með bikarinn góða tyrir utan Vatsheim- iliö ettir urslitaleikinn gegn KA. Peir urðu einnig deddarmeistarar tyrr í vetur og jjá varð Stjarnan einnig Islands- meistari i 2. tiokki karia siðasta vetur. Konráð Óíafsson þjattaði einnig iiðlð I tytra og heíur náð itnum arangrt með 2. tlokkinn. DV-mynd Sen ■ Sjiagíf. l 9 má IfiSs Kj' ... T; S 'S ðjLí Mj Jr? k i • y i ' Æ, Jafnræði var með liðunum í fymi hálfleik og var jafnt i hálfleik, 10-10. KA náði síðan frumkvæðinu í upphafi seinni hálfleiks og leiddi með 3-4 mörkum. Stjömustrákar voru þó ekki á því að gefast upp og með mikilli baráttu komust þeir yf- ir, 20-19, þegar rúm mínúta var eft- ir. Baldvin Þorleifsson jafnaði 21-21 fyrir KA þegar 45 sekúndur voru eftir og Stjaman fékk síðustu sókn- ina. Viihjálmur Vilhjálmsson, helsti sóknarmaður Stjömunnar, tók síðasta skotið en markvörður KA sá við honum að þessu sinni og varði. Þvi varð að framlengja og voru KA-menn fyrri til að skora og var markið stórglæsilegt úr aukakasti á síðustu sekúndu fyrri hálfleiks framlengingar. Tvíframlengt og bráðabani Stjaman var síðan einum leik- manni fleiri í byrjun seinni hálf- leiks þar sem einn leikmaður KA var rekinn út af í tvær mínútur fyr- ir tuð. Þetta náði Stjaman ekki að nýta sér en vömin var góð og jafn- aði Stjaman 22-22 og þar við sat eft- ir fyrri framlenginguna. Bæði lið skoruðu sitthvort mark- ið í seinni framlengingunni og því varð að grípa til bráðabana. Kastað var upp peningi hvort liðið byrjaði með boltann og kom það í hlut Stjörnunnar. í bráðabana vinnur það lið sem skorar fyrst og því gríðarlega mikilvægt að fá að byrja meö boltann. I sókninni fékk Stjaman vitakast sem virtist vera frekar vafasamt, svo ekki sé meira sagt, og geta menn deilt um þann dóm vel og lengi. Úr vítakastinu kom sigurmarkið og fögnuöur Stjömunnar mikill enda hafði ýmislegt gengið á og sig- urinn einstaklega ljúfur. Vilhjálmur var sterkur hjá Stjömunni en var orðinn frekar þreyttur eftir venjulegan leiktíma. Ámi Þorvarðarson varði gríðarlega vel og reyndist sínum mönnum mikilvægur. 2* -Ben

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.