Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Side 32
JJ] 11 i\ii£3JÍJ£Í 'JÚU'J £l JjJUjjJj
J ja^ljJjJÍJ^JiJíJ
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
Sígaunarnir
farnir úr landi
Sautján sígaunar af rúmenskum
uppruna, sem reyndu að gerast póli-
tískir flóttamenn hér á landi, fóru
aftur utan með Norrænu nú í hádeg-
inu. Með þeim fóru einnig tveir Rúm-
enar til viðbótar, feðgar sem búsettir
eru í Þýskalandi. Að sögn lögreglu á
Seyðisfirði hafa ekki verið nein
vandræði með fólkið eftir að það kom
til Seyðisfjarðar í gær. Rúmenarnir
fóru um borð fyrir hádegi með þá
þrjá sendibíla sem þeir komu með til
landsins fyrir skömmu.
Hópurinn fór frá Reykjavík í fylgd
íjögurra lögreglumanna ásamt túiki
og fulltrúa Útlendingaeftirlitsins í
fyrradag í lest fimm bíla. Var gist á
Kirkjubæjarklaustri á leiðinni aust-
ur. Að sögn lögreglu gekk ferðin
vandræðalaust. -HKr.
Ríkisendurskoðun:
Alvarlegar at-
hugasemdir
- við Sólheima
Þjónustu við íbúa á Sólheimum í
Grímsnesi er ábótavant. Skortur er á
sérhæfðu starfsfólki. Stjómarfyrir-
komulag stofnunarinnar er ekki sem
skyldi.
Þetta er meðal þess sem kemur
ffam í úttekt ríkisendurskoðunar á
starfsemi Sólheima í Grímsnesi.
Skýrslan verður gerð opinber í dag.
Samkvæmt upplýsingum DV eru gerð-
ar alvarlegar athugasemdir við mun
fleiri atriði en upp em talin hér að
ofan. Stjóm Sólheima hefur nýtt sér
andmælarétt sinn i málinu. -JSS
Bolungarvík:
Enginn notaði
farsíma
Anton Helgason, formaður yfirkjör-
stjómar í Bolungarvík, fékk í gær
staðfestingu frá simafyrirtækjunum
þess efnis að enginn talningarmanna
hefði notað farsíma sinn milli kl. 21 og
22 á laugardagskvöldið. Þar með telur
Anton að búið sé að hreinsa sjálfstæð-
ismenn þar af ásökunum um smölun.
Kjörstjómin hélt fund í gærkvöld
þar sem málið var rætt. K-listamenn
munu enn vera þeirrar skoðunar að
einhver maðkur sé í mysunni en einn
úr þeirra röðum sagði við DV að þeir
vildu frekar halda friðinn en að kæra
þessar kosningar. Málinu er því að
öllum líkindum lokið. -HI
FIMMTUDAGUR 30. MAI 2002
FRETTASKOTIÐ
Sl'MINN sem aldrei sefur
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I sfma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV.
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhrlnginn.
550 5555
UTAN ÞJÓNUSTU-
SWEÐIS . ..
Hlutur lágvöruverðsverslana snareykst:
Úr 15% í 25%
af veltu
- gjörbreytt neyslumynstur
Hlutur lágvörðuverðsverslana í
heildarveltu á matvörumarkaði
hefur snaraukist
undanfarna
mánuði og miss-
eri. Samkvæmt
skýrslu Sam-
keppnisstofnun-
ar 2001 var hlut-
deild hennar rétt
ríflega 15% en
samkvæmt nýj-
um upplýsingum
ffá Hagstofunni
Guömundur
Martelnsson.
nálgast hún nú 25%.
Sem kunnugt er hefur Hagstof-
an að undanfomu aukið vægi lág-
vöruverðsverslana við útreikning
á vísitölu neysluverðs. Ástæðan er
þær breyttu neysluvenjur sem
endurspeglast í fyrrgreindum töl-
um og talið er að séu bein
afleiðing af aukinni verðbólgu,
enda kom hún fram á sama tíma
og verðbólga jókst.
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, segir að
viðskiptavinum Bónuss hafi fjölg-
að um ríflega 50% imdanfarið eitt
og hálft ár. Verslunum keðjunnar
hefur fjölgað um sex, eða úr ellefu
í sautján, á þessu tímabili. Fjölgun
verslana er hins vegar ekki orsök
þess að viðskiptavinum hefur
fjölgað að sögn Guðmundar heldur
afleiðing af því; neytendur stýri
þessari þróun, enda til lítils að
opna verslanir vítt og breitt ef eft-
irspum væri ekki fyrir hendi.
Guðmundur segir að Bónus sé
með um 50% af allri matvörusölu
Baugs-samsteypunnar og verslan-
imar séu reknar réttum megin við
núllið. Fram hefur komið hjá
Baugi að afkoma matvörusviðs
hafi verið óviðunandi i fyrra. Guð-
mundur segist ekki geta tjáð sig
um hvort, og þá að hve miklu
leyti, aukin ásókn í verslanir Bón-
uss hafi komið niður á öðrum
verslunum Baugs og hagnaði fyrir-
tækisins í heild.
Þess má geta að í nýju 14
mánaða uppgjöri Baugs kemur
m.a. fram að sérstakar aðgerðir,
sem miðað hafi að því að verja
„rauða strikið", hafi valdið um 40
milljónum króna minni framlegð
en ella.
-ÓTG
DV-MYND SIGURÐUR HJÁLMARSSOn|
Vorboöar í Vík
Ungviöi vorsins er ægifagurt, svo sem þetta folald sem fæddist austur í Vík í
Mýrdal í gærmorgun. Það var merin Molda, sem er tuttugu og fjögurra vetra, é
sem kastaöi þessu folaldi. Þetta er annaö merfolald hennar, hin hafa veriö *
hestfolöld. Eigandi Moldu er Björn V. Sæmundsson en unga stúlkan, sem er
á myndinni og kom við folaldiö fyrst allra, er Harpa Rún Jóhannsdóttir. á
Hótelframkvæmdir í Reykjavík vekja athygli:
120 herbergi á árinu
- sem vitað er um með vissu. Margar hugmyndir í gerjun
„Það munu bætast um 120 her-
bergi við á hótelum í Reykjavík á
þessu ári og síðan um 130 á því
næsta. Þetta er það sem er í hendi
en fjölgunin er um 10 prósent hvort
ár. Síðan eru margar hugmyndir
um hótelbyggingar sem ekki er vit-
að hvenær hrint verður í fram-
kvæmd,“ segir Þorleifur Þór Jóns-
son, hagfræðingur hjá Samtökum
ferðaþjónustunnar, við DV.
Framkvæmdir við Hótel Esju á
Suðurlandsbraut vekja athygli
margra sem leið eiga um næsta ná-
grenni en verið er aö tvöfalda bygg-
inguna til austurs. Um 130 herbergi
verða tekin þar í notkun á næsta
ári. Á þessu ári verða hins vegar
tekin í notkun um 120 herbergi í
Reykjavík. Þar af eru 66 á Hótel
Barón á homi Skúlagötu og Baróns-
stigs, 41 á 101-hótel í gamla Alþýðu-
húsinu og síöan 18 herbergja viðbót
á Hótel Leifi Eirikssyni á Skóla-
vörðuholti.
Af hugmyndum sem era í gerjun
má nefna stækkun Grand Hótels við
Sigtún, en þar hefur fengist leyfl
fyrir tumbyggingu, hótel í Lands-
simahúsinu við Austurvöll, hótel á
horni Aðalstrætis og Túngötu, í
Kjörgarðshúsinu við Laugaveg og
víðar. Þá eru hugmyndir um ráð-
steöiu- og tónlistarhús við Reykja-
víkurhöfn ekki komnar i fókus.
Þorleifur Þór segir að um þrenns
konar gistirými sé að ræða í borg-
inni, hótel, gistiheimili og
heimagistingu. Erfitt væri að henda
reiður á fjölgun herbergja því
stundum tækju til starfa 10-15 her-
bergja gistiheimili án þess vitað
hafi verið um þær fyrirætlanir og
fjöldi heimagistinga væri breytileg-
ur.
Tölur frá Hagstofunni segja að
fjöldi herbergja á höfðborgarsvæð-
inu sé tæplega 1400.
Fjölgunin hefur verið lítil undan-
farin ár. Fiölgun gistirýma verður I
slumpum eins og t.d. þegar Hótel
Skjaldbreið og Klöpp voru tekin í
notkun og þar áöur Cabin Hótel í
Borgartúni.
Þorleifur Þór segir of snemmt að
segja til um hvort fjölgun hótelrýma
sé of mikil eða lítil. Þegar Hótel
Borg hafi verið byggð á sínum tíma
hafi menn sagt að þá væri komið
nægjanlegt gistirýni í borginni
næstu 40 árin. Sumir hugsuðu enn á
svipuðum nótum, þætti gistirými of
mörg. Hins vegar lægi fyrir að fjölg-
un gistirýma og aukning í fjölda
ferðamanna héldist ekki í hendur.
Aukningin hefði að mestu verið
utan háannatímans sem þýddi betri
nýtingu á því gistirými sem þegar
væri fyrir hendi. -hlh
Pínulítið kvíðin f
„Auðvitað er ég pínulítið kvíðin,"
það gefur auga leið. Hins vegar geng
ég aö þessu verk-
efni eins og öðrum
sem ég tek að mér
og vinn eins vel og
ég get,“ sagði
Ragnheiður Rík-
harðsdóttir, odd-
viti D-lista, í morg-
un. Hún verður
næsti bæjarstjóri í
Mosfellsbæ. Ragn-
heiður hefur gegnt
starfl skólastjóra í
hún segir nú lausu. i
Hún kvaðst vera með breiðan hóp|
fólks sér að baki þannig að hún stæði
ekki ein í eldlínunni. Hún kvaðst ekkii
geta neitað því að hún tæki við erfiðujj
búi i MosfeUsbænum.
Ákveðnar breytingar væru fyrir-
hugaðar í stjómsýslunni þannig aðj
hún yrði opnari. Fyrsta skrefið værr
að kjörinn bæjarfulltrúi yrði bæjar-
stjóri. Ragnheiður kvaðst ekki vera að j
gagnrýna Jóhann Siguijónsson með"
þessum orðum, hann hefði unnið sitt
starf af stakri prýði. -JSS í
Ragnheiöur ,
Ríkharösdóttir. [
Hjallaskóla sem
Mikil óánægja meðal póstbera íslandspósts í Garðabæ:
Hafna nýju fýrirkomulagi
- segja dreifingarsvæði stækkuð en launin þau sömu
Mikil óánægja ríkir meðal póst-
bera í Garðabæ vegna endurskipu-
lagningar á dreifingarsvæðum.
Þeir hafa hafnað nýju fyrirkomu-
lag sem átti að ganga í gildi þessa
dagana. Þeir telja að tiltekin út-
burðarsvæði séu stækkuð langt
umfram það vinnuhlutfall sem
þeim beri að vinna án þess að
aukagreiðslur komi fyrir. Auk
Garðabæjar verða slíkar breyting-
ar einnig gerðar á öðrum svæðum
íslandspósts, þar á meðal í Breið-
holti og Kópavogi.
Endurskipulagningun er í tengsl-
um viö tilkomu flokkunarvélar í
póstmiðstöðinni sem ætlað er að
taka hluta af þeim störfum sem
bréfberamir hafa unnið.
Þuríður Einarsdóttir, formaður
Póstmannafélags íslands, staðfesti
að kvartanir hefðu borist frá bréf-
berum til félagsins vegna þessara
breytinga. Málið væri í endurskoð-
un hjá íslandspósti og vonast væri
til þess að lausn fyndist á því. í
Breiöholti væri farið að vinna eftir
nýja skipulaginu. Póstberar í Kópa-
vogi hefðu sent Póstmannafélaginu
undirskriftarlista þar sem nýja fyr-
irkomulaginu væri mótmælt.
„í sjálfu sér getur fólkið ekki neit-
að þessu en það getur að sjálfsögðu
mótmælt ef því þykja þetta óheyri-
lega miklar stækkanir á dreifmga-
svæðum sem ég er í sjálfu sér alveg
sammála af lýsingum að dæma,“
sagði Þuríður. „En fyrirtækið er að
fara yfir málið og athuga hvort ein-
hverjar villur séu í þeim forsendum
sem endurskipulagningin er byggð
á.“
Sérfraeðingar
í fluguveiði
Sportvörugerðin hf..
Skipholt S. s. 562 »3K3.